Morgunblaðið - 25.03.2004, Blaðsíða 59
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2004 59
ANNA Yakova, vinstrihand-
arskyttan öfluga í meistaraliði ÍBV
í handknattleik, er samkvæmt
skeyti sem HSÍ barst í gær frá evr-
ópska handknattleikssambandinu
gjaldgeng með íslenska landsliðinu
miðað við þær upplýsingar sem
gefnar hafa verið fram. Hún getur
því tekið þátt í leikjum íslenska
landsliðsins gegn Tékkum í maí en
þeir skera úr um hvor þjóðin kemst
í lokakeppni Evrópumótsins.
„Miðað við þær upplýsingar sem
Yakova og úkraínska handknatt-
leikssambandið hafa gefið fram og
eins þá staðreynd að Yakova er
komin með íslenskt vegabréf þá
getur hún leikið með íslenska lands-
liðinu. Við þurfum hins vegar að
afla okkur nánari upplýsinga um-
feril hennar með úkraínska lands-
liðinu. Við fengum ekki dagsetn-
ingu á hvenær hún spilaði síðast
landsleik fyrir Úkraínu og við þurf-
um því að kanna þessa hluti til hlít-
ar og fá staðfestingu á dagsetning-
unni hvenær eða hvort hún spilaði
með Úkraínu áður en við gefum
grænt ljós á að hún spili með lands-
liðinu. Sönnunarbyrðin liggur hjá
okkur en ef allt reynist satt og rétt
sem við höfum í höndunum þá getur
hún spilað fyrir Ísland,“ sagði Ein-
ar Þorvarðarson, framkvæmda-
stjóri HSÍ, við Morgunblaðið í gær.
Anna Yakova öðlaðist íslenskan
ríkisborgararétt í desember á síð-
asta ári.
Anna Yakova lögleg
með landsliðinu
FÓLK
ÓLAFUR Stefánsson skoraði 4
mörk í gærkvöld, tvö þeirra úr
vítaköstum, þegar Ciudad Real
sigraði Barakaldo, 29:22, á útivelli
í spænsku 1. deildinni í handknatt-
leik. Ciudad var yfir frá byrjun,
15:8 í hálfleik, og hafði leikinn allt-
af í hendi sér. Jonas Källman var
markahæstur hjá Ciudad með 7
mörk.
BARCELONA tapaði fyrir Vall-
adolid, 33:30, og á nú enga mögu-
leika á að fylgja Ciudad Real eftir í
baráttunni um spænska meistara-
titilinn. Ciudad er með 42 stig,
Ademar 37 og Barcelona og Port-
land 35 stig. Julio Fis skoraði 8
mörk fyrir Valladolid og Dragan
Skrbic skoraði 8 mörk fyrir Barce-
lona.
RAGNAR Óskarsson skoraði 4
mörk í gærkvöld þegar Dunkerque
vann Pontault-Combault á útivelli,
24:20, í frönsku 1. deildinni í hand-
knattleik. Með sigrinum komst
Dunkerque í þriðja sætið með 45
stig en Montpellier er efst með 55
stig og Créteil er með 49.
EMMA Furuvik keppti í svigi á
sænska meistaramótinu og á FIS
móti í Svíþjóð um helgina og varð í
15. sæti á 1.37,30 og fékk 42,56
punkta fyrir. Hún féll síðan úr
keppni í fyrri ferðinni daginn eftir.
DUNCAN Ferguson, framherj-
inn stóri og stæðilegi í liði Ever-
ton, var í gær ákærður af aga-
nefnd enska knattspyrnusam-
bandsins. Ferguson missti stjórn á
skapi sínu í leiknum við Leicester
um síðustu helgi og það ekki í
fyrsta skipti. Honum var vísað af
velli og á leið sinni út af tók hann
Þjóðverjann Steffen Freund
kverkataki.
CRAIG Bellamy, framherji
enska úrvalsdeildarliðsins New-
castle, missti stjórn á sér á flug-
vellinum í Newcastle er liðið var á
leið til Mallorca á Spáni til þess að
leika gegn samnefndu liði í UEFA-
bikarnum í knattspyrnu. Bellamy
lenti í orðaskiptum við þjálfara
liðsins, John Carver, og þurftu
leikmenn liðsins að ganga á milli
þeirra til þess að stöðva áflogin.
