Morgunblaðið - 12.12.2003, Page 85
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2003 85
TALAÐ hefur verið um visnun ís-
lenska hipp-hoppsins vegna þess að
færri slíkar plötur
koma út í ár en síð-
ustu tvö ár. Það er
rangt. Enn er líf í
rótum hipp-hopps-
ins á Íslandi og
sums staðar
blómstar það og dafnar meira en
nokkru sinni áður. Sönnun þess er
nýja platan norðlensku Skyttnanna.
Illgresi er spennandi hipp-hopp
plata, ævintýraleg, þétt, svöl, gríp-
andi, fyndin og ófyrirsjáanleg.
Rappið er blátt áfram, skeleggt og
taktvisst. Textarnir íslenskir, heim-
spekilegar vangaveltur um lífið og
tilveruna. Heilræðavísur, samfélags-
rýni, skot í allar áttir, á frægðar-
drauma, þotugengi, kaupæði og
tjokkópakkið. Aldrei þó farið yfir
markið, aldrei gripið til gífuryrða
eða nærgöngulla og persónugerðra
árása eins og hingað til hefur virst
nauðsyn í íslensku hipp-hoppi. Nei,
þær kunna sig Skytturnar. Eru
þroskaðir strákar.
Og talandi um þroska þá er tón-
listin sér kapítuli út af fyrir sig því
sjaldan hefur hún fundist safaríkari
og frjórri á íslenskri hipp-hopp-
plötu. Segja má að þeir Sadjei og
Nolem sem eiga víst heiðurinn að
tónlistinni framar öðrum hafi unnið
þar minni háttar kraftaverk því þeir
afreka með glæsibrag það sem svo
mörgum öðrum hefur mistekist, að
brúa bilið milli hipp-hopps og gít-
arpoppsins. Takturinn – helst of til-
breytingalaus á köflum – er alltaf
með djúpar rætur í hipp-hoppinu en
er býsna Bonham-legur á köflum
sem er vel viðeigandi. Sömplun
Sadjei er hófstillt en alltaf áhrifa-
aukandi og frjó. Það er samt fjöl-
breyttur, lífrænn og leitandi gítar-
leikur Nolems sem gefur tónlistinni
það gildi sem vegur hana uppyfir
flest annað sem maður hefur heyrt í
íslensku hipp-hoppi og gerir tónlist-
ina að einhverju alveg nýju.
Þetta er ekki flókin tónlist og í
sjálfu sér ekkert framandi. Lögin
eru grípandi, hreint ferlega ávana-
bindandi og við hverja hlustun finn-
ur maður sér nýtt uppáhaldslag.
Fyrst var það „Logn á undan storm-
inum“ hjá mér enda gefur það um
margt tóninn um þá snilld sem á eft-
ir fylgir. Þar er líka gott dæmi um
hversu mikið gítarstef Nolems gera
fyrir tónlist Skyttnanna. Svo féll ég
fyrir næsta lagi á eftir, „Týndur
meðal fólksins“, ekki síst fyrir frá-
bæran takt og snjallan texta um
hvernig við erum öll steypt í sama
mót af samfélaginu. Þá kveikti ég á
„Ég ætla aldrei“, sem byggist á
gömlu Chicago-lagi!, og tek heils-
hugar undir með þeim Skyttum. Ég
ætla ekki heldur að verða eins og
þeir. A-ess fyllir „Guðlast“ af sál en
um þessar mundir held ég ekki vatni
yfir snilldinni sem „Ólíklegur lífleg-
ur“ er en þar rís kannski hæst gít-
arsmekkvísi Nolems. Hipp-hopp og
Mogwai saman í bræðingi. Þvílík
snilld.
Þótt lítið hafi borið á Skyttunum
síðasta veifið þá eru þær meðal
frumkvöðla í íslensku hipp-hoppi og
með þessari fyrstu alvöru breiðskífu
sinni Illgresi hafa þær lagt línurnar
um framtíð íslenska hipp-hoppsins.
Magnað hvað það sem þeir kalla ill-
gresi er blómlegt þarna fyrir norð-
an.
Tónlist
Blómstr-
andi
illgresi
Skytturnar
Illgresið
Bitra/Sonet
Skytturnar eru: Raddir, textar: Heimir
Bjéjoð, Hlynur, GLS. Forritun, sömpl:
Sadjei. Gítar: Nolem. Rafmagnspíanó,
orgel: Styrmir. Einnig koma fram Diddi
fel, Class B, Byrkir, a-ess. Lög eftir Skytt-
urnar. Upptökustjórn Sadjei. Útsetningar
og hljóðblöndun Sadjei og Nolem. Útgef-
andi Bitra og Sonet. Dreifing Sonet.
Skarphéðinn Guðmundsson
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 16.
ÁLFABAKKI
Kl. 8 og 10.15. B.i. 12.
KEFLAVÍK
Kl. 5.30, 8 og 10.30.
KEFLAVÍK
Kl. 10.15. B.i. 16.
KEFLAVÍK
Sýnd Kl. 8. B.i. 16.
AKUREYRI
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30.
Frá framleiðendum Four Weddings,
Bridget Jones & Notting Hill
KRINGLAN
Sýnd Kl. 9 og 11.15. B.i. 16.
Fráframleiðendum
Four Weddings,
Bridget Jones &
Notting Hill
Kemur
jólapakkinn í ár
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 4 OG 8.
„100% ÓMISSANDI“
NEWS OF THE WORLD
KRINGLAN
Sýnd kl. 4.50 og 6.55. Ísl. tal.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6. Ísl. tal
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.50 og 5.55. Ísl. tal.
Sýnd kl. 3.50, 5.55, 8, 10.10. Enskt. tal.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 6. Ísl. tal.
Vinsælasta mynd ársins
í USA.
Vinsælasta teiknimynd
frá upphafi í USA.
Frá framleiðendum Toy Story og Monsters Inc.
Kvikmyndir.com
„ATH!SÝND MEÐÍSLENSKU OGENSKU TALI“
HJ. Mbl
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. B.i. 16 ára.
Veistu hvað gerðist í húsi þínu,
áður en þú fluttir inn ??
HJ.MBL
Kvikmyndir.isGH. Kvikmyndir.com
Frá framleiðendum Four Weddings,
Bridget Jones & Notting Hill
Frumsýning
Kvikmyndir.com