Morgunblaðið - 07.03.2004, Side 65

Morgunblaðið - 07.03.2004, Side 65
FÓLK ZERO 7 / When it Falls Mergjuð plata í nær alla staði. Og þótt mér sú fyrsta, Simple Pleasures, frá þessari bresku sálarrafpoppsveit þó engin sérstök snilld, ólíkt mörgum öðrum. Einhverjir myndu segja þessa tón- list farna að láta á sjá, svolítið gær- dagslega, í tískulegu tilliti. En blás- um bara á það, því hér er verið að búa til svo góða tónlist, vel samda og útfærða. Við erum að tala um tónlist sem upp að vissu marki er að dansa með því sem Air er að gera, en svei mér þá ef þetta er ekki bara betra; meitlaðra, úthugsaðra og einhvern veginn ekki eins fjári sjálf- hverft. ALICIA KEYES / The Diary of Alicia Keys Önnur plata undrabarns. Songs in A Minor kom manni nátt- úrlega í opna skjöldu. Svo þroskað frá svo ungri söngkonu. Og kærkomin var hún á tímum er R&B virtist allt vera orðið fastmótað í sama horfið. Ákveðin sálarklassík sem sveif yfir vötnum sem skar hana frá öllum hinum. Það er ekki erfitt að fylgja slíku eftir, eftirvæntingin og pressan óbærileg. Og lætur önn- ur platan það því miður fullmikið uppi. Hún virðist einhvern veginn orðin fullmeðvituð um eigin ágæti – sem reyndar er heilmikið ágæti og svo veldur hún manni vonbrigðum með því að stökkva á stöku stað upp á R&B færibandið og tekst heldur ekkert sérlega vel upp þar. En hæfi- leiki Aliciu Keys leynir sér samt ekki og því á hún sannarlega enn eftir að gera sína bestu hluti. Erlendar plötur MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MARS 2004 65 Leikfélag Akureyrar sýnir DRAUMALANDIÐ Miðapantanir í síma 462 1400 Draumalandið og Eldað með Elvis sýnt um páskana Tryggðu þér miða í tíma Leikrit eftir Ingibjörgu Hjartardóttur Glæpasaga úr samtímanum sem þú verður að sjá Skrattakollar (Deuces Wild) Drama Bandaríkin 2002. Sam-myndbönd. Bönn- uð innan 16 ára. (96 mín.) Leikstjórn Scott Kalver. Aðalhlutverk Stephen Dorff, Brad Renfro, Fairuza Balk, Norman Reedus, Balthazar Getty, Matt Dillon. LEIKARAHÓPURINN í þessari svölu – að hún vill vera – gengja- mynd er eins og A til Ö yfir efnileg- ustu leikara í Hollywood. Fyrir nokkrum árum, þ.e.a.s. Hitt er nefnilega líka ísköld staðreynd að þessi leikarahópur er í dag eins og A til Ö yfir helstu vandræðapésa í Hollywood. Dorff, Renfro, Getty. Allt bráðefnilegir leik- arar á sínum tíma sem lentu svo í tómu tjóni, dópi, rugli og vondum myndum sem gert hefur að verkum að framinn stefndi í allt aðra og þveröfuga átt en til stóð. Skrattakollar hefur vafalítið átt að bæta þar úr, vera mynd sem hæfði ímynd þeirra drengja, því þar fengju þeir tækifæri á að sýna hversu ill- skeyttir þeir væru orðnir. Og til að undirstrika enn hinn augljósa virð- ingarvott við klíkumyndirnar sem vinsælar voru aldarfjórðungi eða svo (The Warriors, The Wanderers, The Outsiders, Rumble Fish) þá var fenginn í aukahlutverk helsta stjarn- an sem þær myndir gátu af sér, Matt Dillon. En það bara er ekki nóg því sama hversu blásið er og másað; töffaraskapurinn er ekki að virka. Skarphéðinn Guðmundsson Myndbönd Glötuð gengi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.