Morgunblaðið - 25.03.2004, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 25.03.2004, Blaðsíða 24
AKUREYRI 24 FIMMTUDAGUR 25. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Framhaldsaðalfundur Samtaka verslunarinnar - FÍS verður haldinn fimmtudaginn 1. apríl nk. kl. 15.00 í Setrinu, Grand Hótel. Kl. 15.00 Ávarp: Pétur Björnsson, formaður Samtaka verslunarinnar. Gestur: Ingvi Þór Elliðason, ráðgjafi KPMG ráðgjöf. Virðisstjórnun og árangursmat í rekstri fyrirtækja. Kl. 16.00 Kaffihlé. Kl. 16.15 Störf framhaldsaðalfundar: 1. Stefnumörkun samtakanna kynnt. 2. Lagabreytingar. 3. Kjör til nefnda. 4. Önnur mál. 5. Fundarslit. Vinsamlega tilkynnið þátttöku á skrifstofu samtakanna í síma 588 8910 eða í netfang: lindabara@fis.is Samtök verslunarinnar - FÍS „ÞETTA var nokkuð merkileg loðnuvertíð, bæði af manna völd- um og náttúrulegum völdum,“ sagði Bjarni Bjarnason, skipstjóri á Súlunni EA, í samtali við Morg- unblaðið. „Það var nokkuð sér- kennilegt þegar veiðarnar voru bannaðar í janúar og svo leyfðar aftur. Komið var langt fram í febr- úar þegar við fengum loks upp gefið hvað við mættum veiða mik- ið og það er alls ekki nógu gott að búa við slíkt. Enda er eftir að veiða 160–170 þúsund tonn af kvótanum og það er alveg ljóst að gera þarfbreytingar á stjórnuninni á þessum veiðiskap. Það er alveg lífisins ómögulegt að búa við þetta ástand.“ Bjarni sagði að það hefði sést mikið af loðnu í janúar og febrúar en að hún hefði skilað sér illa upp á grunnið, hvernig sem á því stæði. „Tíðarfarið var líka mjög erfitt, það kom mjög slæm rúm vika í marsbyrjun, sem skemmdi þessa vertíð mjög mikið. Loðnan var þá á mjög viðkvæmum stað uppi í landi og farið að styttast í hrygningu. Þetta gerði mönnum mjög erfitt fyrir.“ Fyrirhugað er að halda fund með hagsmunaaðilum í greininni innan tíðar. „Menn verða að stinga saman nefjum og reyna að finna lausnir á því hvernig best er að nýta þetta. Þá líkar mér afar illa að menn skuli vera farnir að krafsa hver í annan. Maður hefur séð hverja greinina á fætur ann- arri í Fiskifréttum að þessir „glæpamenn“ sem stunda þennan veiðiskap séu að drepa steinbít og þorsk frá öðrum. Þetta kann ekki góðri lukku að stýra, við erum all- ir að stefna að því, þ.e. að nýta auðlindir hafsins sem allra best. Ég hef heldur ekki orðið var við þessa þorskgengd í kringum loðnutorfurnar þessi rúmu 30 ár sem ég hef verið við þetta. Ég hef aldrei fengið þorsk í nótina mína þótt ég sé búinn að kasta fleiri hundruð köst á þessum tuttugu sumarvertíðum.“ Súlan EA kom til heimahafnar á Akureyri í fyrrakvöld en aflinn á loðnuvertíðinni er um 18.500 tonn. Súlan, sem ber um 950 tonn, átti eftir um 1.400 tonn af kvótanum þegar vertíðinni lauk. Bjarni tók þátt í sinni fyrstu loðnuvertíð árið 1969 og var ljúka sinni 35. vertíð á Súlunni en þar af hefur hann verið skipstjóri í um 25 ár. Súlan er að verða með minnstu skipunum sem stunda loðnuveiðar hérlendis en með umfangsmiklum breytingum er skipið er þó orðið helmingi stærra en það var í upphafi. Bjarni Bjarnason, skipstjóri á Súlunni, var að ljúka sinni 35. loðnuvertíð Morgunblaðið/Kristján Loðnuvertíðinni lokið: Bjarni Bjarnason, skipstjóri á Súlunni, t.v., Jón Zoph- aníasson háseti og Sverrir Leósson útgerðarmaður á Torfunefsbryggju. Bjarni var að ljúka sinni 35. loðnuvertíð á Súlunni og Jón sinni 29. vertíð. Gera þarf breytingar á stjórnun veiðanna KRISTJÁN Þór Júlíusson, bæjar- stjóri á Akureyri, sagði að það væri bull og vitleysa að hann hefði talað um byggðaáætlun fyrir Eyja- fjörð með þeim hætti sem Val- gerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, talar um í pistli á heimasíðu sinni. „Nú berast þær fréttir að bæjarstjórinn á Akureyri hafi sagt á opnum fundi nú í vik- unni að þessi byggðaáætlun sé hvorki fugl né fiskur og bæti því við að Akureyringar verði bara að standa saman,“ sagði Valgerður m.a. í pistli sínum. Kristján Þór sagði að þetta væri allt einn allsherjar miskilningur. „Valgerður sat ekki þennan fund en hefði betur gert það. Byggða- áætlun fyrir Eyjafjarðarsvæðið hefur ekki litið dagsins ljós ennþá, þannig að það er of snemmt að vera tjá sig um plagg sem ekki er tilbúið til umræðu. Enda ber mönnum, sem voru á þessum fundi og hafa haft samband við mig, saman um það að frásögn Val- gerðar beri þess merki að hún hafi ekki verið á fundinum. Það kann- ast einfaldlega enginn við um- ræðuna á þessum nótum,“ sagði Kristján Þór. Valgerður sagðist einnig í pistli sínum taka undir með bæjarstjór- anum að það væri mikilvægt að Akureyringar standi saman um öll góð mál. „Ég upplifi bæjarstjórann á Akureyri hins vegar þannig að hann hafi ekki mikinn áhuga á að vinna með stjórnvöldum, hann vilji frekar kalla til þeirra úr fjarska. Hann hefur t.d. efasemdir í sam- bandi við samstarf við iðnaðar- ráðuneytið í stóriðjumálum. Kannski af ótta við að ef árangur næðist þá gæti það styrkt Fram- sóknarflokkinn í NA-kjördæmi í næstu kosningum. Varla hefur hann ástæðu til að ætla að í iðn- aðarráðuneytinu skorti áhuga eða þekkingu á uppbyggingu stóriðju í landinu,“ sagði Valgerður enn- fremur. Kristján Þór sagði það vera al- veg klárt að Akureyringar þyrftu að standa saman „og ekki bara Ak- ureyringar, menn verða að koma sér saman um það út fyrir Ak- ureyri hvernig þeir vilja vinna hlutina.“ Spurður um áhuga rík- isvaldsins á svæðinu sagði Kristján Þór að búið væri að samþykkja þingsályktunartillögu um gerð byggðaáætlunar fyrir Eyjafjarðar- svæðið. „Ég er að vonast til að það komi eitthvað út úr þeirri vinnu, sem styrki búsetu á Akureyri og Eyjafjarðarsvæðinu. Ég kýs að líta svo á að þetta sé viljayfirlýsing af hálfu ríkisvaldsins, að bjóða upp á annan valkost til búsetu en höf- uðborgarsvæðið.“ Kristján Þór sagði aðspurður að ekki væri um pólitíska kergju að ræða af sinni hálfu gagnvart Val- gerði. „Það er miklu frekar að hún svaraði því, ekki hef ég verið að ráðast á hana fyrir það sem hún er að gera. Ég er í sveitarstjórnar- málum og tel það alveg ærið verk.“ Bæjarstjórinn á Akureyri um gagnrýni iðnaðar- og viðskiptaráðherra „Valgerður sat ekki fundinn en hefði betur gert það“ KARLMAÐUR á fertugsaldri við- urkenndi við yfirheyrslu hjá rann- sóknardeild lögreglunnar á Akureyri ellefu innbrot, þar af þrjú innbrot á Akranesi. Öll innbrotin framdi mað- urinn á þessu ári. Hann var handtek- inn aðfaranótt þriðjudags eftir uppá- komu í heimahúsi í bænum. Við yfirheyrslu vegna málsins við- urkenndi maðurinn innbrotin ellefu, að sögn Daníels Snorrasonar lög- reglufulltrúa. Átta af þessum innbrotum framdi maðurinn á Akureyri og í fimm til- fellum var um að ræða innbrot í grunnskóla bæjarins. Hann við- urkenndi að hafa haft um hálfa millj- ón króna í peningum upp úr krafsinu en einnig stal hann tölvu og stafrænni myndavél. Maðurinn viðurkenndi að hafa framið innbrotin til þess að fjármagna eigin fíkniefnaneyslu.    Viðurkenndi 11 innbrot SKÍÐASVEIFLA og snjóalög er yfirskrift hátíðar sem hefst í kvöld, fimmtudagskvöldið 25. mars, en að henni standa Gil- félagið, Jazzklúbbur Akureyrar og menningardeild Akureyrar, en markmiðið er að „gera páskafrí og dvöl á Akureyri að sannkallaðri gleði milli fjalls og fjöru“ eins og segir í frétt um hátíðina. Hátíðin hefst með fyrirlestri Ármanns Jakobssonar bók- menntafræðings á Amtsbóka- safninu í kvöld kl. 20.30, en þar mun hann fjalla um Hringa- dróttinssögu. Miðnæturdjasstónleikar verða svo í Ketilhúsinu á laug- ardagskvöld, 27. mars kl. 23. Þar leikur hljómsveitin Nanúna eyrnakonfekt djasstónlistar- innar, en í henni eru Wolfgang Sahr á saxófón, Aladar Rácz, píanó, Stefán Ingólfsson, bassa og Karl Petersen á trommur. Skíða- sveifla og snjóalög Góðvinir funda | Góðvinir Háskól- ans á Akureyri efna til aðalfundar í dag, fimmtudag, 25. zmars kl. 17 í stofu L201 á Sólborg. Meðal annars verður rætt um starfsemi félagsins og fjallað um hugmyndir að verk- efnum þess á næstunni.    Vefjagigt | Jón Atli Árnason, sér- fræðingur í gigtarlækningum, held- ur erindi um vefjagigt sem hann nefnir: Er hægt að lækna vefjagigt? á aðalfundi Gigtarfélags Íslands, deild Norðurlands eystra, í kvöld, fimmtudagskvöldið 25. mars kl. 20, á Hótel KEA.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.