Morgunblaðið - 25.03.2004, Blaðsíða 57
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2004 57
„NÚ fá ákveðnir leikmenn tækifæri
á að sýna hvað í þeim býr gegn einu
sterkasta landsliði heims,“ sagði
Guðmundur Þórður Guðmundsson,
landsliðsþjálfari í handknattleik,
þegar hann tilkynnti í gær hvaða 16
leikmenn hann hefði valið til þess
að leika tvo vináttulandsleiki við
Frakka. Guðmundur kallaði á Arn-
ór Atlason, Einar Hólmgeirsson og
Loga Geirsson, sem hafa verið með
bestu leikmönnum í deildinni hér
heima í vetur, Arnór er m.a. marka-
hæsti leikmaður úrvalsdeildar.
„Það verður spennandi að sjá
hvernig þeim reiðir af gegn Frökk-
um sem mæta með sitt sterkasta lið
í leikina. Ungir menn koma inn í
hópinn hjá okkur og fá eldskírn í
þessum leikjum,“ sagði Guðmundur
sem segir að leikirnir við Frakka
verði erfiðir, ekki síst þar sem
sterka varnarmenn vanti í íslenska
liðið, s.s. Patrek Jóhannesson og
Sigfús Sigurðsson.
Spurður sagðist Guðmundur
hafa kosið fremur að kalla á Einar
en Heiðmar Felixson, leikmann
Bidasoa, þótt hinn síðarnefndi hafi
leikið vel á Spáni í vetur og sé að
auki öflugur varnarmaður. „Ég
kaus að kalla í Einar að þessu sinni,
fannst að hann ætti rétt á að sýna
hvað í honum býr.“
Landsliðið fer til Frakklands á
morgun og verður æft á laugar- og
sunnudag, leikið á mánudag í Le
Mans og í Lorient á miðvikudag.
„Ungu mennirnir fá
eldskírn í Frakklandi“
FÓLK
ALFREÐ Gíslason og lærisveinar
hans misstu af dýrmætum stigum í
þýsku 1. deildinni í handknattleik í
gærkvöld þegar þeir töpuðu óvænt
fyrir Stralsunder á útivelli, 31:30.
Sigfús Sigurðsson var ekki á meðal
markaskorara Magdeburg en Greg-
orz Tkaczyk og Joel Abati skoruðu
10 mörk hvor.
GUÐJÓN Valur Sigurðsson skor-
aði 4 mörk fyrir Essen sem gerði að-
eins jafntefli, 27:27, við Pfullingen á
heimavelli. Oleg Velyky og Michael
Haass voru markahæstir hjá Essen
með 5 mörk hvor.
GYLFI Gylfason skoraði 2 mörk
fyrir Wilhelmshavener sem steinlá í
Lemgo, 38:27. Christian Schwarzer
og Carlos Lima gerðu 6 mörk hvor
fyrir Lemgo.
KIEL vann nauman sigur á Nord-
horn, 31:29, og komst í annað sætið.
Stefan Lövgren skoraði 8 mörk fyrir
Kiel og Jan Filip 9 mörk fyrir Nord-
horn.
GEIR Þorsteinsson framkvæmda-
stjóri KSÍ verður eftirlitsmaður
UEFA, Knattspyrnusambands Evr-
ópu, á síðari leik spænska liðsins
Valencia og Genclerbirligi frá
Tyrklandi í UEFA-bikarnum í
knattspyrnu sem fram fer á Mestalla
leikvanginum í Valencia í kvöld.
ÁRNI Gautur Arason lék í marki
varaliðs Manchester City sem gerði
1:1 jafntefli við granna sína í Man-
chester United í fyrrakvöld. Árni
Gautur varði nokkrum sinnum vel í
leiknum en honum tókst ekki að
koma í veg fyrir sjálfsmark Paddy
McCarthy eftir hornspyrnu á 50.
mínútu.
KEVIN Keegan, knattspyrnu-
stjóri Manchester City, hefur dvalið
á sjúkrahúsi síðan á þriðjudag en þar
er hann til aðhlynningar vegna bak-
veikinda. Talsmenn City segjast
reikna með að Keegan verði búinn
að ná sér fyrir helgina og stjórni lið-
inu í leiknum við Fulham á laugar-
daginn.
