Morgunblaðið - 25.03.2004, Síða 43
tengdist Gugga flestum mikilvæg-
ustu sporum ævi minnar og var
alltaf til staðar til að líta eftir þess-
um litla frænda sínum. Hvar sem
ég var staddur í námi eða starfi var
hún skammt undan með falleg
sendibréf, kveðjur og stuðning.
Í kringum Guggu var alltaf æv-
intýraljómi. Ógleymanlegar voru
sögurnar af ferðum sem hún fór
sem flugfreyja og svo sendibréfin
hennar frá fjarlægum löndum þar
sem hún dvaldi ásamt Eiríki og
börnum. Nákvæmni Guggu og gott
minni var einstakt. Nú þegar við
kveðjum hana er mér efst í huga sú
mikla ást og hlýja sem hún sýndi
dóttur minni. Það var ekki til það
smátriði sem Gugga mundi ekki
eftir. Alltaf var hún með hugann
við litlu frænku sína og eftir hverja
ferð til útlanda birtist Gugga með
eitthvað sem hún hafði valið af ein-
stakri umhyggju og innsæi.
Við Kesara og Salóme sitjum eft-
ir hrygg í bragði en rík af minn-
ingum um dásamlega frænku.
Friðrik R. Jónsson
og fjölskylda.
Eftir löng og erfið veikindi er
Gugga búin að fá hvíldina. Erfiður
tími fer í hönd hjá hennar nánustu
og við sem stöndum þeim nærri
reynum af veikum mætti að hugga
og hughreysta.
Margs er að minnast. Ég minnist
þess þegar ég sá Guggu fyrst,
glæsilegu flugfreyjuna hans Gauka
frænda míns. Þá var ég nýflutt
heim til Íslands, ekki nema átta ára
gömul, og mér fannst hún bera af
öðrum konum. Ekki minnkaði að-
dáunin þegar við heimsóttum
Guggu og Gauka í Nökkvavoginn.
Þar var boðið upp á Seven up með
klaka í flottu glasi sem klingdi í og
alls kyns gotterí frá útlöndum. En
þrátt fyrir gjafir frá útlöndum og
góðar veitingar þá var það ekki það
sem mestu máli skipti heldur hitt
að Gugga hafði einstakt lag á að
láta manni líða vel. Hún hafði alltaf
áhuga á því sem maður var að sýsla
og sá áhugi á börnum dvínaði síst
með árunum.
Hún var mikil barnagæla og hjá
börnum mínum skipaði hún sér-
stakan heiðurssess. Vart mátti á
milli sjá hjá hvorum eftirvæntingin
var meiri, Guggu eða afmælis-
barninu, þegar verið var að taka
upp afmælisgjafir í barnaafmælum
í fjölskyldunni.
Langþráður ömmu-draumur
Guggu rættist svo á síðasta ári þeg-
ar gullmolarnir hennar fæddust
með nokkurra mánaða millibili. Það
duldist engum að það var stolt
amma sem deildi óspart með okkur
myndum og sögum af drengjunum
litlu.
Elsku Gauki, Ólöf, Doddi, Atli og
Linda, við Þór sendum ykkur okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Pia Hansson.
Við kveðjum Guðbjörgu Friðriks-
dóttur með söknuði og með virð-
ingu og þökk fyrir samstarfið á
liðnum árum. Guðbjörg var góður
starfsmaður, samviskusöm og ein-
staklega rösk. Hún gekk vasklega
fram en gat verið hvöss og ákveðin
í framkomu. Hugur hennar var hins
vegar hlýr og hjartalag gott.
Guðbjörg starfaði fyrst við síms-
vörun og móttöku en færði sig síðar
til yfir í iðgjaldabókhald lífeyris-
sjóða þar sem hún sá um skráningu
iðgjalda og samskipti við launa-
greiðendur. Stuttu eftir að hún
byrjaði í iðgjaldabókhaldinu þurfti
að uppfæra tölvukerfið í fyrirtæk-
inu og auka minnisrými. Var sú
breyting jafnan kennd við Guð-
björgu sem var fádæma dugleg og
afkastamikil. Eitt skiptið þegar hún
mætti fyrst allra til vinnu kl. 7 að
morgni hafði hún gert jólahrein-
gerningu í eldhúsinu fyrr um morg-
uninn.
Guðbjörg var sóldýrkandi og
hafði ánægju af sólarlandaferðum. Í
baráttu við illvígan sjúkdóm sýndi
hún mikinn styrk og horfði jákvæð
fram á veginn. Hún hélt sínu striki
og fór í sólina á Kanarí fyrir örfá-
um vikum.
