Morgunblaðið - 07.03.2004, Side 72

Morgunblaðið - 07.03.2004, Side 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 7. MARS 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 300 KR. MEÐ VSK. www.sveit.is erlenda r sÉrferÐ ir ÞRÍR Akureyringar hafa fest kaup á fisk- vinnslufyrirtækinu Marcel Baey í Boulogne Sur Mer í Frakklandi og hafa eigendaskipt- in þegar farið fram. Þetta eru Kristján Kristjánsson, sem undanfarin fimm ár hefur starfað hjá Bakkavör og SÍF í Frakklandi, Baldur Guðnason, framkvæmdastjóri Sjafn- ar á Akureyri, og Steingrímur Pétursson, aðstoðarframkvæmdastjóri Sjafnar. Kristján verður framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Kaupverð er ekki gefið upp. Fyrirtækið Marcel Baey var stofnað árið 1947 af samnefndum Frakka. Síðustu ár hefur hann lítið komið að rekstrinum og 1987 seldi hann 70% hlut í fyrirtækinu til þriggja lykilstarfsmanna þess. Marcel Baey og starfsmennirnir þrír selja nú allir sinn hlut, en munu eftir sem áður verða í stjórnunarstöðum hjá fyrirtækinu. Uppistaðan í starfsemi Marcel Baey hefur alla tíð verið framleiðsla reyktra fiskafurða undir samnefndu vörumerki, úr laxi, ýsu, síld, makríl, ál og lúðu. Þá hefur fyrirtækið framleitt, selt og dreift ferskum karfa-, steinbíts-, ýsu- og grálúðuflökum. Allar framleiðsluvörur Marcel Baey hafa verið seldar á Frakklandsmarkaði og eru þar mjög vel þekktar, að sögn hinna nýju eig- enda. Viðskiptavinir Marcel Baey eru fyrst og fremst veitingastaðir og sérhæfðar fisk- verslanir. Stærstur hluti hráefnis í vinnslu Marcel Baey kemur frá Noregi og Íslandi. Fyrirtækið veltir um einum milljarði ís- lenskra króna á ári og hefur í mörg und- anfarin ár skilað góðum hagnaði, að sögn Baldurs Guðnasonar. Eigið fé Marcel Baey er 140 milljónir íslenskra króna, heild- arskuldir eru 110 milljónir króna. Eiginfjár- hlutfall er 56% og veltufjárhlutfall 1,71. Starfsmenn Marcel Baey eru á milli 30 og 40. Þess má geta að Marcel Baey var valið eitt af tíu best reknu fyrirtækjum í Bou- logne Sur Mer á síðasta ári. „Marcel Baey er mjög gott fyrirtæki og við teljum mikla möguleika á vexti þess á næstu árum. Fyrirtækið er þekkt á Frakk- landsmarkaði fyrir hágæðaframleiðslu og við ætlum að hlúa að þeim markaði, auk þess sem við munum athuga með nýja markaði, meðal annars útflutning. Staðsetn- ing fyrirtækisins hér í Boulogne Sur Mer er mjög góð gagnvart móttöku hráefnis og dreifingu afurða. Sem dæmi eru héðan að- eins um 15 kílómetrar að Ermarsundsgöng- unum og um 100 kílómetrar að landamær- um Belgíu,“ segir Kristján framkvæmda- stjóri. Baldur Guðnason er stjórnarformaður Marcel Baey og með honum í stjórn eru hin- ir eigendurnir tveir, Kristján Kristjánsson og Steingrímur Pétursson. Þrír Akureyringar fjárfesta í Frakklandi Gott fyrirtæki með mikla vaxtarmögu- leika, segir framkvæmdastjórinn Akureyri. Morgunblaðið. HUGMYNDIR eru uppi um að lengja nám lögreglumanna úr einu ári í þrjú og tryggja nemum í Lögregluskóla ríkisins laun allt námstímabilið. Hugmyndirnar hafa verið kynntar fyrir dómsmálaráðherra og gangi allt eftir verður næst tekið inn í lögreglu- skólann haustið 2005 og þá í samræmi við nýja námskrá. Arnar Guðmundsson, skólastjóri Lög- regluskóla ríkisins, segir að grunn- hugmyndin sé að fjölga kennslustundum úr u.þ.b. 1.200 í 2.100. Skólinn vilji auka kennslu í þeim greinum sem fyrir eru kenndar og eins athuga hvort nauðsynlegt sé að bæta við fögum. Einnig standi til að verja meiri tíma til þjálfunar og ýmissa verklegra æfinga. Arnar telur skynsamlegt að lögreglu- nemar fái greidd laun frá því þeir hefja nám. „Þannig að menn sæki um starf í lög- reglunni um leið og þeir sækja um að kom- ast í skólann og það sé gerður samningur við þá í upphafi. Þetta skiptir máli varðandi agaspursmál og að menn læri alveg frá fyrsta degi að þeir eru lögreglumenn,“ segir Arnar. Hann bætir við að lögreglunemarnir geti þá aðstoðað við löggæslu, þegar miklar annir eru, og eins sé þetta mikilvægt vegna trygginga. Samkvæmt núverandi fyrirkomulagi er fyrsta önnin ólaunuð, en standist nemend- urnir próf sem eru tekin að fjórum mán- uðum liðnum hefja þeir starfsþjálfun, ganga vaktir og starfa við hlið fullgildra