Morgunblaðið - 25.03.2004, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 25.03.2004, Blaðsíða 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2004 29 Þ að er óhætt að segja að fastráðning Stefáns Höskuldssonar flautu- leikara við Metropolit- anóperuna í New York nýverið hafi vakið mikla athygli. Fyrir ráðninguna starfaði Stefán í lausamennsku við hljóðfæraleik, og hafði ekkert fast lifibrauð. Metro- politanóperan er staðsett í lista- miðstöðinni Lincoln Center sem hýsir, auk Metropolitanóperunnar, Fílharmóníusveit New York borg- ar, New York ballettinn, New York City óperuna, og fleiri menn- ingarstofnanir. Lincoln Center er aðsetur fremstu listamanna heims í tónlist og dansi, og tónleikar og sýningar eru á hverju kvöldi og allar helgar allt árið um kring. Metropolitanóperan, eða Met, eins og hún er kölluð í tónlistarheim- inum, þykir ein sú allra besta, ef ekki sú albesta í heiminum í dag, og hefur haldið þeim virðingarsessi lengi. Það þótti tíðindum sæta þeg- ar María Markan var ráðin þangað sem söngkona á fyrri hluta síðustu aldar, en á síðari árum hafa bæði Kristinn Sigmundsson og Kristján Jóhannsson verið þar gestasöngv- arar. Tveggja mánaða æfingar fyrir prufuspilið Starf í þessu virta óperuhúsi er því nokkuð sem margir sækjast eftir. Um 300 manns sóttu um stöðuna sem Stefán fékk – stöðu annars flautuleikara, en „aðeins“ 80 fengu að þreyta áheyrnarpróf. „Þetta er eftirsótt starf, því er ekki að neita,“ sagði Stefán í sam- tali við Morgunblaðið. „Allir vilja vera í New York, þetta er frábær borg og Metropolitanóperan er meiri háttar vinnustaður. Um- hverfið er líka mjög spennandi og margt að gerast. Ég var búinn að fara í prufuspil á ýmsum stöðum á síðasta ári, til dæmis fyrir New York City óperuna, þar sem ég komst í lokaumferð, og fyrir New York City ballettinn, þar sem ég spilaði núna eftir áramót og fékk stöðuna, en þá kom þetta upp á. Starf í hljómsveit Metropolit- anóperunnar er eitt það eftirsótt- asta fyrir tónlistarmenn í Banda- ríkjunum. Ég sótti í rauninni bara um, og fékk í hendur það sem ég þurfti að æfa fyrir prufuspilið, og hafði tvo mánuði til þess. Þetta voru bútar úr alls konar óperum, Britten, Donizetti, Puccini, Richard Strauss og fleira. Ég lærði þetta bara vel og fór svo í prófið.“ Stefán segir að það geti verið með höppum og glöppum hvernig fólki takist til í áheyrnarprófum af þessu tagi. Allt þarf að ganga upp ef viðkomandi á að eiga möguleika – bæði hæfileikar og heppni. „Mað- ur þarf líka að reyna að átta sig á því hverju dómnefndin er að leita að. Ég fór í tíma hjá flautuleikara hér í borginni sem hefur unnið með dómnefndinni og hann gat gefið mér innsýn í það sem sóst er eftir. Dómnefndin er fyrst og fremst að spá í það hvers konar tónlistarmaður maður sé, og hvað maður geti spilað. Maður þarf auð- vitað að vera músíkalskur, en líka að spila tandurhreint. Það er ekki nóg að spila allar nótur ef maður spilar ekki hreint. Það hefur rosa- lega mikið að segja. Það er sér- stakt við þessa hljómsveit að hún stillir sig eftir tóninum A-440, en ekki A-442 eins og venjulega er gert. Þetta er gömul hefð hér. Þetta er eitthvað sem maður þarf að venjast, og það var erfitt fyrir prufuspilið að æfa þannig. En ég keypti mér bara „tuner“ til að æfa mig með. En auðvitað var dóm- nefndin bara að leita eftir góðum tónlistarmönnum. Það er ekkert flóknara en það. Prufuspilið fer til dæmis allt fram þannig að maður spilar bak við skerm, og dóm- nefndin sér ekki hver það er sem spilar. Þeir eru mjög strangir á því hér að þeirri reglu sé fylgt og að valið sé óhlutdrægt og fagmann- legt.“ Mikil vinna en launin góð Stefán segir að þegar búið hafi verið að sigta fjóra úr fimmtán manna undanúrslitahópi, hafi hann verið farinn að stressast svolítið – enda var það þá orðinn raunhæfur möguleiki að hann fengi starfið. „Það var ein vika sem fór í þetta og síðasti spretturinn var talsvert taugastríð. Þá reyndi á. Það hjálp- aði mér bara að vera jákvæður í gegnum þetta allt. Þótt maður vildi fá starfið, mátti maður ekki láta það eftir sér að vilja það of ákaft. Þetta gat farið hvernig sem var. Ég gerði mitt besta og það dugði.“ Stefán byrjaði að vinna strax 2. mars, í vikunni eftir að niðurstöður lágu fyrir. „Við erum að æfa allan Niflungahringinn núna og fyrsta verkefnið var Sigurður Fáfnisbani með James Levine, sem er listrænn stjórnandi Metro- politanóperunnar og aðal- hljómsveitarstjóri. Fyrsti aðstoðarstjórnandi er svo Rússinn Valery Gergiev. Við erum búin að vera að spila með honum Salóme eftir Richard Strauss. Þessir frægu hljómsveit- arstjórar eru mjög þægi- legir menn og góðir að vinna með. Þeir eru mjög klárir og miklir snillingar, en eru ekkert mikið að tala við okkur. Ég er þó búinn að heilsa þeim.