Morgunblaðið - 07.03.2004, Síða 56

Morgunblaðið - 07.03.2004, Síða 56
56 SUNNUDAGUR 7. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Lukku Láki – Dalton bræðurnir taka lestina © DARGAUD Smáfólk Smáfólk SÍMINN! ÉG HELD ÉG VITI HVER ÞETTA ER ALLT Í LAGI RITARAR HRINGJA SIG ALLTAF VEIKA Á FIMMTUDÖGUM JÁ FRÚ ÞAÐ ER SÝN- INGARDAGUR.. FYRIR YKKUR ÖLL ÞÁ KOM ÉG MEÐ STÓRA LAUFASAFNIÐ MITT EN FYRST AUGLÝSINGAR LAUFASAFNIÐ ER Í BOÐI TRJÁNNA Í GARÐINUM MÍNUM ÞESSUM LAUFUM HEF ÉG SAFNAÐ UNDAN MÖRGUM TRJÁM Í MÖRGUM BEÐUM UM ALLAN GARÐINN MINN LAUFIN ERU LÍKA Í BOÐI RIGN- INGARINNAR RIGNINGIN KEMUR ÚR SKÝUNUM AF HIMNUM OFAN OG BLEYTIR MOLDINA ÞAR SEM TRÉN STANDA... FYRST VILL HÚN AÐ ÉG SEGI FRÁ EN NÚNA MÁ ÉG EKKI SEGJA FRÁ... OG ÞÁ KOMUM VIÐ... JÁ FRÚ ALLT Í LAGI framhald ... SMÁFÓLK BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. LANGT er síðan mér var sögð saga af manni sem var einn á ferð í bíl. Strjálbýlt var og nótt dimm þegar dekk sprakk og ekkert til vara. Hann tók hjólið undan og rúllaði því í átt að næsta bæ. Á leiðinni gerði hann sér hugmyndir um harkaleg viðbrögð húsráðanda við ónæðinu. Líklega úthúðar hann mér og sparkar kannski í mig. Í þessum hugleiðingum kom hann að bænum og var þá orðinn svo reiður út í bóndann að hann kastaði steini í glugga og sagði honum að hafa þetta fyrir bölvuð óliðlegheitin. Sagan sýnir að ímyndun getur virkjað ranghugmyndir en þannig gerir Þórunn Ólafsdóttir, hjúkrun- arforstjóri heimahjúkrunar, starfs- konum sínum upp græðgi í starfi og setur af stað ferli sem er lygi líkast. Hugmyndafræði hennar um hina endanlegu lausn allra vanda- mála heimahjúkrunar í Reykjavík hefur fallið í svo góðan jarðveg í heilbrigðisráðuneytinu, að úr hefur orðið kviksyndi. Í því máli virðist fáu vitrænu til vegar komið. Sæ- unni Stefánsdóttur, sem er til að- stoðar ráðherra, finnst sjálfsagt að beita hörðu til að koma hugsjónum Þórunnar Ólafsdóttur í fram- kvæmd. Glámskyggni ráðuneytis- manna færir þá á verulega grátt svæði. Góðgjarn ráðherra er gjör- samlega utangátta og skilur ekki um hvað málið snýst, eins og lit- laus vörn hans fyrir stjórn heima- hjúkrunar var í þinginu 2. mars. Ráðherrann styður við bakið á harðstjórn heimahjúkrunar sem víkur hagsmunum skjólstæðinga og starfsfólks fyrir breytingar sem ekki er vitað hvort eru til góðs eða ills. Að geta ekki unnt þrautþjálf- uðum starfskonunum góðs í akst- urskjörum verandi í vafa um hvort kerfið er dýrara þegar upp er stað- ið, er ámælisvert. Að láta bílaum- boð njóta góðs frekar en starfs- konur í svo erfiðu og krefjandi starfi, segir næstum allt sem segja þarf um stjórn heimahjúkrunar. Hún hefur verið fjötur um fót starfseminnar því örar breytingar, skilningsleysi og stöðugur ófriður við starfskonur og vanmat á störf- um þeirra veldur óöryggi og van- líðan. Afskipti öll á neikvæðu nót- unum og vanþakklætið yfirþyrmandi. Lausn fæst ekki