Morgunblaðið - 07.03.2004, Page 68

Morgunblaðið - 07.03.2004, Page 68
68 SUNNUDAGUR 7. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ ALLMÖRG ár eru liðin frá því að ég sá seinast hollenska dans- og söngvamynd, svo það var með gleði í hjarta sem ég settist niður að fylgj- ast með systur Kliviu, íbúum gisti- heimilis hennar og nágrannanum vonda, honum Boordevol. Og brosið hélt sér, því hér er á ferðinni lítil og sæt gleðimynd. Hún byrjar á atriði í anda Busby Berkeley myndanna, og eftir það er myndin öll tekin í mynd- veri, einsog var í gamla daga. Leik- ararnir dansa síðan og bresta í söng af minnsta tilefni, einsog siður er í góðum söng- og dansmyndum. Myndin byggir á hollenskum sjónvarpsþáttum frá sjöunda ára- tugnum, og leikstjórinn hefur kosið að halda sem flestu óbreyttu, það hefur tekist og er vel. Sagan er einnig gamaldags og ólík þeim sem við sjáum í bíómyndum dagsins í dag. Hún er fyndin, en á sama tíma mjög saklaus og eiginlega barnaleg, þar sem hið góða og illa tekst á. En einsog í góðum endurgerðum á gömlum myndum, hefur undirliggj- andi beittari tón verið bætt við. Upphaflega var sjónvarpsþátturinn ætlaður börnum, og vissulega gætu þau lifað sig inn í einfalda söguna. En mér sýnist á öllu að vondi ná- granninn Boordevol, sem alltaf er að atast út í Kliviu og vini hennar, eigi við einhvern innri vanda að stríða. Svei mér ef hann er ekki að láta gremju sína bitna á öðrum, þar sem hann þorir ekki að horfast í augu við eigin kynhneigð. Vonum bara að hans gamla vini, hár- greiðslumanninum Wouter, takist að hjálpa kallinum. Leikararnir ná gamla sprell-and- anum sérlega vel og eru allir frá- bærir í sínum hlutverkum, þótt leið- indaskjóðan hann Boordevol sé langtum bestur. Leikurinn er ýktur einsog allur stíll myndarinnar, sem er einmitt eitt af því sem oft sést í menningu samkynhneigðra. Bún- ingarnir eru dásamlegir og alveg í takt við ætlunarverk leikstjórans. Hér hefur lítil og falleg saga verið notuð til að segja djúpstæðari sögu með ýmsum skírskotunum í heim samkynhneigðra, og það gert bæði smekklega og skemmtilega svo gaman er að. Allir þurfa góða granna KVIKMYNDIR Regnboginn – Hinsegin bíó Leikstjóri: Pieter Kramer. Handrit: Harry Banninnk, Frank Houtappels eftir sögu Annie Schmidt. Tónlist: Raymund van Santen. Kvikmyndataka: Piotr Kukla. Að- alleikarar: Loes Luca, Paul R. Kooij, Paul de Leeuw, Tjitske Reidinga, Waldemar Torenstra. 100 mín. Holland 2003. Já systir, nei systir /Ja zuster, nee zuster  ½ Hildur Loftsdóttir Já systir, nei systir er lítil en djúp saga í ýkjustíl með söng og dansi. MUGISON, Örn Elías Guðmunds- son, er vestfirskur tónlistarmaður sem hefur notið talsverðrar hylli erlendis að undanförnu. Ástæðan er plata hans, Lonely Mountain, sem hefur fengið fádæma góða dóma og hefur Mugison m.a. farið til Bretlands, Frakklands og Japans til að kynna gripinn. Kappinn býr sem stendur á Ísa- firði og hyggst hann, ásamt föður sínum (sem hann kallar Papa Mug) og Rassa Prump (Ragnar Kjart- ansson listamaður) halda helj- armikla tónlistarhátíð laugardag- inn 10. apríl undir heitinu „Aldrei fór ég suður“. Fer hún fram á Ísa- firði og verður í góðu samstarfi við Ísafjarðarbæ. Það eina sem Mugison gefur upp um hátíðina í bili er að hún sé hald- in til að fá fólk vestur í heimsókn en líka svo að heimamenn hafi eitt- hvað annað að gera um páskana en að horfa á sjónvarp. Fjöldi heimamanna kemur fram en að sunnan koma m.a. Funerals, Gjörningaklúbburinn, gusgus, Jó- hann Jóhannsson, Trabant, Tristian og Dr. Gunni. Fleiri nöfn eiga eftir að bætast við. Mugison stendur fyrir tónlistarhátíð á Ísafirði „Aldrei fór ég suður“ Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns Mugison er listamannsnafn Arnar Elíasar Guðmundssonar. KRINGLAN Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 14 ára. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 14 ára. AKUREYRI Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 14 ára. FRUMSÝNING Frá framleiðendum Fast and theFurious og XXX Sýnd kl. 2 og 4. Sýnd kl. 6 og 9. B.i. 16. Sýnd kl. 3. SV MBL Sýnd kl. 6, 8 og 10.10.  Kvikmyndir.com SV MBL Sýnd kl. 9.15. B.i. 14 ára. Heimur farfuglanna DV Renée Zellweger besta leikkona í aukahlutverki -Roger Ebert Ó.H.T. Rás2 „Bráðfyndin“ HJ. MBL „Ótrúlega áhrifarík. Frumleg, fyndin og elskuleg.“ -BÖS, Fréttablaðið Skonrokk „Hundrað sinnum fyndnari en Ben Stiller á besta degi.“ -VG. DV Sýnd kl. 6.30. Kvikmyndir.is DV  ÓHT Rás 2 i i .i Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 2 og 4. Íslenskt tal. Sean Penn besti leikari í aðalhlutverki Tim Robbins besti leikari í aukahlutverki Sýnd í stórasalnum kl. 5.20, 8 og 10.30. B.i. 16. ÓSKARSVERÐLAUNA MYNDIN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.