Morgunblaðið - 07.03.2004, Page 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 7. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
LÁNA LANDSVIRKJUN
Stjórn Norræna fjárfestingabank-
ans (NIB) hefur samþykkt sam-
hljóða að veita Landsvirkjun lán upp
á 70 milljónir evra, eða um sex millj-
arða króna á núverandi gengi. Er
láninu ætlað að fjármagna hluta af
framkvæmdum við Kárahnjúka-
virkjun, sem áætlað er að kosti ríf-
lega 100 milljarða króna.
Lögregluskólinn þrjú ár?
Hugmyndir eru uppi um að lengja
nám lögreglumanna úr einu ári í
þrjú og tryggja nemum í Lögreglu-
skóla ríkisins laun allan námstím-
ann. Hafa hugmyndirnar verið
kynntar fyrir dómsmálaráðherra og
gangi allt eftir verður næst tekið inn
í Lögregluskólann haustið 2005 og
þá í samræmi við nýja námsskrá.
Gjöld hækka um 13 þúsund
Dagforeldrar telja víst að hækka
þurfi gjald fyrir fulla vistun um
a.m.k. 13 þúsund krónur ef drög að
reglugerð um daggæslu barna í
heimahúsum verða samþykkt
óbreytt og börnum á hvert dagfor-
eldri fækkað úr fimm í fjögur. Ráð-
gert er að hún taki gildi 1. apríl nk.
en dagforeldrar hafa frest til 10.
mars til að skila inn umsögn til fé-
lagsmálaráðuneytisins.
Clapton selur safnið
Eric Clapton hefur ákveðið að
bjóða upp hluta af safni þeirra gítara
sem hann hefur eignazt um ævina.
Uppboðið fer fram hjá Christie’s í
New York í júní og verður ágóðan-
um varið til reksturs meðferðar-
stöðvar fyrir vímuefnafíkla sem
Clapton hefur komið upp á eyjunni
Antigua. Alls verða 56 hljóðfæri boð-
in upp, en Clapton seldi stóran hluta
safns síns á svipuðu uppboði fyrir
fimm árum.
Bush lofar framfarir í Írak
Mannskæðar sjálfsmorðs-
sprengjuárásir í vikunni og ágrein-
ingur um bráðabirgðastjórnarskrá
munu ekki stöðva framfarir í lýð-
ræðisátt í Írak. Þetta sagði George
W. Bush Bandaríkjaforseti í viku-
legu útvarpsávarpi sínu í gær.
Fyrirtæki í Frakklandi
Þrír Akureyringar hafa fest kaup
á fiskvinnslufyrirtækinu Marcel
Baey í Boulogne Sur Mer í Frakk-
landi. Fyrirtækið veltir um einum
milljarði íslenskra króna á ári.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
TÁKNMÁLSTÚLKUN verður
kennd við Háskóla Íslands næsta
vetur. Fé hefur verið tryggt til
kennslunnar fyrir frumkvæði Páls
Skúlasonar, rektors Háskóla Ís-
lands, og er því fagnað í yfirlýsingu
frá Félagi heyrnarlausra.
Anna Agnarsdóttir, forseti heim-
spekideildar Háskóla Íslands, sagði
að fyrir lægi að táknmálstúlkun yrði
kennd næsta vetur. Rektor hefði lýst
því yfir að fé til kennslunnar yrði
tryggt.
Anna sagði að þess misskilnings
hefði gætt í fjölmiðlum að til hefði
staðið að leggja niður kennslu í tákn-
málstúlkun. Það hefði aldrei staðið
til, heldur hefði einungis verið um að
ræða að kenna hana ekki næsta vet-
ur þar sem heimspekideild hefði ekki
fjármagn til kennslunnar. Nú væri
rektor hins vegar búinn að finna leið
til að tryggja fé til kennslunnar
næsta vetur.
Komið í veg fyrir mikið áfall
Í yfirlýsingu frá Félagi heyrnar-
lausra er þessari ákvörðun fagnað.
