Morgunblaðið - 25.03.2004, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 25.03.2004, Blaðsíða 54
DAGBÓK 54 FIMMTUDAGUR 25. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 vinnustofa, bað og jóga, kl. 10 boccia, kl. 13 myndlist. Á morgun kl.14. er góugleði. Bingó, Gerðubergskór- inn syngur börn koma í heimsókn og leika á hljóðfæri, Vinabandið leikur fyrir dansi. Árskógar 4. Kl. 9–12 handavinna, kl. 9–12.30 bókband, kl. 9.30 boccia, kl. 10.30–10.55 helgistund, kl. 11 leik- fimi, kl. 13–16.30 smíð- ar og handavinna, kl. 13.30 myndlist. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8.30–14.30 bað, kl. 9– 9.45 leikfimi, kl. 9–12 myndlist, kl. 9–16 handavinna, kl. 13–16 bókband. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 handa- vinnustofan opin. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Kl. 9 bað, postu- lín, kl. 13 handavinna. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Aðstoð við böðun og glerskurður kl. 9–16.30, leikfimi kl. 10–11, sönghópurinn kl. 13.30, dans kl. 15.15. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 13 föndur og handavinna. Félagsstarf eldri borg- ara Mosfellsbæ, Hlað- hömrum, kl: 13–16 föndur og spil, kl. 12.30–15.30 tréskurð- ur, kl. 13.30–14.30 les- klúbbur, kór eldri borgara, æfingar kl. 17–19. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Glerbræðsla kl. 9.45, tai chi kl. 12, karlaleikfimi kl. 13.10, málun og bútasaumur kl. 13. Vorfagnaður Oddfellow verður hald- inn í Kirkjuhvoli kl. 20. Félag eldri borgara Kópavogi. Bingó í Gull- smára 13 á morgun föstudag kl. 14. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli. Opnað kl. 9, vídeókrók- urinn opinn, pútt í Hraunseli kl. 10–11.30, leikfimi í Bjarkarhúsi kl. 11.20, tangódans kl. 11, glerskurður kl. 13, Kvöldvaka í boði Lionsklúbbs Hafna- fjarðar kl. 20. Cabrí Tríó leikur fyrir dansi. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði. Brids kl. 13, félagsvist kl. 20. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Kl. 10.30 helgistund, frá hádegi vinnustofur opnar, m.a. almenn handavinna, kl. 13.15 félagsvist. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9–15 handavinna, kl. 9.05 og 9.55 leikfimi, kl. 9.30 glerlist og ker- amik, kl. 10.50 róleg leikfimi, kl. 13 gler- og postulín, kl. 20 gömlu dansarnir, kl. 21 línu- dans. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9.15 postulíns- málun, kl. 9.05 og kl. 9.55 leikfimi, kl. 9 myndlistahópur, kl. 10 ganga, kl. 13 brids, kl. 13–16 handa- vinnustofan opin. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna, perlu- saumur, kortagerð og hjúkrunarfræðingur, kl. 10 boccia, kl. 11 leik- fimi, kl. 14 félagsvist. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9–13 bútasaumur, kl. 10–11 boccia, kl. 13–16 hannyrðir, kl.13.30–16 félagsvist. Korpúlfar Grafarvogi. Á morgun sundleikfimi í Grafarvogslaug kl. 9.30. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa, kl. 10–11 sam- verustund og leir. Vesturgata. Kl. 9.15– 12 bað, kl. 9.15–15.30, handavinna, kl. 9–10 boccia, kl. 10.15–11.45 enska, kl. 13–14 leik- fimi, kl.13–16 kóræf- ing. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9.30 gler- skurður, perlusaumur og morgunstund, kl. 10 boccia, kl. 13 hand- mennt og bridge. Þjónustumiðstöðin Sléttuvegi 11. Opið kl. 9–14. Kl. 9.15 leikfimi, kl. 10–12 verslunin. Þórðarsveigur 1–5 Grafarholti. Kl. 13.30 opið hús. Gullsmárabrids. Brids í félagsheimilinu í Gullsmára 13 Skrán- ing kl. 12.45. Spil hefst kl. 13. Félag áhugamanna um íþróttir aldraðra. Leikfimi í Bláa salnum kl. 11. ÍAK, Íþróttafélag aldr- aðra í Kópavogi. Leik- fimi kl. 11.20 í Digra- neskirkju. Kiwanisklúbburinn Geysir, Mosfellsbæ. Spilakvöld í Kiw- anishúsinu kvöld kl. 20.30 Sjálfsbjörg. Kl. 20 kosning á þing Sjálfs- bjargar LSF Kristniboðsfélag kvenna, Fundur kl. 17. Sr. Frank M. Hall- dórsson verður með Biblíulestur. Cranio félag höf- uðbeina- og spjald- hryggsjafnara. Félags- og fræðslufundur verð- ur í sal Tannlækna- félagsins, Síðumúla 35, í dag kl. 19.30. Gestur fundarins er Finnbogi Gunnlaugsson kennari og höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnari. Í dag er fimmtudagur 25. mars, 85. dagur ársins 2004, Boðunardagur Maríu, Maríumessa á föstu. Orð dagsins: Þetta býð ég yður, að þér elskið hver annan. (Jh. 15, 17.)     Hjörleifur Pálssonskrifar á frelsi.is um meintan rétt stúdenta til þess að aðrir greiði námið fyrir þá. Hjörleifur segir: „Rétt- ur fólks til að gera hluti á kostnað skattgreiðenda er alþekkt fyrirbæri. Nú síðast tók dálítill hópur stúdenta sig til, púaði rektor niður og heimtaði jafnrétti til náms, þ.e. heimtaði rétt sinn til að stunda nám sitt að sem allra mestu leyti á kostn- að skattgreiðenda.     Það er nú gott og bless-að að nokkrir nem- endur ræði við rektor um þetta mál, en fjarvera ým- issa annarra hags- munaaðila var samt sem áður áberandi. Hvað skyldu nú hinir fjölmörgu skattgreiðendur sem allt málið stendur og fellur með, hafa hugsað þegar þeir sáu fréttir af spjall- fundi nemendahópsins og rektors?     Sumir þeirra pældu ef-laust ekki mikið í mál- inu, aðrir hafa haft samúð með málstað stúdenta og enn aðrir hafa velt því fyrir sér af hverju það væri ekki bara eðlilegt að stúdentar tækju meiri þátt í að borga eigið nám, sem er til þess fallið að þeir fái betri störf og hærri laun eftir nám en ella. Undirritaður var í þessum síðastnefnda hópi. En hvaða skoðanir svo sem skattgreiðendur kunna að hafa, þá datt engum af stúdentunum einu sinni í hug að íhuga hvort greyið skattgreið- endurnir hefðu nokkuð um málið að segja. Nei, það er réttur námsmanna að skattgreiðendur borgi fyrir námið. Það er réttur forstjórans að skattar verkamannsins í fyr- irtækinu hans séu notaðir til að borga MBA-námið hans, og það er réttur lögfræðingsins að skattar skúringakonunnar á lög- fræðistofunni séu notaðir til að borga lög- fræðinámið hans.     