Morgunblaðið - 25.03.2004, Blaðsíða 25
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2004 25
FÉLÖGIN innan Kvenfélaga-
sambands Gullbringu- og Kjós-
arsýslu standa fyrir merkjasölu í
vor til styrktar barna- og ung-
lingageðdeildinni. Var þetta
ákveðið á aðalfundi sambandsins
sem haldinn var í félagsheimilinu
Stapa í Njarðvík síðastliðinn laug-
ardag.
Ellefu kvenfélög úr Kjósinni, af
höfuðborgarsvæðinu og Suð-
urnesjum mynda Kvenfélaga-
samband Gullbringu- og Kjós-
arsýslu og eru félagskonur um eitt
þúsund. Aðalfundir eru haldnir til
skiptis hjá aðildarfélögunum, að
þessu sinni í boði Kvenfélags
Keflavíkur. Auk fundarstarfa var
farið í skoðunarferð um svæðið og
efnt til skemmtunar um kvöldið.
Katrín Eiríksdóttir formaður
segir að á fundinum séu fluttar
skýrslur um starf sambandsins og
félaganna. Hún segir mikilvægt að
félagskonur komi saman og kynn-
ist og læri hver af annarri ráð til
að efla starfsemina.
Á síðasta ári færði Kvenfélaga-
sambandið Barnaspítala Hringsins
vöktunarbúnað í gjörgæslu-
herbergi og er verðmæti hans 4,5
milljónir. Til þessa verkefnis var
varið ágóða og vöxtum af andvirði
merkisins gleym mér ei sem selt
var fyrir nokkrum árum. Jafn-
framt var ákveðið að standa fyrir
merkjasölu í vor og láta afrakstur
fjáröflunarinnar renna til barna-
og unglingageðdeildarinnar. Von-
ast Katrín til að svipaður árangur
verði af fjáröfluninni.
Kvenfélagasamband Gullbringu-
og Kjósarsýslu er 75 ára á þessu
ári og verður efnt til afmælishófs
af því tilefni. Kartrín segir mis-
jafnt hvernig félögunum reiðir af í
þeirri miklu samkeppni sem er um
athygli fólks. Sum eflist með fjölg-
un félaga. „Við viljum hafa kven-
félögin skemmtileg þannig að kon-
ur gangi til liðs við þau og
starfsemin eflist. Við konur erum
bjartsýnar á framtíðina,“ segir
Katrín.
Ákveðið að selja gleym mér ei í vor
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Fundarhlé: Þrír fulltrúar úr Kvenfélaginu Seltjörn á Seltjarnarnesi, Kristín Kristinsdóttir, Rannveig Ívarsdóttir
og Sigurbjörg Sigurðardóttir, notuðu tímann í matarhléinu í Stapanum til að búa til skraut úr munnþurrkum.
Innri-Njarðvík | Fræðsluráð
Reykjanesbæjar leggur til að nýr
grunnskóli sem verið er að byggja í
Innri-Njarðvík verði kallaður Ak-
urskóli. Jafnframt að upplýsinga- og
bókastofa í skólanum heiti Thorkelli-
stofa.
Talsverðar umræður hafa farið
fram um nafn á nýja skólann sem í
upphafi fékk vinnuheitið Thorkill-
iskóli, eftir Jóni Þorkelssyni
Thorchillius Skálholtsrektor sem
fæddur er í Innri-Njarðvík.
Í skoðanakönnunum sem gerðar
voru meðal íbúa Innri-Njarðvíkur og
á Netinu fékk heitið Tjarnaskóli
bestar undirtektir, eða frá 33% og
upp í 47% stuðning. Vísar nafnið til
tjarnanna sem eru einkennandi fyrir
svæðið og Tjarnahverfis þar sem
hann verður. Í greinargerð sem Ei-
ríkur Hermannsson tók saman um
möguleikana varaði hann við að nota
þetta nafn vegna hættu á ruglingi við
þekktan skóla í Reykjavík, Tjarn-
arskóla. Nöfnin Seyluskóli og Thor-
killiskóli fengu einnig nokkurn
stuðning svo og Akurskóli og fékk
síðastnefnda nafnið góðan stuðning í
skoðanakönnuninni í Innri-Njarðvík.
Fyrsti skólinn sem reistur var í
Innri-Njarðvík hét Akurskóli en
hann var byggður 1891 og starfaði
fram yfir aldamótin 1900. „Nafnið
hefur því sterka sögulega skírskotun
og kallar fram hughrif um grósku og
vöxt. Nafnið er þjált og fellur vel að
íslensku málkerfi, samsetningum,
framburði og stafsetningu. Þetta
nafn er ekki til á skóla hérlendis,“
sagði í umsögn fræðslustjóra um
nöfnin.
