Morgunblaðið - 25.03.2004, Síða 22
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
22 FIMMTUDAGUR 25. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Bók sem vakið hefur mikla athygli: „Aðeins eitt orð á við til að lýsa þessu verki: stórvirki.“
Mbl. 23. des. 2003, Jón Þ. Þór.
Páskatilboð: engin útborgun – engir vextir. Kjörgripur, sem á að vera til á hverju Hólmara-heimili.
Sölumenn: Þorbjörg: sími 581 2727, Ingvar: 438 1298, Þórhildur: 438 1147. Einnig má panta bókina á netinu: bragijos@hotmail.com
Stykkishólmsbók
FASTEIGNASALAN
GIMLI
EINBÝLI
KLEIFARSEL Vorum að fá í sölu
glæsilegt 180 fm einbýlishús með 33 fm
bílskúr. Húsið, sem er á tveimur hæðum,
skiptist í tvær stofur, önnur með fallegan
arin, eldhús með fallegri viðarinnréttingu og
samliggjandi borðkrók og borðstofu, þrjú
svefnherbergi, skápar í tveimur þeirra.
Baðherbergi með baðkari og sturtuklefa
flísalagt í hólf og gólf og gestasalerni.
Gólfefni er parket, flísar og korkur á
eldhúsi. Yfir íbúðinni er manngengt ris sem
gefur möguleika á aukaherbergi. Bílskúrinn
er vel búinn með rafm., heitt og kalt vatn og
sjálfvirkan hurðaropnara. Þetta er vönduð
og góð eign á góðum stað. Verð 26,7 millj.
5 HERB. OG STÆRRI
HLÍÐARHJALLI Erum með í sölu góða 5
herb. 113 fm íbúð á fyrstu hæð. Hol með
skápum, eldhús með góðri innréttingu,
tækjum og borðkrók, rúmgóð stofa með útg.
á austursvalir, þrjú svefnherbergi, skápar í
tveimur þeirra, sjónvarpshol sem gefur
möguleika á fjórða herberginu og baðher-
bergi með innréttingu, sturtuklefa og tengt
fyrir þvottavél. Gólfefni er parket og flísar.
Geymsla í sameign. Áhv. 8 millj. Verð 17,6
millj.
4RA HERBERGJA
HOLTSGATA Falleg og björt 98,4 fm 4ra
herbergja íbúð í Vesturbænum. Íbúðin er
einstaklega vel skipulögð með fallegu og
opnu rými sem tengir hana saman með
skemmtilegum hætti. Parket er á allri
íbúðinni nema nýlegur korkur á eldhúsi og
flísar á baðherbergi, gott þvottahús og rúm-
góð geymsla. Búið er að endurnýja m.a.
rafmagn, ídregið, og rafmagnstafla endur-
nýjuð. Húsið var málað að utan og viðgert
sl. sumar og þak var málað. Svalir eru í
suður og lítill garður, hellulagður að hluta
og snýr einnig í suður. Verð 14,9 millj. Áhv.
5,3 millj.
BALDURSGATA - HÆÐ OG RIS Um
er að ræða 80 fm íbúð á 3. hæð og í risi þar
sem búið er að útbúa einstaklingsíbúð og
þvottaaðstöðu fyrir íbúð. Eldhús með ný-
legri innréttingu og borðkrók. Stór stofa og
þaðan gengt út á vestursvalir. Parket og
kókosteppi á gólfum. Verð 12,8 millj. Áhv.
3,4 millj.
STÍFLUSEL Góð 101 fm 4ra herbergja
íbúð á annarri hæð í litlu fjölbýlishúsi.
Íbúðin skiptist í hol, eldhús, baðherbergi,
stofu og þrjú svefnherbergi. Stigagangur
nýlega málaður og teppalagður. Verð 12,9
millj.
2JA HERB.
FRAMNESVEGUR - HÆÐ OG RIS
Nýtt á skrá, sérlega falleg 77 fm íbúð sem
er hæð og ris. Allar endurbætur voru unnar
af fagmönum árið 1997. Íbúðin er öll
parketlögð, nema á baði, þar eru flísar.
Innréttingar, tæki, lagnir, gluggar og gler
endurnýjað ásamt járni og þaki. Verð 13,8
millj. Áhv. 6,6 millj. húsbr.
HRÍSATEIGUR - 3ja herb. hæð
Vorum að fá í sölu glæsilega 3ja herbergja
íbúð á 1. hæð. Góðar innréttingar og parket
á gólfum. 2 svefnherb., gott eldhús og stofa.
Nýl. endurnýj. eldhús, raflagnir, pípulagnir
að hluta og þakjárn. Húsið er járnklætt
timburhús og er í góðu standi. Eignin verður
laus í apríl. Áhv. 6,1 millj. Verð 12,9 millj.
KRÍUÁS - HAFNARFIRÐI Vorum að fá
í einkasölu góða 2ja herb. 74 fm íbúð með
sérinngangi. LÝSING EIGNAR: Anddyri með
fallegum skápum, stofa með útg. á
suðvestur svalir með góðu útsýni, eldhús
með fallegri viðarinnr., gaseldavél, tengt
fyrir uppþvottavél, tvö herbergi annað með
skápum. Baðherbergið er flísalagt, baðkar
með sturtuaðstöðu og ljós innrétting.
Geymsla og þvottahús innan íbúðar.
Gólfefni er parket og flísar. Verð 12,8 millj.
