Morgunblaðið - 07.03.2004, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.03.2004, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 66 . TBL. 92. ÁRG. SUNNUDAGUR 7. MARS 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Ádeilan er best með húmor Lára Martin sýnir mynd sína á Hins- egin bíódögum | Fólk í fréttum 63 Tímaritið og Atvinna Tímaritið | Flugan  Heimili Björns Ólafs við hafið  Liðið áfram á lúxusjeppa  Litli svarti kjóllinn Atvinna | Austur- lamb.is í örum vexti Gagnagrunnur um UT ráðgjafa 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 SUNNUDAGUR VERÐ KR. 300 LEYNISKJÖL sem nú hafa verið gerð opinber í Bretlandi sýna að stjórnvöld þar í landi voru komin á fremsta hlunn með að láta hart mæta hörðu og freista þess að ná varðskipinu Ægi á sitt vald. Þetta kemur fram í grein Guðna Th. Jó- hannessonar sagnfræðings í blað- inu í dag. Þessi áform komu upp í kjölfar eins æsilegasta atburðar þorska- stríðanna, laugardaginn 26. maí 1973, þegar Ægir skaut ítrekað á Grimsbytogarann Everton langt innan íslenskrar fiskveiðilögsögu norður af Grímsey. Breskum ráðherrum ofbuðu að- farir varðskipsins og vöktu máls á því að svarað yrði í sömu mynt; að herskip leituðu varðskipið uppi og hertækju það. Taka varðskipsins átti að fara þannig fram að fyrst myndu her- þotur og þyrlur leita skipið uppi, þrátt fyrir að það hefði þýtt að Bretar hefðu þurft að fara langt inn fyrir íslenska landhelgi, allt upp að landsteinum. Skipið skyldi stöðvað áður en reynt væri að fara um borð með því að beita stigvaxandi að- gerðum uns stjórnendur varðskips- ins hlýddu skipunum. Bretar myndu síðan ná Ægi á vald sitt með því að sigla herskipinu Jupiter upp að síðu hans ef veður leyfði en ella senda vopnaða sveit manna á gúm- báti yfir í varðskipið. „Yfirmenn og sjóliðar skulu taka að sér stjórn aðalvéla og rafmagns eftir að þeir hafa yfirbugað 22 manna áhöfnina,“ segir síðan. „Þeir skulu vera vel á verði vegna hugs- anlegra tilrauna íslensku áhafn- arinnar til að vinna skemmdarverk eða sökkva skipinu. Áhöfnina skal loka inni í tryggum vistarverum og skipa vörð fyrir utan. Þeim skal gerð vistin þolanleg og sýnd til- hlýðileg virðing.“ Bretar voru með áætlun um töku Ægis Nýjar upplýsingar um þorskastríðin í leyniskjölum sem gerð hafa verið opinber  Okkar bestu/31 Varðskipið Ægir var breskum stjórnvöldum mikill þyrnir í augum enda gerði það þeim marga skráveifuna í þorskastríðunum síðari. MANNSKÆÐAR sjálfsmorðssprengjuárás- ir í vikunni og ágreiningur um bráðabirgða- stjórnarskrá munu ekki stöðva framfarir í Írak í lýðræðisátt. Þetta sagði George W. Bush Bandaríkjaforseti í vikulegu útvarps- ávarpi sínu í gær. „Íraska þjóðin er að ná miklum framför- um,“ sagði Bush; „meðlimir framkvæmda- ráðsins ræða með opnum og andríkum hætti um nýja stjórnskipun lands síns. Þessi bráða- birgðastjórnarskrá mun verða til þess að vernda réttindi allra Íraka og mun færa land- ið á vit lýðræðislegrar framtíðar.“ Undirritun bráðabirgðastjórnarskrárinn- ar, sem áformað hafði verið að færi fram á föstudag, var frestað er nýr ágreiningur kom upp milli fulltrúa hinna ólíku hópa Íraka. Framfarir í Írak ekki stöðvaðar Crawford í Texas. AFP. LJÓS og litir léku sér í aftureldingu í gær- morgun, útivistarfólki á höfuðborgarsvæðinu til mikillar ánægju. Þessi árrisuli borgari naut unleikfimi við að skafa hélaðar bílrúðurnar. Í dag, sunnudag, er hins vegar spáð hlýindum og hvassri sunnanátt, lítt kræsilegu útivistarveðri. sólarupprásarinnar. Eftir hláku og hlýindi und- anfarna daga heilsaði gærdagurinn með kulda og bílaeigendur fengu góðan skerf af morg- Morgunblaðið/Brynjar Gauti Leikur ljóss og lita við Rauðavatn STJÓRN Norræna fjárfestingabankans (NIB) hefur samþykkt samhljóða að veita Landsvirkj- un lán upp á 70 milljónir evra, eða fyrir um sex milljarða króna á núverandi gengi. Er láninu ætlað að fjármagna hluta af framkvæmdum við Kárahnjúkavirkjun, sem áætlað er að kosti ríf- lega 100 milljarða króna. Samningar um láns- kjör hafa ekki verið undirritaðir en stjórn Landsvirkjunar á eftir að fjalla um lánveit- inguna á fundi sínum eftir helgi. Lánið nú er veitt til 15 ára, með möguleika á að framlengja það um önnur 15 ár ef með þarf. Jón Sigurðsson, forstjóri NIB, mun samkvæmt Svíinn Johan Ljungberg, sérfræðingur NIB í umhverfismálum, annaðist umhverfismatið fyrir bankann. Hann sagðist í samtali við Morgun- blaðið hafa farið í gegnum öll þau ítarlegu gögn sem hefðu legið fyrir um Kárahnjúkavirkjun, kynnt sér rannsóknir og farið yfir umhverfismat stjórnvalda. Hann kom hingað til lands og kynnti sér aðstæður. Ljungberg sagði þessa vinnu hafa tekið marga mánuði og niðurstaðan hefði verið sú að mæla með lánveitingu út frá umhverfissjónarmiðum. Umhverfismatsvinnan á Íslandi hefði að mati bankans verið bæði vönd- uð og ítarleg. upplýsingum Morgunblaðsins hafa lagt mikla áherslu á að lánveitingin fengi ítarlega umfjöllun innan bankans með hliðsjón af kröfum um arð- semi og umhverfismál. Guðmundur Ólason, svæðisstjóri hjá NIB, sem fjallaði um lánsbeiðn- ina fyrir bankann, sagði að á þessum forsendum hefði stjórn NIB ákveðið að taka þátt í fjár- mögnun Kárahnjúkavirkjunar. Bankinn starfar eftir strangri umhverfis- stefnu og gerð er krafa um að verkefni hafi farið í lögformlegt umhverfismat í viðkomandi landi. Guðmundur sagði að síðan færi hvert verkefni í sjálfstætt umhverfismat hjá bankanum. Norræni fjárfestingabankinn með sjálfstætt umhverfismat um Kárahnjúkavirkjun Bankinn lánar sex milljarða króna til Landsvirkjunar ERIC Clapton hefur ákveðið að bjóða upp hluta af safni þeirra gítara sem hann hefur eignast um ævina. Uppboðið fer fram hjá Christie’s í New York 24. júní og verður ágóðanum varið til reksturs með- ferðarstöðvar fyrir vímu- efnaneytendur sem Clap- ton hefur komið upp á eyjunni Antigua. Clapton seldi síðast hluta safns síns á uppboði árið 1999. Hann segir að hljóðfærin sem nú verða seld séu þau sem hann hélt þá eftir og gat ekki hugsað sér að segja skilið við. „Allir þessir gítarar eru góðir til síns brúks,“ segir Clapton. „Ég ætla aðeins að halda þeim eftir sem ég þarf á að halda, vinnunnar vegna.“ Alls verða 56 hljóðfæri boðin upp. Fyrst- an skal nefna „Blackie“, svartan Fender Stratocaster sem Clapton mun hafa sett saman árið 1970 en frumpartarnir eru sagð- ir vera frá 1956. Talið er að þessi gítar fari á 7 til 10 milljónir króna. „Þessi gítar er hluti af sjálfum mér,“ segir Clapton. Annar dýrgripur í safninu er rauður Gib- son ES-335 árgerð 1964 sem mun vera ann- ar rafgítarinn sem Clapton eignaðist. Clapton selur gítarsafnið ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.