Morgunblaðið - 25.03.2004, Qupperneq 33
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2004 33
BLÓMAVAL hefur opnað markað
með blóm á lækkuðu verði, svokall-
að Blómaport, sem opið er á
fimmtudögum og föstudögum.
Kristinn Einarsson, framkvæmda-
stjóri Blómavals, segir að hug-
myndin hafi komið upp í samtölum
við blómaframleiðendur. „Við höf-
um velt því fyrir okkur hvernig við
eigum að fá Íslendinga til þess að
kaupa meira af blómum handa
sjálfum sér. Við kaupum blóm fyrst
og fremst til þess að gefa þau og
erum nokkuð dugleg við það í sam-
anburði við aðrar þjóðir. Blóm eru
sterk sem gjafavara hérlendis og
við hikum ekki við að gefa þau við
brúðkaup, skírnir, fæðingu barna,
afmæli og í samúðarskyni. Þá er
mikið blómahaf hjá fólki og engum
virðist þykja dýrt að gefa blóm. Á
hinn bóginn virðist sem Íslending-
um þyki dýrt að splæsa á sig heim-
ilisblómum,“ segir hann.
Umframframleiðsla
Töluverð umframframleiðsla er
á blómum og segir Kristinn þennan
möguleika leið til þess að hjálpa
framleiðendum til þess að fá eitt-
hvað fyrir sinn snúð.
„Þeir sem eiga blóm eiga aðgang
að okkur og það sem sett er í
Blómaportið er á verulega lækkuðu
verði. Þarna gildir lögmálið um
framboð og eftirspurn og í Blóma-
portið fer bara það sem mikið er til
af og við náum að lækka þannig að
neytendum þyki verðið viðráðan-
legt.“
Sem dæmi um tilboð nefnir
Kristinn tíu 40 sentímetra rósir á
999 krónur og tuttugu 50 sentí-
metra rósir á 1.999 krónur, en al-
gengt verð á einni rós er 350–495
krónur.
„En hér er ekki um sambærilega
vöru að ræða og því ekki hægt að
segja að fólk kaupi tíu rósir og
spari 3.000 krónur, það væri ekki
sanngjarnt. Þarna er um að ræða
styttri rósir í neytendapakkningum
sem henta vel í vasa á heimilinu,“
segir hann.
Blómaportið er fremst á Græna
torginu þar sem grænmeti og
heilsuvörur eru á boðstólum og eru
blómin í fötum á gamaldags götu-
vögnum með stórum hjólum.
„Við fyllum vagnana á fimmtu-
dagsmorgnum og bætum á þá allt
fram á föstudagskvöld en þá reyn-
um við að selja allt upp. Þetta hef-
ur gengið frábærlega og undirtekt-
irnar verið ótrúlega góðar.“
Kristinn telur að 6–700 við-
skiptavinir nýti sér þjónustu
Blómaportsins þessa tvo daga.
„Þetta er hrein viðbót að okkar
mati og við merkjum ekki að hún
taki frá annarri blómasölu,“ segir
hann.
Rósir hafa verið mest áberandi á
blómamarkaði Blómavals undan-
farnar vikur og á næstunni verður
hægt að fá krýsa á lækkuðu verði,
sem og liljur, nellikur, gerberur og
jafnvel túlípana.
Túlípanatíska
„Mín von er sú að framleiðendur
byrji að stíla upp á þetta og rækta
sérstakar tegundir sem hagkvæmt
er að selja á þessum vettvangi,
þannig að við náum upp almenni-
legum neytendamarkaði. Í svona
köldu og dimmu landi á fólk að
geta leyft sér að fara heim með
blómvönd á föstudögum,“ segir
Kristinn.
Túlípanar eru mikið tískublóm
um þessar mundir. „Túlípanar í
glervösum eru mikið í tísku, senni-
lega er það einfaldleikinn í forminu
sem höfðar til fólks. Ég vil líka
meina að það að túlípanarnir eru
árstíðablóm hafi sitt að segja. Þeir
koma fyrst á markað viku fyrir jól
og þeir síðustu um páska. Síðan sér
maður þá ekki aftur fyrr en í des-
ember. Þetta er kannski partur af
því hvað þeir ná sér mikið á strik
meðan þeir eru til. Það eru margir
sem kaupa miklu frekar túlípana
yfir veturinn en rósir.“
Blómaport með heimil-
isvendi á lækkuðu verði
Heimilisvendir í blómaporti.
SMS
tónar og tákn
NOA
NOA UNDRAILMURINN
• Með Noa 50 ml ilmi fylgir body lotion 50 ml
og flott taska úr gallaefni (sjá mynd)
• Með Noa Fleur 30 ml ilmi fylgir falleg
snyrtibudda úr gallaefni
• Með Gloria 50 ml ilmi fylgir Body Mist 40 ml
og flott taska úr gallaefni
Útsölustaðir cacharel um allt land.
Glæsileg tilboð á þessum vinsælu ilmum: