Morgunblaðið - 07.03.2004, Page 46

Morgunblaðið - 07.03.2004, Page 46
SKOÐUN 46 SUNNUDAGUR 7. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ NÚ stefnir í enn eitt skipulags- slysið í Reykjavík. Þessi grein er reyndar skrifuð alltof seint. En betra er seint en aldrei. Fram- kvæmdir er enn ekki hafnar. Enn má hætta við. Ég er að tala um færslu Hring- brautar. Seint á liðinni öld kom nýtt fólk til valda í Reykjavík. Fólk með aðrar áherslur en áður höfðu tíðkast; bæði mýkri og „mannlegri“. R-listinn hefur nú setið í Ráð- húsinu í bráðum áratug og betrumbætt margt í ásýnd borgarinnar. Laugavegurinn er fal- legri, göngustígarnir lengri og hægt er að synda í Nauthólsvík. Í aðalskipulagsmálum hefur stefnan þó löngum haldist óbreytt frá því Geir Hall- grímsson var og hét: Borginni hefur eftir sem áður verið stefnt austur á Selfoss annarsvegar og upp í Borgarnes hinsvegar: Eins langt í burtu frá Miðbænum og mögulegt er. Stutt er síðan Korp- úlfsstaðir voru gerðir að hverf- isskóla og næst á dagskrá er nýtt hverfi við Rauðavatn. Sjálfsagt er þess ekki langt að bíða Litla Kaffi- stofan verði hverfissjoppa í huggu- legu botnlangahverfi þar sem allar götur verða jafn blindar og bylurinn sem geysa mun um þær. Allt okkar huggulega vinstrafólk sem sefur sín- um umhverfisvæna svefni undir súð- unum í gamla bænum hefur um ára- bil stefnt komandi kynslóðum í rislág bönker-hverfin upp til fjalla. „Bláfjallabyggð“ og „Kolviðarhólar“ eru sjálfsagt þegar komin á kortið. En batnandi fólki er best að lifa: Nýverið var okkur kynnt verðlauna- skipulag fyrir Slippsvæðið og nú er loksins komin fram ný skipulags- hugmynd fyrir Kvosina. Samanlagt er þetta það besta sem sést hefur í skipulagsmálum frá því að hug- myndin um uppbyggingu Skugga- hverfis kom fram. R-listinn virðist aðeins vera að taka við sér og minn- ist þess nú kannski að einhverju sinni lagði hann af stað með þá hug- mynd að færa mölinni líf fremur en lífinu möl. Vinstri meirihlutinn var þó ekki fyrr búinn að kynna okkur Kvos City en hann flautaði til útboðs á ein- hverri furðulegustu framkvæmd í sögu Reykjavíkur. Já, það er sem- sagt búið að auglýsa útboð á færslu Hringbrautar og því er pennanum hér í raun beitt gegn jarðýtum frek- ar en bollaleggingum. Borgarmenn segja framkvæmdina hafa verið kynnta með lög- legum hætti og það mótbárulaust. Þeir hafa sjálfsagt haft teikningarnar til sýnis í einhverjum kjall- aranum í Borg- artúninu í lögboðinn tíma en um raunveru- lega kynningu var aldrei að ræða. Hér er um alltof stóra fram- kvæmd til þess að embættismönnum leyfist að lauma henni bakvið sjónvarpstæki og dag- blöð borgarbúa. Ég verð að játa að fyrst þegar ég heyrði talað um færslu Hring- brautar skildi ég hana ekki. Ég botnaði ekkert í því hversvegna hún var nauðsynleg. „Til að rýma fyrir stækkun Landspítalans“ hét það. Og þrátt fyrir að hafa kynnt mér málið betur skil ég enn ekki hvers vegna færa þarf Hringbrautina. Þetta er botnlaust rugl. Bara fixídea. Blautur verktakadraumur. Borgin er að lúffa fyrir býrókrötum í heilbrigðiskerf- inu. Það á að gefa Landspítalanum svigrúm á stærð við sjálfa Kvosina á einum besta stað í borgarlandinu. Hvers vegna má ekki þenja út LSH í Fossvogi? Þar er nóg pláss og þá kæmi kannski loksins eitthvað já- kvætt út úr sameiningu Land- og Borgarspítala. Sjálfsagt er ár og