Morgunblaðið - 07.03.2004, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 07.03.2004, Qupperneq 52
Háteigskirkja. eldri borgarar Eldri borgarar. Félagsvist á morgun í Setrinu kl. 13. Skráning í síma 511 5405. Árbæjarkirkja. Kl. 20 Lúkas, æsku- lýðsfélag Árbæjarsafnaðar, með fundi í safnaðarheimilinu. Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20. Tekið er við bænarefnum alla virka daga frá kl. 9–17 í síma 587 9070. Hjallakirkja. Æskulýðsfélag fyrir 9. og 10. bekk kl. 20. Mánudagur: Æsku- lýðsfélag fyrir 8. bekk kl. 20. Bessastaðasókn. Sunnudagaskólinn er í sal Álftanesskóla kl. 11. umsjón með sunnudagaskólanum hafa Krist- jana og Ásgeir Páll. Allir velkomnir. Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld sunnu- dag kl. 19.30. Krossinn. Almenn samkoma í Hlíða- smára 5 kl. 16.30. Allir velkomnir. Fríkirkjan KEFAS, Vatnsendabletti 601. Í dag er samkoma kl. 14. Lofgjörð og fyrirbænir. Tvískipt barnastarf fyrir 1–6 ára og 7–12 ára börn á samkomu- tíma. Kaffi og samfélag eftir sam- komu. Allir velkomnir. Nánari upplýs- ingar á www.kefas.is Fíladelfía. Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður Samúel Ingimarsson. Al- menn samkoma kl. 16.30. Ræðumað- ur Vörður Leví Traustason. Gospelkór Fíladelfíu leiðir í söng. Fyrirbæn í lok samkomu. Barnakirkja á sama tíma. Miðvikudaginn 10. mars kl. 18–20 er fjölskyldusamvera með léttri máltíð. Allir velkomnir. Bænastundir alla virka morgna kl. 06. www.gospel.is Vegurinn. Á léttum nótum, fjörug fjöl- skyldusamkoma kl. 11, trúður, brúður og fjör, létt máltíð á vægu verði eftir samkomu. Allir velkomnir. Bænastund kl. 19.30. Almenn samkoma kl. 20.00, Freddy Filmore predikar, lof- gjörð, fyrirbænir og samfélag eftir sam- komu í kaffisalnum. Allir velkomnir. Bænarefni má senda inn á vegurinn- @vegurinn.is eða hringja inn í síma 564 2355. www.vegurinn.is Safnaðarstarf HUGVEKJA 52 SUNNUDAGUR 7. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Í dag er æskulýðsdagurþjóðkirkjunnar, og athygl-inni sérstaklega beint aðerfingjum landsins. Í guðspjöllunum sést vel, að Jesú þótti vænt um börn og oftar en ekki tók hann málstað þeirra. Hér mætti nefna dæmi úr 10. kafla Mark- úsarguðspjalls. Þar reyndu for- eldrar að koma börnum sínum til Jesú, í von um að hann blessaði þau, en lærisveinarnir settu ofan í við þá og meinuðu aðgöngu. En Jesú sárnaði þessi framkoma lærisveinanna og sagði: „Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi, því að slíkra er Guðs ríki. Sannlega segi ég yður: Hver sem tekur ekki við Guðs ríki eins og barn, mun aldrei inn í það koma.“ Og hann faðmaði börnin, lagði hendur yfir þau og blessaði þau. Og í 18. kafla Matteusarguð- spjalls segir hann berum orðum: „Nema þér snúið við og verðið eins og börn, komist þér aldrei í himnaríki ...“ Gleði þeirra, einlægni, hrein- skilni og falsleysi var Jesú að skapi; þeir eiginleikar, sem hina fullorðnu vantar gjarnan. Jafn- framt vissi hann, að ef guðsríkið ætti nokkru sinni að vera á þess- ari jörðu, yrði það að gerast fyrir áhrif barnanna. Þau voru fram- tíðin. Og lengi býr að fyrstu gerð. Nú á tímum er mörg hættan sem á börn okkar og ungmenni leitar, og varnaðarorð gamla barnasálmsins, sem aldrei falla úr gildi, því við hæfi: „Gættu að þér litla eyra hvað þú heyrir“ og „Gættu að þér litla auga hvað þú sérð“ og „Gættu að þér litli munnur hvað þú segir“. Á degi barnanna á kirkju- listahátíð í Hallgrímskirkju 1. júní 2003 flutti sr. Sigurður Páls- son athyglisverða ræðu, sem hann nefndi „Börnin og mengun hugarfarsins“. Þar sagði hann m.a.: Með sunnudagsblaði Morgunblaðsins barst okkur nú um helgina