En af hverju er rétturskattgreiðenda ekki tekinn með í reikninginn? Aðalhvatinn fyrir fólk til að sækja sér framhalds- menntun er hærri laun að námi loknu. Þetta er fyrst og fremst fjárfesting sem námsmaðurinn sjálfur græðir á. Og það er sama hversu hátt fólk hrópar að nám eigi að vera óháð efnahag, nám getur ein- faldlega aldrei orðið óháð efnahag. Því óháðara efnahag nemandans sem það verður, því háðara verður það efnahag skatt- greiðenda.     Einhver verður aðborga brúsann, og spurningin er einfaldlega hvernig sanngjarnast er að skipta kostnaðinum. Er þá ekki eðlilegt að sá sem mestan ávinning hef- ur af fjárfestingunni, nefnilega nemandinn sjálfur, taki þátt í því að borga í fjárfestingunni? Er það ekki einmitt RÉTTUR skattgreið- enda?“ STAKSTEINAR Réttur? Víkverji skrifar... Strandið á Meðallands-fjörum fyrir skemmstu og hinar umfangsmiklu björgunaraðgerðir sem fylgdu í kjölfarið settu sann- arlega mikinn svip á hið daglega líf í Vík í Mýrdal og nágrenni þá viku sem björg- unin stóð yfir. Flestallir fjöl- miðlar fylgdust líka með framvindu málsins og að lokum rataði það inn í þátt Spaugstofumanna um síð- ustu helgi. Í þættinum voru heimamenn í Vestur-Skaftafells- sýslu látnir vera heldur ónáægðir með strandið, aðallega vegna þess hversu lítið það gaf af sér. Tóm vín- flaska veltist þarna um í fjöruborð- inu, lítt kræsileg. Þannig var það nú hér áður fyrr, samkvæmt fyrri frásögnum, að strandgóss var eftirsótt hjá land- anum og ekki var fúlsað við timbri, koníaki og öðru dóti sem iðulega var boðið upp af sýslumönnum eftir skipsströnd. Í þessu sambandi hefur Víkverji heyrt talað um „góð“ strönd og sömuleiðis „vond“ ef strandgóss var lítið. En var strandið ekki bara býsna„gott“ eftir allt saman? Það má segja að góssið hafi verið af nútíma- legum toga sem ekki dreifðist um allar fjörur, heldur rann í formi ým- issa verðmæta til heimamanna. Hót- el- og veitingakostnaður, vegagerð og ýmis þjónusta sem þurfti að kaupa vegna björgunarinnar. En mikilvægustu verðmætin sem sköp- uðust þessa viku fólust auðvitað í þeirri vináttu fólks úr ólíkum lands- fjórðungum sem varð til þessa viku sem menn og konur stóðu vaktina niðri í fjöru. Einhver líkti strandinu og umstanginu í kringum það við ígildi heillar virkjunar á svæðinu miðað við þá þörf sem skap- aðist fyrir vinnuafl, en það er kannski fulllangt gengið. x x x Spaugstofumenn skil-greindu strand Baldvins Þorsteinssonar sem „vont“ strand; heimamenn sáu lítil sem engin verðmæti dreifð um fjörurnar. Og það er svo sem rétt. x x x Einnig má segja að strand-ið hafi verið „gott“ að því leyti að hvorki meiddist neinn í óhappinu sjálfu né við björgunar- aðgerðirnar. Síðast en ekki síst náð- ist skipið á flot eins og allir vita, lítið skemmt. Gárungarnir tóku eftir því þegar eiginkonur norðanmanna komu á sjöunda degi suður yfir heið- ar og dvöldu með mönnum sínum á Hótel Vík. Einhver hafði á orði að sú heimsókn og innilegir endurfund- irnir hefðu ef til vill vakið jarð- skjálftafræðinga af værum blundi með því að órói væri kominn fram á skjálftamælum í næsta nágrenni við sjálfa Kötlu. Fjölveiðiskipið Baldvin Þorsteinsson EA 10 í Með- allandsfjörum. Var þetta gott eða vont strand? Morgunblaðið/RAX GREIN Víkverja fimmtu- daginn 