Morgunblaðið - 07.03.2004, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 07.03.2004, Qupperneq 48
SKOÐUN 48 SUNNUDAGUR 7. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ niðri við höfnina svo ekki sé talað um ef hægt var að vera í skjóli fyrir norðanáttinni. Austur-vesturmarkahugsunin og miðborgin Alþingi, Stjórnarráðið, Hæstiréttur, Þjóðleikhúsið, Þjóðminjasafnið, Þjóðmenningarhúsið, Háskóli Ís- lands, stofnanir hans og Norræna húsið eru bara nokkrar af mörgum stofnunum sem prýða miðborg Reykjavíkur en eru og verða tákn þeirrar miðju sem mynda það sem við köllum íslenskt þjóðfélag. Allar eru þessar stofnanir og þær bygg- ingar ungar sé borið saman við sambærilegar stofnanir og bygg- ingar hjá þjóðum Evrópu. Breytingarnar sem orðið hafa á höfuðborgarsvæðinu eru gífurlegar á stuttum tíma, slíkum breytingum fylgja eðlilega vaxtarverkir. Það eru ekki nema tæp 50 ár síðan mér fannst fjölskyldan leggja mikið á sig við að fara í heimsókn til frændfólks sem bjó þar sem nú er Smáralind, fjölskylda mín bjó þá í Drápuhlíð í Reykjavík og þetta ferðalag með stuttu stoppi hjá frændfólkinu tók allan daginn. Þótt margt hafi breyst þá er enn erfitt um vik að ferðast fótgangandi í norður-suðurátt, t.d. úr Safamýrinni þar sem ég bý nú og til fólksins míns sem býr í vest- urhluta Garðabæjar. Fyrir nokkr- um vikum ákváðum við að fara gangandi þessa leið. Er skemmst frá því að segja að tengingar fyrir hjólandi og gangandi milli bæj- arhluta eru mjög lélegar, þó sér- staklega á þetta við milli Kópavogs og Garðabæjar. Sé borið saman við göngu- og hjólreiðastíga innan borgarinnar og þeirra bæja sem nefndir eru þá eru stígar góðir svo fremi að þeir liggi í austur-vestur, bara ekki á milli sveitarfélaganna. Og svo togast þessi sveitarfélög á um skattgreiðendur og kóngarnir sem þar ráða vilja rétt eins og í Evrópu til forna verja landamæri sín. Er að furða að við skiljum illa viðleitni frændþjóða vorra á meg- inlandi Evrópu þess efnis að eyða landamærum í þeim tilgangi að auka viðskipti og efla mannlíf? Miðbær Reykjavíkur er miðstöð þjóðarinnar hvað sem ímynduðum landamærum líður og því þarf það ekki að koma á óvart þótt áhugi manna kvikni þegar rætt er um miklar skipulagsbreytingar á því svæði rétt eins og nú á sér stað. Ný hugsun í skipulagsmálum En það er brýnt að eyða þessum hreppamerkjum. Nú veit sá sem „VIÐ búum á mörkum hins byggilega sonur sæll,“ var faðir minn vanur að segja þegar ég kvartaði undan norðannæðingnum í miðbænum og niðri við höfnina. Pabbi var sjó- maður og fór oft með okkur á sunnudögum niður að höfn. Hann sigldi sem tog- arasjómaður til útlanda og kynntist aðstæðum og veðurfari á Norð- urlöndum, Þýskalandi og Englandi og vissi hvað hann söng í þess- um efnum. Jafnvel á hinum björtustu dögum var maður minntur á þessa staðreynd norpandi í næðingnum niðri á Arnarhóli 17. júní. Þeir eru fáir Reykvíkingarnir sem ekki telja það skyldu sína að fara niður í miðbæ, niður á Arnarhól, til þess að taka þátt í þjóðhátíðarhöldum eða öðrum fjöldaviðburðum sem þar eru haldnir. En það koma einnig ljúfar stundir þegar sólin skín og hlýtt er og þá skilst okkur að það getur ver- ið gott að njóta stundar í miðbænum. Arnarhóllinn og höfnin skipta mig miklu og veit ég að svo er um margan. Sjálfur átti ég mis- góðar stundir á 17. júní eða sumardaginn fyrsta sem blásari í lúðrasveit drengja og skylduþátttakandi í hátíðarhöldunum í Reykjavík um margra ára skeið. Fyrir rúmum 30 ár- um vann ég eitt sumar við járna- bindingar og í steypuvinnu við byggingu Faxaskála. Það sumar skynjaði ég að þeir geta vissulega verið yndislegir dagarnir þarna þetta ritar að það er ekki auðvelt en svo tillit sé til þess tekið þá er a.m.k. ljóst að við verðum að horfa á þetta svæði skipulagslega sem eina heild enda má segja að nokkuð hafi áunnist í því hin síðari ár. Fyrir rúmum 20 árum, þegar ég var að berjast í prófkjöri Alþýðu- flokksins í Reykjavík vegna borg- arstjórnarkosninga, lagði ég m.a. til að við bættum