Morgunblaðið - 25.03.2004, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.03.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 FIMMTUDAGUR 25. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ LAUSIR ÚR HALDI Þremenningarnir sem grunaðir eru um aðild að líkfundarmálinu í Neskaupstað voru látnir lausir um sexleytið í gærkvöld, eftir að Hæsti- réttur hafði snúið við niðurstöðu héraðsdóms og ekki fallist á kröfu lögreglu um að almannahagsmunir krefðust lengra gæsluvarðhalds. Litháinn Tomas Malakauskas var ennfremur dæmdur í farbann til 30. apríl næstkomandi. Telja rétt að myrða Sharon Nýr æðsti leiðtogi Hamas-sam- taka Palestínumanna, Khaled Meshaal, kveðst vilja að Ariel Shar- on, forsætisráðherra Ísraels, verði ráðinn af dögum í hefndarskyni fyrir dráp Ísraela á Ahmed Yassin, stofn- anda og andlegum leiðtoga Hamas. Nýr yfirmaður Hamas á Gaza- svæðinu, Abdelaziz Rantissi, útilok- aði í gær að samið yrði um vopnahlé við Ísraela fyrr en þeir léttu hersetu sinni af landsvæðum Palestínu- manna. Fórnarlamba minnzt Opinber minningarathöfn um hin 190 fórnarlömb hryðjuverkaárás- arinnar í Madríd var í gær haldin í dómkirkju spænsku höfuðborg- arinnar, að viðstaddri konungsfjöl- skyldunni og fjölda erlendra tign- argesta, auk aðstandenda hinna látnu. ESB sektar Microsoft Yfirvöld samkeppnismála í Evr- ópusambandinu, ESB, sektuðu í gær bandaríska hugbúnaðarfyrirtækið Microsoft um hálfan milljarð evra, nærri 44 milljarða ísl.kr., fyrir að hafa misnotað raunverulega einok- unaraðstöðu sína á einkatölvumark- aðinum. Úrskurðurinn gengur miklu lengra en það samkomulag sem Microsoft gerði við samkeppnis- yfirvöld í Bandaríkjunum. Myllan-Brauð seld Íslensk-ameríska hefur fest kaup á Myllunni-Brauði. Samkeppn- isstofnun hyggst skoða hvort kaupin samræmast samkeppnislögum. Samanlögð velta fyrirtækjanna tveggja er áætluð 5,4 milljarðar króna. Kaupverð er ekki vitað. Stafrænt sjónvarp 2008 Samgönguráðherra vill að stofnað verði sameiginlegt fyrirtæki fjöl- miðla og fjarskiptafyrirtækja til að byggja upp dreifikerfi fyrir stafrænt sjónvarp. Hann vonast til að upp- byggingu kerfisins geti verið lokið árið 2008. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 38 Erlent 16/18 Minningar 38/43 Heima 20 Umræðan 44/48 Höfuðborgin 22 Kirkjustarf 49 Akureyri 24 Bréf 48 Suðurnes 25 Dagbók 50/51 Landið 27 Staksteinar 54 Listir 28/30 Sport 56/59 Daglegt líf 31/33 Fólk 60/65 Neytendur 32 Bíó 62/65 Forystugrein 34 Ljósvakamiðlar 66 Þjónusta 37 Veður 67 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is NORRÆN kvikmyndaverðlaun verða veitt í fyrsta sinn á þingi Norðurlandaráðs á næsta ári. Þetta ákváðu ráðherrar menningarmála á Norðurlönd- um á fundi sínum í Kaupmannahöfn í gær, mið- vikudag. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamála- ráðherra stjórnaði fundi norrænu menningarmála- ráðherranna en Ísland fer nú með forystu innan Norðurlandaráðs. Í samtali við Morgunblaðið segir hún verðlaunin marka ákveðin tímamót. „Það var samþykkt að koma á fót norrænum kvikmyndaverðlaunum. Þetta hefur lengi verið í umræðunni en ekki orðið úr því fyrr en nú. Þetta er því mikilvæg ákvörðun.“ Þorgerður Katrín segir einkum tvennt hafa orðið til þess að samkomulag náðist um veitingu verð- launanna. „Annars vegar áhugi þingmanna en ekki síður mikill og öflugur fram- gangur kvikmyndalistarinnar á Norðurlöndum að undanförnu. Hver sem hefur augu og eyru getur séð þennan framgang,“ segir Þorgerður Katrín. Verður útfært nánar Samþykkt var á fundinum að verðlaunaupphæðin yrði sú sama og annarra verðlauna Norðurlandaráðs, t.d. bók- menntaverðlauna, eða 350 þúsund danskar krónur. Að sögn Þorgerðar Katrínar á eftir að útfæra nán- ar með hvaða hætti verðlaunin verða en ráðherr- arnir hafi talið mikilvægt að taka um það ákvörðun að verðlaunin verði veitt að ári og einnig upphæð verðlaunanna. Þá segir hún að eftir sé að