18. mars sl. var svo sannarlega orð í tíma töluð, þar sem Víkverji ber saman umferðarmenningu Þjóð- verja og Íslendinga, eins og t.d. hvað menn eru lengi að koma sér af stað og virðast ekki hafa nokkurt vit á því að horfa í baksýnisspegilinn og fylgjast með hvað er að gerast í kringum þá og taka fram úr hægra megin. Það er eins og Íslendingar séu ennþá í vinstri umferð þótt hún hafi verið aflögð fyrir rúmum 30 árum. Það hlýtur að vera eitthvað að öku- kennslunni. Það er t.d. áberandi að þegar sír- enuliðið er á ferðinni (þ.e. lögregla, slökkvilið og sjúkraflutningsbílar) víkja flestir bílar til vinstri og sír- enuliðið tekur fram úr hægra megin, sem skapar auðvitað stórhættu. Halldór Hilmarsson. Laugavegurinn daufur LAUGAVEGURINN er daufur á morgnana enda ekki við öðru að búast því verslanir eru margar ekki opnaðar fyrr en kl. 11. Vegna þess mun ég fram- vegis beina verslun minni í stórmarkaði. Sigrún. Niðrandi auglýsing ÞAÐ stakk mig auglýsingin sem var í Morgunblaðinu á bls. 61, föstudaginn 20. mars. Mér finnst þessi aug- lýsing niðrandi fyrir átrösk- unarsjúklinga en þar stend- ur: „Ertu ofæta, búlimía eða anorexía.“ Fólk glímir við átröskunarsjúkdóma – en er ekki sjúkdómurinn. Hvernig getur einhver ver- ið búlimía? 7.9.13. Hvað er að gerast? HVAÐ er að gerast í ís- lensku þjóðfélagi? Hvað eft- ir annað heyrast í fjölmiðl- um lítilsvirðandi glósur um forseta Íslands. Þó tók al- veg steininn úr í Kastljósinu 18. mars sl. þar sem forset- inn var viðmælandi. Spyrlarnir voru svo yfir- máta dónalegir og frekir, gripu fram í í tíma og ótíma. Höfðu þeir fyrirmæli um svona framkomu? Eða er innræti þeirra á svona lágu plani? En hafi þeir ætlað að spilla kosningu Ólafs Ragn- ars Grímssonar þá fullyrði ég að þeir skutu yfir mark- ið. Kt. 041124-2299 Dýrahald Kettlingar fást gefins TVEIR kettlingar, fress og læða, sem eru orðnir fjög- urra mánaða gamlir og þurfa endilega að fara að komast að heiman, fást gef- ins. Systkinin voru upphaf- lega fjögur en þessi tvö eru enn eftir og mamman orðin ansi þreytt á þeim. Þau eru bæði falleg og skemmtileg, vel húsvön og þrælvön börnum. Ef einhver telur sér fært að taka annað eða bæði í fóstur, endilega hafið samband sem fyrst við Fríðu í síma 562 6058. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Orð í tíma töluð LÁRÉTT 1 dúkku, 4 hermenn, 7 aðgangsharður, 8 barin, 9 hag, 11 kvenmanns- nafn, 13 karlfugl, 14 kvendýr, 15 til sölu, 17 spil, 20 hár, 22 kvæðið, 23 rotið, 24 þolna, 25 vætan. LÓÐRÉTT 1 skerpa, 2 regnýran, 3 elska, 4 skeiðahníf, 5 lengdareining, 6 trjá- gróður, 10 tóg, 12 rödd, 13 ósoðin, 15 kjána, 16 meðvindur, 18 naut, 19 nabbinn, 20 afkvæmis, 21 fiskur. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 notalegur, 8 lokað, 9 trana, 10 nýr, 11 kanna, 13 asann, 15 hafts, 18 sólin, 21 kák, 22 rorra, 23 urðar, 24 harðánægð. Lóðrétt: 2 orkan, 3 auðna, 4 eitra, 5 uxana, 6 flak, 7 fann, 12 nýt, 14 sló, 15 hýra, 16 ferma, 17 skarð, 18 skurn, 17 liðug, 20 norn. Krossgáta  Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.