Morgunblaðið - 07.03.2004, Side 24

Morgunblaðið - 07.03.2004, Side 24
24 SUNNUDAGUR 7. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ George Harrison stóð æv-inlega í skugganum af fé-lögum sínum í Bítlunum,John Lennon og Paul McCartney. Hann var þó liðtækur lagasmiður eins og sannast á mörg- um plötum sveitarinnar og átti að auki sólóferil sem var vel heppnaður um flest. Síðustu árin áður en Harr- ison lést vann hann að endurútgáfu á sólóskífum sínum sem hafa verið ófá- anlegar um árabil og fyrsti skammt- ur er sex diska kassi með plötunum sem hann gaf út á eigin merki, Dark Horse Records, og ýmislegu auka- efni. George Harrison var yngstur Bítl- anna, fæddur í febrúar 1943, átta mánuðum yngri en Paul McCartney og tveimur árum yngri en John Lennon. Hann hreifst snemma af tónlist, segist hafa verið úti að hjóla er hann heyrði Heartbreak Hotel hljóma út um glugga og eftir það komst ekkert annað að en tónlist. Harrison kynntist McCartney í strætó á leið í skólann og þeim varð vel til vina, enda báðir áhugamenn um gítara og tónlist. Það var einmitt McCartney sem kom Harrison inn í The Quarrymen, hljómsveit Johns Lennons og frumgerð Bítlanna, en Lennon fannst hann of ungur og upp- burðarlítill, ekki nema fjórtán ára. Það var ekki fyrr en hann heyrði Harrison spila að hann sló til enda langaði hann að færa sig úr skiffle í rokk og ról. Þögli bítillinn Harrison var ekki síst frægur fyrir það að vera þögli bítillinn, á meðan þeir félagar hans léku á als oddi var hann jafnan rólegri, lagði minna til málanna, en hugsaði greinilega sitt. Þannig varpaði hann fyrstur ljósi á það hve arfaslæmt það gat verið að vera í vinsælli hljómsveit; sjá lagið Don’t Bother Me á With the Beatles sem kom út 1963. Það var og fyrsta lagið sem hann kom að á Bítlaskífu, ekki það að hann hafi verið svo slakur lagasmiður, sjá til að mynda If I Needed Someone af Rubber Soul, Taxman á Revolver, While My Guit- ar Gently Weeps og Here Comes the Sun á Hvíta albúminu og Something af Abbey Road, sem var eina lag hans sem komst sem a-hlið á Bítlasmá- skífu (með Come Together á b- hliðinni). Frægðin fór einkar illa í Harrison og fáir þeir sem njóta almannahylli í dag gera sér grein fyrir því hve Bítla- æðið var mikið æði, hve aðdáendur hljómsveitarinnar voru hamslausir. Í viðtali fyrir nokkrum árum sagði hann að frægðin hefði virst freistandi þegar þeir félagar voru að byrja feril sinn, en ljóminn verið fljótur að fara af henni. „Ekki leið á löngu þar til við áttuðum okkur á því að við værum í raun ekki að leita eftir frægðinni, bara afrakstri hennar. Eftir að spennan og eftirvæntingin fór að fölna varð ég þunglyndur, hugsaði sem svo: Á þetta eftir að vera svo það sem ég á eftir ólifað? Að vera á flótta undan æpandi brjálæðingum úr einu ömurlegu hótelherbergi í annað?“ Þótt McCartney hafi verið fyrstur til að tilkynna að hann væri hættur í Bítlunum hætti Harrison þegar sveitin var að baslast við upptökur í Twickenham-kvikmyndaverinu í Lundúnum í janúar 1969, en þá hafði hann fengið sig fullsaddan af spenn- unni milli þeirra Lennons og McCartneys og frekjunni í þeim síð- arnefnda. Hann sneri reyndar aftur fyrir þrábeiðni félaga sinna en sýtti það síst af öllum þegar McCartney lýsti því yfir að hann væri hættur (fyrstur þeirra til að hætta opin- berlega en síðastur til að hætta í raun, Ringo Starr fyrstur 1968, þá George Harrison í janúar 1969 og Lennon þá um haustið). Þrefalt meistaraverk Sólóferill Harrisons hófst í raun löngu áður en Bítlarnir hættu op- inberlega, hann sendi frá sér kvik- myndatónlist undir nafninu