Morgunblaðið - 12.12.2003, Side 83
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2003 83
Á löngu tímabærri breiðskífu
þeirra félaga fara þeir og oft á kost-
um. Byrjar af krafti strax í öðru lag-
inu, „Hráefni“, þar sem hljómsveitin
kynnir sig, og síðan hitnar í kolunum í
„Þú nærð mér“ sem er með vel póli-
tískum texta.
Í „Hráefni“ má vel heyra hvað þeir
félagar ráða vel við formið og í „Nátt-
úru“ er afbragðs vel rappað, taktur-
inn skapaður með hrynjandi orðanna
og lipurri raddbeitingu, lækkun og
hækkun. Í „Gefum skít!“ fara þeir
líka aldeilis á kostum, tæta í sig tón-
listar- og auglýsingaiðnaðinn og
hakka samkeppnina á einu bretti,
kjamsa á henni og spýta svo út hrat-
inu og svo má tína til vel heppnuð lög
af skífunni, af nógu er að taka.
Þó þeir séu allir framúrskarandi á
skífunni á Cleas Bé einna skemmti-
legustu sprettina, er til að mynda í
banastuði í „Gúdd rapp“ í kafla sem
byrjar svo: „Ég er svo fokking fersk-
ur að Smint gerir mig bara andfúlan /
það er ekkert annað band núna eða
nokkurn tíma / sem hægt er að leggja
að jöfnu svo þú skalt þekkja nöfnin /
ClassBje, það er ég, Byrkir, Intro,
B-Ruff og DiddiFelix / við erum FL
crew, með tvö stykki mixer og SL / 3
tæki sem nema hljóðið okkar“ Þeir
fara reyndar allir á kostum í því lagi,
Byrkir byrjar af krafti: „ég er sá ill-
asti þegar ég rappa dude / fólk klapp-
ar þegar mitt rapp er thrú / meðan þú
ert eins og fífl/asni / sem vantar allt
fokkin attitude“ þá kemur ClassBje
með maraþonrímuna og DiddiFel á
endasprettinn: „Ég rúlla upp röppur-
um og burna þá / eins og ég færi með
feitt spliff / FL bara með eitt hitt? þið
hafið greinilega ekki heyrt shit.“ Frá-
bært lag.
Annað gott lag er „Lag eftir dag“,
innihaldsríkur texti, grípandi viðlag,
flottur taktur - hvers vegna hljómar
þetta lag ekki í útvarp-
inu dag eftir dag? Ekki
má svo gleyma „Rök-
ræðum“, bráðfyndinn
sprettur þar sem sam-
an er stefnt ungum
lífsglöðum listamanni
á notaðri Lödu og ung-
um metnaðarfullum
kaupsýslumanni á
glænýjum Benz:
„Fokk jú, Benz eða Lada / þú ert
holdgervigur satans / það eina á milli
þín og helvítis er þessi gata.“ Lagið er
sérdeilis vel sett saman, takturinn
góður og skipt um stemmningu í und-
irspilinu eftir því hvor er að tala. Ekki
fer á milli mála hvar samúð höfund-
anna liggur í laginu, en skemmtilega
komist hjá því að segja það berum
orðum.
Týndi hlekkurinn er býsna löng
plata, 18 lög, tæpar 70 mínútur, en
ekki eru þó á henni nema eitt að tvö
lög sem ég felli mig ekki við, helst að
stemmningin detti eilítið niður í „All-
ur tími í heiminum“ og „Sannleikur-
inn“ endursagður, en í síðara laginu
sigrar efnið nánast andann. Síðan
hefst stuðið aftur með „Kapital og
hefnd“, þá kemur áðurnefnd „Rök-
ræða“ og svo hvert snilldarlagið af
öðru, „Veröld“, „Heimsins virði“, þar
sem Aess á frábæran sprett, og
„Vetrarríkið“, hvert öðru betra.
