Morgunblaðið - 07.03.2004, Síða 61

Morgunblaðið - 07.03.2004, Síða 61
AUÐLESIÐ EFNI MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MARS 2004 61 HNÍFUR sem tengist líkfundinum í Neskaupstað fannst í sjónum, rétt hjá þar sem líkið fannst í vikunni. Lögreglan heldur áfram að rannsaka málið. Þrír menn eru í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Lögreglan segir að í bíl, sem einn þeirra sem eru í gæsluvarðhaldi á, hafi fundist blóð úr manninum sem fannst látinn í höfninni. Í bílnum fannst líka blóð úr eiganda bílsins. Lögreglan segir að hugsanlega hafi hinn látni fengið verkjalyf áður en hann dó en hann var með mikið magn af fíkniefnum í plasthylkjum inni í líkama sínum. Hugsanlegt er að maðurinn hafi verið á verkjalyfjum í nokkra daga áður en hann lést. Talið er að hnífurinn sem fannst hafi verið notaður til að veita stungur sem fundust á líkinu. Þetta er veiðihnífur, með 12 sentimetra löngu blaði. Hnífurinn fundinn Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir Varðskip og kafarar leituðu að hnífnum við höfnina í Neskaupstað. ÞRIÐJA myndin í Hringadróttinssöguröðinni, Hilmir snýr heim, fékk 11 Óskarsverðlaun. Vann myndin í öllum þeim 11 flokkum sem hún var tilefnd til verðlauna í. Þetta er jafnframt í fyrsta sinn sem ævintýramynd er valin besta myndin á Óskarsverðlaunahátíðinni. Myndin hlaut meðal annars verðlaun fyrir bestu klippingu, búningahönnun og tónlist. Peter Jackson, leikstjóri Hringadróttinssögu, var valinn besti leikstjórinn, en hann hefur unnið að gerð myndanna þriggja undanfarin sjö ár. Hann fékk einnig verðlaun fyrir besta handrit ásamt Fran Walsh, konu sinni, og Philippa Boyens. „Ég er afskaplega ánægður með þetta og með það að verðlaunanefndin hafi ákveðið að velja ævintýramynd sem bestu myndina í ár,“ sagði Jackson meðal annars. Sean Penn var valinn besti leikari í aðalhlutverki fyrir leik sinn í myndinni Dulá, sem Clint Eastwood leikstýrði. Leikkonan Charlize Theron var valin besta leikkonan í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt í myndinni Ófreskja (Monster). Renee Zellweger hlaut Óskarsverðlaun fyrir leik í aukahlutverki í myndinni Kaldbaki, og Tim Robbins var valinn besti karlleikari í aukahlutverki fyrir leik í myndinni Dulá. Hringadróttinssaga jafnaði metið í fjölda verðlauna, sem myndirnar Titanic og Ben-Hur settu áður og varð þriðja myndin, á eftir Gigi og Síðasta keisaranum til að hreppa öll þau verðlaun sem hún var tilnefnd til. Óskarsverðlaunin Reuters Peter Jackson var ánægður með verðlaunin. Hringadróttinssaga fékk flest verðlaun síðastliðinn miðvikudag er hann heimsótti Flórída. Þar réðust úrslit kosninganna fyrir fjórum árum er dómstólar úrskurðuðu, að George Bush forseti og repúblikanar hefðu sigrað með rúmlega 500 atkvæða mun. Kerry leggur á það áherslu í ræðum sínum, að Bush sé forseti þeirra, sem betur megi sín í bandarísku samfélagi, að hann hafi ekki sagt sannleikann um aðdraganda Íraksinnrásarinnar og einangrað Bandaríkin á alþjóðavettvangi. Bush hamrar aftur á því, að Kerry sé stefnulaus og tvístígandi í mörgum málum og því sé forsetanum best treystandi til að tryggja öryggi þjóðarinnar á hættutímum. Repúblikanar hafa hafið mikla herferð í sjónvarpi og þar er Bush sýndur við rústir tvíburaturnanna í New York. Hafa margir ættingjar þeirra sem fórust í hryðjuverkunum mótmælt þessari myndnotkun harðlega og segja hana yfirgengilega ósmekklega. BARÁTTAN fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum er komin á fullan skrið en venjulega hefur hún ekki hafist fyrir alvöru fyrr en að loknum landsfundum flokkanna síðla sumars. Búist er við, að kosningabaráttan verði að þessu sinni mjög hörð og óvægin. Með sigrum sínum í forkosningunum hefur John Kerry, öldungadeildarþingmaður fyrir Massachusetts, tryggt sér útnefningu síns flokks, Demókrataflokksins, sem forsetaframbjóðandi og hann hóf baráttuna með táknrænum hætti Kosningabaráttan vestra komin á fullt Rústamyndum með Bush mótmælt sem smekkleysu PETER Ridsdale, stjórnarformaður enska 2. deildarliðsins Barnsley, sagði á fimmtudaginn Guðjóni Þórðarsyni knattspyrnustjóra upp störfum. Paul Hart, fyrrverandi knattspyrnustjóri Nottingham Forest, var ráðinn í staðinn. Ridsdale sagði í yfirlýsingu að þrátt fyrir góða byrjun á keppnistímabilinu hefði Barnsley aðeins unnið einn leik af síðustu 13 og því væri nauðsynlegt að gera breytingar. „Ég var boðaður á fund með stjórn liðsins og í raun kom þessi ákvörðun nokkuð á óvart. Sérstaklega í ljósi þess að ég gerði samning við stjórnina í lok janúar,“ sagði Guðjón Þórðarson í samtali við Morgunblaðið. „Í þeim samtölum sem ég átti við stjórnarmenn á þeim tímapunkti var ekki lagt hart að mér að ná því að koma liðinu í umspil um laust sæti í fyrstu deild. Markmið ársins var að skapa félaginu fjárhagslegt öryggi og ég taldi að mínar aðgerðir hefðu skilað sínu á þeim vettvangi.“ Guðjón sagði að viðskilnaður sinn við Barnsley væri í sátt og samlyndi við þá sem þar stjórna og hann fengi laun greidd út samningstímann, þ.e. í eitt ár. „Eftir átta mánaða starf hjá Barnsley tel ég mig hafa gert góða hluti með félagið og tel mig vera í stakk búinn að takast á við ný verkefni,“ sagði Guðjón sem telur að hann geti vel fengið sambærilegt starf hjá öðru félagi á Englandi á næstum mánuðum. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Guðjón Þórðarson meðan allt lék í lyndi hjá Barnsley. Guðjóni sagt upp hjá Barnsley

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.