FORSVARSMENN félagsins
sendu frá sér tilkynningu þess efn-
is að búið væri að gera upp málið í
röðum félagsins og því væri lokið.
Newcastle vann fyrri leik liðanna,
4:1, í Newcastle.
FRAMARAR heiðruðu í gær-
kvöldi fyrirliða handknattleiksliðs
síns, Guðlaug Arnarsson, fyrir 200
leiki fyrir félagið og Hafstein Ant-
on Ingason fyrir sinn 100. leik í
búningi Fram.
ÁRNI Þór Sigtryggsson, örv-
henta skyttan í handknattleiksliði
Þórs, skoraði hvorki fleiri né færri
en 18 mörk þegar norðanmenn
sigruðu Breiðablik, 34:29, í 1.
deildinni í Smáranum í gærkvöld.
AC Milan setti met í Meistaradeild
Evrópu þegar liðið mætti Deportivo
La Coruna í fyrri leik liðanna í 8-liða
úrslitum á San Síró í fyrrakvöld –
þegar liðið skoraði fjögur mörk á
átta mínútna kafla. Fyrra met átti
Juventus er það skoraði fjögur mörk
á 14. mínútna kafla gegn Olympia-
kos frá Grikklandi í viðureign lið-
anna í Tórínó í desember á síðasta
ári. Þar áður átti Manchester United
metið þegar það skoraði fjögur
mörk á 21 mínútu kafla í nóvember
1998 gegn Bröndby.
AC Milan
setti met
BRYNJAR Björn Gunnarsson,
landsliðsmaður í knattspyrnu,
sem gekk til liðs við Stoke City
frá Nottingham Forest um
helgina, hefur skrifað undir
samning við Stoke sem gildir
út leiktíðina. Upphaflega stóð
til að Brynjar Björn yrði hjá
Stoke í láni í einn mánuð og fé-
lagið gæti síðan átt möguleika
á að framlengja dvöl hans en á
vef Nottingham Forest í gær
var greint frá því að félögin
hefðu náð samkomulagi um að
Brynjar Björn færi alfarinn til
Stoke.
Brynjar Björn lék að nýju
með Stoke í fyrrakvöld – kom
inn á sem varamaður á 58. mín-
útu í 2:0 ósigri fyrir Crewe.
Brynjar hjá
Stoke út
leiktíðina
Leikur Chelsea og Arsenal vareldfjörugur. Bæði lið léku
hratt og gáfu mótherjum sínum
engin grið til að athafna sig. Hvor-
ugu liðinu gekk vel að skapa sér
marktækifæri í fyrri hálfleik og því
gengu liðin til búningsherbergja í
leikhléi án þess að hafa skorað og í
raun ógnað marki mótherjanna.
Það breyttist fljótlega í síðari hálf-
leiknum því Eiður Smári, sem var í
byrjunarliði Chelsea, sótti að Jens
Lehmann, markverði Arsenal, sem
kom út fyrir vítateig sinn til að
spyrna frá markinu. Eiður Smári
komst fyrir boltann og náði honum
á ný inni í vítateignum vinstra meg-
in og þrátt fyrir þröngt færi náði
hann að skora. Vel gert hjá honum.
Lehmann var að vonum vonsvik-
inn enda klaufalegt hjá honum, en
hann stóð fyrir sínu skömmu síðar
þegar hann varði skot frá Lampart
og annað skot frá Eiði Smára, sem
náði frákastinu. Heimamenn sóttu
án afláts næstu mínútur eftir að
Eiður Smári skoraði en tókst ekki
að bæta við marki þrátt fyrir mörg
færi.
Mark Eiðs Smára kom á 53. mín-
útu og aðeins sex mínútum síðar
hafði Robert Pires jafnað metin
með laglegu marki með skalla, fékk
glæsilega sendingu frá Ashley Cole
af vinstri vængnum og skallaði
knöttinn neðst í vinstra hornið.
Fleiri urðu mörkin ekki og Pires
bjargaði tölfræðinni fyrir Arsenal
sem hefur ekki tapað fyrir Chelsea
í 17 leikjum, síðast árið 1998.