„Félag heyrnarlausra fagnar því að
Páll Skúlason, rektor Háskóla Ís-
lands, hefur ákveðið að táknmáls-
túlkun verði kennd næsta vetur og
mun hann sjá um að útvega það fjár-
magn sem á vantar. Komið hefur
verið í veg fyrir mikið áfall fyrir sam-
félag heyrnarlausra og heyrnar-
skertra því táknmálstúlkar eru lykill
heyrnarlausra að íslensku samfélagi
og forsenda þess að þeir geti nýtt sér
heilbrigðisþjónustu, notið menntun-
ar og tekið þátt í samfélaginu sem
fullgildir þegnar. Án táknmálstúlka
er heyrnarlausum meinaður aðgang-
ur að íslensku samfélagi.
Félagið vill því þakka öllum sem
hafa lagt málefninu lið og stuðlað að
því að fjölga táknmálstúlkum á Ís-
landi.“
Táknmálstúlkun verð-
ur kennd næsta vetur
MAÐURINN sem lést í vél-
sleðaslysi í Karlsárdal við Dal-
vík á föstudag hét Guðmundur
Jón Magnússon, til heimilis í
Hrísalundi 8c á Akureyri. Hann
var fæddur 18. nóvember árið
1980 og lætur eftir sig unnustu
og tvö börn.
Lést í vél-
sleðaslysi
„ÞAÐ var ekki nógu góð veiði og
mér líst satt best að segja ekki á
ástandið. Ég er ekki viss um að það
sé eins mikið af loðnu og sumir vilja
vera láta,“ sagði Grímur Jón Gríms-
son, skipstjóri á loðnuskipinu Ant-
ares VE, í samtali við Morgunblaðið,
þá á leið til heimahafnar í Vest-
mannaeyjum með um 700 tonna afla.
Grímur Jón sagðist hafa þurft að
kasta sjö sinnum til að ná aflanum
en það sé óvenju oft kastað á þessum
árstíma. Venjulega dugi tvö til þrjú
köst til að fylla skipið. „Það er
greinilega mun minna af loðnu af
ferðinni núna en í venjulegu árferði.
Ég vona svo sannarlega að úr rætist
en ég er alls ekki bjartsýnn. Það
þarf að minnsta kosti mikið að
breytast ef við eigum að ná kvót-
anum. Þessar göngur sem verið er
að veiða úr núna virðast ekki stórar.
Það hefur reyndar komið fyrir að
það hafa komið nýjar loðnugöngur
upp á grunnið undan suðurströnd-
inni, upp úr Reynisdjúpi og Háfa-
djúpi. Þessar göngur hafa þá farið
dýpra en komið og bæst við þær
göngur sem fyrir eru við ströndina.“
Stefnt var að því að frysta aflann
úr Antares VE í Eyjum en Grímur
Jón sagði samt óvíst hvort hægt
væri að frysta loðnuna ennþá, hún
væri komin það nálægt hrygningu.
Loðnan veiðist nú skammt undan
Ingólfshöfða og segir Grímur Jón að
hún virðist hafa staðnæmst þar í bili.
„Hún hefur farið af stað vestur fyrir
höfðann en hrekst jafnharðan til
baka. Það er mjög sterkt austurfall
þessa dagana og virðist sem loðnan
hafi sig bókstaflega ekki á móti því.
Eins má vera að hún sé máttfarnari
þegar hún er svona langt gengin.
Hún er óvenju bráðþroska á þessari
vertíð enda verið lengi í heitum sjó.
Hún er komin fast að hrygningu og
hrygnir væntanlega hér undan suð-
urströndinni. Það hefur reyndar
gerst áður og virðist ekki hafa áhrif
á viðgang stofnsins,“ sagði Grímur
Jón.
„Líst ekki á ástandið“
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Loðnuflotinn er nú að veiðum skammt undan Ingólfshöfða.
MIKLAR skemmdir urðu á þjóðveg-
inum við Ófeigsstaði í Köldukinn í S-
Þingeyjarsýslu og einnig á malar-
veginum í Út-Kinn þegar Skjálf-
andafljót flæddi yfir bakka sína eftir
hlýindin í síðasta mánuði. Að sögn
Sigurðar Oddssonar, deildarstjóra
framkvæmdadeildar Vegagerðar-
innar á Norðausturlandi, er talið að
tjónið á þessum vegarköflum sé vel á
annan tug milljóna króna. Klæðning-
in flettist af norðausturvegi frá
Ófeigsstöðum og að brúnni yfir
Skjálfandafljót á um 700 metra kafla
og í Út-Kinn fór malarvegurinn í
sundur á þremur stöðum.