Við sendum Eiríki og afkomend-
um Guðbjargar innilegar samúðar-
kveðjur. Guð gefi ykkur styrk á
erfiðum tímum. Minning um góðan
vinnufélaga lifir.
Samstarfsfólk í Íslandsbanka –
Eignastýringu (áður VÍB).
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Valdimar Briem.)
Við sendum fjölskyldu og vinum
Guðbjargar samúðarkveðjur.
Starfsfólk Viðskiptavers
Íslandsbanka.
Nú hefur Guðbjörg kvatt okkur
eftir hetjulega baráttu við illvígan
sjúkdóm síðustu þrjú árin. Við
munum ávallt minnast Guðbjargar
fyrir ótrúlega þrautseigju, baráttu-
vilja og jákvæðni. Þessi einkenni
Guðbjargar hafa án efa hjálpað
henni í gegnum erfiðan veikinda-
tíma.
Við kynntumst Guðbjörgu þegar
samstarf okkar hófst hjá VÍB,
Verðbréfamarkaði Íslandsbanka,
fyrir fjórtán árum. Guðbjörg var
ávallt atorkumikil og hress. Hún
var ein af þeim starfsmönnum sem
var alltaf mætt fyrst og vann hratt
og af miklu kappi. Hún sýndi störf-
um sínum mikinn áhuga, en ekki
síður samstarfsfólki sínu sem henni
var mjög annt um. Hún fylgdist vel
með fjölskyldum okkar og sam-
gladdist okkur þegar það átti við.
Það brást til dæmis aldrei að Guð-
björg mundi eftir afmælisdögum
okkar og barnanna okkar. Ef af-
mælisdagarnir voru ekki á vinnu-
degi, þá hringdi hún með afmæl-
iskveðju. Við nutum þess einnig að
fylgjast með breytingum hjá fjöl-
skyldu hennar, ekki síst giftingu
Ólafar og fæðingu barnabarnanna
sem komu í heiminn eftir að hún
veiktist.
Fjölskyldan og við samstarfs-
mennirnir höfum misst góðan fé-
laga, langt um aldur fram, sem
verður sárt saknað.
Kæri Eiríkur, Ólöf, Þóroddur og
tengdabörn. Við vottum ykkur okk-
ar innilegustu samúð.
Margrét Sveinsdóttir,
Vilborg Lofts.
Það er skammt stórra högga á
milli í nýlega stofnaðri deild hjá Ís-
landsbanka. Á aðeins tíu mánuðum
höfum við þurft að kveðja þrjá af
samstarfsmönnum okkar. Nú
kveðjum við Guðbjörgu Friðriks-
dóttur.
Guðbjörg hóf störf hjá VÍB á
þeim tíma sem íslenskur verðbréfa-
markaður var í burðarliðnum. Nú
þegar litið er yfir farinn veg eru
minningarnar allar skemmtilegar
og hlýjar þó að oft hafi gefið hressi-
lega á bátinn. Guðbjörg starfaði
fyrstu árin hjá VÍB við móttöku
viðskiptavina og því fylgdi síma-
skiptiborðið. Þetta var fyrir tíma
þráðlausra síma og því oft erfitt
fyrir ungmennin sem voru ein
heima að komast í samband við
mömmu í vinnunni. Það fylgdi því
starfi Guðbjargar að svara hinum
ýmsu spurningum elsta sonar míns
um ýmis praktísk atriði s.s. „Hvað
er klukkan þegar hún er 15.40?“
eða „má ég fara í sund?“ Ávallt
svaraði Guðbjörg hlýlega og hvetj-
andi þó að mig reki ekki minni til
að þetta verk hafi verið í starfslýs-
ingu hennar. Reyndar hef ég stund-
um sagt að strákurinn minn hafi
verið alinn upp á símaskiptiborðinu
hjá VÍB svo vel var um hann hugs-
að og fyrir honum séð. Jafnvel
spariskórnir hans Þórodds voru eitt
árið spariskór á mínu heimili.
Guðbjörg var ákaflega iðin, ósér-
hlífin og árrisul svo eftir var tekið.
Oft var hún mætt fyrst allra til
vinnu í Íslandsbanka, beið eftir
póstinum til að hægt væri að hefja
skráningu lífeyrisiðgjalda. Hún
kappkostaði að hafa alltaf hreint
borð og standa skil á sínu, þess
vegna hafði hún stundum lítinn
skilning á því að greiðendur ið-
gjalda skyldu ekki strax senda
skilagreinar til lífeyrissjóðanna.
