Morgunblaðið - 07.03.2004, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 07.03.2004, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MARS 2004 55 MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá Verndarsjóði villtra laxastofna: Til að vinna gegn almennri fækk- un í laxastofnum Atlantshafsins hef- ur Verndarsjóður villtra laxastofna verið brautryðjandi í rúman áratug við að koma á náttúruverndarsamn- ingum á grunni viðskipta. Samning- arnir byggjast á samvinnu sjómanna sem veiða lax. Þeir gangast inn á að hætta að veiða gegn sanngjarnri greiðslu ásamt nýjum atvinnutækifærum við sjálfbærar fiskveiðar eða í endur- reistum ferðaiðnaði sem byggist á stangaveiði. Aðgerðirnar hafa reynst vel og eflt villta laxastofna beggja vegna Atlantshafsins. Starfshópar Verndarsjóðsins í mörgum löndum hafa ekki aðeins haft frumkvæði að hugmyndafræði um náttúruvernd og virkri stefnu í þeim málum. Þeir hafa farið á vett- vang og komið áætlunum sínum í framkvæmd með samningum við hagsmunaaðila. Upphaflega var það ógnin sem steðjaði að laxinum á úthafsfæðu- slóðum við Grænland, Ísland og Færeyjar sem rak Verndarsjóðinn af stað. Afrakstur þess voru fyrstu viðskiptasamningarnir við línuveiði- menn í Færeyjum og netaveiðimenn í Grænlandi. Kanadastjórn fylgdi í kjölfarið með fjármögnun svipaðrar stefnu við austurströnd Kanada. Annað skref áætlunar Verndar- sjóðsins fólst í því að gengið var frá samningum fyrir Ísland, Wales, Suð- vestur-England, Norðursjó og nátt- úruverndarsvæði Norður-Írlands. Þessir samningar hafa stöðvað fækkun í villtum laxastofnum og við erum farin að sjá bata á nokkrum svæðum, einkum í því að aftur eru farnir að birtast stærri laxar sem hafa verið fleiri en eitt ár í vetrarbeit í hafinu, en þeir hrygna flestum eggjum. „Árangurinn er mikill og við meg- um vera stolt af honum,“ sagði Orri Vigfússon, formaður Verndarsjóðs- ins, á skrifstofu sjóðsins í Reykjavík. „Það birtir yfir framtíð villta Atl- antshafslaxins með hverjum mánuð- inum sem líður. Ég efast ekki um að við erum með svarið við vanda lax- ins. Við þurfum bara að koma því í framkvæmd. Förum nú og tökumst af nýjum krafti á við það sem eftir er að ryðja úr vegi.“ Verndarsjóðurinn hefur ekki tíma til að bíða. Nú er ætlunin að hefja þriðja skrefið, lokaskrefið til að verja laxinn, með verndun á leið hans heim úr hafbeitinni. Orri sagði: „Það er til lítils að vernda laxana úti í hafinu ef þeir eru svo veiddir í net við strend- ur Skotlands og Írlands og í norsku fjörðunum. Ef stofnarnir eiga að fá að vaxa aftur verður að gefa þeim færi á að snúa heim í árnar sínar til að hrygna. Með gagnkvæmum samningum og nýrri sjálfbærri at- vinnu fyrir sjómenn verður það hægt.“ Nú þegar eru fjölmargir at- vinnusjómenn tilbúnir að starfa með hópum Verndarsjóðsins til að byggja laxastofna upp í það sem þeir voru fyrir aðeins tveimur áratugum. Ver- ið er að undirbúa leiðbeinandi áætl- un í Noregi og flestir rek- og drag- netamenn Írlands hafa lýst vilja til að semja. Samstarfssamningar myndu hafa gríðarleg áhrif á þróun stangaveiði- tengdrar ferðamennsku á þessum svæðum. Við fjármögnun samninga sinna reynir Verndarsjóðurinn að ýta undir þá hagnaðarvon sem felst í frjálsum viðskiptum. Þannig hefur brautin verið rudd og miklir fjár- munir safnast úr einkageiranum. En sjóðurinn ætlast einnig til að hið op- inbera taki þátt með því að leggja til sanngjarnan hluta af því fé sem þarf til að bæta þá eyðileggingu sem léleg stjórnun hefur valdið á laxastofnum. „Stangaveiðimenn verða líka að leggja sitt af mörkum með því að takmarka fjölda veiddra laxa og vinna að betri búsvæðum í ánum. Það mun koma mörgum á óvart hve hratt villti laxinn mun þá ná sér á strik í ánum okkar,“ segir Orri. Verndarsjóður villtra laxa er bandalag náttúruverndarhópa sem hafa sameinast um að endurreisa villta laxastofna í þá sögulegu gnótt sem þar ríkti áður. Samningar um að hætta veið- um vatnaskil fyrir villtan lax          !         "# $  % " & '#  ()  %* * &+  "    , &    -. .