með hroka þeim og hörku sem Þórunn og félagar sýna starfskon- unum, þó að það sé gert með sam- þykki ráðuneytis Framsóknar- flokksins, sem er lífseigasti vandræðagangur íslenskra stjórn- mála. Það hlýtur að vera heitt í kolunum hjá því fólki sem neyðist vegna aðstæðna, til að vinna áfram á lækkuðu kaupi og það undir stjórn fjandsamlegs hjúkrunarfor- stjóra. Óstéttvísin er starfsmanna- stjórum velþegið vopn og er ávalt ávísun á lægri laun. Getur verið að hroki einkenni hjúkrunarforstjóra, svona yfirleitt, frekar en umburð- arlyndi og skilningur á mannlegu þáttunum? Hvað fær Þórunn Ólafsdóttir út úr því að vera hug- myndasmiður skilningslauss ráð- herra, sem blessar kaupskerðinga- tillögur hennar og heiftúðugar árásir á starfskonur sínar? Þó að konurnar hefðu 60 þúsund og jafn- vel meira á mánuði ofan á skamm- arlega lág laun, fyrir akstur þar sem öll ábyrgð er þeirra, væri það í besta lagi. Sjáið læknana með frá 10 milljónum í 20 á ári. Stjórnvöld eiga að skammast sín og sparka stjórn heimahjúkrunar og láta þau hvergi koma nálægt mannlegum þáttum. Mér er kunnugt að ný- ráðnum konum líður svo illa að þær hyggjast hætta leysist deilan ekki fljótlega. Hvað getur verið skaðlegra starfsemi en stjórn þverhausa sem taka engum rökum? Framsóknar- flokkurinn er orðinn þvílíkt við- undur í deilu þessari að líkist eigin jarðarför. Ég er viss um að þjóðin mun með glöðu geði setja kross á leiðið. ALBERT JENSEN, Sléttuvegi 3, Reykjavík. Harðstjórn í skjóli heilbrigðisráðherra Frá Alberti Jensen: ÞAU fáheyrðu tíðindi berast að Landsvirkjun hyggist reisa 12 m stíflu í Laxá í Aðaldal. Sjálfur um- hverfisráðherra ætlar að gefa grænt ljós. Þeir sem eru með þess- ar fyrirætlanir á prjónunum virðast aðeins hafa skammtímaminni. Laxárdeilan svonefnda stóð í mörg ár, sársaukafull og erfið. Henni lauk með sigri þeirra, sem elskuðu ána og vildu vernda hana fyrir aðgerðum þeirra sem létu stjórnast af gróðasjónarmiðum og skammsýni. Forstjóri Landsvirkjunar lét þau orð falla í útvarpi, fyrir skömmu, að hann hefði verið hvattur af leigu- tökum árinnar. Sé svo þykir mér þeir þakka einkennilega fyrir sig. Það er talað um sandburð í ánni, það er ekkert nýtt fyrirbæri. Þessi á hefur runnið þarna í aldaraðir, hún sér um sig sjálf sé hún látin í friði. Núverandi landeigendur og leigutakar bera mikla ábyrgð. Þeir eiga að skila ánni óskemmdri til komandi kynslóða. Það er langt frá því að þeir sem börðust á móti stíflugerð í fyrr- nefndri Laxárdeilu séu dauðir úr öllum æðum og þeir munu berjast með öllum tiltækum ráðum á móti þessari fyrirhuguðu aðgerð. Að Laxá var virkjuð á sínum tíma var stórslys. Sé ekki hægt að reka virkjunina við núverandi aðstæður ætti að leggja hana niður. SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, Gaukshólum 2, Reykjavík. Sáttin um Laxá rofin Frá Sigríði Jónsdóttur:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.