Morgunblaðið - 07.03.2004, Side 26
26 SUNNUDAGUR 7. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
H
veragerði hef-
ur orð á sér
fyrir að vera
gróðursæll
staður þar sem
vaxa fögur
blóm í gróður-
húsum, greinar
svigna undan tómötum og græn-
metið sprettur í hlýjum jarðveg-
inum.
En það er ekki aðeins gróðurinn
sem dafnar í Hveragerði, mannlífið
er líka gróskumikið og fjölbreytt.
Dvalarheimilið Ás býður t.d. upp á
ýmsa athyglisverða möguleika
hvað búsetu snertir, m.a. geta hjón
fengið þar hjónaíbúðir með ým-
iskonar þjónustu.
„Sá búsetukostur hefur þá sér-
stöðu að fólk býr svo sjálfstætt í
sínum húsum að það verður varla
vart við að það er komið inn á heil-
brigðisstofnun, þó svo að það njóti
allrar þjónustu, svo sem læknis- og
hjúkrunarþjónustu, fæði, húsnæði,
ræstingu, þvott á fatnaði, lyf,
sjúkraflutning, sjúkraþjálfun, hár-
greiðslu og fótsnyrtingu, dægra-
dvöl og fleira,“ segir Ragnhildur
meðan við örkum áleiðis að Ásum
7, þar sem þau Guðleifur og Ást-
ríður búa.
En geta allir fengið inn á Ási?
„Til þess að fá vistun á Ási,
hvort heldur er í hjúkrunarrými
eða dvalarrými, þarf svokallað
vistunarmat sem þjónustuhópar
aldraðra í viðkomandi sveitarfélagi
sjá um að útbúa,“ svarar Ragnhild-
ur. Blaðamaður er kominn að Ási
með það einkum fyrir augum að
forvitnast um fyrrnefndar, hjóna-
íbúðir sem hafa notið vaxandi vin-
sælda.
„Sem stendur eru sextán hjón
skráð á biðlista hér, en það er
aldrei að vita hversu langur bið-
tíminn er. Þó svo að íbúð losni er
ekki endilega víst að þau hjón sem
eru framarlega á listanum séu
tilbúin til að koma þá,“ segir
Ragnhildur ennfremur.
Bygging á hjónaíbúðum hófst
1965. Gísli Sigurbjörnsson, for-
stjóri Grundar og Áss árin 1934 til
1994, hafði að sögn Ragnhildar
óbilandi trú á Hveragerði fyrir
starfsemi sem þessa og kom með
mikilli vinnuhörku og útsjónarsemi
upp þessum hjónaíbúðum.
Dvalarheimilið Ás í Hveragerði
tók til starfa 1952 og er það í eigu
Grundar í Reykjavík en er rekið
sem sjálfstæð eining. Nú eru að
sögn Ragnhildar heimilismenn í
Ási rúmlega 150 talsins. Vistarver-
ur eru 15 hjónaíbúðir, 15 einstak-
lingsíbúðir og sambýli, þ.e. hús
með herbergjum og sameiginlegu
eldhúsi, stofu og baðherbergi.
Einnig er hjúkrunardeild starf-
rækt og búa þar 26 einstaklingar.
„Strax þegar hjúkrunardeildin
var í byggingu jókst aðsóknin
mjög að Ási, þá sá fólk fram á
áframhaldandi þjónustu, þótt heils-
an bilaði,“ segir Ragnhildur.
Greidd eru daggjöld sem ákveð-
in eru af heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu og koma greiðsl-
urnar frá Tryggingastofnun
ríksins, en hafi einstaklingar
tekjur sem eru hærri en um 45
þúsund krónur á mánuði greiðir
Tryggingastofnun ekki fullt gjald
til heimilsins heldur greiðir ein-
staklingurinn þá mismuninn.
„Það er sem kunnugt er æði
misjafnt hvað hver einstaklingur
hefur í tekjur, t.d. lífeyrissjóðs-
tekjur,“ bætir Ragnhildur við.
