Morgunblaðið - 07.03.2004, Page 28

Morgunblaðið - 07.03.2004, Page 28
28 SUNNUDAGUR 7. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Að Ásum 11 búa hjónin Hildegard ogHafsteinn Þorgeirsson. Þau hafa bú-ið í hjónaíbúð í Ási í Hveragerði íþrjú ár og taka blaðamanni vel þegar hann rekst inn til þeirra í heimsókn til þess að heyra hvað þau hafi að segja um reynslu sína af þessum búsetukosti. „Hér er yndislegt að vera og vel um okkur hugsað. Ég átti hugmyndina að þessum um- skiptum. Við Hilla kynntumst hér á balli í Hót- el Hveragerði þegar hún var nýlega komin til Íslands. Hún er þýsk og var hér vinnukona en ég var að vinna hér í nágrenninu. Ég hafði heyrt um þessar hjónaíbúðir og þegar við gát- um allt í einu selt íbúðina okkar við Álakvísl í Reykjavík á frjálsum markaði þá stóð ég fyrir því að við gerðum það og svo vel bar í veiði að við fengum inni hér um sama leyti,“ segir Haf- steinn nokkuð glaðhlakkalegur í bragði og kona hans kinkar kolli til samþykks. Það er von að þau séu ánægð því sannarlega er vistlegt um að litast í þriggja herbergja íbúðinni þeirra. Hafsteinn fæddist í Hafnarfirði en faðir hans fékk berkla og því var honum ársgömlum komið í fóstur til föðurbróður síns og konu hans. „Þau voru barnlaus þegar þau tóku mig en eignuðust eina dóttur fjórum árum síðar. Við bjuggum fyrst á Austfjörðum en síðan á Ak- ureyri. Fósturmóðir mín var sú allra besta mamma sem hægt var að eignast. Ég fékk mjög ástríkt uppeldi. Ég fór til Reykjavíkur þegar ég var orðinn nógu gamall til að skilja að ekki er alltaf hægt að vinna hjá KEA. Vissi ekki að blóðmóðirin bjó hinum megin við götuna Við fórum nokkrir strákar til að vinna við Hitaveituna í Reykjavík. Ég var þá 17 ára og var með miða með mér með heimilisfangi blóð- móður minnar sem ég þekkti ekki neitt. Ég vissi þó að tvö systkini mín bjuggu enn hjá henni. En því miður týndi ég miðanum og skrifaði mömmu norður og bað hana að senda mér heimilisfangið aftur sem hún gerði og fékk ég bréfið hálfum mánuði síðar. Þann tíma bjó ég í skólahúsinu við Lindargötu þar sem nú er tónlistarskóli. Í portinu þar voru oft börn að leik. Ég vissi ekki þá að tvö þeirra voru systkini mín og blóðmóðir mín bjó hinum megin við götuna. Þegar ég hafði fengið heimilisfangið hennar barði ég þar að dyrum en fannst hún ekki taka mér eins fagnandi og ég bjóst við. Ég skildi síðar að hún óttaðist að ég myndi setjast upp hjá henni, en hún var fátæk og hafði fyrir nógu miklu að sjá. Ég leit þó aldrei á hana sem móð- ur, hún varð mér sem eins konar góð frænka, mamma mín var sú sem ól mig upp,“ segir Hafsteinn. Árið 1959 var atvinnuleysi á höfuðborgar- svæðinu. „Ég fór í þrjá mánuði hvern morgun klukk- an níu niður í Alþýðuhús, þar sem var atvinnu- miðlun, til þess að bíða þess að úr rættist,“ segir Hafsteinn. „Þar kom að skólastjórinn á Reykjum mætti á staðinn og sagði: „Mig vantar mann sem kann að keyra bíl og logsjóða.“ Ég kunni hvort tveggja, hafði lært að logsjóða í Ofnasmiðjunni eftir hitaveituævintýrið, og var ráðinn í starf- ið.“ Sagði bara já við bónorðinu til að segja eitthvað Þegar þau fóru að dansa saman Hafsteinn og Hildegard á Hótel Hveragerði var hún búin að læra nokkuð í íslensku, eftir ársdvöl hér á landi. „Hún skildi þó ekki nærri því eins mikið og ég hélt. Ég bað hennar á brúnni hér yfir ána í Hveragerði og hef stundum sagt í gamni að hún hafi ekki skilið bónorðið en bara sagt já til að segja eitthvað.,“ segir Hafsteinn. „Ég skildi vel hvað þú varst að meina,“ svar- ar Hilla og brosir. En hver skyldu hafa verið tildrög þess að hún kom hingað til Íslands að- eins 18 ára. „Ég kom hingað vegna atvinnuleysisins í Þýskalandi