útfæra nánar skilyrði sem sett verða fyrir kvikmynda- verðlaununum. Það hafi m.a. verið rætt hvort leyfa ætti tilnefningu mynda sem ekki eru á Norður- landamáli en ráðherrarnir voru ekki á einu máli um það. Segir hún sænska ráðherrann hafa í því sam- bandi bent á sænsku kvikmyndina Lilya 4ever sem að miklu leyti fer fram á rússnesku en er þó óum- deilt norræn mynd. Hún segir það þó munu verða ófrávíkjanlegt skilyrði að tilnefndar kvikmyndir hefðu sterkar rætur í norrænni menningu. „Fyrst og fremst eigum við að einblína á að myndirnar sem tilnefndar verða hafi norræna skír- skotun. Myndin Dancer in the Dark eftir Lars Von Trier með Björk í aðalhlutverki er til dæmis að mínu mati norræn mynd þó í henni sé töluð enska,“ segir Þorgerður Katrín. Kvikmyndaverðlaun Norð- urlandaráðs veitt árið 2005 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir SAMNINGAR Starfsgreinasam- bandsins (SGS) og Flóabandalagsins við Samtök atvinnulífsins (SA) eru nú til kynningar og atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna. Á almennum fé- lagsfundi Eflingar – stéttarfélags á þriðjudag voru samningarnir kynnt- ir og ýmis ákvæði þeirra. Nokkurra nýjunga gætir í samn- ingunum. Sigurður Bessason, for- maður Eflingar, vakti m.a. athygli á ákvæði þess efnis að heimilt er að semja svo um á hverjum vinnustað að samningsbundin frí sem lenda á fimmtudögum, þ.e. sumardagurinn fyrsti og uppstigningardagur, verði færð á föstudag eða mánudag. Um þetta yrði að semja á hverjum vinnu- stað, m.a. með atkvæðagreiðslu starfsmanna. Sigurður sagði at- vinnurekendur hafa komið fram með kröfu um þetta ákvæði. Þá sagði Sigurður mikil tímamót í kjarasamningagerð hafa orðið með innleiðingu fræðslusjóðs í samning- unum nú. Stjórnvöld myndu á samn- ingstímanum til 2007 leggja til 190 milljónir króna í starfsmenntamál og atvinnurekendur greiða í starfs- menntasjóð. Með þessu væri í fyrsta sinn skot- ið varanlegum stoðum undir starfs- menntun almenns launafólks til frambúðar. Frá 1. janúar 2006 greiða atvinnurekendur 0,05% í sjóði til fræðslumála og 0,10% til viðbótar frá 1. janúar 2007, þ.e. alls 0,15% frá þeim tíma. Samningar SGS og „Flóans“ við SA Ákvæði um flutning fimmtudagsfrídaga MARGIR kátir kiðlingar hoppa og leika sér í geitahús- inu á Rauðá í Þingeyjarsveit enda þar mjög vorlegt eft- ir að geiturnar báru um miðjan mánuðinn. Geitur hafa verið samfellt á Rauðá frá árinu 1967 en áður hafði stofninn þar verið felldur í fjárskiptunum 1941. Nú eru geitur einungis á tveimur bæjum í Suður- Þingeyjarsýslu og hætt er að nýta mjólkina til mann- eldis. Vilhjálmur Grímsson á Rauðá lætur vel af geita- búskapnum enda alltaf skemmtilegt að búa með líf- legan bústofn. Þá verða kiðlingarnir alltaf gæfir og gaman getur verið að spjalla við þá og sjá þá gera ýms- ar kúnstir. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Glatt á hjalla í geitahúsinu Laxamýri. Morgunblaðið. FRÉTTATÍMI Stöðvar 2 verður færður fram um hálftíma hinn 1. apríl næstkomandi. Þetta staðfesti fréttastjóri Stöðvar 2, Sigríður Árnadóttir, í samtali við Morgun- blaðið. Frá og með 1. apríl hefjast frétt- irnar kl. 18.30 í stað 19.00 eins og nú er. Þá verður dægurmálaþátturinn Ísland í dag færður fram til kl. 18.18. Að loknum fréttum, kl. 19.00, tek- ur Ísland í dag upp þráðinn og mun þátturinn standa til kl. 19.30. Heild- artími þáttarins styttist því úr einni klukkustund í 42 mínútur. Fréttatími Stöðvar 2 færður 1. apríl KARLMAÐUR um tvítugt var handtekinn laust fyrir klukkan átta í gærkvöld eftir að hann braust inn í Lyf og heilsu við Rauðarárstíg í Reykjavík. Lögreglu var gert viðvart eftir að nágrannar heyrðu brothljóð frá apótekinu. Maðurinn braut rúðu og var að koma út úr apótekinu með ránsfenginn þegar lögreglu- menn tóku á móti honum. Hann var handtekinn og færður í fanga- geymslur. Braust inn í apótek ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.