Wonder- wall Music 1968 og stuttskífu, Electronic Sound, 1969. Hann var líka búinn að spila talsvert með ýms- um tónlistarmönnum, þar á meðal Delaney og Bonny Bramlett og fé- lögum þeirra, en sá hópur tónlistar- manna kom mjög við sögu á fyrstu eiginlegu sólóskífu Harrisons. Hann hélt í hljóðver stuttu eftir að ljóst var að Bítlarnir væru búnir að syngja sitt síðasta og fékk Phil Spector til að vera við takkana. Afraksturinn var meistaraverkið þrefalda All Things Must Pass, sem margir segja bestu sólóplötu Bítils og má til sanns vegar færa þó Plastic Ono Band Lennons hafi vissulega verið áhrifameiri. Reyndar má segja að það hafi ekki verið fyrr en með endurútgáfu á All Things Must Pass sem margir áttuðu sig á hve platan var góð, því fyrri út- gáfa hennar á geisladisk var afleit vegna þess hve upprunalegur hljóm- ur var sérhannaður fyrir vínylplötur; hljóðveggur Spectors virkar einkar vel á vínylútgáfu plötunnar, um það ber ég fúslega vitni, og á nýju útgáf- unni hljómar hann líka einkar vel, enda var gert nýtt frumeintak. Sér- staklega hljómar spuninn á þriðju plötunni í kassanum vel í nýju gerð- inni og heyrist vel hvað Harrison safnaði um sig miklum snilldar spil- urum. Næsta verkefni hans á eftir All Things Must Pass var tónleikar til styrktar fórnarlömbum flóða í Bangladesh sem gefnir voru út á plötu 1971 og síðan komu þrjár breið- skífur, Living In The Material World 1973, Dark Horse 1974 og Extra Texture 1975, fyrsta platan fín, önnur slæm, hálfköruð, eins og hann hafi ekki gefið sér tíma til að semja nóg af lögum, og sú þriðja sundurlaus en þó býsna góð. Það var reyndar galli á Harrison alla tíð; hann gat samið lög sem voru hreinustu perlur, en líka talsvert af miðlungsefni – gaf sér ekki alltaf nógan tíma til að safna í sarpinn. Dark Horse Records Plöturnar sex sem hann gaf út hjá eigin fyrirtæki, Dark Horse Records, Thirty Three & 1/3, George Harri- son, Somewhere in England, Gone Troppo, Cloud Nine og Live in Jap- an, hafa verið ófáanlegar árum sam- an og einni plötu betur reyndar, því The Best of Dark Horse (1976–1989), sem kom út 1989, er forvitnileg fyrir það að á henni voru aukalög sem hvergi hafa komið út annars staðar. Síðustu æviárin vann Harrison að því að búa Dark Horse-plöturnar undir endurútgáfu og fyrsti skammt- ur er kassinn The Dark Horse Years, 1976–1992, sem kemur út á morgun, en í honum eru plöturnar með mjög endurbættum hljóm og aukalögum nema tónleikaskífan. Í kassanum er að auki DVD diskur. Plöturnar verða gefnar út stakar fljótlega en DVD diskurinn ekki. Bæklingar í hverjum diski eru mjög auknir með fáséðum myndum og greinum eftir Harrison sjálfan, en hann var einmitt að vinna að þessari útgáfu síðustu æviárin, og með fylgir bæklingur með lærðri grein eftir rokksögufræðinginn David Fricke, blaðamann Rolling Stone. Að auki er með DVD-diskur með myndböndum og tónleikaupptökum. Olivia Harr- ison, eiginkona Harrisons, skrifar líka sögu útgáfunnar og segir frá merki hennar. Thirty Three & 1/3 Fyrsta Dark Horse platan. Kom út 1976. Harrison stýrði sjálfur upptökum en ýmsir voru honum til aðstoðar. Lagið This Song náði talsverðum vinsældum en á skífunni eru fleiri fín lög, til að mynda Crackerbox Palace og It’s What You Value. George Harrison Einvalalið tónlist- armanna kemur við sögu, þar á með- al Eric Clapton og Steve Winwood. Meðal laga voru Your Love Is Forever, Here Comes The Moon, Soft Touch og Not Guilty sem samið var fyrir Hvíta albúmið Bítlanna og tekið upp (í ótal útgáfum) en komst ekki á plötuna þegar upp var staðið. Kom út 1979. Somewhere In England Morðið