eftir stríð,“ segir Hilla. „Ég fæddist í Elbing, þar sem nú er Pól- land, en við flúðum þaðan 1944 til Lübeck þeg- ar ég var 14 ára. Þetta var hræðilegt ferðalag. Pabbi var langferðabílstjóri og eigandi fyrir- tækisins bauð honum að eiga bílinn sem hann ók ef hann vildi aka búslóð hans á tengivagni sem festur var við bílinn til Lübeck, en sjálfur fór eigandinn með skipi þangað. Við fórum af stað í 23 stiga frosti, sátum aft- an á bílpallinum fjögur systkinin og fleiri og vorum öll að deyja úr kulda. Ég óska engum svo ills að fara í slíkt ferðalag. Móðirin galt fóstureyðingu með lífi sínu Við höfðum ekki að neinu að hverfa, fengum inni í einu herbergi þar sem við sváfum öll, eld- uðum og lifðum lífinu. Móðir mín varð ófrísk og mat það svo að það væri ekki hægt að fæða fleiri börn inn í þessa tilveru. Hún fór í fóstur- eyðingu og galt fyrir það með lífinu. Eftir var pabbi með okkur fjögur. Það kom sér að hann var sterkur og vel lyntur maður. Ég hugsaði um systkini mín meðan hann var í langferðalögum í akstri. Þetta var óskemmti- legt líf, við áttum ekkert, þekktum engan og það var litið niður á okkur. Við misstum ekki aðeins mömmu, við höfðum áður misst alla okkar ættingja og vini þegar við flúðum. Einu og hálfu ári eftir að mamma dó eign- uðumst við stjúpmóður. Hún var stríðsekkja, átti íbúð og hafði eftirlaun eftir mann sinn. Hún og faðir minn giftu sig því aldrei. Við fluttum til hennar og hún tók við stjórninni. Hún var regluföst og ákveðin kona sem krafð- ist þess að við kölluðum hana mömmu. Hún átti sjálf engin börn. Systkinum mínum, þeim yngri, gekk þetta betur en mér. Ég vildi kom- ast burt og 18 ára sá ég auglýsingu í bæj- arblaðinu um að það vantaði vinnukonur á Ís- landi. Ég fór og gerðist vinnukona í Fagrahvammi í Hveragerði. Margrét systir mín kom hingað til mín þegar hún var 14 ára, þá vorum við Hafsteinn nýbyrjuð að búa. Hún giftist hér en er nú látin, sem og er bróðir minn dáinn. Yngsta systir mín var bara 2 ára þegar mamma dó og hún leit á stjúpmóður okkar sem móður.“ „Hilla hefur ekki komist yfir móðurmissinn ennþá,“ segir Hafsteinn. Hildegard kinkar kolli. „Já, það er alltaf erfitt hjá mér um jólin, mamma dó 18. desember. Hún fékk miklar blæðingar eftir fóstureyðinguna og var flutt á spítala, þá var komin eitrun í allt saman og ekki hægt að bjarga henni.“ Hildegard átti góða daga í Fagrahvammi. „Hjónin þar, Emilía og Ingimar Sigurðsson, reyndust mér eins og bestu foreldrar, þau héldu meira að segja brúðkaupsveislu fyrir mig þegar við Hafsteinn giftumst,“ segir Hilla og hlær. „Tveimur árum áður en við Hilla kynntumst var ég að vinna í Vélsmiðjunni Hamri. Við tók- um að okkur að ketilhreinsa togara. Einu sinni vorum við nokkrir strákar að koma úr slíku starfi og vorum svartir eins og negrar. Þegar vinnu var lokið um miðnætti var Esjan að leggja að bryggju með 200 þýskar stelpur. Stákarnir vildu skoða þýsku stelpurnar en ég hélt nú ekki að ég færi að skoða þessar „nas- istapíur“, og fór heim. Ég var sá eini af þeim sem eignaðist þýska konu, hún var einmitt í þessum hópi sem var að koma með Esju þarna. Svona er lífið,“ segir Hafsteinn. Þau Hilla og Hafsteinn bjuggu í Hveragerði í um tíu ár, þá fluttu þau til Reykjavíkur. „Ég var í lausamennsku lengst af hér í Hveragerði, við höfðum fremur lélegt húsnæði og ég fékk aldrei fasta vinnu. Þetta var þreyt- andi og fjarvistir frá heimilinu miklar, svo við fluttum suður,“ segir Hafsteinn. Þegar til Reykjavíkur kom fór Hafsteinn að keyra strætisvagn sem ók um Seltjarnarnes. Hilla var heima og hugsaði um börnin þeirra sex. Þau eignuðust hús við bæjarmörk Reykjavíkur og síðar íbúð í Írabakka. Enn síð- ar eignuðust þau íbúðina við Álakvísl. En hvernig skyldi sambúðin hafa gengið hjá tveimur persónum með svo ólíkan bakgrunn? Hilla er íslenskari en ég „Hún Hilla er íslenskari en ég.Við höfum aldrei orðið þess vör að við kæmum frá ólíkum aðstæðum.