Morgunblaðið - 07.03.2004, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MARS 2004 23
skólaliðunum og ef maður tekur lé-
legt skot þá veit maður að það þýðir
að þú ferð á bekkinn við fyrsta tæki-
færi. Skotavalið þarf því að vera gott
og menn komast ekki upp með neitt
rugl hérna úti. Samkeppnin er gríð-
arleg og það eru að ég held 320 há-
skólar í 1. deild og allir sem leika með
þeim vilja fá tækifæri til þess að láta
ljóst sitt skína í von um að fá tækifæri
í NBA eða í Evrópu. Að mínu mati er
styrkleikinn á 1. deildinni hér vest-
anhafs svipaður og að leika sem at-
vinnumaður í 2. deild í Þýskalandi eða
Frakklandi. Álagið er mikið og allir
leikir sem farið er í eru erfiðir.
Umgjörðin í kringum liðin er einn-
ig mun meiri en við þekkjum frá Ís-
landi. Umgjörð leikjanna er mun
meiri og stærri, ótal aðstoðarmenn
eru á leikjunum að skrá niður töl-
fræðina og annað sem því fylgir. Það
eru allir leikir bikarúrslitaleikir. En
því miður fáum við ekki að leika í 64-
liða úrslitum NCAA að þessu sinni
þar sem að skólinn er á fyrsta ári sínu
sem 1. deildar skóli en við verðum þá
bara að endurtaka leikinn og verðum
þá með í „marsbrjálæðinu“ árið
2005.“
Lyftingarnar skila árangri
Jakob skoraði 14,7 stig að meðaltali
í vetur með BSC og var meðal þeirra
bestu á landsvísu í skotnýtingu utan
þriggja stiga línunnar, 48,5%, og er
það athyglisvert í ljósi þess hve mörg
slík skot hann tekur í hverjum leik.
Að auki var Jakob með bestu víta-
hittnina í Big South-deildinni, 86,6%
og varð fimmti stigahæsti leikmaður
deildarinnar.
„Ég klikkaði á fjórum vítaskotum í
síðasta leik og það var ekki til þess að
bæta árangurinn. Við vorum langt yf-
ir í þeim leik og ég varð kærulaus að
ég held. Kemur ekki fyrir aftur,“ seg-
ir Jakob.
Frá því að Jakob fór til Bandaríkj-
anna haustið 2000 hefur hann bætt
líkamsstyrk sinn verulega og segir
hann sjálfur að hann hafi nú alveg
mátt við því að bæta á sig vöðvamassa
og á undanförnum árum hefur hann
markvisst reynt að þyngja sig.
„Ég var nú ekki nema 84 kg þegar
ég fór frá KR. Og mér var tjáð það
þegar ég kom fyrst út, að ég þyrfti að
styrkja mig. Það hef ég gert og hef
bætt við mig um 6 kg, á síðustu árum.
Það er oft erfitt að þyngja sig ef mað-
ur vill það því æfingarnar og leikirnir
eru það erfiðir að það verður oft lítið
eftir af orkuforðanum sem maður
hefur. Maður brennir of miklu, öfugt
við það sem er talið vera helsta
vandamál Bandaríkjamanna, þeir
brenna víst of litlu, borða of mikið og
hreyfa sig lítið. Ég ætla bæta við mig
2–3 kg á næstu leiktíð en síðan held
ég að það sé nóg því ég vil ekki verða
of þungur. Snerpan þarf líka að vera
til staðar.“
Landsliðið á hakanum
Jakob segir að þrátt fyrir góðan
vilja íslenskra þjálfara þá hafi þeir
ekki tíma til þess að sinna starfi sínu
líkt og kollegar þeirra vestanhafs.
Eftir hvern leik er Jakob boðaður á
fund með þjálfurum liðsins þar sem
að farið er yfir það sem hann gerði vel
í leiknum deginum áður og einnig er
farið yfir það sem hann gerði illa.
„Smáatriði. Þau skipta miklu máli
þegar upp er staðið og á þessum fund-
um fær maður það svart á hvítu hvað
maður hefur gert vel og hvað illa.
Fullkomnunaráráttan er til staðar
hjá þjálfurum liðsins og þeir gera
ekkert annað en spá í liðið 8–9 tíma á
dag.“
Íslendingar hafa lítið séð til Jakobs
frá því að hann fór vestur um haf
haustið 2000 og hann hefur lítið getað
tekið þátt í landsliðsverkefnum á und-
anförnum misserum. Jakob var til að
mynda ekki með á Smáþjóðaleikun-
um á Möltu sl. sumar þar sem að hann
var enn við nám hjá BSC og í haust er
allt eins líklegt að hann geti ekki tekið
þátt í undankeppni Evrópumóts
landsliða vegna skólagöngu sinnar.
Þar leikur Ísland gegn Dönum, Rúm-
enum og Aserum.
„Þetta er óheppilegur tími, ég þarf
að vera mættur í skólann í lok ágúst
og byrjun september þegar flest
landsliðsverkefnin eru. En vonandi
get ég verið með á næstu Smáþjóða-
leikum í Andorra enda eru oft útsend-
arar frá liðum í Evrópu á því móti.
Kannski að pabbi verði þar,“ segir
Jakob í léttum tón og kveður frá Ala-
bama.
seth@mbl.is
’ Samkeppnin ergríðarleg og það eru
að ég held 320 há-
skólar í 1. deild og
allir sem leika með
þeim vilja fá tæki-
færi til þess að láta
ljós sitt skína í von
um að fá tækifæri í
NBA eða í Evrópu. ‘
NATURAL BOOSTER með kreatíni húðarinnar.
Fjölþætt styrking á náttúrulegum vörnum húðarinnar
gegn öldrun.
Hannað eins og húðin vinnur.