Morgunblaðið - 07.03.2004, Blaðsíða 69

Morgunblaðið - 07.03.2004, Blaðsíða 69
VEFSVÆÐIÐ tónlist.is hyggst auka þjónustu sína og bjóða netnotendum hátt í 300 þúsund lög frá öllum heimshornum. Gert er ráð fyrir að þessi viðbót verði að veruleika í lok mars. „Þannig verður bæði hægt að nálgast eldri erlendar perlur, sem jafnvel hafa verið ófáanlegar hér- lendis og nýja tónlist frá skærustu stjörnum tónlistarheimsins í dag,“ segir í fréttatilkynningu. Segir að meðal annars verði tón- list frá stærstu útgefendum heims, m.a. Universal, BMG, Warner og EMI/Virgin fáanleg um leið og jafn- vel áður en hún kemur út á geisla- diskum. „Þannig hyggst Tónlist.is leggja áherslu á „smáskífumarkað“ hérlendis sem hefur ekki verið raunhæfur kostur hingað til.“ Þá kemur fram að sam- hliða því að bæta þjón- ustuna hér- MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MARS 2004 69 KEFLAVÍK Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal. AKUREYRI Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 2, 4 og 6. Íslenskt tal. Gamanmynd eins og þær gerast bestar !  Kvikmyndir.com  HJ MBL „Fínasta skemmtun“ B.Ö.S. Fréttablaðið KRINGLAN Sýnd kl. 10. KRINGLAN Sýnd kl. 3.45, 5.45, 8 og 10.20. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4 og 8. AKUREYRI kl. 8. KRINGLAN Sýnd kl. 2 og 4. Íslenskt tal. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.30. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.  Kvikmyndir.com B.i. 16 ára. SV MBL DV FRUMSÝNING LÆRÐU AÐ ROKKA!! Renée Zellweger besta leikkona í aukahlutverki Frábær gamanmynd frá höfundi Meet the Parents EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 3, 6 OG 9. Jack Black fer á kostum í geggjaðri grínmynd sem rokkar! Ben Stiller Jennifer Anistonill i i BIRGIR Örn Thoroddsen, listamað- ur, hefur snert á ýmsu á ferli sín- um. Hann hefur fengist við tónlist, myndlist og gjörninga jöfnum hönd- um í meira en áratug auk þess að vera virkur í skipulagningu hinna ýmsu listviðburða. Í tónlistargeir- anum starfar hann undir nafninu Curver og er helmingur hljómsveit- arinnar Ghostigital ásamt Einari Erni Benediktssyni, auk þess að vera þekktur sem upptökustjóri. Hann er og einn af stofnendum Tíma, miðstöð fyrir tímalistir. Á þriðjudaginn kl. 16.00 opnar hann einkasýningu í SÍM-húsinu, Hafn- arstræti 16, Reykjavík. Sýningin ber heitið Listmunaðarleysingja- hælið og stendur til 24. mars. Sýn- ingin inniheldur verk og hugmyndir frá árunum 1997–2003. En að inn- viðum hans sjálfs … Hvernig hefurðu það í dag? Ég hef það bara fínt. Dálítið stress- aður samt þar sem þetta er búinn að vera frekar erfiður dagur. Hvað ertu með í vösunum? Alveg einstaklega mikið í þetta skiptið. Beiðnihefti frá Reykjavík- urborg, nótu frá Skífunni, einhverja reim, lykla, Magic orkudrykk, bréf með náttúrunammi í (hnetur og svoleiðis), plastpoka með súkku- laðikönguló í, ógreiddan rafmagns- reikning, klemmu fyrir hljóðnema, rca-snúru, ogrca-snúru í „jack“. GSM-síminn væri líka í vasanum ef ég væri ekki að tala í hann. Uppvaskið eða skræla kartöflur? Uppvaskið án efa enda var ég upp- vaskari í níu ár í aukavinnu. Hefurðu tárast í bíói? Já. Ef þú værir ekki listamaður, hvað vildirðu þá vera? Uppfinningamaður. Og þá myndi ég búa til vélmenni. Hverjir voru fyrstu tónleikarnir sem þú fórst á? Þeir fóru fram uppi á þaki í Árbæj- arskóla. Bjarni Ara var að syngja. Þetta var fyrsta meðvitaða tón- leikasóknin hjá mér. Hvaða leikari fer mest í taugarnar á þér? Leikarinn sem leikur Harold í ná- grönnum. Ég fríka út! Hver er þinn helsti veikleiki? Stjórnleysi. Finndu fimm orð sem lýsa persónuleika þínum vel. Jákvæður, bjartsýnn, dómharður, húmoristi, kærleiksríkur. Bítlarnir eða Stones? Beach Boys. Hver var síðasta bók sem þú last? The Art of Record Production. Hvaða lag spilarðu áður en þú ferð út á laugardagskvöldi? Eitthvað með Sensational. Uppáhaldsmálsháttur? Hafið er stórt því það forsmáir ekki hið minnsta afrennsli Hvaða plötu keyptirðu síðast? Þær eru tvær. 8 Fits með Reptil- icus en hana vantaði mig í safn- ið. Svo keypti ég mér The Ess- ential collection með Soft Cell. Hver er unaðslegasti ilmur sem þú hefur fundið? Bensínlykt. Hvert er þitt mesta prakkara- strik? Þegar ég var lítill áttum við heima í Kópavogi, í Kjarrhólmanum nánar tiltekið. Einu sinni læsti ég mömmu úti á svölum. Ég, pabbi og bróðir minn fórum svo út og læst- um okkur úti. Það þurfti að kalla á mann og láta brjóta hurðina upp. Hver er furðulegasti matur sem þú hefur borðað? Kobraslöngukjöt. Trúirðu á líf eftir dauðann? Já. Með vasa fulla af dóti SOS SPURT & SVARAÐ Birgir Örn Thoroddsen lendis mun tónlist.is selja hluta ís- lenskrar tónlistar úr gagnagrunni sínum fjölmörgum vefsvæðum í Evrópu og Bandaríkjunum. „Netið mun því enn og aftur sanna gildi sitt í markaðssetningu íslenskrar tón- listar á alþjóðavísu. Þess má geta að fjöldi erlendra gesta hefur notað tonlist.com frá opnun og notið tón- listar okkar frábæra tónlistarfólks.“ Erlend lög á tónlist.is Stefán Hjörleifsson er einn forsvarsmanna tónlist.is. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins KRINGLAN Sýnd kl. 2, 4 og 6. KEFLAVÍK Sýnd kl. 6. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16 ára. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8.15 og 10.30. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 2. Ísl. tal. KRINGLAN Sýnd kl. 1.50. Ísl. tal. KRINGLAN Sýnd kl. 8. B.i. 14 ára Myndin er uppfull af kolsvörtum húmor auk þess sem hún er skemmtilega djörf og dramatísk. Besta teiknimyndin AKUREYRI Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal.  SV MBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.