Morgunblaðið - 25.03.2004, Page 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 25. MARS 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
ÍSLENSK-ameríska verslunarfélagið hefur
keypt Mylluna-Brauð og munu kaupin koma til
skoðunar Samkeppnisstofnunar, að sögn for-
stöðumanns samkeppnissviðs stofnunarinnar. Í
tilkynningu frá Íslensk-ameríska segir að mark-
miðið með kaupunum sé að styrkja stöðu félags-
ins sem leiðandi markaðs- og framleiðslufyrir-
tæki á neytendavörumarkaði, jafnframt því að
auka samkeppnishæfni með sparnaði og sam-
legðaráhrifum. Samanlögð velta samstæðu Ís-
lensk-ameríska er eftir kaupin áætluð 5,4 millj-
arðar króna, en kaupverðið er ekki gefið upp.
Tilkynna ber um samrunann
Guðmundur Sigurðsson, forstöðumaður sam-
keppnissviðs Samkeppnisstofnunar, segir að til-
kynna beri um samruna fyrirtækjanna, sem
kaupin muni kallast, til Samkeppnisstofnunar
innan viku frá því hann eigi sér stað. Stofnunin
hafi þá 30 daga til að meta hvort viðskiptin gefi
tilefni til dýpri rannsóknar. Eftir það hafi Sam-
keppnisstofnun þrjá mánuði til að grípa til íhlut-
unar ef þess gerist þörf. Um hvort til þess muni
koma í sambandi við kaup Íslensk-ameríska á
Myllunni-Brauði geti hann ekkert sagt á þessu
stigi.
Að sögn Guðmundar taldi Samkeppnisstofnun
ekki ástæðu til að skoða kexmarkaðinn sérstak-
lega þegar Íslensk-ameríska keypti
kexverksmiðjuna Frón á árinu 2000 og Kex-
smiðjuna Bakstur á Akureyri í desember í fyrra.
Innflutningur á kexi sé töluverður og það hafi
áhrif. Samkeppnisráð ógilti yfirtöku Myllunnar-
Brauðs á Samsölubakaríi á árinu 1998. Áfrýj-
unarnefnd samkeppnismála felldi ógildingu
ráðsins hins vegar úr gildi nokkru síðar. Komst
nefndin að þeirri niðurstöðu að ákvörðun sam-
keppnisráðs hefði verið tekin eftir að þáverandi
tveggja mánaða lögboðinn frestur samkeppnis-
ráðs til að ógilda yfirtökuna hefði verið útrunn-
inn.
Keyptu Frón árið 2000
Íslensk-ameríska keypti kexverksmiðjuna
Frón á seinni hluta ársins 2000 ásamt fyrirtæk-
inu Innnes ehf. Í desember í fyrra keypti Ís-
lensk-ameríska síðan Kexsmiðjuna Bakstur á
Akureyri. Íslensk-ameríska keypti niðursuðu-
verksmiðjuna Ora á miðju ári 2002.
Íslensk-ameríska kaupir Mylluna-Brauð og hyggst auka samkeppnishæfni
Kemur til skoðunar
samkeppnisyfirvalda
Íslensk-ameríska/C1
Velta samstæðu
Íslensk-ameríska
orðin 5,4 milljarðar
NOKKRAR lóur sáust á flugi
suður yfir Elliðaárnar í gærdag.
Magnús Magnússon, kvik-
myndagerðarmaður og fugla-
áhugamaður, kveðst hafa séð ló-
urnar þegar hann var á leið yfir
göngubrú sem liggur yfir
Elliðaár austan við Árbæjar-
safnið.
Magnús segist ekki hafa náð
að telja fuglana en telur sig
hafa séð fimm lóur. Hann segir
þær hafa komið fljúgandi á móti
sér. Magnús, sem hefur gert
tugi kvikmynda um fugla, segist
reyndar ekki vera sérfræðingur
en telur líklegt að lóurnar séu
með fyrra fallinu þetta árið. Morgunblaðið/Ómar
Lóur sáust á
flugi í Elliðaárdal
Fasteignafélagið
Stoðir hf. hefur í
hyggju að kaupa
húsnæðið sem áð-
ur hýsti verslunina
Top Shop í Lækj-
argötunni í
Reykjavík.
Jónas Þór Þorvaldsson, framkvæmda-
stjóri Stoða, segir að félagið hafi lengi haft
áhuga á að fjárfesta í miðbænum í atvinnu-
húsnæði en ekki látið slag standa fyrr en
núna.
Húsnæðið hefur staðið autt og verið aug-
lýst til leigu síðan Samfylkingin var með
kosningaskrifstofu þar í mars árið 2003.
