Morgunblaðið - 07.03.2004, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MARS 2004 9
STRÁKARNIR sem æfa með Vík-
ingi í knattspyrnu eru eins og
aðrir ungir menn um allt land
öflugir við æfingarnar. Þær fel-
ast þó langt í frá eingöngu í því
að rekja boltann eða sparka á
markið. Meira fer hugsanlega
jafnvel fyrir þolæfingum af ýms-
um toga. Hér eru t.d. strákarnir í
fimmta flokki að þjálfa þolið með
því að taka á sprett eftir vell-
inum. Það verður þó að bíða þol-
inmóður og átekta eftir því að
þjálfarinn gefi merki. Síðan er
ekkert því til fyrirstöðu að gefa
allt í botn og þjóta af stað. Morgunblaðið/Golli
Einn,
tveir
og... nú!
SKÁKFÉLAGIÐ Hrókurinn hef-
ur undanfarið staðið í mikilli her-
ferð til að vekja athygli og áhuga
á skákíþróttinni. Í vikunni stóðu
Hróksmenn aftur í stórræðum og
heimsóttu þrjátíu og þrjá grunn-
skóla í Reykjavík á þremur dög-
um. Salir skólanna fylltust af
skákáhugafólki af yngstu kyn-
slóðinni og fylgdust mörg þúsund
börn með, skiptust á skoðunum
og hvöttu samnemendur sína til
dáða.
Að sögn Kristjóns Kormáks
Guðjónssonar, framkvæmda-
stjóra Hróksins, eru heimsóknir
undanfarinna daga eitt af því
ánægjulegasta sem Hrókurinn
hefur gert frá upphafi. Félagið
hefur einnig, í samvinnu við KB
banka, dreift skákgetraun til
krakkanna, en þar eiga þau að
leysa skákþraut og ef heppnin er
með þeim geta þau fengið vinn-
inga. „Þarna fengu krakkarnir
tækifæri til að etja kappi við
marga af bestu skákmönnum
heims og við tefldum við mörg
hundruð börn og mörg þúsund
börn fylgdust með,“ segir Krist-
jón. „Í langflestum skólum var
mjög mikill áhugi fyrir hendi og
sums staðar komust færri að en
vildu og við þurftum að koma aft-
ur til að anna eftirspurn. Áhug-
inn var gríðarlegur og ánægju-
legt að komast í svona beint
samband við þá skákvakningu
sem á sér stað meðal unga fólks-
ins þessi misserin.“
Kristjón segir að í ljósi góðs
árangurs í þessari heimsóknalotu,
muni Hrókurinn halda áfram að
heimsækja skóla í kringum þau
mót sem hann heldur. „Það má
líka geta þess að við höldum til
Austfjarða eftir helgi, þar sem
við munum dreifa bókinni Skák
og mát, sem gefin er út af Eddu-
miðlun, til allra þriðju bekkinga
auk þess sem við heimsækjum
alla skóla á Austurlandi. Síðan
stefnum við vestur á firði með
nokkra stórmeistara með í för í
apríl,“ segir Kristjón að lokum.
Hrókurinn heimsækir
Grunnskóla í Reykjavík
Morgunblaðið/Ómar
Faruk Taimini teflir fjöltefli við krakkana í Ísaksskóla.
HUNDRUÐ Íslendinga hafa sótt
Færeyjar heim og hafa sömuleiðis
hundruð Færeyinga endurgoldið
heimsóknina með hjálp Fiturs, sam-
starfssjóðs Íslands og Færeyja sem
veitir styrki til að efla ferðamennsku
og tengsl landanna tveggja. Meðal
annars hefur verið staðið fyrir rit-
gerðasamkeppni milli skólabarna.
Steinn Lárusson, formaður úthlut-
unarnefndar Fiturs, segir að á
hverju ári séu veittir styrkir, um það
bil 10 milljónir íslenskra króna til
eflingar ferðamennsku milli Færeyja
og Íslands, en sjóðurinn var stofn-
aður af samgönguráðherrum land-
anna tveggja um miðjan síðasta ára-
tug og leggur hvort land fyrir sig
500.000 þúsund danskar krónur í
sjóðinn á ári hverju.
Steinn segir að sjóðurinn hafi að-
allega stutt við bakið á börnum og
unglingum, t.d. skólahópum,
íþróttafélögum og hljómsveitum.
Einnig hafa kórar og ferðir eldri
borgara verið styrktar. Þá kom t.d.
færeyskur ræðari hingað á vegum
Ungmannahreyfingarinnar til að
kenna Íslendingum róður.
Styrkurinn nemur um 6–15 þús-
und krónum á mann, þegar hópar
eru styrktir. Steinn segir þó að allt
ferðalagið sé greitt fyrir vinnings-
hafa í ritgerðarsamkeppninni.