á John Lennon hafði að vonum mikil áhrif á Harrison og næstu árin fór hann nánast ekkert á meðal manna. Hann breytti laginu All Those Years Ago, sem samið hafði verið fyrir Ringo Starr, þannig að það fjallaði um Lennon og fékk McCartney og Starr til að spila með sér í því. Þó Harrison hafi verið að gefa út á eigin merki var það ekki nema á pappír- unum því þegar hann skilaði plötunni tilbúinni til útgáfunnar var henni hafnað, hann þurfti að skipta út fjór- um lögum og breyta umslaginu líka. Kom út 1981. Í kassanum er upp- runalegt umslag og þrjú laganna týndu með sem aukalög. Gone Troppo Þykir sísta plata Harrisons, jafnvel lakari en Dark Horse og var Harrison þó nánast raddlaus þegar hann söng inn á þá plötu. Kom út 1982. Cloud Nine Harrison tók sér fimm ára hlé frá plötuútgáfu og það skilaði sér í fyrirtaks plötu, bestu plötu hans frá All Things Must Pass. Skipti ef- laust miklu að meðreiðarsveinn hans við upptökurnar var hinn Bítlaóði Jeff Lynne. Kom út 1987. Lögin Got My Mind Set On You, When We Was Fab og This Is Love fengu mikla spil- un og platan seldist afskaplega vel. Síðasta hljóðversplatan sem hann gaf út sem sólólistamaður en hann átti eftir að koma að The Traveling Wilburys á næstu árum (Brainwas- hed kom út að honum látnum). Live in Japan Upptökur frá heims- reisu Harrisons 1991. Hljómsveitin var vel mönnuð, skipuð Eric Clapton, Andy Fairweather Low og Chuck Leavell. Prógrammið var skothelt og greinilegt að menn voru að skemmta sér, en Harrison var í sinni fyrstu tónleikaferð í átján ár. Kom út 1992. Fín tónleikaplata sem er í tveimur útgáfum, venjulegum víðómi og að auki 5.1 Surround SACD. Steinsteypukjólfötin Næstu plötur sem Harrison kom að voru tvær skífur með The Travel- ing Wilburys, þar sem þeir Bob Dyl- an, Harrison, Jeff Lynne, Roy Orbi- son og Tom Petty skemmtu sér með því að fela sig á bak við hljómsveit- arnafn og gefa út tónlist. Fyrsta Wilburys-platan, Vol. 1, sem kom út 1988, var prýðileg, en eftir að Orbi- son lést það ár má segja að gamanið hafi farið úr sveitinni og næsta plata, Vol. 2, sem kom út 1990, var öllu síðri. Eftir að ævintýrinu með The Trav- eling Wilburys lauk hafði Harrison hægt um sig. Hann hafði reykt eins og strompur frá unglingsaldri og það kom honum í koll; hann greindist með krabbamein í hálsi 1998 sem dró hann til dauða á þremur árum. Ætt- ingjar og vinir hans segja að hann hafi ekki hræðst dauðann, hafi litið á hann sem eðlilegan hluta af lífinu. Hann eyddi síðustu árunum í að und- irbúa útgáfuna á All Things Must Pass og endurútgáfuna sem nú lítur dagsins ljós, aukinheldur sem hann nánast lauk við breiðskífuna Brain- washed sem kom út eftir lát hans. Fín Harrison-plata og ekki að merkja á henni að hann hafi verið banvænn er hún var tekin upp. Það er helst að hann nefni það í stöku textum og gerir meira að segja nett gaman að öllu saman – í einu laginu syngur hann um steinsteypukjólfötin sín. Þó The Dark Horse Years, 1976– 1992, segi ekki alla tónlistarsögu George Harrisons, það er enn mikið sem eftir er að gefa út aftur og sitt- hvað forvitnilegt sem aldrei hefur verið gefið út á löglegan hátt, gefur kassinn góða mynd af mistækum listamanni. Þegar hann var upp á sitt besta hafði hann í fullu tré við þá Lennon og McCartney og þó nokkuð sé af miðlungslögum á plötunum þá eru góðu stundirnar fleiri. Mistækur listamaður George Harrison vann að því áður en hann lést að endurútgefa plötur sínar sem flestar voru ófáanlegar. Árni Matth- íasson segir frá Dark Horse árum Harrisons. arnim@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.