sérprent sem nefnist Andaðu léttar. Þetta er áróðurs- og fræðslurit gegn reykingum, gegn mengun andrúmsloftsins. Það er langt síðan þeim skilaboðum var komið á framfæri að reyk- ingar væru ekki einkamál reykingamanna, þeir væru einnig að menga andrúmsloft þeirra sem í kringum þá eru og margs kon- ar hömlur hafa verið settar á möguleika reykingamanna til að menga andrúmsloftið fyrir náunga sínum. En mengunarvarnir hugarfarsins eru skemmra á veg komnar og vitund þeirra sem trúað er fyrir börnum hefur ekki vaknað að sama skapi til verndar hugarfarinu. Hér mætti nefna tölvuleiki ýmsa og bannaðar kvikmyndir, sem foreldrar margir hverjir virðast ekki átta sig á að geti haft skaðleg áhrif á hinar lítt mótuðu sálir. Og nokkru síðar var þetta: Mér finnst sem djarfi fyrir vitundarvakn- ingu í íslensku þjóðfélagi, vitundarvakningu um mikilvægi fjölskyldunnar í uppeldi upp- vaxandi kynslóðar. Baráttan fyrir jöfnum rétti fólks til menntunar og starfa sem hug- urinn stendur til, óháð kynferði, hefur á liðnum áratugum að mínu mati skilið eftir utan garðs baráttuna fyrir rétti barnsins til umönnunar og uppeldis í skjóli fjölskyldu sinnar. Réttur barnsins til foreldra sinna og fjölskyldu hefur oftar en ekki vikið fyrir kröfunni um rétt foreldranna til að njóta sín. Þannig hafa börnin oft og tíðum orðið afgangsstærð í íslensku þjóðfélagi liðinna áratuga … Á síðustu árum hafa svo kallaðar tengsla- kenningar orðið æ fyrirferðarmeiri innan tiltekinna greina sálfræðinnar. Þær ganga út frá þeirri forsendu að meginviðfangsefni manneskjunnar sé ekki, eins og gjarnan var sett á oddinn áður fyrr, að fá frum- hvötum sínum fullnægt, heldur að fá full- nægt þörf sinni fyrir að tengjast annarri manneskju. Grundvöllurinn að þessum tengslum er lagður í nánu tilfinninga- sambandi foreldra og barns. Slík tengsl komast ekki á nema þeim sé sinnt og þau ræktuð. Til þess þarf tíma, mikinn tíma. Í tímasnauðu og strekktu þjóðfélagi þarf að forgangsraða viðfangsefnunum. Í þeirri forgangsröð eiga börnin að vera efst á blaði. Við getum ekki framselt öðrum þess- ar skyldur að rækta tengslin við afkvæmi okkar. Grundvöllur heilbrigðrar sjálfs- myndar liggur í þessum tengslum, grund- völlur siðgæðisins liggur í því hvaða lífs- viðhorfum, gildismati og siðferði er miðlað með þessum tengslum, í þessum sam- skiptum. Forsenda sjálfstæðis síðar meir grundvallast á því öryggi sem slík tengsl veita í frumbernsku. Réttur barnsins er fyrst og fremst réttur þess til tilfinn- ingalegra tengsla og öryggis í skjóli sinna nánustu. Slík tengsl ásamt hollu andlegu viðurværi eru áhrifaríkustu meng- unarvarnir hugarfarsins … Börn verða aldrei alin upp til trúar, aðeins í trú – og hinar trúarlegu erfðir skipta máli, um það vitnar reynsla kynslóðanna og einn- ig fræðilegar rannsóknir. En rannsóknir benda einnig til að þeir sem alast upp í trú eiga á margan hátt erfiðara með að varð- veita arfinn sinn að heiman en þeir sem alast upp í guðleysi. Hvers vegna skyldi það vera? Margt bendir til að það sé vegna þess að þau áhrif sem sterkust eru í menningar- umhverfinu styðji illa við hinn trúarlega þátt. Hér hefur kirkjan verk að vinna, að stuðla að því að hið heilnæma andrúmsloft kristinnar trúar sé börnunum okkar tiltæk- ara en sú stybba siðleysis og guðleysis sem mengar andrúmsloftið í samtíðinni … Ég á mér þann draum að kirkjan verði í forystu þeirra sem berjast fyrir rétti barna til þess að alast upp í siðferðilega ómeng- uðu andrúmslofti. Hér er vel mælt, og engu við að bæta, nema kannski því, að aldrei verður of oft ítrekað að börnin eru það dýrmætasta sem Ísland á. Í þeim liggur