Morgunblaðið - 07.03.2004, Síða 30
30 SUNNUDAGUR 7. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ALLS freistuðu á þriðja þúsund
manns gæfunnar í sms-leik Lauga
sem lauk um síðustu mánaðamót. Í
vinning voru; tvö árskort í Bað-
stofu og heilsurækt Lauga, þrjú
árskort í heilsurækt ásamt fjölda
vinninga í nudd- og snyrtistofuna
Laugar–Spa, Laugar Café, hár-
greiðslustofu Punk og Fitness
Sport. Guðrún Daníelsdóttir hjúkr-
unarfræðingur vann árskort í tví-
gang með aðstoð sonar síns,
Sindra Snæs Harðarsonar.
Guðrún hafði horft löngunar-
augum til Lauga frá því að stöðin
var opnuð, og þá sérstaklega til
Baðstofunnar og ákvað að taka
þátt í sms-leiknum þegar hún sá
auglýsinguna um leikinn og bað
son sinn að aðstoða sig að senda
sms-skeytið og um hæl var hún
búin að eignast árskort í heilsu-
rækt. En hún lét ekki deigan síga
og fékk soninn sér aftur til að-
stoðar því að draumurinn var að
eignast árskort í Baðstofuna og
heppnin lék við hana aftur og
hreppti hún draumakortið en
mörg hundruð manns höfðu tekið
þátt í leiknum í millitíðinni, segir í
fréttatilkynningu.
Hafdís Jónsdóttir afhendir tveimur heppnum vinningshöfum árskort í Bað-
stofu og heilsurækt Lauga.
Vann í tvígang árs-
kort í Laugar
FRJÁLSHYGGJUFÉLAGIÐ harm-
ar þá skoðun sem fram kemur í um-
mælum landbúnaðarráðherra um að
ekki skuli notast við ódýrt vinnuafl og
tækni í landbúnaðarstörfum. Telur
félagið að ummælin beri vott um „aft-
urhaldssemi og vilja til að halda
bændum í viðjum þess kerfis sem er
þeim mjög íþyngjandi,“ segir í álykt-
un sem borist hefur Morgunblaðinu.
Þar segir einnig:
„Réttara væri að stefna að frelsi en
auknum höftum í landbúnaðarmálum.
Horfið hefur verið frá haftastefnu á
ýmsum sviðum með góðum árangri
og ætti sá árangur að gefa vísbend-
ingu um hvað reynist best við skipu-
lagningu vinnunnar. Bændur hér á
landi hafa í auknum mæli tekið nýja
tækni í sína þjónustu og því ber að
fagna. Bætt framleiðni og hagræðing
er það sem eykur hag bænda, neyt-
enda og annarra sem landið byggja.
Með hagræðingu í rekstri gefst
bændum færi á að nota tíma sinn í
sköpun meiri verðmæta og ná því
betri útkomu þegar á heildina er litið.
Það er ekki yfirvalda að ákveða
hvaða form rekstrar sé best. Eigend-
ur framleiðslutækjanna og fjár-
magnsins eiga að ákveða það, því þeir
hafa mestar upplýsingar um hvað
best sé að gera. Þeir eru líklegastir til
að komast næst réttri niðurstöðu.“
Harmar skoð-
un landbún-
aðarráðherra
Frjálshyggjufélagið
VINNUEFTIRLITIÐ hefur sett á
heimasíðu sína, www.vinnueftirlit.is,
upplýsingasíðu um persónuhlífar.
Með persónuhlífum er m.a. átt við
öryggishjálma, heyrnarhlífar, ör-
yggisskó, hlífðarhanska, fallvarnar-
búnað, öndunarfærahlífar og endur-
skins- og hlífðarfatnað. Á síðunni er
fróðleikur fyrir framleiðendur, selj-
endur og kaupendur persónuhlífa.
Auk þessa er algengum spurning-
um svarað á síðunni og einnig er
unnt að senda inn fyrirspurnir.
Markmiðið með síðunni er að
framleiðendur, seljendur og kaup-
endur geti greiðlega fengið upplýs-
ingar um þær kröfur sem gilda um
framleiðslu, merkingar og markaðs-
setningu persónuhlífa, svo og upp-
lýsingar um notkunarleiðbeiningar
sem persónuhlífum eiga að fylgja á
íslensku
Á síðunni er jafnframt gátlisti sem
getur reynst gagnlegur við kaup,
sölu og val á persónuhlífum.
Upplýsingar
um persónu-
hlífar á Netinu
♦♦♦