En hvað gerist ef annað
hjónanna fellur frá – heldur þá hitt
íbúðinni áfram? segir blaðamaður.
„Við fráfall maka fær sá sem eft-
ir lifir að búa áfram í hjónaíbúð-
inni þar til hentugt húsnæði á
dvalarheimilinu finnst. Sá biðtími
hefur verið allt frá einum mánuði
upp í sex mánuði,“ svarar Ragn-
hildur.
Hafði í bakþankanum
að flytja í Ás
Við erum nú komin að dyrunum
hjá þeim Guðleifi og Ástríði og
ætlum að fá að skoða hjónaíbúðina
þeirra og heyra ofan í þau hvernig
þeim líki þar vistin eftir það hálfa
ár sem þau hafa búið í Ási.
„Ég var satt að segja búinn að
hafa lengi í bakþankanum að flytja
í hús sem aldraðir eiga kost á hér
hjá Ási áður en ég lét til skarar
skríða,“ segir Guðleifur Sigurjóns-
son og fylgir okkur um húsið.
Það er satt að segja harla glæsi-
legt um að litast í stofu þeirra
hjóna og ekki er lengi verið að
hafa til kaffi í notalegu eldhúsinu,
þar sem greinilega er allt til alls.
„Hádegismatinn borðum við á
dvalarheimilinu, það er hiti í stétt-
unum svo ekki er hætt á að við
dettum á leiðinni í matinn. Svo
sækjum við okkur kaffi, mjólk,
brauð, álegg og ávexti á dvalar-
heimilið til þess að hafa í morg-
unmat og síðdegiskaffi. Ég var
talsvert lengi að venjast því að
þurfa ekki að kaupa í matinn og
elda að staðaldri, mér fannst það
skrítið,“ segir Ástríður þegar hún
hellir kaffi í bollana fyrir okkur
Ragnhildi.
Þau Ástríður og Guðleifur
kynntust fyrir röskum fimmtíu ár-
um í Ölfusinu og bjuggu nokkur ár
í Hveragerði á sínum fyrstu bú-
skaparárum svo nú eru þau komin
á fornar slóðir á ný og una að eigin
sögn hag sínum einkar vel.
„Ég er raunar Keflvíkingur í
húð og hár, fólkið mitt kom þangað
1860, móðurætt mín er í framætt
úr Árnes-, Rangárvalla- og Skafta-
fellssýslu en föðurættin er af Snæ-
fellsnesi,“ segir Guðleifur.
Það er ekki komið að tómum
kofunum hjá honum hvað ættfræð-
ina snertir. Þegar hann fylgir okk-
ur þessu næst inn í gestaherbergi
blasa við okkur ættfræðibækur í
mörgum hillum.
„Ég hef lagt þetta herbergi und-
ir mig fyrir ættfræðigrúskið og
mér endist varla dagurinn, svo
mikið hef ég að gera við þessa
iðju,“ segir hann og sækir úr hillu
bækur um ættir Keflvíkinga í
þremur bindum sem hann á mikið
efni í, sem og bæklinga sem hann
hefur sett saman um ættir sínar og
konu sinnar.
Á meðan situr kona hans og
prjónar hvíta peysu og hefur sig
lítt í frammi, segir mér þó þegar
við komum til baka að hún fái
garnið ódýrt í handavinnudeildinni
hjá Ási.
En það var eins og gerist tilvilj-
unin einber sem leiddi þau Guðleif
og Ástríði saman hér um árið.
„Hingað austur kom ég sem
ungur maður vegna þess að félagi
minn hafði ráðið sig í kaupavinnu
að Egilsstöðum í Arnarbælishverfi
í Ölfusi en fékk pláss á síldveiðibát
fyrir norðan og bað mig að fara í
sinn stað í kaupavinnuna.
Ég ætlaði að vera í tæpa tvo
mánuði hér eystra en var í tíu ár,“
segir Guðleifur.