heill og framtíð þjóðarinnar. Okkar er að búa þau úr garði með hollt veganesti, það besta sem unnt er að gefa, og byggir á arfleifð Krists, en ekki eitthvað sem mengar huga og lík- ama. Burt með sorann. Mengun hugarfarsins Mengun getur verið af ýmsum toga, og und- anfarin ár hefur athyglinni aðallega verið beint að því sem að náttúrunni snýr. En Sigurður Ægisson bendir á, að maðurinn á líka sál og hana þarf að verja fyrir óæskilegum áhrifum, ekki síst á barns- og unglingsárum. sigurdur.aegisson@kirkjan.is RÚMLEGA 22 punda fiskur sem veiddist í Þórðarvörðuhyl í Eldvatni í Meðallandi á spón síðastliðið haust, og álitamál þótti vera hvort að var lax eða sjóbirtingur, reyndist við athug- un vera „99% örugglega lax“ eins og veiðimaðurinn Gunnar Andri Gunn- arsson sagði í samtali við Morg- unblaðið og vitnaði þar í fiskifræðinga Veiðimálastofnunar. Gunnar Andri var sjálfur á því að um lax hefði verið að ræða, en veiði- félagar hans, með veiðireynslu í Vest- ur Skaftafellssýslu til 15 ára, auk veiðivarðarins sem er þaulkunnugur á umræddum slóðum, héldu því hins vegar fram að um sjóbirting væri að ræða. Myndbirting í Morgunblaðinu og á vef Lax-ár, sem hefur Eldvatn á leigu, þótti leiða rökum að því að um lax væri að ræða, en alls konar kenn- ingar fóru á kreik, m.a. að um kyn- blending væri að ræða, en slíkt er ekki óþekkt fyrirbæri á þessum slóð- um. Örmerkið Gunnar hugðist strax láta stoppa tröllið upp og setti því í frost, en hins vegar tafði það greiningu fisksins, því afskorinn veiðiuggi benti til þess að fiskurinn væri örmerktur, með merki í trjónu, og væri þar með úr slepp- ingu. Skoðun á því þurfti hins vegar að bíða þess að fiskurinn væri tekinn úr frosti hjá uppstoppara. Þegar það var loks gert í vetur, kom í ljós að merkið hafði misfarist, en sérfræð- ingur á Veiðimálastofnun tók þess í stað hreistursýni sem tók af allan vafa um hvers kyns var, þ.e.a.s. gaf 99% til ynna að um lax væri að ræða. Myndin sem hér birtist var ekki til reiðu í haust, en sýnir mun betur að vart er um birting að ræða. „Þegar ég sótti fiskinn minn til Manuels upp- stoppara var þarna 23 punda birt- ingur sem einhver veiddi í Tungulæk og var uppstoppaður og ósóttur. Þá sá ég að þetta var allt annað fyr- irbæri, allt annar vöxtur, allt annar litur, þéttari dröfnur, sverari stirtla og fleira. Þeir voru ekki einu sinni lík- ir,“ bætti Gunnar Andri við. Enn bók frá Gísla Gísli Pálsson á Hofi í Vatnsdal hef- ur sent frá sér fjórðu bókina um lax- veiðiárnar í umdæmi hans, áður voru komnar bækur um Laxá á Ásum, Vatnsdalsá og Blöndu/Svartá, en sú nýjasta er um Hrútafjarðará og hlið- ará hennar Síká. Bókin er að stofni til lík hinum bókunum, með leiðarlýs- ingum um veiðisvæðin auk kafla um lífríki og rannsóknir, veiðifélagið og býlin í sveitinni sem land eiga. Leið- arlýsingin er í bókinni um Hrútuna er í höndum Sverrir Hermannssonar sem var viðloðandi ána um langt ára- bil og er lýsing hans á hyljum árinnar krydduð tröllslegum veiðisögum. Þá á Matthías Johannessen nokkur ljóð í bókinni. Eldvetningurinn var lax Bókin um Hrútafjarðará. Morgunblaðið/Eggert Gunnar Andri með stórfiskinn úr Eldvatni. Hvernig gátu menn haldið þetta vera birting? ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? „Þótt ég fari um dimman dal“ ÞRIÐJUDAGINN 9. mars, kl. 18.00 hefst í Grensáskirkju námskeið á vegum Leikmannaskóla kirkjunnar sem fjallar um 23. sálm Gamla testamentisins. Þessi alkunni sálmur er tvímæla- laust vinsælasti sálmur Saltarans og er leitun að öðrum textum í Gamla testamentinu sem hafa haft viðlíka áhrif hvort heldur er meðal kristinna manna eða gyðinga. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á að skoða síðari tíma notk- un sálmsins, túlkun hans í ólíku samhengi svo sem í menningu og listum. Fjallað verður sérstaklega um túlkun Lúthers á sálminum, áhrif sálmsins hér á landi og svo notkun hans í kvikmyndum. Kennarar á námskeiðinu er guð- fræðingarnir dr. Gunnlaugur A. Jónsson, Árni Svanur Daníelsson og dr. Kristinn Ólason. Kennt verð- ur í 4 skipti, tvo tíma í senn. Skráning á námskeiðið fer fram í síma 535 1500 eða á vef Leik- mannaskólans, www.kirkjan.is/ leikmannskoli. Æskulýðsdagurinn í Laugarneskirkju NÚ breytir guðsþjónusta sunnu- dagsins kl. 11.00 nokkuð um svip í tilefni æskulýðsdags þjóðkirkj- unnar. Barnakór Laugarness mun koma fram ásamt stjórnanda sínum Sig- ríði Ásu Guðmundsdóttur. Börn úr TTT-starfinu munu frumsýna nýja stuttmynd sem ber heitið ’Miskunn- sama brettastelpan’. Kirkjuprakk- arar koma fram með söng, en ferm- ingarbörn flytja frumsamdar bænir og leika á hljóðfæri. Auk þess munu leikskólakennararnir, Hildur Eir Bolladóttir, Heimir Haraldsson og Þorvaldur Þorvaldsson halda uppi fjöri og fræðslu ásamt sóknarpresti og meðhjálpara. Kór Laugarnes- kirkju leiðir sönginn undir stjórn Gunnars Gunnarssonar organista. Klassísk messa og gregorssöngur ÁHUGAHÓPUR um klassíska messu og iðkun gregorssöngs held- ur áfram starfsemi sinni á nýju ári. Áfram verður messað með greg- orslagi í Friðrikskapellu og nú 1. sunnudag hvers mánaðar kl. 20 . Hópurinn kallar til helgiþjónustu ýmsa presta. Önnur messa nýs árs verður sunnudaginn 7. mars kl.20, annan sunnudag í föstu, prestur sr. Krist- ján Valur Ingólfsson. Sungin verð- ur Orbis factor messan og áhersla lögð á passíusálma Hallgríms Pét- urssonar við íslensk þjóðlög sem Smári Ólason hefur tekið saman. Kynning og æfing á messunni verður sem endranær deginum áð- ur, laugardag, kl. 12–13 í Frið- rikskapellu. Klassísk messa og gregorssöngur er dýrmætur arfur kirkjunnar og kjarnmikið andlegt fóður. Það er von þeirra sem að þessari messuröð standa að með henni skapist vett- vangur fyrir þau sem gleði hafa af því að iðka klassíska tilbeiðslu- hætti, hins elsta söngs kirkjunnar, sem tjáningarform trúarinnar. All- ir eru hjartanlega velkomnir. Töfrabrögð og kraftaverk á æskulýðsdaginn Í TILEFNI af æskulýðsdegi þjóð- kirkjunnar verður Fjölskylduguðs- þjónusta í Lindaskóla í dag, sunnu- dag kl. 11. Heiðursgestur dagsins er töframaðurinn Bjarni. Hann mun fletta ofan af ýmsum leynd- armálum töfrabragðanna og leitað verður svara við spurningunni Hver er munurinn á töfrabrögðum og kraftaverkum? Kór Salaskóla syngur, stjórnandi er Ragnheiður Haraldsdóttir. Hannes Baldursson organisti leikur undir. Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson þjónar. Allri velkomn- ir. Vertu þú sjálf KVENNAKIRKJAN heldur nám- skeið undir yfirskriftinni: Vertu þú sjálf. Veltu þér ekki upp úr vand- ræðum. Vittu hver þú vilt vera og vertu sú manneskja. Taktu eftir vendipunktum lífs þíns og gerðu upp. Notaðu það góða og haltu áfram í rýminu sem þú skapar þér. Láttu lífið vera skemmtilegt. Námskeiðið fer fram með fyr- irlestrum, samtölum og æfingum. Inn í það fléttast ný bók kirkjunnar: Kirkjan mótmælir ofbeldi gegn konum, sem fjallar um líkamlegt, andlegt og félagslegt ofeldi. Kenn- arar verða Halla Jónsdóttir, kenn- ari og heimspekingur, og séra Auð- ur Eir Vilhjálmsdóttir. Námskeiðið stendur í fjögur mánudagskvöld, frá 8. til 29. mars, milli klukkan 17.30 og 19. Það kost- ar 4.000 krónur. Innritun er í síma 551 3934 og á staðnum þegar nám- skeiðin byrja. KIRKJUSTARF
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.