Hún fór ekki í manngreiningarálit
og ef illa gekk að fá skilagreinarnar
þá var bara talað við forstjóra fyr-
irtækjanna.
Í eitt skiptið sem mér var fengið
það verkefni að byggja upp bak-
vinnslu í Íslandsbanka þá var Guð-
björg eini starfsmaðurinn. Hún
minnti mig stundum á hver hvatn-
ingarorð mín voru en þau voru á þá
leið að það þyrfti ekki nema tvo til
að snúa saman bökum og að nú
skyldum við berjast. Það er
skemmst frá að segja að Guðbjörg
barðist af dugnaði og krafti. Þessir
eiginleikar hennar og bjartsýnin
sem einkenndi hana komu sér síðar
vel í veikindum hennar. Þótt stríðið
hafi tapast þá vann hún hverja orr-
ustuna á fætur annarri þó að útlitið
væri dökkt. Litlu orkumolarnir og
ömmustrákarnir þeir Arnþór og
Erik Maron áttu sinn ríka þátt í því
að aldrei kom henni til hugar að
gefast upp.
Að leiðarlokum vil ég þakka Guð-
björgu samfylgdina, hún er kært
kvödd. Þeim Eiríki, Ólöfu, Þóroddi
og fjölskyldum þeirra send ég mín-
ar dýpstu samúðarkveðjur og óska
þeim guðs blessunar.
Selma Filippusdóttir.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2004 43
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir
Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir
Einarsson,
útfararstjóri.
Bryndís
Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
Baldur
Frederiksen,
útfararstjóri.
Guðmundur Þór
Gíslason,
útfararstjóri.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Minningarkort
570 4000
Pantanir á netinu: www.redcross.is
Rauði kross Íslands bregst við neyð jafnt innanlands
sem utan og veitir aðstoð er gerir fólk hæfara til að
takast á við erfiðleika og bregðast við áföllum.
Þegar á reynir
Rauði kross Íslands
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elsku-
legrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
HÖLLU VALGERÐAR PÁLSDÓTTUR,
f. 2. febrúar 1929 - d. 5. mars 2004,
Sogavegi 133,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Ari B. Franzson,
Sigríður J. Aradóttir,
Franz Arason, Anney B. Sveinsdóttir,
Magnea B. Aradóttir, Reynir Magnússon,
Páll B. Arason, Gunnlaug K. Gunnarsdóttir,
Þórunn Aradóttir, Ágúst Ágústsson,
Jón Arason, Sigríður M. Sigurgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna
andláts og útfarar okkar ástkæru,
ELÍNAR B. BRYNJÓLFSDÓTTUR,
Seiðakvísl 36,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir fá allir þeir sem hafa sýnt
samúð með heimsóknum, blómum og
minningarkortum, sérstakar þakkir fær einnig
allt það hjúkrunarfólk sem annaðist hana síðustu mánuðina.
Læknunum Ástráði B. Hreiðarssyni og Magnúsi Böðvarssyni viljum við
þakka einstaka umönnun gegnum árin.
Hjörtur Benediktsson,
Brynjólfur Karlsson,
Brynjólfur Hjartarson, Edda Björk Viðarsdóttir,
Benedikt Hjartarson, Jóhanna M. Vilhelmsdóttir
og barnabörn.
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra er
auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát
og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
GUÐMUNDAR INGA ÓLAFSSONAR
frá Hagavík, Grafningshreppi,
áður til heimilis
á Suðurgötu 39,
Keflavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Garði.
Guð blessi ykkur öll.
Margrét G. Lange, William Lange,
Einar S. Guðmundsson,
Ólafur H. Guðmundsson,
Ósk M. Guðmundsdóttir, Páll Gíslason,
Bonnie L. María Colvin, Luke Theophilus,
barnabörn og barnabarnabörn.
LAUFEY ÁSGEIRSDÓTTIR,
Æsufelli 4,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu
föstudaginn 26. mars kl. 14.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristþór B. Helgason.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
GARÐAR SIGURÐSSON
fyrrverandi alþingismaður,
Laugarnesvegi 89,
sem lést föstudaginn 19. mars, verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudag-
inn 26. mars kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Félag áhugafólks og aðstand-
enda alsheimersjúklinga, FAAS, eða önnur líknarfélög.
Bergþóra Óskarsdóttir,
Bjarney Kolbrún Garðarsdóttir, Hjörleifur Kristinsson,
Tryggvi Garðarsson,
Sigríður Garðarsdóttir,
Gerður Klara Garðarsdóttir, Haraldur Júlíusson,
Guðný Ósk Garðarsdóttir, Sölvi Fannar Viðarsson,
Edda Garðarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.