öld þar til mönnum tekst að finna upp eitthvað bólgueyðandi fyrir heil- brigðiskerfið: Spítalar gera auðvitað ekki annað en að þenjast út: Eftir fimmtíu ár verður sjálfsagt komið að því að færa þurfi Hringbrautina enn lengra út í Vatnsmýrina til að rýma fyrir Genadeildinni og hinni ört vax- andi Lýtalækningadeild. Hér er hugsað skammt yfir stutt: Samkvæmt nýjustu fréttum mun þessi gríðarframkvæmd ekki einu sinni flýta fyrir umferð, heldur fá öll umferðarljósin að halda sér og ein bætast að auki við. Hvað eru menn að hugsa? Stundum taka umferð- armál höfuðborgarinnar á sig und- arlega mynd. Á meðan við bíðum þess að framkvæmdir hefjist við mislæg gatnamót á erfiðustu kross- götum borgarinnar, á mótum Kringlumýrar- og Miklubrautar, finna hinar mislægu hendur skipu- lagsins enn og aftur „lausnir“ á mun smærri vöndum. Færsla Hring- brautar er ekkert annað en of- urlausn á gervivandamáli. Annað slíkt dæmi er furðuverkið sem reist var inni í Faxafeni um árið þegar byggð var heil brú yfir Miklubraut til að koma fólki af McDonalds og upp í Smáíbúðahverfi, brú sem er svo ljósum prýdd og svo klúðursleg að það er vart heil brú í henni. Hvað er að Hringbrautinni eins og hún er? Mikil umferð jú, en sjaldn- ast til vandræða. Sjálfur hef ég verið með bílpróf í aldarfjórðung en aldrei þurft að bíða lengur á Hringbraut en sem nemur tveimur ljósum. Hávaða- mengun kannski? Já, ef til vill, en vart meiri en gengur og gerist, og enn minni en frá Miklubraut. Nei. Hér er fyrst og fremst verið að hugsa um þarfir yfirstjórnar Land- spítalans. Færsla Hringbrautar er þrjátíu ára gamall býrókrata- draumur sem aldrei hefur fengið sinn eðlilega dauðdaga í Borg- arstjórn vegna þess að honum hefur verið haldið lifandi af embætt- ismönnum borgarinnar af tómri þrjósku, bara vegna þess að „það var búið að ákveða þetta“. Með hinni nýju Hringbraut bætist enn eitt mannfjandsamlegt mannvirkið í borgarlandið sem verður þó al- gjörlega í stíl við skipulagsmistök síðustu aldar: Þá var gamli bærinn fluttur í pörtum upp í Ártúnsholt. Nú skal hraðbrautarumhverfi Ár- túnshöfðans flutt niður í miðbæ. Sex akreina hraðbraut með tilheyrandi umferðareylöndum, steypuslaufum og hljóðmönum verður reist í Vatns- mýrinni, við Þingholtin og sjálfa Tjörnina! Mann verkjar hreinlega í sálina af því að hugsa um þetta. Því manni er ekki sama um borgina sína. Sé litið á loftmynd af Reykjavík má glöggt sjá hve framkvæmdin mun stinga í augu. Hún særir feg- urðarskynið jafnvel það mikið að sú ástæða ein ætti að nægja til þess að menn hætti við. Vesturlandsvegur, Miklabraut og Hringbraut mynda hryggjarstykkið í skipulagi Reykja- víkur, hryggsúlu sem endar í eðlileg- um og nokkuð „mænulegum“ sveig framhjá Tjörninni. Þessi beini og breiði akvegur er öxullinn í gatna- kerfi okkar. Slíkar beinlínur eiga sér hliðstæður í öðrum borgum. París er til dæmis skorin í tvennt af línu sem nær alla leið frá Bastillu-torginu, um rue de Rivoli, Champs-Élysées, í gegnum Sigurbogann, og út í hið spánnýja La Defense hverfi. Franskir skipulagsmeistarar höfðu á sínum tíma mikið fyrir því að mynda þennan öxul í þá annars glæsilegu óreiðu sem París er. Hér heima vorum við hinsvegar svo heppin að menn teiknuðu hryggj- arsúluna í borgarmyndina til- tölulega snemma og „líkami“ hennar fékk síðan að vaxa umhverfis hana á eðlilegan hátt. En