lögreglu- manna yfir sumarið. Um haustið ljúka þeir seinni önninni og eru á launum áfram þar til þeir eru brautskráðir rétt fyrir jól. Hugmyndirnar nú ganga út á að lengja námið úr einu ári upp í tvö og jafnvel að eins árs reynslutími bætist við að því loknu, áður en menn geta farið í skipaðar lögreglu- mannastöður. Námið verði því alls þrjú ár. Yfir fyrstu tvö árin yrðu nemendur að auki í 12 mánuði samtals í starfsþjálfun, m.a. yfir sumartímann þegar helst er þörf á auknu starfsliði hjá lögreglunni. Nám lög- reglumanna verði þrjú ár Nemar verði á launum allan námstímann  Námið/4 FLAK björgunarskipsins sem skol- aði útbyrðis af ms. Skaftafelli á mið- vikudagskvöld fannst í gær uppi í klettafjöru rétt austan við Sela- tanga. Skipið rak upp í fjöruna og brotnaði þar í spón. Búið er að koma auga á vélar skipsins og nokkra aðra hluti úr því. Vegna brims tókst ekki að koma auga á skipið fyrr en í gær þegar veður fór að lægja. Engin olía lak úr skipinu þar sem það var tómt en brak dreifðist um fjöruna og verður kannað hvort unnt sé að fjarlægja það. Verðgildi skipa sem þessara er 14 til 15 milljónir króna og var skipið tryggt, en aðaltjónið felst í því hversu erfitt er að fá þau afgreidd frá framleiðanda. Flak björg- unarskips- ins fundið DAGFORELDRAR boða a.m.k. 13 þúsund króna hækk- un á daggjöldum ef reglugerð um daggæslu barna í heima- húsum verður samþykkt óbreytt og börnum fækkað úr fimm í fjögur á hvert dagfor- eldri. Ráðgert er að reglugerð- in taki gildi 1. apríl nk. en fundur félagsmálaráðherra og dagforeldra hefur verið boðað- ur á þriðjudag. Að sögn Ingu Hönnu Dag- bjartsdóttur, sem sæti á í stjórn Barnavistunar, félags dagforeldra í Reykjavík, standa gjöldin ekki undir kostnaði við rekstur miðað við óbreyttar forsendur og hafa dagforeldrar lýst því yfir að margir muni skila inn leyfum ef ekki verður tekið tillit til athugasemda þeirra við reglugerðina. 970 börn í umsjá dagforeldra í Reykjavík Um 400 dagforeldrar eru á landsvísu, þar af nálægt 200 í Reykjavík. Um 970 börn eru í umsjá dagforeldra í Reykjavík einni og víða um hálfs árs til eins árs bið eftir plássi. Að mati dagforeldra er ljóst að fækkun dagforeldra muni bitna hart á sveitarfélögum og eft- irspurn eftir leikskólaplássum aukast til muna. Dagforeldrar benda á að á sama tíma sé verið að herða reglur um eftirlit með dag- mæðrum. Meðal annars sé nýj- um óháðum eftirlitsaðila ætlað að fylla út umfangsmikinn gát- lista við hverja heimsókn sem lýsi vantrausti yfirvalda á starfsstéttina, að þeirra mati. Dagforeldrar um drög að reglugerð um daggæslu Gjald mun hækka um 13 þúsund að óbreyttu  Erfitt að/4 HVER segir að maður þurfi að hlaupa eftir malbikuðum útivelli eða parketlögðu gólfi til að skemmta sér í körfubolta? Þessir hressu krakkar í sundlauginni í Hveragerði áttu ekki í nokkrum vandræðum með að spila körfubolta á kafi í vatni! Þegar loks einn leikmaður tók boltann og kastaði honum beinustu leið ofan í körfuna horfðu hinir fullir aðdáunar á. Leik- mennirnir ungu voru líka umvafðir dularfullri ísþoku er ljósmyndari Morgunblaðsins heilsaði upp á þá sem gerði leikinn enn meira spenn- andi. Morgunblaðið/RAX Leikur í lauginni ÁKVEÐIÐ hefur verið að efna til aukatónleika með bandarísku rokk- hljómsveitinni KoRn 31. maí næst- komandi í Laugardalshöll, daginn eftir áður fyrirhugaða tónleika sveitarinnar hér á landi. Uppselt varð á fyrri tónleikana á tveimur dögum en miklar raðir mynduðust við miðasöluna fyrir þá tónleika er hún hófst á sunnudag- inn var. Að sögn tónleikahaldara kom það liðsmönnum KoRn í opna skjöldu þegar þeim bárust tíðindin að miðar hefðu selst svo skjótt upp á Íslandi, þremur mánuðum fyrir tónleikana. Því hefðu þeir góðfús- lega fallist á að leika á öðrum tón- leikum daginn eftir til að anna þess- ari miklu eftirspurn á Íslandi. Sem fyrr segir verða auka- tónleikarnir 31. maí í Laugardals- höll. Forsala verður á miðum í gegnum siminn.is en almenn miða- sala hefst í verslunum Skífunnar í Kringlunni og Smáralindinni sunnudaginn 4. apríl kl. 21. Nú þegar hafa 5.500 manns tryggt sér miða á tónleika með KoRn. Aukatón- leikar með KoRn ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.