“ segir Hafsteinn. „Ég lærði íslensku fljótt og íslenskar venjur og siði í Fagrahvammi. Þar lærði ég að elda og halda heimili. Mér líkar miklu betur hér en í Þýskalandi, ég á ekki góðar minningar frá Lü- beck þótt ég sjái núna að það var visst afrek hjá stjúpmóður minni að taka að sér þennan barnahóp því faðir minn var lítið heima vegna starfs síns svo heimilishaldið mæddi á henni, við tvær urðum miklar vinkonur þegar ég kom síðar oft í heimsókn til hennar og pabba í Lü- beck.“ Hafsteinn reyndi að eigin sögn að kaupa hús í Hveragerði en fékk ekki lán þrátt fyir góðan ábyrgðarmann og það gerði útslagið. „Þá ákvað ég að flytja og datt ekki í hug að við myndum nokkurn tíma koma hingað aft- ur,“ segir hann. Hilla fór að vinna úti þegar börnin stálp- uðust. Bakaði öll smábrauðin fyrir flugvélar Flugleiða „Ég var alltaf í veitingahúsabransanum, fyrst var ég í Naustinu, þar var gaman að vera, starfsfólkið var eins og ein fjölskylda, síðan fór ég á Hótel Loftleiðir. Þar átti ég að vera í upp- vaski en var gerð að bakara vegna þess að bakarinn veiktist. Í tíu ár bakaði ég smábrauð- in fyrir flugvélar Flugleiða og fyrir Hótel Loftleiðir. Það var mikið og erfitt starf,“ segir hún. Nú þarf Hilla ekki lengur að baka nema að hún sjálf vilji. „Ég baka stundum, en mér finnst mjög gott að þurfa ekki lengur að vera við eldamennsku og þrifnað. Við hitum okkur bara stundum snarl á kvöldin. Hitt er annað að ég hélt að hér væri fleira fólk sem við þekktum. En þegar við komum hingað eftir öll þessi ár voru kunn- ingjarnir fluttir eða fallnir frá. Við þekktum þegar til kom bara örfáa. Það voru vonbrigði.“ Hafsteinn lét það hins vegar ekki á sig fá, hann fór að spila golf af miklum krafti, en þá íþrótt hafði hann stundað í Reykjavík. „Í golfinu hér hitti ég menn sem þekktu mig en ég kom ekki strax fyrir mig. Þeir höfðu þá verið undir minni stjórn í skátafélagi sem ég stofnaði hér ásamt öðrum manni. Nú spilum við saman golf, ég og þessir löngu uppkomnu skátadrengir.“ Hilla hefur ekki bílpróf svo hún gerir ekki víðreist nema að Hafsteinn keyri hana, á því eru þó viss tormerki. „Hún er vön að hafa einkabílstjóra, en nú er ég farinn að þreytast í augunum við langa keyrslu, – ég endist á Selfoss,“ segir Hafsteinn og hlær. Þau hjón fara því ekki oft til Reykja- víkur. „Börnin koma hingað oft að heimsækja okk- ur, og þau sækja okkur ef við þurfum á að halda,“ segir Hildegard. Þau hjón eiga fjöl- mennan hóp afkomenda. „Allt er þetta gott og blessað – nema hvað ég hrökk illa við þegar ég áttaði mig á að ef annað okkur félli frá yrði hitt að flytja úr hús- inu. En þetta eru reglur hér og þær eru skilj- anlegar útfrá sjónarmiðum fyrirtækisins,“ segir Hafsteinn. „Kannski yrði það ekki svo slæmt ef til kæmi,“ segir Hilla. „Hún Hilla er svo léttlynd, það hefur fleytt henni gegnum marga erfiðleikanna. Góð lund er mikilvægasta vopnið í lífsbaráttunni,“ segir Hafsteinn og með þeim orðum kveðjum við þessi glaðbeittu hjón að Ásum 11. Hér er yndislegt að vera Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Hildegard og Hafsteinn í stofunni sinni. Hafsteinn og Hildegard með elstu börn sín þrjú, þau Þorgeir, Karin og Sigurð Helga, seinna eignuðust þau Davíð Einar, Hafstein Ernst og Hafdísi. Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Í parhúsinu Ásar 11 búa þau Hildegard og Hafsteinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.