Morgunblaðið - 07.03.2004, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 07.03.2004, Blaðsíða 57
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MARS 2004 57 ÉG BÝ á Íslandi kapítalismans og frjálshyggjunnar; nýjustu tísku ríkra stráka sem hafa aldrei þurft að svo lítið sem horfa á fátæka manneskju annars staðar en í kvikmyndum. Vegna þessarar óheppilegu staðsetn- ingar minnar í heiminum og þar sem ég tilheyri þeim minnihlutahópi sem vill í raun og veru öllum vel; nóg að borða fyrir alla og jafna heimsskipt- ingu ríkidæmis þess sem skiptist núna á minnihluta mannkyns, þá sér svokallað lýðræði til þess að ég muni aldrei geta komið í veg fyrir þau þjóðarmorð og niðurlægingu sem meirihluti Íslands stendur fyrir ásamt með „vinum“ sínum héðan og þaðan úr hinum kapitalíska heimi. Því sjáið þið til: lýðræðið virkar ekki á landi eins og Íslandi. Stór meiri- hluti hefur það of gott og er of ríkur til að finna nokkra löngun í sér til að gefa með sér, hvað þá að standa í rauninni upp úr sjónvarpssófanum og sýna stuðning í verki við þá sem minna mega sín. Þessum meirihluta finnst ekki koma sér við það aum- ingjans fólk sem okkar samfélag, vestræna kúgunarsamfélagið, hefur einsett sér að myrða hvort sem það snýst um að svelta það í hel eða skjóta það í bakið; börn, menn, kon- ur, skipta ekki máli. Nei, þessi mál staldra aldrei við í hugum ríku milli- stéttarinnar og hástéttarinnar sem móta þann meirihluta sem stjórnar Íslandi. En þegar talið snýst að sviknum kosningaloforðum að leggja niður eignaskatt, þá heyrist nú ald- eilis hærra í þessum sama meiri- hluta. Hann kvartar ekki yfir þát- töku Íslands í fjöldamorðunum í Írak, hvað þá yfir aumingjaskap stjórnvalda gagnvart ástandinu í Pal- estínu enda hvarflaði ekki að nokkr- um Íslending að heimta eitt einasta loforð um friðsamlega framgöngu ís- lenskra stjórnvalda. Það er sko ekk- ert nýtt að ríku og vel stæðu Íslend- ingarnir taki sína eigin peninga framyfir líf milljóna manna úti í heimi og afskrifi frið og mannúð með ekki einu, heldur tveimur penna- strikum; krossi við annað hvort D, B, S, eða F. Þannig horfir dæmið við mér; með- an íslensk stjórnvöld halda meiri- hluta þegna sinna ríkum og feitum geta þau á sama tíma leyft sér aftur og aftur að móðga friðsamlega mót- mælendur opinberlega, halda aftur af þeim með lögregluvaldi meðan kínverskir fjöldamorðingjar borða margréttaðar máltíðir í Perlunni, hlustandi á Diddú syngja í boði í rík- isstjórnarinnar. Þau geta leyft sér að brjóta á öryrkjum og þau geta logið þeim áróðri hástéttarinnar að fátækt sé eitthvert ólæknandi mein sem fylgi því miður alltaf vel stæðu sam- félagi. Þau geta jafnvel tekið sér það bessaleyfi þvert á vilja þjóðarinnar að lýsa yfir stuðningi við Bandaríkin í óstöðvandi kúgun þeirra á öllum sem minna mega sín, án þess að það bitni á nokkurn hátt á þeim; það kom svo sannarlega ekki í veg fyrir góða út- komu í síðustu kosningum alla vega. Ég sé enga ástæðu til að vera bjart- sýnn á þessum tímum og ég er ekki sammála stjórnarandstöðuflokkun- um um að Íslendingar þrái breyting- ar. Það sem Íslendingar þrá virkilega í hjarta sínu er að geta drukkið sitt kók í friði meðan milljónir fá ekki einu sinni vatn að drekka, þeir þrá að eyða þeirri olíu á „rúntinum“ sem þeir vilja án þess að vera minntir á að þúsundir manna dóu af völdum bandamanna Íslands í ráninu á sömu olíu, þeir eru í raun og veru svo firrtir að þeirra hugmynd um breytingar er að kjósa Samfylkinguna, flokkinn sem getur aldrei ákveðið sig, myndi aldrei henda Bandaríkjamönnum burt af Vellinum, styður Nato og hvers forsætisráðherraefni gerði rík- isstjórninni kleift að rífa niður Kára- hnjúka. Hljómar það eins og breyt- ingar í ykkar eyrum? Það verða engar breytingar þar til þeir fátæku, öryrkjandi og kúguðu rísa upp gegn kúgurum sínum og segja þeim að núna gangi þetta ekki lengur. Ef friður á að nást verða frið- arsinnar að stjórna, ekki hræsnarar þeir sem faðma Arafat eitt árið en lýsa yfir stuðningi við að sprengja araba annað árið. Þeir lægst launuðu eiga EKKI að þurfa að sætta sig við að fá lægri laun á ári en jeppi for- stjórans kostaði heldur eiga þeir að grípa til allra aðgerða nauðsynlegra