AUSTRIA Vín, toppliðið í austur-
rísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu,
rak í gær þjálfarann Joachim Löw
úr starfi í kjölfar 2:0 ósigurs gegn
botnliði Kärnten, liði Helga Kolviðs-
sonar, um síðustu helgi.
KÍNVERSKUR sundmaður í
fremstu röð féll á lyfjaprófi sem kín-
verska sundsambandið stóð að en
nafn sundmannsins verður ekki birt
fyrr en rannsókn málsins er lokið
segir Li Hua varaformaður sam-
bandsins við AFP-fréttastofuna.
HUA segir ennfremur að allir sem
falli á lyfjaprófi megi búast við
harðri refsingu og skiptir þá engu
máli hver það sé sem eigi í hlut. Á tí-
unda áratug síðustu aldar féllu um
30 kínverskir sundmenn á lyfjapróf-
um en Hua segir að 817 próf hafi far-
ið fram á síðasta ári og aðeins einn
sundmaður hafi reynst vera með
óhreint mjöl í pokahorninu.
Heimamenn skoruðu fyrstu tvömörkin og um miðbik fyrri hálf-
leiks var staðan 8:6. Stjörnumenn
skoruðu aðeins tvö
mörk eftir það en
Framarar sjö og
staðan 15:8 í hálfleik.
Heimamenn skoruðu
svo fyrstu fjögur mörkin í síðari hálf-
leik og aðeins formsatriði að ljúka
leiknum – og spurning um hversu
stór sigurinn yrði.
Framarar léku án Héðins Gilsson-
ar og Hjálmars Vilhjálmssonar, sem
voru lítillega meiddir, og fengu því
yngri leikmenn meira að spila. Til að
mynda leysti Jóhann G. Einarsson
stöðu Héðins mjög vel og skoraði 5
mörk. Markahæstir urðu hins vegar
Valdimar Þórsson og Stefán Stefáns-
son með 7 mörk hvor. Egidijus Pet-
kevicius, markvörður Framara, átti
stórleik. Varði 17 skot í fyrri hálfleik
og hafði varið 23 þegar hann var tek-
inn af velli um miðjan síðari hálfleik.
Líkt og í síðustu leikjum gekk allt
á afturfótunum hjá Stjörnunni. Ein-
faldar sendingar rötuðu ekki rétta
leið og sóknarleikur þeirra var
stefnulaus. Sem dæmi átti Sigryggur
Kolbeinsson tólf skot að marki en
skoraði aðeins eitt. Markahæstur
Stjörnumanna var Björn Friðriks-
son með 5 mörk.
„Ég er sáttastur með baráttuna í
mínum mönnum, þeir héldu haus
þrátt fyrir að vera mörgum mörkum
yfir og keyrðu á þá. Vörnin var alltaf
þétt og svo var markvarslan frábær,
Egidijus er að gera mjög góða hluti
hjá okkur.
Við erum í mikilli baráttu og síð-
asti leikurinn verður erfiður, alltaf
erfitt að mæta Gróttu/KR og ég spái
hörkuleik. Okkur er búið að ganga
ágætlega að undanförnu og nú er
bara að halda áfram og einbeita sér
að framhaldinu. Við höfum verið að
vaxa og höfum gaman af því að
spila,“ sagði Heimir.
„ÞETTA var léttara en ég bjóst
við og ungu strákarnir nýttu
tækifæri sitt og stóðu sig mjög
vel,“ sagði Heimir Ríkharðsson,
þjálfari Fram, eftir öruggan sig-
ur, 35:17, á Stjörnunni á heima-
velli sínum í gærkvöldi. Því er
ljóst að Framarar heyja einvígi
við KA um fjórða sætið í úrvals-
deildinni og ræðst það í loka-
umferð deildarinnar. Fram sæk-
ir þá Gróttu/KR heim en Haukar
mæta KA nyrðra. Stjörnumenn
verma hins vegar botnsætið eft-
ir tíu tapleiki í röð og komast
ekki þaðan.
Andri Karl
skrifar
Það var fátt sem benti til Valssig-urs á upphafsmínútum leiksins
en þá léku heimamenn við hvern sinn
fingur og komust í
6:3. Valsmenn náðu
samt yfirhöndinni um
miðjan hálfleikinn og
munaði þar mikið um
fjögur hraðaupphlaup sem heima-
menn klúðruðu. Auk þess hrökk
Pálmar Pétursson, markvörður Vals,
í gang en hann varði heil fimmtán
skot í fyrri hálfleiknum.