$ %  % / ($0 * ,  1           2 3   4   2  '567 '8   "   -9        4:  FYRSTI samningur sinnar tegund- ar milli lögreglu og björgunarsveita var undirritaður í gær af lögreglu- embættunum í Reykjavík, Kópa- vogi, Hafnarfirði, ríkislögreglu- stjóra og svæðisstjórn björgunarsveita Slysavarnafélags- ins Landsbjargar. Samningurinn mun fastmóta áralangt samstarf þessara aðila við leit og björgun að týndu fólki og viðbrögð við slysum. Hann skýrir og skilgreinir boðunar- ferli björgunarsveita á höfuðborg- arsvæðinu, hvenær þær eru boð- aðar út og hvaða verkefnum þær eiga að sinna. Þá tekur samning- urinn á verkaskiptingu milli aðila. Samningurinn er hinn fyrsti sem gerður er milli lögreglu og björg- unarsveita sem er byggður á grundvelli laga um björgunarsveitir og björgunarsveitamenn og lög- reglulaga um samstarf lögreglu og björgunarsveita sem lýtur yfir- stjórn lögreglustjóra í hverju um- dæmi. Fyrsti samn- ingur lögreglu og björgunar- sveita und- irritaður STJÓRN Stangveiðifélagsins Flúða Húsavík hefur samþykkt ályktun þar sem lýst er yfir andstöðu við bráðabirgðaákvæði í fyrirliggjandi frumvarpi til laga um verndun Laxár og Mývatns, sem opna fyrir mögu- leika á stækkun stíflu Laxárvirkjun- ar. „Með slíkri stækkun er verið að sökkva undir vatn einu af fegurstu svæðum Laxár í þeim tilgangi að verja virkjunarvélarnar gegn sandi, klakaburði og grjóti. Því hefur verið haldið fram að skil- yrði fyrir laxinn neðan við virkjun myndu batna með minnkandi sand- burði í ánni. Þessi fullyrðing styðst ekki við neinar rannsóknir og er hrein ágiskun. Sandurinn hefur ver- ið hluti af lífríki Laxár í gegnum ald- irnar og minnkandi sandur í ánni gæti alveg eins valdið neikvæðum áhrifum í lífríki hennar. Þetta er órannsakað. Okkur finnst það skjóta skökku við að samtímis uppbyggingu í ferða- mannaiðnaði í Þingeyjarsýslum, með náttúruskoðun á svæðinu sem aðal- verkefni, er fyrirhugað að gera nátt- úruspjöll á þessari náttúruperlu okk- ar fyrir fáein kílóvött,“ segir í ályktuninni. Mótmæla stækkun stíflu Laxárvirkjunar Ályktun frá stjórn Stangveiðifélags Flúða Húsavík Toyota Landcruiser VX dísel turbo 24V, árgerð 1996, ekinn 240 þús. km, óbreyttur, fallegur bíll. Ásett verð 2.850 þús. Áhv. 700 þús. Skipti koma til greina. Upp- lýsingar í síma 893 6123. Sími 590 2000 Hratt og örugglega frá Bandaríkjunum, tvisvar í viku Sími 590 2000 Eilífðarábyrgð 12 og 220v Hleðsluvasaljós Prolong-smurefni minnkar nún- ing og hita í vélum. Sparar elds- neyti. Er notað af stærri fyrirtækj- um landsins. Uppl. í s. 868 4522.31“ kr. 12.990 stgr. 33“ kr. 13.990 stgr. 35“ kr. 14.990 stgr. Gerið verðsamanburð Ökukennsla Ökukennsla, endurhæfing, akstursmat og vistakstur. Upplýsingar í símum 892 1422 og 557 6722, Guðbrandur Bogason. Suzuki Intruder 800 árg. 2003 ekið 600 km. Verð 900 þús. stgr. Upplýsingar í síma 466 3326. Forsíða Viðskipti Íþróttir Fasteignir Smáauglýsingar Atvinna Fólkið Föstudagur | 14. desember | 2003 Smáauglýsingar á mbl.is Nú getur þú bæði pantað smáauglýsingu til birtingar á mbl.is eingöngu og einnig fengið auglýsinguna birta á smáauglýsingasíðum Morgunblaðsins. Smáauglýsingar á mbl.is, vinsælasta vefsvæði landsins, með yfir 150.000 heimsóknir á viku. Frítt til 1. febrúar. Smáauglýsing sem eingöngu er birt á mbl.is vefnum er ókeypis til 1. febrúar. Innifalið er 160 stafa auglýsing með mynd og birting í einn dag. N†TT Á NE TINU Frítt til . mars. ma s. VW Polo til sölu Einstaklega vel með farinn og sparneytinn VW Polo, árg. 1999. Þriggja dyra, sumar- og vetrardekk. Aukabún- aður: Geislaspilari og fjarstýrð samlæsing. Fæst gegn u.þ.b. 200 þús. kr. útborgun og afgangurinn á láni. Verð 680 þús. Þeir gerast ekki hagkvæmari. Upplýsingar í síma 663 7913. BE-ÁSTANDIÐ og seinkunartækn- in er meðal þess sem bera mun á góma á námskeiði fyrir konur undir yfirskriftinni „Hann?“ sem haldið verður næstkomandi laugardag, 6. mars, í Brautarholti 4a kl. 13–17. Námskeiðið er sjálfstyrkingarnám- skeið fyrir konur á öllum aldri sem haldið er af Jóhönnu Guðrúnu Jóns- dóttur fjölskylduráðgjafa. Jóhanna hefur haldið sjálfstyrk- ingarnámskeið fyrir konur síðan 2002. Hún segir titil námskeiðsins, „Hann?“ vera til kominn vegna þess hve þetta orð komi oft fyrir í þeim hópum sem hún hefur verið með í ráðgjöf. Hún lítur á námskeiðin sem nokkur konar innlegg í jafnréttis- baráttu. Jóhanna Guðrún segir kon- um hætta til þess að nota karla sem afsökun fyrir öllu mögulegu, t.d. beiti þær því sem hún kallar seink- unartækni og felur í sér að seinka því sem þær langar að koma í verk vegna þess sem aðrir þurfa að koma í verk. Það sem Jóhanna Guðrún kall- ar BE-ástandið stendur fyrir „betra en ekkert“ en hún vill kenna konum að sætta sig ekki við hvað sem er. Námskeið fyr- ir konur á öll- um aldri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.