Morgunblaðið - 07.03.2004, Síða 49

Morgunblaðið - 07.03.2004, Síða 49
SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MARS 2004 49 Í UMRÆÐU fólks um holla lífs- hætti og heilbrigt mataræði skjóta ýmis tískufyrirbrigði sífellt upp koll- inum. Þar má nefna hinn „nýja“ fæ- ðupíramída og „Atkins-kúrinn“ (kol- vetnasnautt fæði) sem hafa vakið talsverða hrifningu. Sú umræða hef- ur því miður verið afar einhliða. Þeir sem mæla með slíkum kúrum hafa flestir takmarkaða þekkingu á næring- arfræði. Engu að síður hafa þeir látið mun hærra en þeir sem mælt hafa gegn þess- um öfgakenndu fræð- um sem almennt eru ekki viðurkennd meðal næringarfræðinga og annars fagfólks á sviði heilbrigðs mataræðis. Skuldinni hefur gjarna verið skellt á tiltekinn fæðuflokk og hann þurrkaður burt úr mataræðinu. Einn daginn eru mjólkurvörur algjör bannvara og nú er röðin komin að brauði, ávöxtum og öðrum kolvetnaríkum vörum. Flest virðist þó benda til þess að of- fita sé fyrst og fremst til komin vegna ofáts og hreyfingarleysis fólks, þ.e.a.s. fólk borðar meira en líkaminn nær að brenna. Til að bregðast við því þarf annaðhvort að draga úr neyslu eða hreyfa sig meira og helst hvort tveggja. Manneldisráð ráðleggur hófsemi og fjölbreytni Manneldisráð Íslands hefur um langt skeið mótað stefnu um heil- brigt mataræði og þær ráðleggingar taka m.a. mið af rannsóknum í nær- ingarfræði og norrænum ráðlegg- ingum um hollar matarvenjur. Sam- kvæmt þeim eiga 55–60% orkunnar að koma frá kolvetnum og er mælt með að fituhlutfallið fari ekki yfir 30% af heildarorkunni. Í ráðlegg- ingum Manneldisráðs er höf- uðáhersla lögð á að líkaminn fái öll næringarefni úr fæðunni sem hann þarf á að halda til að viðhalda heil- brigðri líkamsstarfsemi til fram- búðar. Ráðleggingarnar eru settar fram á einfaldan hátt til að þorri fólks geti lifað heil- brigðu lífi til langframa án of mikillar fyr- irhafnar. Þær eru raunhæfar, fólki á að líða vel og geta leyft sér kræsingar í hófi. Samkvæmt Atkins- fræðum er mælt með prótein- og fituríku mataræði á kostnað kolvetna, ásamt til- teknu grænmeti. Mörgum finnst það galdri líkast að hægt sé að borða fituríkt fæði en grennast samt. En hér er ekki allt sem sýnist. Ástæðan fyrir þyngdartapinu er einföld. Hvert gramm af kolvetni bindur um 3 grömm af vatni en hvert gramm af fitu bindur 1 gramm af vatni. Þannig missir líkaminn fyrst og fremst vatn. Þá er talið að ein ástæða þess að fólk grennist sé sú, að orku- inntakan minnkar til muna þar sem fæðuvalið minnkar þegar kolvetnin eru tekin út. Afleiðingin er að sjálf- sögðu þyngdartap. Næringarfræðingar vara við fituríku fæði Næringarfræðingar hafa af mörgum ástæðum gagnrýnt harðlega neyslu matvæla sem innihalda mikið af harðri eða mettari fitu. Þótt ráðlegt sé að borða fitu, sem er rík af ein- og fjölómettuðum fitusýrum, er stað- reyndin sú að flestum reynist erfitt að borða fituríkt fæði án þess að fá líka talsvert af mettuðum fitusýrum og transfitusýrum sem er mjög óholl fita. Fituríkt fæði hefur slæm áhrif á hjarta- og æðakerfi líkamans. Enn- fremur hefur verið sýnt fram á að óhófleg neysla fitu hefur slæm áhrif á ristilinn og getur m.a. aukið líkur á ýmsum ristilsjúkdómum, s.s. krabbameini í ristli. Mikil fituneysla er líkamanum því afar erfið til lengdar og veruleg hætta á að fæðið verði einhæft. Viðbættur sykur og önnur kolvetni Þeir sem boðað hafa kolvetnasnautt fæði leggja að jöfnu viðbættan syk- ur, ávexti, brauð og önnur kolvetna- rík matvæli, s.s. pasta og hrísgrjón. Þessi samanburður er mjög villandi og ósanngjarn. Í fyrsta lagi inniheld- ur hreinn sykur eingöngu hitaein- ingar en nauðsynleg næringarefni fylgja með sterkju og sykri sem eru í matnum frá náttúrunnar hendi. Hreinn sykur er einfaldar kolvetna- sameindir sem berast greiðlega út í blóð. Brauð, pasta o.