almennings- samgöngur á höfuðborgarsvæðinu með lestarsamgöngum. Hugmynd mín var að fara að dæmi annarra þjóða og leggja teina og gera göng neðanjarðar þar sem þess þyrfti. Enn er hægt að huga að þessu og ekki nauðsyn að framkvæma allt í einum gráum eins og gjarnt er með okkur. Slík uppbygging tekur ára- tugi en mikilvægt að skipulagslega taki hún til alls svæðisins frá Esju í norðri til Hafnarfjarðar og áfram út á Suðurnes í suðri. Því er þetta áréttað hér að það er skoðun mín að til þess að miðborgin öðlist þann sess sem okkur er nauð- syn sem þjóð þá verða samgöngur frá öðrum hlutum svæðisins sem telur meira en helming hennar að vera góðar. Það er rangt hjá fylgj- endum „einkabílsins“ að við sem viljum bættar almennings- samgöngur séum á móti bílnum. Reynsla annarra þjóða sýnir að bættir vegir kalla bara á meiri bíl- isma sem kallar á enn meira vega- kerfi o.s.frv. Miðborgin okkar hefur ekki það rými sem þarf um næstu árhundruð til að mæta samsvarandi aukningu bifreiðavæðingar og verið hefur. Þess vegna verður að huga að almenningssamgöngum, ofan- og neðanjarðarlest sem gangi í hring frá Grafarholti um Breiðholt, Kópa- vog, Öskjuhlíð, niður í miðbæ og þaðan inn Sund, í Grafarvog og upp í Grafarholt. Aksturstíðnin þarf að vera mikil og frá stoppistöðvunum vagnar er gangi um úthverfin. Þótt færa megi að því rök að þetta gangi illa upp rekstrarlega má færa jafn sterk rök fyrir því að samfélagslega eru góðar almenningssamgöngur miklu betri kostur en einkabifreiðin, a.m.k. í þéttbýli. Þegar ég var í borgarráði lagðist ég gegn því að fargjöld með strætisvögnum væru lág og rekstur vagnanna mikið nið- urgreiddur. Ég tel að markaðs- lögmálin geti gilt um almennings- samgöngur sem aðra vöru og þjónustu; ef þjónustan er góð þá fæst það verð sem þarf. Miðbæjarumgjörðin Fyrsta tillaga mín sem borgarfull- trúa í Reykjavík var að koma á úti- markaði við höfnina og nefndi ég þar til svæðið austan við Slippinn sem áhugavert svæði. Það skipti máli þá að ég hafði um nokkurra ára skeið starfað við ferðaþjónustu og þótti erlendum ferðamönnum það skondið að ekki væri fiskmark- aður í höfuðborginni. Eftir flutning tillögunnar er ég enn sannfærðari um nauðsyn þess að koma hér á slíkum markaði. Reyndar má segja að Kolaportið sé vísir að slíku. Ég er til að mynda þeirrar skoð- unar að verslunum og hótelum á höfuðborgarsvæðinu sé nauðsyn á að fá virkan kjöt- og grænmet- ismarkað, markað þar sem einstakir bændur komi vöru sinni á framfæri. Afurðamál bænda hafa í veigamikl- um atriðum verið í röngum farvegi, en það er efni í aðra grein og verður ekki tíundað hér. Þá má hugsa sér sjávardýrasafn o.fl. sem staðsett verði á hafnarsvæði miðborg- arinnar. Því er þetta nefnt hér að það er ýmislegt sem getur unnið ásamt með stórmarkaði, hóteli og tónlistar- og óperuhúsi að því að gera þetta svæði aðlaðandi. Þá get ég ekki látið hjá líða að minnast á hugmynd sem mér fannst afleit fyrir 15 eða 16 árum sem Katrín Fjeldsted flutti í borgarráði þess efnis að opna lækinn í Lækj- argötu. Síðan hef ég oft hugsað til þessarar hugmyndar og finnst hún því betri sem ég hugsa meira um hana. Hugmyndin gekk út á að opna lækinn sem lá (liggur) milli sjávar og Tjarnarinnar. Þegar hon- um var lokað bjuggum við við allt aðrar aðstæður en nú er og tel ég víst að ef af yrði yrði Lækjargata sannkölluð og myndi verða til mik- illar prýði. Veggöng Í þeirri umræðu sem nú á sér stað er mikið rætt um nauðsyn þess að koma Geirsgötunni niður í göng. Nefnt er í því sambandi að það sé nauðsynlegt til þess að tryggja „eðlilegt“ flæði gangandi fólks um svæðið. Ég bjó í Helsingjaborg í Svíþjóð um nokkurt skeið síðastliðin ár. Þar hefur orðið gagngerð upp- bygging á hafnarsvæði sem áður var um margt líkt okkar (nema að það snýr gegnt hafi til suðurs). Þar er rétt verið að ljúka við gagngera uppbyggingu sem hefur tekist ein- staklega vel (sbr. Lesbókargrein Braga Ásgeirssonar frá því fyrir um ári). Þar skilur aðalumferðaræð borgarinnar þetta „nýja“ hafn- arsvæði