Baugur opnaði Top Shop-verslun í hús-
næðinu árið 2000 en lokaði snemma árs
2003. Ástæðan var sögð óarðbær rekstur.
Stoðir hyggj-
ast kaupa Top
Shop-húsið
Skipulagt/B6–7
Í NÆSTA mánuði kemur út á vegum út-
gáfurisans BMG í Þýskalandi plata með
Stuðmönnum sem heitir Six Geysirs and a
Bird.
Inniheldur platan fjórtán Stuð-
mannalög, sem alþekkt eru á Íslandi, en
eru nú kynnt í fyrsta sinn fyrir þýsku
þjóðinni. Flest eru lögin með uppruna-
legum íslenskum textum en þrjú eru á
ensku, tvö á þýsku og eitt þeirra – gamla
Grýlulagið „Sísí“ – verður á frönsku. Það
hefur jafnframt verið valið sem for-
smekkurinn á plötuna og kemur út á smá-
skífu.
Ung þýsk kona, Claudia J. Koestler, á
heiðurinn að því að þessi útgáfusamn-
ingur var gerður við BMG-risann en hún
hefur um nokkurra ára skeið haft brenn-
andi áhuga á tónlist Stuðmanna og ann-
arra íslenskra dægurlagasveita sem lítið
hefur heyrst í utan Íslands.
Spila í Royal Albert Hall
Hópur þýskra blaðamanna er á leiðinni
til landsins til að taka viðtal við Stuðmenn
og kynna sér sveitina betur. Til stendur
að Stuðmenn fari í tónleikaferð um
Þýskaland í sumar en einnig hefur verið
ákveðið að Stuðmenn haldi eina tónleika í
hinu virta tónleikahúsi Royal Albert Hall
í Lundúnum 26. mars á næsta ári.
Plata með fjórtán Stuðmannalögum kem-
ur út í Þýskalandi í apríl næstkomandi.
Stuðmenn
gefnir út í
Þýskalandi
Stuðmenn gjósa/65
EIÐUR Smári Guðjohnsen fagn-
ar hér glæsilegu marki sem
hann skoraði á 53. mínútu gegn
Arsenal á Stamford Bridge í
fyrri leik liðanna í 8 liða úrslit-
um Meistaradeildarinnar í
knattspyrnu í gærkvöldi. Eiður
var í byrjunarliðinu, lék mest-
allan leikinn og þótti standa sig
mjög vel. Skömmu eftir markið
jafnaði Arsenal og lokatölur
urðu 1-1.
Reuters
Eiður fagnar marki
gegn Arsenal
Aftur skorar/59
eigin dreifikerfi. Gert sé ráð fyr-
ir að framleiðendur sjónvarps-
efnis hafi jafnan aðgang að
dreifikerfinu á eðlilegu kostnað-
arverði, sem stuðli að aukinni
samkeppni.
Sturla segir að framboð sjón-
varpsrása muni margfaldast með
betri nýtingu ljósvakans. Breyta
á UHF-rásum, sem eru 49 tals-
ins, í stafrænt form og verður
hægt að senda út allt að 200 dag-
skrárefni á þeim að því loknu.
Nú eru send út tíu dagskrárefni
á UHF.
Samgönguráðherra segir tíðni
til útsendinga ekki takmarkandi
þátt í samkeppninni. Ekki eigi að
bjóða þessar rásir upp eða skatt-
leggja fyrirtæki sem nýti þær
sérstaklega. Betra sé að hafa öfl-
ug fyrirtæki sem geti boðið neyt-
endum ódýra og góða þjónustu.
SAMGÖNGURÁÐHERRA legg-
ur til að stofnað verði sameig-
inlegt fyrirtæki til að byggja upp
og reka dreifikerfi fyrir stafrænt
sjónvarp á Íslandi. Gerir hann
sér vonir um að samkomulag um
það náist á þessu ári meðal
flestra sjónvarpsstöðva. Á næsta
ári verði svo hafin uppbygging á
stafrænu dreifikerfi og áætlað sé
að því ljúki árið 2008.
Sturla Böðvarsson segir að
forsvarsmenn fjölmiðla- og fjar-
skiptafyrirtækja hafi tekið þessu
mjög vel eftir að þeim var kynnt
stefna stjórnvalda í innleiðingu
stafræns sjónvarps. Með rekstri
sameiginlegs dreifikerfis verði
heildarfjárfesting í þessari nýju
tækni minni, rekstrarkostnaður
minni og uppbyggingin skipu-
lagðari. Stjórnvöld stuðli þannig
að láréttum markaði í stað lóð-
rétts þar sem framleiðendur
dagskrárefnis senda út í sínu
Stafrænt sjón-
varp á Íslandi
árið 2008
Eitt sameiginlegt/35
♦♦♦