„Ég fékk löngun til þess að búa í
sveit í kaupamennskunni og sótti
um á Hvanneyri en fékk það svar
að ég væri velkominn þangað eftir
að hafa verið ársmaður í sveit. Þá
réð ég mig í Auðsholt þar skammt
frá og í Auðsholtshjáleigu var Ásta
heimasæta. Þetta var árið 1953 og
við vorum rösklega tvítug. Það
endaði með að ég fór aldrei á bún-
aðarskólann á Hvanneyri. Þess í
stað fluttum við Ásta til Hafn-
arfjarðar þar sem ég vann við vél-
smíði skamman tíma. Þegar ég var
strákur var ég oft í heimsókn hjá
frændfólki mínu þar í bæ og
kannski vegna þess fannst mér ég
alltaf vera gestur í Hafnarfirði.
Þegar ég sá auglýst í Hafnarfjarð-
arblaðinu eftir aðstoðarmanni við
gróðrarstöð Hafnarfjarðarbæjar í
Krýsuvík sótti ég um og fékk
starfið. Þetta var árið 1957. Eftir
eitt ár í garðyrkjunni fluttumst við
í Ölfusið til tengdaföður míns og
ætluðum í búskap en garðyrkjan
varð yfisterkari og ég réði mig til
Jóns Björnssonar landslagsarki-
tekts sem þá var með garðyrkju-
stöð í Hveragerði.
Svo var það eitt sinn að ég fékk
að fljóta með á fyrirlestur hjá
Breinholt Nielsen, dönskum pró-
fessor í Garðyrkjuskólanum. Þetta
varð kveikjan að því að mig lang-
Ásar 7, heimili þeirra Guðleifs og Ástríðar.
Hjónahúsin í Ási
Hjónahúsin í Ási í
Hveragerði voru hið
„fyrirheitna land“ í
huga Guðleifs Sig-
urjónssonar, sem býr í
einu slíku með konu
sinni Ástríði Hjart-
ardóttur. Guðrún Guð-
laugsdóttir heimsótti
þau ásamt Ragnhildi
Hjartardóttur hjúkr-
unarframkvæmda-
stjóra, sem gaf jafn-
framt ýmsar
upplýsingar um þennan
búsetukost.
Ma
llorc
a
34.142kr.
Sama sólin - sama fríi›
-en á ver›i fyrir flig!
á mann miðað við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11ára, ferðist saman.
41.730 kr. á mann ef 2 ferðast saman.
Innifalið er flug, gisting í 7 nætur á Pil Lari Playa,
10.000 kr. bókunarafsláttur og ferðir til og frá flugvelli erlendis.
Po
rtúg
al
38.270kr.
Sama sólin - sama fríi›
-en á ver›i fyrir flig!
á mann miðað við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11ára, ferðist saman.
46.855 kr. á mann ef 2 ferðast saman.
Innifalið er flug gisting í 7 nætur á Sol Dorio, 10.000 kr. bókunarafsláttur
og ferðir til og frá flugvelli erlendis.
Krít
48.230kr.
Sama sólin - sama fríi›
-en á ver›i fyrir flig!
á mann miðað við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11ára, ferðist saman.
59.020 kr. á mann ef 2 ferðast saman.
Innifalið er flug, gisting í 7 nætur á Skala, 10.000 kr. bókunarafsláttur
og ferðir til og frá flugvelli erlendis.
Co
sta
del Sol
53.942kr.
Sama sólin - sama fríi›
-en á ver›i fyrir flig!
á mann miðað við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11ára, ferðist saman.
67.830 kr. á mann ef 2 ferðast saman.
Innifalið er flug, gisting í 14 nætur á St. Clara, 10.000 kr. bókunarafsláttur
og ferðir til og frá flugvelli erlendis.
Be
nid
orm
35.942kr.
á mann miðað við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11ára, ferðist saman.
44.430 kr. á mann ef 2 ferðast saman.
Innifalið er flug, gisting í 7 nætur á Halley, 10.000 kr. bókunarafsláttur
og ferðir til og frá flugvelli erlendis.
Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 • www.plusferdir.is
Sama sólin - sama fríi›
-en á ver›i fyrir flig!