Undirleikur á plötunni er almennt
til fyrirmyndar, taktarnir fjölbreyttir
og hljómur góður. Þeir Intro og
DiddiFel nota hljóðsmala af lipurð og
fara vel með tilvitnanir, Bubbi kemur
til að mynda sterkur inn, og skrámið
hjá Intro og B-Ruff er mjög gott,
mætti jafnvel vera meira. Umslagið
er líka gott, en ef eitthvað er út á þesa
skífu að setja þá er það helst að ekki
sé textarnir prentaðir með í umslagi.
Líkt og í rokkinu má segja að í hip-
hopinu sé hver hljómsveit sín eigin
tónlistarhreyfing, skapar eigin stíl og
ryður eigin brautir. Forgotten Lores
eru nokkuð sér á báti, rímurnar þétt-
ari, læstari og gefa líka meira en hjá
flestum þegar í þær er rýnt. Týndi
hlekkurinn er frábær plata, kjarngóð,
nærandi og styrkjandi, nýtt viðmið
fyrir íslenska textasmiði.
Árni Matthíasson
TALSMENN Chris Martins, söngvara Coldplay, og leikkonunnar
Gwyneth Paltrow hafa loksins staðfest að þau séu búin að gifta
sig.
Morgunblaðið greindi frá því í fyrradag að hin leynilega og
látlausa giftingarathöfn hefði farið fram í Santa Barbara í Kali-
forníu á föstudaginn var, stuttu eftir að þau urðu sér út um hjú-
skaparleyfi sem gerði þeim kleift að giftast innan 90 daga.
Paltrow, sem er 31 árs, og Martin, sem er 26 ára, greindu frá
því fyrir nokkrum dögum að þau ættu von á barni næsta sumar.
Hjónin kynntust baksviðs eftir tónleika Martins og félaga í
Coldplay fyrir ári. Þau eyða nú hveitibrauðsdögunum í Mexíkó.
Gengu í hjónaband
AP
Fimm ára aldursmunur er á hjónunum því
Martin er 26 ára og Paltrow 31 árs.
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
Sýnd kl. 6 og 8.
Skonrokk FM909
ÞÞ FBL
HJ MBL
HK DV
Kvikmyndir.com
500 kr fyrir námsmenn gegn
framvísun nemendaskírteina
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 6 og 9. B.i. 14.
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 16.
Ein magnaðasta stórmynd ársins
loksins í bíó! Russell Crowe hefur aldrei
verið betri. Missið ekki af þessari!
Matrix No! Master Yes!
Rolling Stone
Roger Ebert
Chicago Sun-Times
Boston Herald
Washington Post
Los Angeles Daily News
Master-ful!
New York Post
HJ MBL
"Flott og vönduð
stórmynd"
ÞÞ FBL
Sannsöguleg mynd um John Holmes, stærstu
klámstjörnu heimsins, og hin hrottalegu
Wonderland morð.
EIN MEST SLÁANDI MYND ALLRA TÍMA!
EKKI VIÐ HÆFI VIÐKVÆMRA!
Sýnd kl. 6 og 10. Stranglega bönnuð yngri en 16 ára
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 10 ára.
Kvikmyndir.com
Kl. 6, 8 og 10. Með ensku tali og ísl. texta.
Sýnd kl. 4 og 6. Með íslensku tali.
Sýnd kl. 4 og 6. Með íslensku tali.
Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 8 og 10. Stranglega bönnuð yngri en 16 ára
Sýnd kl. 4. Með íslensku tali.
Tilboð 500 kr.
Frábær skemmtun fyrir
alla fjölskylduna
„ATH!SÝND MEÐÍSLENSKU OGENSKU TALI“
Kvikmyndir.com
Sannsöguleg mynd um John Holmes, stærstu
klámstjörnu heimsins, og hin hrottalegu
Wonderland morð.
EIN MEST SLÁANDI MYND ALLRA TÍMA!
EKKI VIÐ HÆFI VIÐKVÆMRA!
Hvernig getur ein lítil gömul kona
breytt drauma-
heimilinu í martröð?
Vinsælasta mynd ársins
í USA.
Vinsælasta teiknimynd
frá upphafi í USA.
Frá framleiðendum Toy Story og Monsters Inc.
Kvikmyndir.com
HJ. Mbl
Kvikmyndir.com