Morgunblaðið - 07.03.2004, Side 64

Morgunblaðið - 07.03.2004, Side 64
FÓLK Í FRÉTTUM 64 SUNNUDAGUR 7. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Staður Nafn Sími 1 Sími 2 Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542 Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600 Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672 Bifröst Ólafur Snorri Ottósson 435 0098 694 7372 Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243 Blönduós Björn Svanur Þórisson 452 4019/864 4820/662 0984 Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965 Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474 Breiðdalsvík María Jane Duff 475 6662 Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381 Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039 Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161 662 1373 Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350 Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123 Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315 Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370 Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885 Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 846 8123 Grenivík Hörður Hermannsson 463 3222 Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608 Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148 Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758 Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 895 0222 Hellissandur/Rif Aron Jóhannes Leví Kristjáns. 436 6925 Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478 Hofsós Bylgja Finnsdóttir 453 7418 893 5478 Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140 Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823 Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683 Hvammstangi Gunnar Þorvaldsson 451 2482 894 5591 Hveragerði Erna Þórðardóttir 483 4421 862 7525 Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711 Höfn Ranveig Á. Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416 Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 821 3475 Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478 Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 820 3463 Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024 Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8378 895 7818 Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112 Laugarás Jakop Antonsson 486 8983 Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679 Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173 Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2347 866 7958 Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305 Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230 Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344 Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574 Reykholt Bisk. Oddur Bjarni Bjarnason 486 8900 Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783 Reykjahlíð v/Mýv. Margrét Hróarsdóttir 464 4464 Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674 Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888 862 2888 Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700 Seyðisfjörður Hanna Lísa Vilhelmsdóttir 472 1102 690 2415 Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067 Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815 Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089 Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141 Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864 Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244 Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 456 4936 Tálknafjörður Rakel Guðbjörnsdóttir 456 2595 696 2663 Varmahlíð Ragnar Helgason 453 8134 867 9649 Vestmannaeyjar Sigurgeir Jónasson 481 1518 897 1131 Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 698 7521 Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135 Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 848 6475 Þingeyri Arnþór Ingi Hlynsson 456 8285 Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627 Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249 Dreifing Morgunblaðsins Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni Í kúbverskri tónlist rennamargir þræðir saman í einn,ekki bara afrískur taktur ogslagverk heldur einnig þjóð- leg evrópsk tónlist. Sönnun þess er að heyra í nýrri afbragðsskífu píanóleikarans snjalla Bebo Valdés og flamencosöngvarans Dieguito „El Cigala“, Lagrimas Negras, sem verið hefur metsöluplata víða í Evrópu og berst hingað til lands á morgun. Sígauninn Diego Ramon Jiménez Salazar var kallaður Dieguito, Diego litli, sem barn og fékk síðan viðurnefnið El Cigala, sem snara má sem risarækjan eða leturhum- arinn, frá Camarón, einum helsta flamencosöngvara Spánar síðustu áratuga, en Camarón, sem þýðir rækjan, lést fyrir fáum árum. El Cigala ólst upp við tónlist og fór snemma að syngja sér inn aur á götum Madrídar, þar sem hann ólst upp. Hann söng flamenco og þótti snemma svo góður að mikið var leitað til hans að syngja bak- raddir fyrir marga af helstu flam- encosöngvurum Spánar. Hann lærði af helstu meisturum þegar hann söng með Mario Maya, Faíco, Farruco, El Güito, Manuela Carr- asco, Cristóbal Reyes, Carmen Cortés og Manolete. 1994 var El Cigala farinn að syngja fremstur, eins og það kall- ast í flamenco, kominn í sviðsljósið en aðrir sjá um að syngja radd- irnar. Á undanförnum árum hefur hann getið sér gott orð fyrir flutn- ing á hefðbundnu flamenco auk- inheldur sem hann hefur verið framarlega í flokki þeirra sem eru ófeimnir við að prófa nýjar leiðir, flétta flamneco saman við aðrar gerðir tónlistar. Bebo Valdés er goðsögn í kúb- verskri tónlist, fæddur 1918 og var með helstu tónlistarmönnum Kúbu á fimmta og sjötta áratug síðustu aldar, snjall píanóleikari og hljóm- sveitarsjóri. 1960 flúði hann aftur á móti land og settist að í Svíþjóð þaðan sem lítið heyrðist af honum árum og áratugum saman. Valdés var þó ekki iðjulaus, hann fram- fleytti sér og fjölskyldu sinni með því að spila á píanó fyrir mat- argesti á vegum sænskrar hót- elkeðju. Alls liðu 34 ár frá því hann flúði frá Kúbu að hann sendi frá sér plötu með tónlist sem hann samdi að mestu, lék á píanó og út- setti. 2001 leitaði kvikmyndagerð- armaðurinn Fernando Trueba, sem á og rekur fyrirtækið Calle 54, til Valdés til að fá hann til að koma fram í kvikmynd sem hann var með í smíðum. Hann vildi fá Val- dés til að leika undir í kúbverska laginu Lagrimas Negras, Svört tár og El Cigala til að syngja það. Eft- ir því sem El Cigala náð lengra í flamenco-söng varð hann djarfari í að blanda saman ólíkum stíl- briðum, sagðist vilja spila fersk flamenco og tók erindi Trueba af- skaplega vel. Flutningurinn tókst síðan svo vel að ákveðið var að reyna við fleiri lög og smám saman safnaðist í breiðskifuna áður- nefndu, Svörtu tárin. Óvenjulegt er að plötunni að heyra flamenco sungið við píanó- undirleit en sjálfur segist Dieguito ekki sakna gítarsins þó hann hafi aldrei sungið við píanóundirleik. Hann hefur líka aldrei sungið ann- að en flamenco en á plötunni syng- ur hann bolero-söngva, copla og bræðing af gamalli flamenco-hefð, cante jondo, og kúbverskri hryn- súpu. Á plötunni syngur El Cigala í fyrsta sinn við undirleik píanós, hefur áður aðeins sungið við gít- artóna, en svo vel náðu þeir saman Valdes og hann að hann segist aldrei hafa saknað gítarsins. Valdés segist hafa áttað sig á því er hann fór að vinna plötuna með El Cigala hve margt var skylt með spænskri tónlist og kúbverskri. Hann rekur söguna svo að El Cigala hafi heyrt Lágrimas Neg- ras, sem er bolero eftir Miguel Matamoros, og ólmur viljað læra allt um bolero-hefðina. „Þegar hann var svo búinn að læra langaði okkur að færa lagið í annan búning því það eru til svo margar útgáfur af því og þá lá beinast við að hafa það flamenco-skotið.“ Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson Svörtu tárin Þó það sé langt frá Kúbu til Andalúsíu er forn sam- hljómur í tónlistinni. Það sannast rækilega í nýrri plötu kúbverska píanóleikarans Bebo Valdés og spænska flamencosöngvarans Dieguito El Cigala. Bebo Valdés og Dieguito „El Cigala". ÞETTA er bara tilfellið með sum- ar hljómsveitir. Það virðist alveg sama hversu mikið þær reyna og rembast. Þær geta hreinlega ekki hætt. Og það sem hann Robert Smith hefur reynt að tortíma þessu sköpunarverki sínu. Lýst því yfir eftir næstum hverja ein- ustu plötu að hún sé þeirra síð- asta. Þetta geti ekki gengið miklu lengur og nú sé komið að sólóferl- inum. Og nú er liðinn aldarfjórð- ungur og The Cure búin að gefa út þá yfirlýsingu að ný plata sé í smíðum og tónleikaferð jafnvel framundan. Nýtt lyf á gömlum belgjum Kemur sér líka vel því enn einu sinni virðist tími The Cure upp runninn. Ungir listamenn sækja í síauknum mæli í smiðju þeirra; 311 taka útgáfu sína á „Love Song“ í myndinni 50 First Dates og Tricky tók „The Love Cats“ á Vulnerable. Menn fá ekki bara lögin að láni heldur sækja þeir einnig til Roberts Smiths og fá hann til að syngja fyrir sig með sinni afgerandi breimandi röddu. Hollenski plötusnúðurinn Junkie XL, sem gerði Elvis aftur heitan með „A Little Less Conversation“, fékk Smith til að syngja í laginu „PerfectBlueSky“ á nýrri plötu sinni og Blink 182 fengu Smith til að syngja með sér lagið „All of This“ af nýju plötunni. Þá kemur Smith við sögu á nýrri plötu Tweakers, sem er hljómsveit fyrr- verandi trommara Nine Inch Na- ils, Chris Vrennas. Kemur reyndar ekki mikið á óvart að Smith skuli allt í einu vera orðinn svo heitur því greina má sterk Cure-áhrif hjá annarri hverri nýbylgjusveit sem slær í gegn í dag og nægir þar að nefna Hot Hot Heat, Interpol og The Raptures sem sláandi dæmi um það. Þyngri og rokkaðri Cure The Cure er um þessar mundir að hefja upptökur á nýrri plötu ásamt upptökustjóranum Ross Robinson en hann er hvað kunn- astur fyrir vinnu sína með þyngri rokksveitum bandarískum á við Korn, Limp Bizkit og Slipknot. Það var þó vegna vinnu Robinsons með At The Drive-In sem Smith ákvað að fá hann til að taka upp nýja Cure-efnið en markmiðið er að gera þyngri og rokkaðri Cure-plötu en þær síðustu hafa verið. Cure hefur jafnframt gert samning við út- gáfufyrirtæki Rob- insons, I Am Record- ings, og er áætlað að nýja platan komi út um miðjan júnímánuð næstkomandi. Engar uppfyllingar Fram að nýrri plötu geta unnendur sveit- arinnar þó eytt drjúg- um tíma í að kynna sér og kryfja nýtt veglegt fjögurra diska safn sem heitir Join The Dots: B-Sides & Rarit- ies og er heldur betur tæmandi heimild um allar B-hliðar og óút- gefin lög sveitarinnar frá 1978– 2001. Í ítarlegri 76 blaðsíðna litprent- aðri bók sem fylgir útgáfunni segir Robert Smith í inngangsorðum að sjálfur hafi hann sem ungur tón- listarunnandi alltaf haft mikinn áhuga á þeirri tónlist sem prýddi B-hliðar litlu platnanna. Hann hafi meira að segja byrjað að spila þá hliðina í þeirri von að fá að kynn- ast nýrri hlið á viðkomandi lista- mönnum; eitthvað alveg jafngott og það sem var á A-hliðinni en þó öðruvísi á einhvern hátt. „Ég gerði alltaf miklar væntingar til B-hliða þeirra listamanna sem ég hafði dá- læti á …“ Og það má greina á þessum stórfína pakka að þetta mottó hafi hann haft hugfast allan feril The Cure því góður meirihluti þeirra 70 laga sem eru í pakkanum er vel yfir meðallagi góður, sér í lagi sé viðkomandi gallharður Cure- aðdáandi. Við erum heldur ekkert að tala um nein drasllög, uppfyll- ingar eða tilgangslausar endur- hljóðblandanir (nema reyndar á stöku stað á seinna skeiðinu). Góð- ur vitnisburður um metnaðinn sem Smith lagði alltaf í B-hliðarnar er að árið 1986, áður en það varð lenska að gefa út B-hliða-söfn, ákvað hann að láta flestar B- hliðarnar fylgja með kass- ettuútgáfunni af safnplötunni vin- sælu Staring at the Sea og aðrar B-hliðar frá þeim tíma enduðu á Japanese Dreams. Það má líka greina vel á pakkanum nýja að einmitt á þessu skeiði, árunum 1985– 1990, er Smith hvað frjóastur í gerð B- hliðanna enda dældi maðurinn út lögunum þá, gaf út hverja tvö- falda plötuna á fætur annarri og virtist vart geta slegið feilnótu. Ef nýi pakkinn er ekki nóg fyrir Cure- unnendur, gamla sem nýja, má geta þess að í apríl á þessu ári hefst útgáfa á plötum sveit- arinnar endurnærðum og hreinsuðum að viðbættum B- hliðum, demóum og sjaldgæfum lögum. Árið 2004 er því greinilega allra meina bót. The Cure: Ný plata í smíðum og veglegt B-hliðasafn Ennþá allra meina bót Join The Dots: Feitur og græðandi pakki. Robert Smith: 45 ára og búinn að þurrka af sér varalitinn. Join The Dots: B-Sides & Rarit- ies 1978 > 2001 er komin út. skarpi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.