Man ekki eftir öðru eins flóði
Sigurður sagði að flóðið á dögun-
um hefði verið það næstmesta í
Skjálfandafljóti frá því að mælingar
hófust árið 1950, eða yfir 1.000 rúm-
metrar á sekúndu. „Það var mikill ís
í fljótinu og því ekkert skrýtið að
eitthvað hafi látið undan.“
Sigurður sagði að unnið yrði að
bráðabirgðaviðgerð á þessum vegar-
köflum en með vorinu verður farið í
fullnaðarviðgerð. Vegurinn við
Ófeigsstaði verður þá hækkaður,
styrktur og lagður tvöfaldri klæð-
ingu.
Baldvin Kr. Baldvinsson, bóndi í
Torfunesi í Köldukinn, sagðist ekki
muna eftir öðru eins flóði. „Það
myndaðist klakastífla í fljótinu hérna
sunnan og neðan við hjá mér og þess
vegna spýttist það hér upp á land
enda hæðarmunurinn lítill.“ Baldvin
sagði að stór klakastykki hefðu safn-
ast við veginn frá Ófeigsstöðum að
brúnni yfir Skjálfandafljót. Þá fóru
heyrúllur og baggar af stað og eitt-
hvað af þeim hvarf í flóðinu. „Ég veit
ekki hversu miklar skemmdir hafa
orðið á heyrúllunum en skemmdir á
girðingum eru miklar, bæði hjá mér
og norðar í Kinninni. Hér er allt enn
undir ís en ég hef ekki trú á því að
það hafi orðið miklar skemmdir á
túnum,“ sagði Baldvin.
Miklar skemmdir á þjóðveginum þegar Skjálfandafljót flæddi yfir bakka
Tjónið talið vera vel á
annan tug milljóna króna
Morgunblaðið/Kristján
Stór klakastykki söfnuðust við veginn frá Ófeigsstöðum og að brúnni yfir Skjálfandafljót í flóðinu á dögunum.
BÚNAÐARÞING 2004 verður sett í
dag, sunnudag, í Súlnasal Hótels
Sögu. Auk ávarpa frá formanni
Bændasamtakanna og landbúnaðar-
ráðherra mun Páll Bergþórsson,
fyrrverandi veðurstofustjóri, flytja
hátíðarræðu og veitt verða landbún-
aðarverðlaun 2004.
Nýr formaður Bændasamtakanna
verður kjörinn eftir helgi en Ari
Teitsson gefur ekki kost á sér áfram.
Fjölmörg mál verða lögð fyrr
þingið að þessu sinni en drög að
málaskrá er að finna á slóðinni:
bondi.is. Þinginu lýkur 10. mars.
Búnaðarþing
hefst í dag
HRÓKURINN vann öruggan
sigur, 5½ vinning á móti 2½ á
Helli í 5. umferð Íslandsmóts
skákfélaga sem fram fór á
föstudagskvöldið og leiðir nú
með 3½ vinning á Taflfélag
Reykjavíkur sem er í öðru sæti.
Hrókurinn leiðir í 2. deild,
Haukar í 3. deild og Taflfélag
Garðabæjar í 4. deild.
Úrslitin í 1. deild:
Skákfélagið Hrókurinn a-sveit -
Taflfélagið Hellir a-sveit 5½-2½
Taflfélag Reykjavíkur a-sveit -
Skákfélag Akureyrar a-sveit 7-1
Taflfélag Vestmannaeyja a-sveit -
Skákfélag Akureyrar b-sveit 6½-1½
Taflfélagi Hellir b-sveit -
Taflfélag Reykjavíkur b-sveit 5½-2½
Hrókurinn
sigraði
Í dag
Sigmund 8 Hugvekja 52
Hugsað upphátt 51 Myndasögur 56
Listir 33/35 Bréf 56/57
Af listum 34 Dagbók 58/59
Birna Anna 28 Krossgáta 53
Forystugrein 36 Leikhús 62
Reykjavíkurbréf 36/
37
Fólk 62/67
Skoðun 42/50 Bíó 66/69
Minningar 38/41 Sjónvarp 70/71
Þjónusta 42 Veður 71
* * *