þ.h. innihalda hins vegar flókin kolvetni, eða sterkju og trefjar. Sterkja brotnar niður í einsykrur á lengri tíma og berst hægar út í blóðið og stuðlar því að stöðugum blóðsykri. Margir telja stöðugleika blóðsykurs skipta miklu máli varðandi þyngd- arstjórnun. Ef blóðsykur hækkar mjög skyndilega kallar það á aukna framleiðslu insúlíns sem lækkar sykurinn hratt og við finnum fyrr til svengdar en ella. Hversu lengi syk- urinn er að berast út í blóðið fer einnig eftir fjölbreytni fæðunnar í heild og hversu trefjaríkt fæðið er. Blóðsykurinn hækkar t.d. mun minna ef fæðið er trefjaríkt og ef neytt er grænmetis með því. Trefjar eru einnig nauðsynlegar fyrir heil- brigði meltingarvegarins. Meltingin verður hægari og seddutilfinningin helst lengur. Trefjar lækka kólest- eról í blóði (blóðfitu) og margar rannsóknir hafa bent til þess að þær geti fyrirbyggt ýmsa ristilsjúkdóma. Manneldisráð telur æskilegt að fæ- ðutrefjar séu a.m.k. 25 grömm á dag. Kolvetni innihalda færri hitaeiningar Bætiefnaríkt fæði er mikilvægt til að viðhalda heilbrigði líkamans en heildarinntaka hitaeininga er það sem mestu skiptir varðandi þyngd- ina. Hvert gramm af kolvetnum gef- ur fjórar hitaeiningar en eitt gramm af fitu níu. Brauð er oftast fitusnautt og inniheldur mjög lítið af við- bættum sykri. Gróf brauð gefa góða mettunartilfinningu þannig að við verðum fyrr södd og lengur og borð- um minna fyrir vikið. Þá má ekki gleyma að heilinn gengur fyrir kol- vetnum. Þegar búið er að draga óeðlilega mikið úr kolvetnainntöku fer hann að starfa óeðlilega. Þannig er aðalatriðið að velja rétt kolvetni og draga úr fituríkum mat. Grófu brauðin eru sérlega holl Bakarastéttin á Íslandi hefur verið fljót að tileinka sér nýjungar í brauð- og kökugerð. Hér á landi er fjölbreytt úrval af grófu og ljúffengu brauðmeti. Flest gróf brauð inni- halda heilhveiti í miklu magni. Þau innihalda því meira af ytri lögum hveitikornsins sem eru ríkari af næringarefnum en innra lagið. Oft er hreinu hveitiklíði bætt í brauðin til að gera þau enn trefjaríkari en hveitiklíðið er einn besti trefjagjaf- inn sem völ er á. Auk heilhveitis eru algengustu mjöltegundir, sem not- aðar eru í grófu brauðin, haframjöl, rúgmjöl og sigtimjöl. Rúgur og haframjöl eru sérlega góðir kalk- og trefjagjafar og innihalda töluvert af járni. Sigtimjöl er í raun unnið rúg- mjöl. Speltmjöl er sérstök tegund mjöls sem hefur notið töluverðra vinsælda en skiptar skoðanir eru á hollustu þess umfram hefðbundins hveitis. Algengustu fræin, sem not- uð eru við brauðgerð, eru hörfræ, sólblómafræ, sesamfræ og hér er einnig farið að nota graskersfræ. Fyrir utan að vera góður trefjagjafi innihalda þessi fræ mikið af ómett- uðum fitusýrum, ýmsum stein- efnum, s.s. járni og kalíum, og E- og B-vítamínum. Fólk verður að beita skynsemi og temja sér heilsusamlegan lífsstíl til langframa. Það verður að gera upp við sig hvenær það er sátt við holda- far sitt og hvað það sé raunverulega reiðubúið að gera til að komast þangað og, umfram allt, halda sér þar. Eitt er þó víst að við heyrum einungis jákvæðu reynslusögurnar af Atkins. Fólk telur sig hafa „reynt allt“ og ekkert annað dugað. Al- þekkt er að fólk tekur fegins hendi við ráðleggingum um nýtt fæðu- mynstur og hugsar með sér: „Það er enn von fyrir mig!“ Það er nokkuð víst að fólk springur á endanum þeg- ar það fer í stranga og óeðlilega kúra. Þetta er bara rétt eins og að halda niðri í sér andanum og fer ákaflega illa með fólk, bæði lík- amlega og andlega. Miklir nautna- seggir, sem njóta þess að borða, eiga einungis einn kost til að halda holda- fari sínu í skefjum og hann er sá að stunda reglubundna hreyfingu. Það er sannarlega þess virði að hamast svolítið til að fá að borða meira! Kolvetni eða fita? Eftir Svövu Liv Edgarsdóttur ’Fólk verður að beitaskynsemi og temja sér heilsusamlegan lífsstíl til langframa.‘ Svava Liv Edgarsdóttir Höfundur er matvælafræðingur og framkvæmdastjóri Kornax ehf. m tímarit um mat og vín kemur út sex sinnum á ári og er dreift án endurgjalds til allra áskrifenda morgunblaðsins- fæst einnig í öllum helstu bókaverslunum GraskersfræolíaJarðhnetuolíaÓlífuolía Pumpkinseed Oil Organic Certified Product Erdnuss Öl Nativ Crespi, Ramoscello Olio Extra Vergine Di Oliva ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S M BL 2 36 28 03 /2 00 4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.