sem og járnbrautarstöðina frá gamla miðbænum. Umferðin fer ekki hratt en allt gengur þetta vel með umferðarljósum fyrir gang- andi. Fyrir þá sem benda á nauðsyn þess að setja Geirsgötu í göng vegna þungaflutninga frá vest- ursvæði hafnarinnar til annarra hluta landsins skal á það bent að um sundið milli Helsingjaborgar í Svíþjóð og Helsingjaeyrar í Dan- mörku eiga sér stað tíðustu flutn- ingar í Evrópu. Loks skal í þessu sambandi bent á að í Koblenz, á oddanum þar sem mætast Rín og Mósel, hvar stórmarkaður miðborg- arinnar er, hafa Þjóðverjar frekar lagt göng fyrir gangandi yfir á aðr- ar verslunargötur en að leggja göng fyrir bíla. Skjólgóð óperu- og tónlistar- hús, verslunarmiðstöð og hótel Það fer vel á því að hafnarbakkinn þar sem nú er Faxaskáli og um- hverfið þar í kring rými alla þessa starfsemi og aðra þá sem svipar til þess sem hér hefur verið nefnt fyrr í þessari grein. Og auðvitað eigum við að byggja tónlistarhús gert til þess að mæta nútímakröfum. Við eigum stórkostlega Simfóníu- hljómsveit, „hljómsveit allra lands- manna“, eins og Eyþór Arnalds komst svo ágætlaga að orði á sam- eiginlegum tónleikum hljómsveit- arinnar Todmobile og Sinfón- íuhljómsveitarinnar í Laugardalshöll nýverið, og við eig- um aðra tónlistarmenn, söngvara og hljóðfæraleikara á heimsmæli- kvarða, sem allir munu leggjast á eitt um að gera þetta svæði að miklu hámenningarsvæði þar sem flutt verða óperutónverk sem önnur tónverk. Ekki mun það spilla fyrir að hafa þar ýmsa aðra starfsemi sem til þess er fallin að efla og göfga mannlíf á svæðinu. Kem ég þá aftur að upphafinu og megintilgangi greinarinnar, nefni- lega þeim að haga fyrirhugaðri mannvirkjagerð þannig að hún geti veitt skjól þeim sem vilja sækja útihátíðarhöld framtíðarinnar við Arnarhól. Þá á ég við að þar verði gert varanlegt mannvirki, bogasvið eða hvað annað sem hentar og gagnast má við flutning skemmti- atriða jafnframt því að önnur mann- virki verði hönnuð með það í huga að veita gott skjól fyrir norðannepj- unni. Slíkt skjól mun efla allt mann- líf miðbæjarins og getur haft mikil og hagfelld margfeldisáhrif. Miðbæjarskipulag – á mörkum hins byggilega heims Eftir Bjarna P. Magnússon ’Miðbær Reykjavíkurer miðstöð þjóðarinnar hvað sem ímynduðum landamærum líður …‘ Bjarni P. Magnússon Höfundur er fyrrverandi borgarfulltrúi Alþýðuflokksins. OKKUR HEFUR VERIÐ FALIÐ AÐ LEITA EFTIR ATVINNUHÚSNÆÐI MEÐ LANGTÍMALEIGUSAMNINGI HÖFUM KAUPENDUR AÐ ATVINNUHÚSNÆÐI MEÐ GÓÐUM LANGTÍMALEIGUSAMNINGUM Á VERÐBILINU 30-250 MILLJÓNIR OG 250-500 MILLJÓNIR UM ER AÐ RÆÐA TRAUSTA OG ÖRUGGA KAUPENDUR Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30. Uppl. veitir Magnús Gunnarsson, s. 588 4477 eða 822 8242. Förum með allar fyrirspurnir sem trúnaðarmál. Við leggjum áherslu á góða þjónustu, heiðarleika og vönduð vinnubrögð. www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár Einstaklega falleg 81 fm 4ra her- bergja íbúð á tveimur hæðum á þessum frábæra stað. Íbúðin, sem skiptist í tvö herbergi, ann- að með nýjum skápum, tvær stofur og eldhús með fallegri ný- legri innréttingu, gashelluborði og veggofni. Baðherb. er flísa- lagt í hólf og gólf, með baðkari og góðri innréttingu. Góð og falleg eign á frábærum stað. Áhv. 10,2 millj. húsbréf o.fl. Verð 14,8 millj. Kristín Ýr og Jónas Páll taka á móti ykkur í dag á milli kl. 14.00 og 16.00. Sólvallagata 70 Bárður Tryggvason, sölumaður, sími 588 4477 - valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30 3ja-4ra herb. nýleg íbúð óskast í austurbænum, Mánatúni, Sóltúni, Lindahverfi, Smárum eða einhverju góðu nýlegu húsi miðsvæðis í Reykjavík eða Kópavogi. Sterkar greiðslur í boði. Verðhugmynd 13-19 millj. Allar nánari upplýsingar veitir Bárður Tryggva- son í síma 896 5221 eða á skrifstofu. Reykjavík - Kópavogur Staðgreiðsla í boði Ást og umhyggja Barnavörur www.chicco.com Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is lím og fúguefni www.thjodmenning.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.