Skipulagið sé þannig að skólum á
ákveðnu svæði sé hverju sinni boð-
in þátttaka og einn bekkur á hverj-
um stað hreppi vinning. Í ár keppa
skólar í Borgarfirði og Lorvík,
Keflavík og Miðvági og Hafnarfirði
og Tvöroyri.
Árangurinn er
mikið samstarf
„Þetta hefur skilað geysilega mikl-
um samböndum og samskiptum milli
landanna, sérstaklega hjá þessu
unga fólki. Maður gerir sér vonir um
að þau geymi í brjósti sér eitthvað
til að efla og halda við til framtíðar.
Það hafa myndast þarna sambönd
milli alls konar íþróttahópa, t.d. í
handbolta, fótbolta og sundi. Krakk-
arnir hafa farið og keppt við jafn-
aldra sína í Færeyjum og síðan hafa
Færeyingar komið hingað og keppt í
því sama. Þegar svona lagað er kom-
ið af stað gerir maður sér vonir um
að það verði framhald á því,“ segir
Steinn. Styrkir úr sjóðnum eru af-
hentir tvisvar sinnum á ári, á vori og
hausti. Umsóknarfrestur fyrir þetta
vor rennur út 15. mars næstkom-
andi.
Hundruð hafa ferðast
milli Íslands og Færeyja
á vegum Fiturs
10 millj-
óna styrk-
ir veittir
árlega
SAMTÖKIN Amnesty International ætla á
komandi árum að beina sjónum sínum meira
að ofbeldi gegn konum í heiminum, hvort
sem er heimilisofbeldi eða ofbeldi í stríði
sem beinist að konum.
Samtökin hafa nú kynnt alþjóðlega her-
ferð til að berjast gegn ofbeldi gegn konum,
og var herferðin kynnt á fundum hjá sam-
tökunum um allan heim. Jóhanna K. Eyj-
ólfsdóttir, framkvæmdastjóri Amnesty Int-
ernational á Íslandi, segir að í raun sé mun
erfiðara að berjast gegn heimilisofbeldi
heldur en að berjast gegn ofbeldi gegn kon-
um tengdu stríðsátökum, þar sem heimilis-
ofbeldi sé oft dulið.
„Þetta er tveggja ára átak, og er nýtt í
starfi Amnesty. Við höfum starfað mjög
mikið í þágu kvenna undanfarin ár, alveg frá
stofnun samtakanna, en ekki kanski á sama
hátt og verður gert í þessari herferð,“ segir
Jóhanna. Hún segir að samtökin hafi hingað
til einbeitt sér að því að hjálpa konum í
fangelsi sem hafa fallið undir hefðbundna
mannréttindabaráttu Amnesty. Nú á að taka
á því sem Jóhanna segir vera eitt af stær-
stauvandamálunum í heiminum í dag, ofbeldi
gegn konum.
Jóhanna segir að hugsunarháttur fólks
þurfi að breytast, ofbeldi gegn konum eigi
alltaf að fordæma, og aldrei megi afsaka
það. Einig þurfi að huga að lagaumhverfinu.
„Við munum í þessari herferð reyna að
tryggja að yfirvöld breyti lögum í löndum
þar sem eru lög sem mismuna konum og þar
sem ákærur gegn ofbeldismönnum eru
hundsaðar. Við munum fara fram á laga-
breytingar þar sem þess er þörf, og þar sem
lögin eru fyrir hendi munum við fara fram á
að þeim verði framfylgt,“ segir Jóhanna.
Ástandið á Íslandi nokkuð gott
Aðspurð um ástandið hér á landi segir Jó-
hanna lagaumhverfið almennt gott, en segir
að Amnesty sé að skoða nokkur drög að
frumvörpum með það í huga að kanna hvort
samtökin muni styðja þau. Hún nefnir sem
dæmi frumvarp þar sem umskurður kvenna
er bannaður hér á landi, og segir samtökin í
það minnsta styðja slíkt bann, þó hún hafi
ekki kynnt sér frumvarpið sjálft.
Jóhanna bætir við að nálgunarbanni sé
ekki nægilega vel framfylgt hér á landi og
það sé eitthvað sem þurfi að fara í saumana
á. Einnig mætti huga að skráningum á of-
beldi gegn konum, og jafnvel taka upp neyð-
armóttöku fyrir konur sem sætt hafa of-
beldi, sem gæti starfað á svipaðan hátt og
neyðarmóttaka vegna nauðgana.
Uppákoma í
Kringlunni í dag
Í dag, sunnudag, mun Íslandsdeild Amn-
esty International standa fyrir uppákomu á
torginu í Kringlunni milli kl 14. og 16. til að
vekja athygli á herferðinni. Þar munu
íþróttamenn, þjálfarar og tónlistarmenn
mæta og ljá herförinni lið með því að setja
lófaför sín á hvítan dúk, en merki herferð-
arinnar er einmitt lófafar.
Samtökin Amnesty International kynna alþjóðlega herferð
Beina sjónum að ofbeldi gegn konum