Morgunblaðið - 12.12.2003, Síða 88
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
LANDSBANKINN hyggst efna til hug-
myndasamkeppni um breytingar á húseign-
um bankans á reitnum milli Austurstrætis,
Hafnarstrætis og Pósthússtrætis og nýtingu
þessa svæðis til að hleypa auknu lífi í miðborg-
ina. Öllum er heimil þátttaka í samkeppninni.
Björgólfur Guðmundsson, formaður banka-
ráðs Landsbankans, segir að þessar hug-
myndir tengist hugsanlegum breytingum á
aðalstöðvum hans, en sótt hafi verið um lóð
undir nýjar aðalstöðvar við Reykjavíkurhöfn.
„Þegar við fórum að hugsa þetta mál sem
gamlir Reykvíkingar fannst okkur að það
væri alveg tími til kominn að sameina þessa
flutninga og byggingu því hvort ekki væri
hægt að gera eitthvað fyrir miðbæinn.“
Björgólfur sagði að í framhaldinu hefði ver-
ið ákveðið að efna til hugmyndasamkeppni
meðal almennings um það hvað hægt væri að
gera til að lífga upp á miðbæinn, gera hann
skemmtilegri og að miðdepli mannlífsins í
borginni, hvort sem um væri að ræða menn-
ingarlíf, athafnalíf eða annað.
Landsbankinn hefur látið teikna upp hug-
myndir að breytingum til að gefa vísbend-
ingar um hvað hægt er að gera og svona
kæmi bankinn til með að líta út ef viðbygg-
ing út að Pósthússtræti hyrfi.
Hugmynda-
samkeppni um
nýtingu Lands-
bankahússins
Auknu lífi/4
Í TILLÖGUM stjórnarnefndar Landspítala –
háskólasjúkrahúss til að mæta minnkandi
fjárveitingum til spítalans á næsta ári er gert
ráð fyrir uppsögnum hátt í 200 starfsmanna í
öllum stéttum, ýmsum breytingum á starfs-
skipulagi og að dregið verði úr margs konar
starfsemi. Þannig er m.a. útlit fyrir samdrátt
í starfi félagsráðgjafa, í sjúkraþjálfun, prests-
þjónustu og hjá rannsóknarfólki, einnig hjá
ýmsum deildum er sinna tækniþjónustu og
ráðgjöf.
Tillögurnar voru kynntar heilbrigðisráð-
herra og fjármálaráðherra í gær. Jón Krist-
jánsson heilbrigðisráðherra vildi ekki tjá sig
um tillögurnar í gær. Tillögurnar voru einnig
kynntar sviðsstjórum spítalans í gær.
Ekki auknar fjárveitingar
Magnús Pétursson, forstjóri Landspítala –
háskólasjúkrahúss, segir að eftir viðræður
fulltrúa LSH við heilbrigðisráðherra og fjár-
málaráðherra í gær sé ljóst að hrinda verði
tillögunum í framkvæmd. Hvorugur ráð-
herranna hafi léð máls á því að auka fjárveit-
ingar til spítalans. „Þannig að nú á ekkert að
tvínóna við hlutina heldur bara hrinda þessu í
ir,“ sagði Guðný Sverrisdóttir, formaður
stjórnarnefndar, í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins.
Pólitísk ákvörðun
Már Kristjánsson yfirlæknir er annar
fulltrúi starfsmanna í stjórnarnefndinni.
Hann tjáði Morgunblaðinu að miðað við ný-
samþykkt fjárlög vantaði 1.100 til 1.400 millj-
ónir króna til að halda úti sömu starfsemi og
á þessu ári. Stjórnarnefnd hefði sett fram til-
lögur til að mæta því og yrði ekki breyting
þar á yrðu stjórnvöld að gera eitt af þrennu:
finna nýja stjórnendur að spítalanum, sam-
þykkja tillögur um samdrátt eða breyta af-
stöðu sinni og auka fjárveitingar til hans.
Hann sagði þennan niðurskurð vera pólitíska
ákvörðun og ljóst mætti vera að veita yrði
annars staðar þjónustu sem leggjast myndi af
á Landspítala, sparnaður hjá spítalanum
myndi þýða aukin útgjöld í t.d. félagsþjón-
ustu, atvinnuleysisbótum og tryggingabótum.
