Morgunblaðið - 12.12.2003, Síða 76

Morgunblaðið - 12.12.2003, Síða 76
ÍÞRÓTTIR 76 FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ BRASILÍSKI sókn- armaðurinn Ailton, sem leikur með Werder Bremen og er marka- hæsti leikmaður þýsku Bundesligunnar, á sér þann draum að leika með Þjóðverjum í úr- slitakeppni HM sem fram fer í Þýskalandi 2006. Ailton, sem þrítugur og hefur skorað 14 mörk á leiktíðinni, seg- ist gjarnan vilja gerast þýskur ríkisborgari og eiga þar með möguleika á að kom- ast í þýska landsliðið. Ailton hefur verið í herbúðum Werder Bremen frá árinu 1998 en á næstu leiktíð söðlar hann um og gengur til liðs við Schalke en hann hefur þegar gert samning við félagið. Ailton hefur aldrei fengið að spreyta sig með landsliði Brasilíu en hann segist geta orðið Þjóðverjum að liði. „Það yrði mikill heiður að spila fyrir Þýskaland og það yrði ekkert vandamál fyrir mig að skipta um þjóðerni eftir fimm ára dvöl í landinu,“ segir Ailton. Ailton vill spila með Þjóðverjum á HM Ailton FÓLK  ÓLAFUR Stefánsson skoraði 7 mörk, þar af 4 úr vítaköstum, fyrir Ciudad Real þegar liðið sigraði Valencia, 33:27, á útivelli í spænsku 1. deildinni í handknattleik í fyrra- kvöld.  BARCELONA fylgir Ciudad Real eins og skugginn en Börsungar unnu öruggan heimasigur á Alm- ería, 35:27. Iker Romero skoraði 8 mörk fyrir Barcelona og þeir Ja- rome Fernandez og Enric Masip gerðu 6 hver. Ciudad Real er með 26 stig í efsta sæti, Barcelona 25 og þar á eftir koma Ademar Leon og Portland San Antonio með 21 stig.  PAUL McShane, skoski miðvall- arleikmaðurinn sem leikið hefur með Grindvíkingum undanfarin ár í efstu deild í knattspyrnu, hefur gert nýjan samning við Grindavík- urliðið og gildir samningurinn til ársins 2006.  LEICESTER City hefur sýnt áhuga á að kaupa enska landsliðs- manninn Nicky Butt frá Manchest- er United. Butt hefur fengið fá tækifæri með Englandsmeisturun- um á leiktíðinni og hefur hann látið hafa eftir sér að hann kunni að róa á önnur mið. Micky Adams, stjóri Leicester, er sagður tilbúinn að greiða 3 milljónir punda fyrir miðjumanninn.  SIR Bobby Robson, knattspyrnu- stjóri Newcastle, vill sömuleiðis klófesta Nicky Butt og hefur heyrst úr herbúðum þeirra röndóttu að Newcastle ætli að bjóða Manchest- er United 7 milljónir punda í Butt, sem er 29 ára gamall og hefur spil- að 31 leik með enska landsliðinu.  KEVIN Kuranyi, framherji Stuttgart, toppliðsins í þýsku Bundesligunni í knattspyrnu, hefur ákveðið að skrifa undir nýjan samn- ing við Stuttgart að sögn Karl- Heinz Försters, umboðsmanns leik- mannsins. Mörg félög hafa á und- anförnum misserum borið víurnar í Kuranyi, sem er fæddur í Brasilíu, þar á meðal ítölsku liðin AC Milan og Inter ásamt þýsku liðunum Dortmund, Leverkusen og Schalke.  FULHAM hefur augastað á franska leikmanninum Emmanuelle Petit, miðvallarleikmanni Chelsea. Petit hefur lítið leikið með liðinu – þar sem hann hefur verið meiddur.  THIERRY Henry, miðherji Ars- enal, var í gær útnefndur Knatt- spyrnumaður ársins í Evrópu hjá franska blaðinu Onze Mondial og Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, var útnefndur þjálfari árs- ins. Þeir leikmenn sem fengu flest atkvæði voru Thierry Henry 34,25%, Zinedine Zidane (Real Madrid) 18,35%, David Beckham (Real Madrid) 13,95%, Pavel Ned- ved (Juventus) 9,1%, Raul (Real Madrid) 6,9%, Ruud van Nistelrooy (Man. Utd.) 5,65%. ÞRÁTT fyrir að Bayern München hafi náð sigri á Anderlecht og komist áfram í 16-liða úrslit, eru Bæjarar áhyggjufullir. Franz Becken- bauer, forseti liðsins, sagðist vera ánægður með að liðið komst áfram, en ekki með hvernig það leikur. „Það sem ég sá, var ekki líkt þeirri knattspyrnu sem ég óska eftir að horfa á. Ef liðið heldur áfram á þessari braut geta leikmenn gleymt einhverjum frama í meistaradeildinni.