Fræðsluráð ákvað að leggja til að
skólinn fengi nafnið Akurskóli og
verður tillagan lögð fyrir bæjarráð
og bæjarstjórn. Þá var ákveðið að
sérstök upplýsinga- og bókastofa í
hjarta skólans heiti Thorkellistofa,
til heiðurs Jóni Þorkelssyni og bóka-
gjöf hans til barna í Njarðvíkursókn.
Nýi grunnskólinn
í Tjarnahverfi fær
nafnið Akurskóli
Reykjanesbær | Nýr hugbúnaður
fyrir sveitarfélög, SAMskjár, hefur
verið tekinn í notkun hjá Reykja-
nesbæ og er það fyrsta sveitarfé-
lagið sem það gerir. Bærinn og
Samband íslenskra sveitarfélaga
aðstoðuðu hugbúnaðarhúsið cTarg-
et á Íslandi ehf. við þróun hans.
SAMskjárinn var kynntur á
blaðamannafundi á bæjarskrifstof-
um Reykjanesbæjar í vikunni um
leið og Árni Sigfússon bæjarstjóri
spreytti sig á notkun hans.
SAMskjár er í senn upplýsinga-
veita og samskiptaþjónn. Helstu
nýjungarnar felast í því að sveit-
arstjórnarmenn geta nú unnið sam-
hliða í þessu upplýsingakerfi á
vefnum, þótt þeir séu á mismunandi
stað. Jafnframt geta þeir séð hvorir
aðra á skjánum og rætt saman. Allt
það sem annar gerir sér hinn á
skjánum hjá sér.
Þrjár aðskildar hugbúnaðarlausn-
ir eru í SAMskjánum sem þó geta
allar unnið saman. Það eru SAM
Alþingi sem einfaldar vafrið um
vefsvæði stjórnarráðsins, SAM
sveitarfélög sem inniheldur heima-
síður allra sveitarfélaga í landinu
og flokkar þær og SAM heima-
byggð sem er sérsniðin lausn fyrir
hvert sveitarfélag fyrir sig. Fram
kemur í fréttatilkynningu frá SAM
ehf., sem hefur tekið við áframhald-
andi þróun hugbúnaðarins og sölu
hans, einfaldar SAMskjárinn mjög
leit að upplýsingum á vefjum sveit-
arfélaganna og samanburð upplýs-
inga.
SAMskjár í notkun hjá Reykjanesbæ
Samvinna: Lárus Rúnar Ástvaldsson, framkvæmdastjóri SAM ehf., og Árni
Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, kynna SAMskjáinn á fundi.
Auðveldar notkun
vefja sveitarfélaga
800 7000 - siminn.is
Frábær þráðlaus
ISDN sími.
1.980
Léttkaupsútborgun
Swissvoice Eurit 525
og 1.000 kr. á mán.
í 12 mán.
Verð aðeins: 13.980 kr.
980
Léttkaupsútborgun
Panasonic 410
og 750 kr. á mán.
í 12 mán.
Verð aðeins: 9.980 kr.
• Drægni 50 til 300 metrar.
• Rafhlaða: Allt að 8 klst. í tali/
80 klst. í bið.
• Allt að 5 notendur á einum síma (MSN).
• Númerabirting, endurval og símaskrá.
• Styður alla helstu ISDN sérþjónustu.
• Tengja má allt að 5 aukahandtæki
við hverja móðurstöð.
• Hægt að hringja innanhús á milli handtækja.
ÞRÁÐLAUSIR SÍMAR
á frábæru verði
50% afsláttur af stofngjöldum og fleiri fríðindi
•50% afsláttur af stofngjaldi heimasíma; aðeins 1.950 kr. í stað 3.900 kr.
• 50% afsláttur af stofngjaldi ISDN heimasíma; aðeins 3.450 kr. í stað 6.900 kr.
• Frítt að breyta úr venjulegum heimasíma í ISDN; 0 kr. í stað 3.900 kr.
•Allir viðskiptavinir Símans fá Þína hringingu og aukanúmer frítt í 6 mánuði.
Tilboðin gilda til 31. mars.
50% AFSLÁTTUR
af stofngjaldi heimasíma
• Rafhlaða: Allt að 10 klst. í tali/160 klst. í bið.
• Númerabirting, endurval, símaskrá og skammval.
• Skrá má allt að 6 handtæki við hverja móðurstöð.
• Innanhússímtal milli handtækja mögulegt.
• 20 mismunandi hringitónar.
• Stilla má hljóðstyrkinn í hlust á þrenna vegu.
• Stilla má styrk hringingar í handtækinu í 6 vegu.
• Fjórar mögulegar stillingar á hringistyrk móðurstöðvar.