“ Starfið í hljómsveit Metropolitanóperunni er mjög krefjandi. Æfingar eru nánast daglega frá kl. 11 á morgnana til 14.30, og svo eru sýn- ingar á kvöldin. Á laugardögum eru oft beinar útsendingar frá sýn- ingum kl. 14, en þær hafa meðal annars borist hingað til Rík- isútvarpsins, enda sendar um allan heim á vegum Evrópusambands útvarpsstöðva og fleiri fjölmiðla- sambanda. „Live from the Met“, eins og dagskráin heitir á sér langa sögu og er vel þekkt og virt um allan heim. Með beinu útsend- ingunni er vinnudeginum ekki lok- ið, því á laugardögum eru líka kvöldsýningar. Vinnuskyldan eru fjórar sýningar á viku til viðbótar við æfingatímann. Við þetta bætast alls konar viðburðir, aukatónleikar og tónleikaraðir, þar sem þátttöku hljómsveitarinnar er krafist. Stef- án var byrjaður að vinna þegar Luciano Pavarotti kvaddi Metro- politanóperuna um daginn í sér- stakri kveðjusýningu á Toscu, en var ekki með, þar sem löngu var búið að fullæfa verkið. Tildrög þess að staða annars flautuleikara losnaði var sú, að kona sem gegnt hafði því í 25 ár ákvað að hætta og fara á eftirlaun. „Eftirlaunapakkinn hér er mjög góður,“ segir Stefán, og segir að- spurður að launakjör séu mjög góð. „Þetta er vel borgað, ég get sagt það.“ Þótt vinnan sé mikil í hljóm- sveitinni gefst hljóðfæraleik- urunum þó kostur á að sinna öðr- um hljóðfæraleik. „Hljómsveitin starfrækir kammermúsíkhóp, Met Chamber Ensamble, þar sem flutt eru smærri kammerverk. Við eig- um svo frí í júlí á sumrin, og þá getur maður gert eitthvað annað og spilað eitthvað fyrir sjálfan sig.“ Stefán hikar ekki þegar hann er spurður að því hvernig honum líki svo nýja starfið. „Þetta er alveg æðislegt – í einu orði sagt æð- islegt!“ Í einu orði sagt, æðislegt! Stefán Höskuldsson flautuleikari. begga@mbl.is Stefán Höskuldsson flautuleikari var nýver- ið ráðinn til hinnar nafnkunnu Metropolit- anóperu í New York. Hann sagði Bergþóru Jónsdóttur frá þessu eftirsótta starfi. KÓR Bústaðakirkju heldur tónleika í Bústaðakirkju kl. 20 í kvöld. Flutt verða verk sem hæfa föstutíma kirkjuársins. Fyrst til að nefna eru tvö íslensk passíusálmalög í útsetn- ingum Smára Ólasonar. Næst verð- ur flutt verk eftir Felix Mendels- sohn, Hear my prayer. Textinn byggist að hluta á fjórða Davíðs- sálmi og verður nú fluttur í ís- lenskri þýðingu sr. Kristjáns Vals Ingólfssonar. Einsöngvari er Hanna Björk Guðjónsdóttir sópran. Síðasta verkið er sálumessa eftir Gabriel Fauré. Einsöngvarar eru Alda Ingibergsdóttir og Ásgeir Páll Ágústsson. Tónskáldið lauk við gerð verksins árið 1888 og þá var það frumflutt. Voru þá fimm kaflar í verkinu, þ.e. Kyrie, Sanctus, Pie Jesu, Agnus Dei og In Paradisum. Síðar bættust við tveir aðrir kaflar, Offertory og Libera me, báðir skrifaðir fyrir kór og barítonein- söngvara. Kórinn flytur upp- runalegu kaflana fimm, auk Libera me. Píanóleikari á tónleikunum er Bjarni Þór Jónatansson og stjórn- andi er Guðmundur Sigurðsson. Morgunblaðið/Jim SmartKór Bústaðakirkju á æfingu fyrir tónleikana sem haldnir verða í kvöld. Kór Bústaðakirkju flytur Sálumessu eftir Fauré Laugavegi 32 sími 561 0075 Heiti Potturinn Trompmiði er auðkenndur með bókstafnum B en einfaldir miðar með E, F, G og H. Gangi vinningar ekki út bætast þeir við Heita pott næsta mánaðar. Birt með fyrirvara um prentvillur. 3. flokkur, 24. mars 2004 54354 B kr.12.825.000,- 54354 E kr. 2.565.000,- 54354 F kr. 2.565.000,- 54354 G kr. 2.565.000,- 54354 H kr. 2.565.000,- Heimsferðir bjóða beint flug til Barcelona alla fimmtudaga í sumar á hreint frábærum kjörum. Þú getur valið um flugsæti eingöngu, flug og bíl á frábærum kjörum eða eitt af okkar vinsælu hótelum í hjarta Barcelona. Bókaðu fyrir 1. apríl og tryggðu þér bestu kjörin. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 23.995 Flugsæti m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, m.v. 20. maí. Netverð. Sjá bækling Heimsferða. Verð kr. 59.990 Vikuferð, flug og gisting með morgunmat og sköttum, m.v. 2 í herbergi, Atlantis, 3. júní. Netverð. Munið Mastercard ferðaávísunina · Flug · Flug og bíll · Flug og hótel Vikulegt flug – alla fimmtudaga í sumar Barcelona í sumar frá kr. 23.995
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.