GRENSÁSVEGI 13,
SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
Miðborg | Borgarstjórinn í
Reykjavík býður til opins borgara-
fundar um skipulagsmál í Tjarnar-
sal Ráðhússins í dag kl. 17.00 til
19.00. Á fundinum verða kynnt
helstu skipulagsverkefni sem nú eru
í vinnslu hjá borgaryfirvöldum og
einnig nokkur sem eru komin eða að
komast á framkvæmdastig. Fulltrú-
ar grasrótarsamtaka í Reykjavík
munu sömuleiðis kynna sín sjónar-
mið á fundinum og fyrirspurnum úr
sal svarað.
Meðal umfjöllunarefna verða drög
að rammaskipulagi í Kvosinni, lega
Sundabrautar og Hringbrautar,
endurskipulagning Geldinganess,
bygging Tónlistar- og ráðstefnuhúss
og uppbygging á Slippasvæðinu og
öðrum smærri reitum í miðborginni.
Fulltrúum ýmissa samtaka og hags-
munaaðila var boðið að ávarpa fund-
inn og munu fjórir aðilar gera það.
Þórólfur Árnason borgarstjóri
mun setja fundinn, en Steinunn Val-
dís Óskarsdóttir, formaður skipu-
lags- og byggingarnefndar, kynna
stöðu einstakra mála. Innlegg frá
íbúum verða í höndum þeirra El-
ísabetar Gísladóttur, formanns
Íbúasamtaka Grafarvogs, Gísla Þórs
Sigurþórssonar, formanns Íbúasam-
taka Vesturbæjar, Páls Ásgeirs
Davíðssonar lögfræðings, sem er í
átakshópi Samtaka um betri byggð
og Höfuðborgarsamtakanna og Sig-
urðar G. Steinþórssonar gullsmíða-
meistara og kaupmanns við Lauga-
veg.
Að framsögum loknum sitja
fulltrúar borgaryfirvalda fyrir svör-
um. Það verða þau Þórólfur Árna-
son borgarstjóri, Árni Þór Sigurðs-
son forseti borgarstjórnar, Alfreð
Þorsteinsson, formaður borgarráðs,
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, for-
maður skipulags- og bygginga-
nefndar, Björn I. Sveinsson borg-
arverkfræðingur og Salvör
Jónsdóttir, sviðsstjóri skipulags- og
byggingarsviðs.
Fundarstjóri verður Eiríkur
Hjálmarsson, aðstoðarmaður borg-
arstjóra.
Borgarafundur í Tjarnarsal
Kringlan | Í gær var opnuð í Borg-
arleikhúsinu sýning á því starfi
sem móðurskólar í Reykjavík hafa
verið að vinna, undir yfirskriftinni
„Móðurskólar að verki.“
Sýningin stendur til 27. mars og
er öllum opin. Þar gefur að líta
ýmsar afurðir þess öfluga þróun-
arstarfs sem unnið er í móð-
urskólum Reykjavíkur, en móð-
urskólar hafa það hlutverk að vera
frumkvöðlar á sínu sviði í upp-
byggingu náms og gegna ráðgjaf-
arhlutverki gagnvart öðrum skól-
um, meðal annars með
fræðslufundum og námskeiðum.
Skólar sækja sérstaklega um að
gerast móðurskólar, en Fræðslu-
miðstöð Reykjavíkur auglýsir
venjulega eftir móðurskólum á
ákveðnum sviðum skólastarfs. Það
er þróunarsjóður grunnskóla
Reykjavíkur sem styrkir hvern
móðurskóla um milljón krónur á
ári. Starf móðurskóla er í gangi í
þrjú ár í senn. Fyrsta árið er notað
til að styrkja starf á tilteknu sviði,
en á öðru og þriðja ári er gert ráð
fyrir öflugu ráðgjafarhlutverki
skólans gagnvart öðrum grunn-
skólum í Reykjavík. Að sögn Gerð-
ar Óskarsdóttur, fræðslustjóra
Reykjavíkur, gegna móðurskólar
áfram mikilvægu hlutverki að því
tímabili loknu, þar sem mikil þekk-
ing hefur myndast á viðfangs-
efnum þeirra.
Nú eru tíu móðurskólar starf-
andi í Reykjavík, þar á meðal Aust-
urbæjarskóli, sem er móðurskóli í
fjölmenningarlegum kennsluhátt-
um, Foldaskóli, sem leggur áherslu
á nýsköpun, Háteigsskóli og Hlíða-
skóli, sem eru nýir móðurskólar í
list- og verkgreinum og Selásskóli,
sem er móðurskóli í náttúrufræði
og umhverfismennt.
Ennfremur var í upphafi sýning-
arinnar kynnt það starf sem
Engjaskóli og Breiðholtsskóli hafa
unnið sem móðurskólar á sviði for-
eldrasamstarfs. Á báðum stöðum
hefur að sögn Stefáns Jóns Haf-
stein, formanns Fræðsluráðs, átt
sér stað afar viðamikið þróun-
arstarf. Nú er unnið að því að þess-
ir skólar hefji innleiðingu á aðferð-
um sínum hjá fleiri skólum, en
Engjaskóli hefur komið upp vef,
þar sem sífellt er bætt við upplýs-
ingum og foreldrar geta meðal
annars nálgast heimavinnuskipu-
lag og dagskrá. Þar er mikil
áhersla lögð á aukið samstarf við
foreldra á víðtækum grundvelli til
að bæta árangur skólastarfsins.
„Móðurskóli er ekki bara þriggja
ára átaksverkefni sem gleður alla
á meðan á því stendur, heldur er
hann upphafið að lengra ferli fyrir
skólasamfélagið í heild,“ segir
Stefán.
Morgunblaðið/Ásdís
Hópavinna: Börnin í Melaskóla unnu iðnum höndum að því að setja upp kynningu sína í Borgarleikhúsinu.
Mikilvægt þróunarstarf
Kynning á starfi móðurskóla í Borgarleikhúsinu