Morgunblaðið - 25.03.2004, Side 64

Morgunblaðið - 25.03.2004, Side 64
64 FIMMTUDAGUR 25. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ GÍSLI, íslenskur tónlistarmaður sem búsettur er í Noregi, gaf út aðra plötu sína undir merkj- um risans E.M.I. á mánudaginn var (í janúar kom út þriggja laga plata þar sem „How about that“ var aðallagið). Platan nýja er fjögurra laga stuttskífa og heitir Passing Out. Hún kemur út á vegum lítils merkis, At Large Recordings, sem er í eigu E.M.I. og kom plat- an út í Noregi í síðustu viku (At Large Record- ings gaf einnig út þriggja laga plötuna). Tón- listin er í ætt við skrýtipopp Becks en einnig gætir áhrifa frá hipp-hoppi. Blöndunni er haldið saman með flottum melódíum og stór- skemmtilegum, grátbroslegum textum. „Þetta er útvarpsvænt um leið og þetta er hæfilega flippað,“ er haft eftir Gísla sjálfum í grein sem birtist í Morgunblaðinu 3. október síðastliðinn. Gísli er nú staddur í Bretlandi til að fylgja plötunni eftir. Blaðamaður heyrði í honum þar sem hann var að borða morgunmat í Brighton og voru þá tvennir tónleikar að baki. Til hamingju með plötuna … „Já takk. Ég er ánægður með þetta. Það er komið fullt af fínum dómum í Noregi og svo tveir hér í Bretlandi.“ Hvers vegna kemur þetta út á litlu fyrirtæki fyrst? „Þegar E.M.I. byrjar með svona „litla“ lista- menn er gjarnan byrjað á að gefa út á svona litlu fyrirtæki. Þetta er einhver hernaðar- áætlun hjá þeim. En síðan kemur smáskífan og stóra platan út á E.M.I. (smáskífan heitir „Straight to Hell“ og kemur út 31. maí. Stóra platan kemur út 14. júní).“ En hvernig er að vinna með svona stóru fyr- irtæki? „Í raun kom það mér á óvart hversu áhuga- samir allir eru hérna. Þetta er tekið trausta- taki af þeim sem eru að vinna með mér. Þetta er búið að ganga mjög vel.“ Ertu bara á kafi í þessu núna? „Já. Ég er bara að vinna að tónlist núna þannig að þetta gæti ekki verið betra. Ég er með ferðatölvuna mína með mér og er að vinna að plötu sem ég geri með norskri stelpu.“ Og er allt farið á fullt … „Já. Þegar platan kom út hér í Bretlandi setti E.M.I.-fólkið allt í gang. Maður verður á fleygiferð út þetta árið og um þessar mundir bý ég hvergi!“ Finnur þú fyrir pressu? „Tja … þetta er tvíbent. Þetta er alveg of- boðslega gaman og nú er ég að gera það sem mig hefur dreymt um að gera lengi. En um leið kemur ábyrgðin inn í þetta. Ég þarf að skila því af mér sem ég var búinn að lofa og ég verð að standa mig á tónleikunum. Hvernig hafa tónleikarnir gengið til þessa? „Ég spilaði á The Barfly í London hinn 22., það var troðfullt og stemningin frábær. Mug- ison var líka að spila og það var gaman að hitta Íslendinga.“ Gísli hefur verið bókaður á Glastonbury- hátíðina í Bretlandi sem fram fer 26. til 27. júní og segir hann að bókanir á fleiri hátíðir séu í vinnslu, m.a. á Hróarskeldu. Á dögunum kom svo grein um Gísla í hinu virta breska blaði The Guardian þar sem hann er kynntur til sögunnar sem rísandi stjarna og m.a. kallaður hinn íslenski Beck. Þá valdi tón- listartímaritið Q hann sem einn af tíu heitustu listamönnum þessa árs á dögunum. Gísli gefur út stuttskífuna Passing Out Draumur í ábyrgð Gísli tróð upp á síðustu Airwaves-hátíð. www.gislimusic.tk www.atlargerecordings.com arnart@mbl.is Morgunblaðið/Árni Torfason. MONTY Python-myndin The life of Brian verður tekin til sýningar í Los Angeles, New York og fleiri banda- rískum borgum í kjölfar velgengni myndarinnar Píslarsögu Krists. Myndin var gerð fyrir 25 árum og fjallar um Brian sem er alla sína ævi dýrkaður sem spámaður fyrir misskilning. Hún var fordæmd fyrir að fela í sér guðlast en Monty Pyt- hon-gengið hélt því fram að hún væri skopstæling á Biblíukvikmynd- um og trúarlegri óbilgirni, frekar en að hún gerði grín að kristinni trú sem slíkri. Hjá dreifingaraðilanum Rainbow segjast menn vonast til að myndin verði „mótefni gegn móð- ursýkinni sem verið hefur í kringum mynd Mels [Gibsons]“ Píslarsögu Krists. Slagorð á borð við „Mel eða Monty?“ og „Píslarsagan eða Pyth- on?“ verða notuð til að auglýsa myndina. Horfð’ á björtu hliðarnar. Monty Python gegn Píslar- sögunni ÁLFABAKKI Sýnd kl. 6, 8 og 10. Frábær gamanmynd frá höfundi Meet the Parents ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 5.50, 8 og 10.10. KRINGLAN Sýnd kl. 6, 7, 9 og 10. EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.50, 8 og 10.10. Sprenghlægileg gamanmynd þar sem Ben Stiller og Owen Wilson fara á kostum sem súperlöggur á disco-tímabilinu! l il ill il l i í ili ! „Hreint út sagt frábær skemmtun“ „Þetta er besta myndin í bíó í dag“ Fréttablaðið i i í í í l i Sýnd kl. 8. B.i. 16.  Kvikmyndir.com Sýnd kl. 5.30 og 8.15. B.i. 16. SV MBL DV Sýnd kl. 10.10. Sean Penn besti leikari í aðalhlutverki Tim Robbins besti leikari í aukahlutverki Renée Zellweger besta leikkona í aukahlutverki Sýnd kl. 5.40. Sýnd kl. 6 og 8.Sýnd kl. 6, 8 og 10.05.  J.H.H Kvikmyndir.com  Ó.H.T Rás2 Sýnd kl. 10.30. „Stórkostlegt kvikmyndaverk“ HL. MBL FULLT HÚS HJÁ ÖLLUM HELSTU GAGNRÝNENDUM LANDSINS! Skonrokk „Bráðfyndin“ HJ. MBL Ó.H.T. Rás2 „Hundrað sinnum fyndnari en Ben Stiller á besta degi.“ -VG. DV „Ótrúlega áhrifarík. Frumleg, fyndin og elskuleg.“ -BÖS, Fréttablaðið -Roger Ebert „Hreint út sagt frábær skemmtun“ „Þetta er besta myndin í bíó í dag“ Fréttablaðið i i í í í l i Bless Börn Au revoir les enfants Kynna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.