nú skal gera Færsla Hringbrautar: Hryggbrot Reykjavíkur Eftir Hallgrím Helgason ’Í stað þess að raun-gera þrjátíu ára gömul skipulagsmistök ættu menn fremur að beina sjónum sínum þrjátíu ár fram í tímann …‘ Hallgrímur Helgason HJALLABRAUT - ELDRI BORGARAR Við vorum að fá í sölu mjög fallega og bjarta íbúð á 2. hæð í lyftufjölbýli sem eingöngu er ætlað eldri borgurum. Íbúðin er 93 fm með 2 svefnherbergjum og rúmgóðri stofu. Í eldhúsi er borð- krókur. Parket er á flestum gólf- um. Íbúðin er í góðu ástandi og vel um gengin. Í húsinu er mjög góð og stór sameign þar sem stunduð er ýmis tómstundastarfsemi o.þ.h. Þá er í húsinu húsvörður og ýmis þjónusta eins og hárgreiðsla, nudd o.fl. Örstutt í matvöruverslun og strætó stoppar framan við húsið! Nánari upplýsingar á skrifstofu okkar s. 565 5522 eða hjá Guðjóni s. 824 4500 eða Ívari s. 861 2928. Ingólfsstræti – heil húseign Virðulegt og fallegt steinhús í hjarta borgarinnar. Eignin var öll endurnýjuð fyrir nokkrum árum á vandaðan og smekklegan hátt og skiptist í þrjár hæðir og kjallara, samtals um 500 fm. 1. og 2. hæð eru 140 fm hvor, 3. hæðin 100 fm og kjallari er 140 fm. Ró- settur og gipslistar í loftum. Svalir út af efstu hæð, fallegt útsýni yfir borgina. Nýjar lagnir og nýtt hitakerfi. Sérinngangur á hverja hæð ef vill. Tilvalið t.d. fyrir stórfjölskyldu eða margs konar fyrir- tæki, t.d. tannlækna, lögfræðinga eða gistiheimili. Sex sérbíla- stæði fylgja eigninni. Bílskúrsréttur. Eign sem býður upp á ýmsa möguleika. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu. FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali. Erum með til leigu alla götuhæðina í þessu nýja glæsilega húsi. Um er að ræða tvo hluta, annars vegar 250 fm og hins vegar 247 fm. Hvorum hluta fylgja 3 stæði í bílageymslu ásamt hlutdeild í sameiginlegum bílastæðum við húsið. Miklir möguleikar eru með útfærslu húsnæðisins því það er í dag tilbúið til innréttinga. Til afhendingar strax. Hentar sem skrifstofu- eða verslunarhúsnæði. Góð aðkoma og næg bílastæði. Upplýsingar gefur Ólafur B. Blöndal í síma 6 900 811 eða Jóhann Halldórsson í síma 6 900 884. Laugavegur 182 Ólafur B. Blöndal löggiltur fasteignasali SÍMI 5 900 800 Vandað um 200 fm atvinnuhúsnæði (skrifstofur/verslun/þjónusta) á götuhæð við Síðumúla í Reykjavík. Eignin skiptist í opið rými, snyrtingar, kaffistofu, geymslu og tvö skrifstofuherbergi. Linoleumdúkur á gólfum. Kerfisloft með inn- felldri lýsingu í loftum. Eignin er öll nýstandsett að innan og getur hentað ýmist undir verslun, þjónustu eða skrifstofur. Nánari uppl. veita Sverrir og Óskar. SÍÐUMÚLI - TIL LEIGU - LAUST STRAX Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali F A S T E I G N A S A L A SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK SÍMI 533 1616 FAX 533 1617 ÁSVALLAGATA 81 - EINBÝLI OPIÐ HÚS FRÁ KL. 14-16 Í DAG Virðulegt og vandað 320 fm ein- býlishús með bílskúr á horni Ás- vallagötu og Vesturvallagötu. Hús- ið er kjallari og tvær hæðir. Á að- alhæð er m.a. eldhús, 3 stofur og 1 herbergi. Á efri hæð eru 4 her- bergi og baðherbergi. Í kjallara eru 4 herbergi, geymsla ofl. og er möguleiki á aukaíbúð með sér inngangi. Húsið hefur í gegnum tíð- ina fengið gott viðhald. V. 34,0 m. 3643 OPIÐ Á LUNDI LAU. OG SUN. FRÁ KL. 12-14

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.