Már kvaðst ekki leggja dóm á hina pólitísku
ákvörðun en sagði þessar aðgerðir þýða mjög
skerta þjónustu á spítalanum og ógna starfs-
öryggi allra starfsstétta.
framkvæmd, að ná útgjöldunum niður um 800
til 1.100 milljónir króna og það þýðir hátt í
200 ársverk,“ sagði Magnús. Hann kvaðst
myndu efna til funda með starfsmönnum spít-
alans eftir helgina og í dag verður fundur
með fulltrúum fleiri stéttarfélaga starfs-
manna spítalans vegna samráðs fyrir upp-
sagnir. „Uppsagnir starfsfólks munu ná til yf-
irstjórnar og allra stétta,“ sagði forstjórinn
ennfremur og sagði ljóst að þetta væri
ákvörðun ráðherranna, þeim hefði verið
kynntur vandinn og þeir sæju sér ekki fært
að auka fjárveitingar. Magnús sagði að lagt
hefði verið til að tekin yrðu upp sjúklinga-
gjöld en því hefðu ráðherrarnir hafnað. Einn-
ig höfnuðu þeir að starf tæknifrjóvgunar-
deildar yrði lagt niður.
Stjórnarnefnd Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss fjallaði um málið á fundi sínum á
miðvikudag. Voru settar þar fram tillögur um
hvar hægt væri að skera niður. Fulltrúar
starfsmanna í stjórnarnefndinni og fulltrúi
Samfylkingarinnar lögðu fram bókanir þar
sem lýst er andstöðu við niðurskurðinn.
„Ég vil ekki úttala mig um tillögurnar í bili
en þetta þýðir bæði niðurskurð og uppsagn-
Stjórnarnefnd Landspítala bregst við minnkandi fjárframlögum til spítalans
Leggja til uppsagnir
hátt í 200 starfsmanna
FRAM til þessa hafa jólasveinarnir haft fyrir
sið að mæta til byggða í halarófu hver á eftir
öðrum. Í nótt kom Stekkjarstaur með pokann
sinn en að þessu sinni staulaðist hann ekki
um gilin heldur flaug á nútímavísu með
mikil og var sveinunum þegar boðið inn í
flugskýli þar sem dansað var í kringum
jólatré, áður en Stekkjarstaur lagði af stað út
í nóttina til að lauma góðgæti í skóna hjá
þægu börnunum.
þyrlu, ásamt tveimur bræðra sinna. Þeir jóla-
sveinabræður lentu við flugskýli Flugfélags-
ins Geirfugls í Fluggörðum á Reykjavík-
urflugvelli í gærkvöldi, þar sem þeirra biðu
börnin, bæði stór og smá. Eftirvæntingin var
Morgunblaðið/Kristinn
Flugferð fyrstu jólasveinanna
BJÖRN Bjarnason dóms- og kirkju-
málaráðherra hefur ákveðið að
bregðast við vaxandi hörku í afbrot-
um og ákveðið að efla styrk lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu. Kom
þetta fram í ræðu ráðherrans við út-
skrift lögreglunema í gær.
Björn sagðist hafa fengið heimild
formanna ríkisstjórnarflokkanna og
fjármálaráðherra til að efla styrk
lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu,
í ljósi nýlegs atburðar og vaxandi
hörku í afbrotum. „Samstarf milli
umdæma á grundvelli sameiginlegr-
ar fjarskiptamiðstöðvar hefur á til-
tölulega skömmum tíma sannað gildi
sitt. Nýlegt dæmi um góðan árangur
af skjótvirku samstarfi er handtaka
á vopnuðum ræningjum við Hafra-
vatn síðastliðinn mánudag.“
Ráðherra hyggst
efla lögregluna
BAUGUR og Fengur eru að kaupa bresku
smásölukeðjuna Julian Graves, sem metin er
á rúmlega 1,8 milljarða íslenskra króna.
Baugur kaupir 60% hlut og Fengur 20%, en
stofnandi fyrirtækisins og framkvæmda-
stjóri heldur 20% hlut.
Julian Graves hefur vaxið hratt að und-
anförnu og rekur um 200 smáar verslanir
sem selja aðallega heilsusnakk.
Í samtali við Morgunblaðið segir Jón
Scheving Thorsteinsson, yfirmaður erlendr-
ar fjárfestingar hjá Baugi, að fyrirtækið hafi
góða stjórnendur, góða vaxtarmöguleika,
gott sjóðstreymi og hafi fengist á góðu verði.
Baugur og Feng-
ur kaupa breska
smásölukeðju
Baugur/14
♦ ♦ ♦