til að stöðva arðránið sem nú við- gengst. Öreigar, öryrkjar, náttúru- verndarsinnaðir og friðarsinnaðir Ís- lendingar sameinist! Og kennum hástéttinni að það verður ekki vaðið yfir okkur ! Ég þarf auðvitað ekki að taka fram að aðgerðir verða friðsamlegar. FINNUR GUÐMUNDSSON, Skeiðarvogi 135, 104 Reykjavik. Kennum hástéttinni að það verður ekki vaðið yfir okkur Frá Finni Guðmundssyni: Húsgögn Ljós Gjafavara Mörkinni 3, sími 588 0640 www.casa.is Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-15. SÍMI 530 1500 Fyrirtæki til sölu Upplýsingar um fyrirtæki ekki veittar í síma Við sölu fyrirtækja er gagnkvæmur trúnaður mikilvægur og við gefum því ekki upplýsingar um fyrirtæki í síma. Við viljum fá kaupendur til okkar og kynnast þeim, en með því móti getum við einnig þjónað þeim betur. Vinsamlega hringið áður og pantið tíma. Síminn er 533 4300, en einnig er hægt að nota tölvupóstinn: jens@husid.is . Eftirfarandi eru stuttar lýsingar á nokkrum fyrirtækjum sem eru fáanleg, en við auglýsum ekki nema brot af þeim fyrirtækjum sem höfum til sölu:  Rótgróið lítið matvælafyrirtæki. Hentugt fyrir bakara.  Heildverslun með öryggisvörur o.fl. Góð umboð. 60 m. kr. ársvelta.  Rekstrarleiga með kauprétti. Þekkt dekurstofa. Nudd, Eurowave, hljóð- bylgjutæki, leirpottur, ljós, naglaborð. Góð staðsetning.  Flottur sportbar í góðu hverfi með nýjum innréttingum og tækjum, m.a. þrjú breiðtjöld. Velta 2—3 m. kr. á mánuði. Tilvalið fyrir samhent hjón.  Lítið og arðbært sjálfsalafyrirtæki. Hentugt sem aukavinna eða með öðrum rekstri. Góðir vaxtamöguleikar.  Söluturninn á Hagamel. Auðveld kaup.  Álgluggaverksmiðja með miklum tækjakosti. Tilvalið til sameiningar. Meðeign kemur til greina.  Matvöruverslun, bensínsala og veitingarekstur í Búðardal. Eigið hús- næði. Ársvelta er nú tæpar 200 m. kr. og hefur farið vaxandi með hverju ári. Góður hagnaður um margra ára skeið og mjög heilbrigður rekstur. Sérstaklega hentugt fyrir stóra fjölskyldu eða tvenn hjón.  Arðbært þjónustufyrirtæki í byggingariðnaði með góða verkefnastöðu. Ársvelta 60 m. kr. Tilvalið til sameiningar við fyrirtæki tengd bygging- ariðnaði.  Söluturn í tengslum við bensínstöð í Grafarvogi. Mikil grillsala.  Rekstraleiga með kauprétti. Stórt samkomuhús í nágrenni Reykjavíkur með góðri aðstöðu fyrir dansleiki, veislur og fundi. Ársvelta 30 m. kr. Gott tækifæri fyrir fagmenn.  Maraþon í Kringlunni. Sportvöruverslun með þekkt merki og mikla sölu. Rekstrarhagnaður 11 m. kr. á ári.  Vitum af mörgum sérverslunum, heildverslunum og iðnfyrirtækjum í ýmsum greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta 100—1000 m. kr.  Kringlubón. Ein þekktasta og besta bónstöð landsins. Sami eigandi í 16 ár.  Þekkt vefnaðarvöruverslun. Ársvelta 60 m. kr. Góð framlegð. Tilvalið fyr- ir „saumakonur“ með góðar hugmyndir.  Gallery bón. Lítil bónstöð í Skeifunni. Gott byrjendafyrirtæki. Auðveld kaup.  Lítið landflutningafyrirtæki með föst viðskipti um fiskflutninga. Heppileg viðbót við annað álíka.  Lítil rótgróin prentsmiðja með góð tæki og föst verkefni. Tilvalið til sam- einingar eða fyrir duglega menn sem vilja vinna sjálfstætt. Auðveld kaup.  Hárgreiðslumeistarar/-sveinar óskast til samstarfs í nýrri heilsu- og dek- urlind í Faxafeni. Gott tækifæri fyrir hæfileikafólk.  Spennandi tískuverslun í Kringlunni.  Lítil heildverslun með iðnaðarhráefni. Gagnlegur fróðleikur á heimasíðu fyrirtækjadeildar: www.husid.is . Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen), sími 533 4300, GSM 820 8658. Ný sending Mikið úrval - Gott verð 10% afsláttur m.v. staðgreiðslu RAÐGREIÐSLUR á handhnýttum, austurlenskum gæðateppum á Grand Hóteli, Sigtúni, Reykjavík Sölusýning Í dag, sunnudag 7. mars, kl. 13-19 Sími 861 4883 Töfrateppið Kynntu þér tilboð okkar á bílaleigubílum Pantaðu AVIS bílinn áður en þú leggur af stað Það borgar sig – Hringdu til AVIS í síma 591-4000 Við erum í 170 löndum 5000 stöðum T.d. Reykjavík, London, Kaupmannahöfn, Frankfurt, Milano, Alicante ... AVIS Knarrarvogi 2 – 104 Reykjavík – Sími 591 4000 – Fax 591 4040 – Netfang avis@avis.is – Heimasíða www.avis.is Minnum á Visa afsláttinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.