Vísir - 25.02.1981, Side 19
„ÞAÐ HEFUR VER
IÐ ÞESS VIRÐI”
— segir hin stolta móðir, sem hefur eignast 21 barn á 25 árum
99George
Harrison
verður
ekki med”
Umboösmaður Harrison lýsti
þvi yfir I sjónvarpsviötali i
Bandarikjunum aö hann myndi
ekki leika aftur meö Bitlunum,
þ.e. þeim sem eftir lifa.
Að undanförnu hafa veriö
uppi vangaveltur um aö þeir
þrir, sem eftir lifa úr hljóm-
sveitinni The Beatles, komi
saman og leiki inn á plötu til
minningar um John Lennon.
Hins vegar viröist nú allt benda
til aö ekkert veröi af þessu,
a.m.k. ekki með þátttöku
George Harrison.
i fréttaviðtali viö umboðs-
mann George, sem fram fór i
NBC sjónvarpsstöðinni i Banda-
rikjunum nú skömmu fyrir
helgi, lýsti umboösmaöurinn þvi
yfir aö ekki kæmi til mála aö
George tæki þátt í sllku. — ,,Þaö
þjónar engum tilgangi og ég
held að engum sé greiöi gerður
meö sliku uppátæki. George
verður örugglega ekki meö i
þessu”, — sagði hann.
— „Mestan hiuta lifs mins hef
ég átt von á barni”, — segir Julie
Martinez sem hefur eignast 21
barn á 25 árum. Þessi 42ja ára
gamla farandverkakona hefur
verið ófrisk sem svarar 16 árum
af ævi sinni og siöasta barn henn-
ar, sem var dóttir, fæddist i
janúar á siöasta ári.
— „Þetta hefur verið erfitt en
þegarég horfi á börnin min finnst
mér það hafa verið þess viröi.
Sterkustu kærleiksbönd sem til
eru, er ást móður til barns og ást
barns til móður. Hugsið ykkur
bara alla þá ást sem ég er aðnjót-
andi, — ást margfölduö með 21”,
— segir hin stolta móðir.
— „Við ætluðum okkur aldrei
að eignast svona mörg börn, en
það er drottinn sem stjórnar
hlutum sem þessum. Við erum
rómversk-kaþólsk og grípum
þess vegna ekki fram fyrir hend-
urnar á „móður 'nátturu”, með
þvi að nota getnaöarvarnir”,
bætir hún við.
Frú Martinez og eiginmaður
hennar, Ramon, sem er 47 ára
gamall, búa i Texas, þar sem þau
leigja tveggja herbergja ibúð.
Tólf barna þelrra búa enn heima
en hin er flogin úr hreiðrinu, hafa
stofnað heimili og eignast börn.
Þau Julie og Ramon eiga tiu
barnabörn. Fjölskyldan sefur öll
á gólfinu fyrir utan tvö yngstu
börnin, sem sofa i vöggum.
Þegar Julie er spurð hvernig
gangi að ná endum saman með
170 dollurum á viku svarar hún:
— „Þegar reikningar hafa veriö
greiddir er auðvitað ekki mikið
eftir, en það sem eftir er fer i fæði
og klæöi, hver einasti eyrir. Og ef
peningarnir duga ekki fyrir þvi,
fáum við aðstoð. Vinir og kunn-
ingjar svo og kirkjan hjálpa
okkur og elstu börnin aðstoða
þegar þau hafa ráð á þvi.
Hvorki Ramon né ég brögöum
áfengi og við förum aldrei út að
skemmta okkur. Ef einhverjir
peningar eru afgangs fær Ramon
sér eina eða tvær sigarettur. Það
er hans eina ánægja, — fyrir utan
börnin að sjálfsögðu”, — segir
Julie.
— „Ég hef unnið alla ævi til að
brauðfæða fjölskylduna”, — segir
Ramon. — „En ég sé ekki eftir
neinu. Ég elska börnin min og lit
á sjálfan mig sem afar lánsaman
mann”, — segir hann.
1 barna sinna.
AfmæliAuðarAuðuns
Fyrir viku siðan, miðvikudag-
inn 18. febrúar átti Auður Auðuns
sjötugs afmæli. Margt gesta safn-
aðist saman á heimili Auðar
þennan dag. Viða hefur Auður
Auðuns komið við á sinum starfs-
ferli, enda má segja að gesta-
hópurinn hafi að vissu leyti
varpað ljósi á ævistarf hennar.
Meðal gesta voru skólafélagar,
borgarfulltrúar. aiþingismenn og
starfsfélagar hennar á öðrum
vettvangi Margar ræður voru
fluttar i hófinu og var Davið
Oddsson einn ræðumanna, hann
sagöi meðal annars ...,,mér finnst
að þú hafir verið okkur sem is-
brjótur, Auður. Þú hefur farið
fyrir okkur hinum og brotið isinn,
ekki sist fyrir konur”. Hógværð
Auðar er kunn, enda dró hún úr
brautryðjendastarfi sinu og
sagði: „Mér finnst ég enginn is-
brjótur hafa verið, hins vegar er
ég farin að brjóta mig á is nú á
seinni árum”.
Satt er það að Auður Auðuns
hefur verið i fararbroddi og brotið
is. Hún var fyrst kvenna til að
ljúka lögfræðiprófi frá Háskóla
tslands, átti sæti i borgarstjórn
árum saman og i nokkur ár var
hún forseti borgarstjórnar.
Fyrsta og eina konan er gegnt
hefur embætti ráðherra hér á
landi er Auður Auðuns.
Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna i
Reykjavik og Landssamband
sjálfstæðiskvenna hafa i tilefni af
sjötugs afmæli þessa merka
brautryðienda, ákveðið útgáfu
bókar, Auði Auðuns til heiöurs.
—ÞG
Fyrir hönd borgarstjórnarflokks Sjálfstæöisflokksins færöi Daviö Afmælisbarniö Auöur Auöuns i hópi alþingismanna. A myndinni eru
Oddsson Auöi gjöf og þakkaöi henni fyrir aö brjóta Isinn fyrir hina er i Sigurlaug Bjarnadottir, Ólafur G. Einarsson, Matthias Bjarnason,
eftir komu. Auöur, Guömundur Karisson og Salome Þorkelsdóttir.
VIsismynd/Emil VIsismynd/Emil
Afneitun
Liz Taylor vill nú
hvorki sjá né heyra
minnst á fyrri eigin-
mann sinn Richarc
Burton. í New Orleans
nú nýverið neitaði hún
að sækja sýningu a
/Camelot" þar sem
Jurton fer með aðal-
hlutverkið og einnig
afþakkaði hún matar-
)oð þegar hún frétti að
lann væri meðal gesta.
3egar aðdáandi bað
íana að árita mynd af
henni og Richard
neitaði hún þar til
eiginmaðurinn fyrr-
verandi hafði verið
klipptur í burtu..