Undir lok leiksins var Marcel
Desailly, fyrirliði Chelsea, rekinn af
velli. Virkilega klaufalegt hjá hon-
um því eftir eina sókn heimamanna
náði Lehmann knettinum og ætlaði
að henda honum langt fram en
Desailly greip í knöttinn og fékk
gult spjald að launum. Nokkrum
mínútum síðar var hann of seinn og
braut á Patrick Vieira og fékk þá
sitt annað gula spjald og rautt í
kjölfarið. Í kjölfarið var Eiði Smára
skipt af velli og Mario Melchiot
settur inn á til að styrkja varn-
arleikinn.
„Það var gaman að skora og ég
held ég hafi gert vel með að ná
þessum bolta,“ sagði Eiður Smári
eftir leikinn. „Ég er nokkuð sáttur
með leikinn, en það hefði verið
mjög gott að vinna 1:0, en sú varð
því miður ekki raunin.
Nú er bara hálfleikur og þó svo
Arsenal sé með heldur betri stöðu
en við eftir fyrri hálfleikinn verðum
við að fara á Highbury og skora.
Þetta er alls ekki búið,“ sagði Eiður
Smári.
Real hrökk í
gang eftir hlé
Nífaldir Evrópumeistarar Real
Madrid voru lengi í gang þegar þeir
tóku á móti Mónakó í Madríd í
gærkvöldi. Gestirnir skoruðu eina
mark fyrri hálfleiks og þar var Seb-
astien Squillaci á ferðinni á 43. mín-
útu. við lítinn fögnuð meginþorra
áhorfenda.
„Við vorum kaldir í fyrri hálfleik,
rétt eins og veðrið,“ sagði Luis
Figo, portúgalski leikmaðurinn hjá
Real eftir leikinn. Leikmenn hafa
trúlega fengið sér eitthvað heitt að
drekka í leikhléi því fljótlega hafði
Ivan Helguera jafnað metin og Zin-
edine Zidane kom heimamönnum
yfir þegar 20 mínútur voru eftir af
leiknum. Þá var röðin komin að
Figo, sem lét verja frá sér víta-
spyrnu en náði frákastinu og skor-
aði. Ronaldo, sem lék nú í fyrsta
sinn með liðinu síðan í byrjun mán-
aðarins en þá tognaði hann lítillega,
gerði fjórða mark meistaranna.
Gestirnir áttu síðasta orðið í gær-
kvöldi og löguðu stöðuna og strák-
arnir hans Didiers Deschamps geta
hugsanlega komist áfram, en til
þess verða þeir að vinna í það
minnsta 2:0 eftir tvær vikur en þá
mætast liðin á ný og þá í Frakk-
landi.
Roberto Carlos, leikmaður Real,
var fjarri góðu gamni vegna leik-
banns og á síðustu sekúndum leiks-
ins í gær fékk David Beckham gult
spjald sem þýðir að hann verður í
banni þegar liðin mætast öðru
sinni.
Það hefur allt gengið á afturfót-
unum hjá Real að undanförnu og
sigurinn í gær var fyrsti sigur liðs-
ins í síðustu fjórum leikjum, það
tapaði meðal annars í úrslitum bik-
arkeppninnar á Spáni. „Við náðum
okkur vel á strik í síðari hálfleikn-
um og stöndum vel að vígi fyrir síð-
ari leikinn. Þetta er búin að vera
erfið vika hjá okkur enda höfum við
verið með hugann við þennan leik.
Ég held að eftir þessi úrslit sé ljóst
að við eigum að komast í undan-
úrslitin,“ sagði Figo eftir leikinn.
Reynist það rétt hjá honum er
ljóst að Real Madrid mætir ensku
liði því sigurvegarinn úr þessu ein-
vígi mætir annaðhvort Chelsea eða
Arsenal.
Reuters
Eiður Smári fagnar marki sínu gegn Arsenal ásamt félaga sínum, Damien Duff.
Aftur skorar Eiður
Smári gegn Arsenal
MARK Eiðs Smára Guðjohnsens gegn Arsenal í Meistaradeildinni í
gæfkvöldi dugði Chelsea ekki til sigurs á heimavelli því gestirnir
jöfnuðu skömmu síðar og má því segja að Arsenal hafi nokkurt for-
skot fyrir síðari leikinn – mark á útivelli. Real Madrid stendur hins
vegar vel eftir 4:2 sigur á heimavelli gegn Mónakó.