“ Oliver Kahn, fyrirliði liðs- ins, segir að leikmenn hafi leikið af fimmtíu prósent getu gegn Anderlecht. Áhyggjur Bæjara Drátturinn verður með þeimhætti að liðin sem höfnuðu í efsta sæti í riðlunum átta dragast á móti liðunum sem lentu í öðru sæti en þó geta lið ekki dregist saman sem voru í sama riðli, til að mynda Manchester United og Stuttgart, og heldur ekki lið frá sama þjóðlandi. Þannig er það ljóst að ensku liðin Arsenal, Chelsea og Manchester United dragast ekki saman og heldur ekki Evrópumeistarar AC Milan og Ítalíumeistarar Juventus. Eins og fyrr segir eiga Spán- verjar flesta fulltrúa í 16 liða úr- slitunum – fjögur lið frá Spáni verða í pottinum í dag, þrjú ensk, tvö ítölsk, tvö þýsk, tvö frönsk og eitt frá Tékklandi, Portúgal og Rússlandi. Sigurvegarar riðlanna Lyon (Frakklandi) Arsenal (Englandi) Mónakó (Frakklandi) Juventus (Ítalíu) Man. Utd (Englandi) Real Madrid (Spáni) Chelsea (Englandi) AC Milan (Ítalíu) Liðin í öðru sæti Bayern München (Þýskalandi) Lokomotiv (Rússlandi) Deportivo (Spáni) Real Sociedad (Spáni) Stuttgart (Þýskalandi) Porto (Portúgal) Sparta Prag (Tékklandi) Celta Vigo (Spáni) Fyrri leikirnir í 16 liða úrslit- unum fara fram 24. og 25. febrúar og síðari leikir 9. og 10. mars. Lið- in sem lentu í öðru sæti í riðla- keppninni fá fyrst heimaleik. 8 liða úrslitin eru á dagskrá 23. og 24. mars og 6. og 7. apríl. Und- anúrslitin 20. og 21. apríl og 4. og 5. maí og úrslitaleikurinn fer fram í Gelsenkirchen í Þýskalandi, heimavelli Schalke, 26. maí. Sterk lið í UEFA-keppninni Þá verður í dag dregið til 32 liða úrslitanna í UEFA-keppninni en mörg sterk sterk lið eru í keppn- inni. Liðin átta sem lentu í þriðja sæti í riðlakeppni Meistaradeild- arinnar koma inn í UEFA-keppn- ina og verða í styrkleikaflokki eitt ásamt öðrum átta félögum sem samkvæmt sérstökum stigaút- reikningi eru í efstu sætum. Liðin sem eru í styrkleikaflokki eitt og geta þannig ekki lent saman eru: Celtic, Inter, PSV, Galatasaray, Panathinaikos, Marseille, Besikt- as, Club Brugge, Barcelona, Liver- pool, Roma, Parma, Mallorca, Bor- deaux og Newcastle. Meðal liða í öðrum styrkleika- flokki eru Rosenborg, Bröndby, Auxerre, Benfica og Vålerenga. Dregið í 16 liða úrslit Meistaradeildarinnar í dag og í UEFA-keppninni Mikil spenna í Nyon UM hádegisbil í dag verður dregið í 16 liða úrslit Meist- aradeildar Evrópu í knatt- spyrnu og í 32 liða úrslit í UEFA-keppninni í höfuðstöðv- um evrópska knattspyrnu- sambandsins, UEFA, í Nyon í Sviss. Spánverjar eiga fjögur lið í Meistaradeildinni, Real Madrid, Celta Vigo, Deportivo La Coruna og Real Sociedad. Englendingar þrjú – Manchest- er United, Arsenal og Chelsea. Ítalir eiga liðin tvö lið – Evr- ópumeistara AC Milan, sem vann Juventus í úrslitaleik sl. keppnistímabil í vítaspyrnu- keppni á Old Trafford. AP Jimmy Floyd Hasselbaink, leikmaður Chelsea, gengur af leik- velli undir regnhlíf í Gelsenkirchen í Þýskalandi – til að verjast smápeningakasti tyrkneskra áhorfenda. Ruud van Nistelrooy skorar mark sitt gegn Stuttgart og jafnar markamet Denis Law.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.