Valur hélt svo forystu fram að hléi
og skipti þá engu hvort þeir væru
fimm eða sex inn á, alltaf fundu þeir
glufur á KA-vörninni og voru Hjalti
Gylfason og Sigurður Eggertsson ein-
staklega duglegir við að skora þegar
Valsmenn léku einum manni færri. Í
hálfleik var staðan 13:16 og fljótlega
eftir hlé jafnaði KA en þá fór Arnór
Atlason hreinlega á kostum. Jafnt var
síðan á öllum tölum en síðustu átta
mínútur leiksins voru Valsmanna og
KA-menn léku hreinlega illa á loka-
kaflanum.
Heimir Örn Árnason, fyrrum KA-
maður og nýskipaður fyrirliði Vals,
var að vonum sáttur með úrslitin.
„Það er rosalega skemmtilegt að spila
hérna, ég neita því ekki, sérstaklega
þegar maður vinnur. Það er náttúru-
lega skrýtið að kljást við Jonna en við
byrjuðum að æfa saman þegar ég var
tíu ára. Þetta er bara gaman en við er-
um ekki búnir að tapa fyrir KA í vetur
svo þeir hjóta að verða óskamótherjar
seinna í keppninni. Við vorum slakir í
síðustu leikjum og menn voru
ákveðnir í að stíga upp í þessum leik
og það gerðum við heldur betur. Bald-
vin var drjúgur í vítunum, Pálmar tók
upp á því að verja víti og Sigurður var
mjög sterkur. Það er rosalega gaman
að spila með honum enda er hann sá
sneggsti í deildinni í dag. Svo er bara
að vona að við sigrum HK í síðasta
leik en það verður ekki auðvelt,“ sagði
Heimir.
Lið KA var nokkuð frá sínu besta í
leiknum en Arnór og Stelmokas voru
sem fyrr í aðalhlutverki. Vörnin var
ekki sannfærandi og markvarslan
ekkert sérstök, hægri vængurinn var
lítt ógnandi og menn gerðu almennt
of mörg tæknileg mistök. Valsmenn
voru hins vegar nokkuð beittari og
áttu sigurinn fyllilega skilinn. Ógnin
kom úr öllum stöðum sem gerði KA-
vörninni erfitt um vik en með snerpu
sinni skildu Valspiltarnir KA-menn
oft eftir á hælunum. Markvarslan í
fyrri hálfleik var svo kapítali út af fyr-
ir sig en það var hrein unun að fylgj-
ast með Pálmari markverði sem fór á
kostum.
Morgunblaðið/Kristján
Einar Logi Friðjónsson, KA-maður, sækir að vörn Vals, en Freyr Brynjarsson og Heimir Örn Árna-
son gera hvað þeir geta til að halda aftur af honum.
Valsmenn eru
einir á toppnum
VALUR steig stórt skref í átt að deildarmeistaratitlinum í gær er lið-
ið lagði KA-menn nyrðra 32:35. Leikurinn var mjög jafn og bauð upp
á mikla spennu en á lokakaflanum gerðu Valsmenn engin mistök og
sigur þeirra var öruggur í lokin. Valsmenn eru í toppsætinu, stigi á
undan Haukum en lið KA á það á hættu að falla niður í fimmta sætið
eftir lokaumferð deildarinnar sem leikin verður á sunnudag.
Einar
Sigtryggsson
skrifar
„Léttara
en ég
bjóst við“
ÞAÐ var mikið skorað þegar FH og
ÍBV, tvö efstu liðin í 1. deild karla í
handknattleik, mættust í Hafnarfirði í
gærkvöldi. Heimamenn höfðu betur,
43:37 og komu þar með í veg fyrir að
Eyjamenn fögnuðu sigri í deildinni –
um stundarsakir í það minnsta. Ein
umferð er eftir og er FH með 18 stig í
öðru sæti en ÍBV 19 í því fyrsta. Eyja-
menn taka á móti Aftureldingu í síð-
ustu umferðinni og tryggja sér sigur í
deildinni og um leið sæti í úrslita-
keppninni. FH-ingar heimsækja Þór
á Akureyri í síðustu umferðinni og
lendi FH í öðru sæti mætir það næst
neðsta liðinu í úrvalsdeildinni í leik
um hvort liðið verður með í úrslita-
keppninni.
Áttatíu mörk skoruð í Hafnarfirði