Morgunblaðið - 02.04.2004, Page 1
Gaman í
Gettu betur
Fulltrúar skólanna sem keppa til
úrslita í léttu kaffispjalli | Fólk
Mamma fót-
boltabræðra
„Kannski hafa þeir fengið hæfi-
leikana frá mér“ | Íþróttir
Fólkið í dag
SPÆNSK yfirvöld segja að 35 ára
Túnismaður, Sarhane Ben Abdelma-
jid Fakhet að nafni, hafi stýrt hópn-
um sem framdi hermdarverkið í
Madríd 11. mars og hafi hann þegar í
fyrra hvatt til heilags stríðs, jihad, í
landinu. Ekki er alveg ljóst hvort
Fakhet skipulagði sjálfur árásina
sem kostaði 191 lífið. Gefin hefur
verið út alþjóðleg handtökuskipun á
hendur Fahket og fimm öðrum
mönnum sem allir eru frá Marokkó.
Auk þeirra eru 19 þegar í haldi.
Ódæðin í Madríd voru að hluta til
fjármögnuð með fíkniefnasölu. Um
20 kíló af hassi og kókaíni fundust við
leit í íbúð eins hinna eftirlýstu,
Marokkómannsins Hamid Ahmid-
ans. Munu fíkniefnin hafa verið látin
í skiptum fyrir sprengiefni.
Ráðist gegn tyrkneskum hóp
Lögregla í fimm Evrópulöndum
handtók í gær alls 54 menn í sam-
ræmdum aðgerðum gegn útlægri,
tyrkneskri marxistahreyfingu sem
sögð er hafa staðið fyrir morðárás-
um í Tyrklandi síðustu áratugi. 37
mannanna voru handteknir í Istan-
búl en hinir í Belgíu, Þýskalandi, á
Ítalíu og í Hollandi.
Hreyfingin, Byltingarsinnaða al-
þýðufrelsisfylkingin, DHKP-C, var
af hálfu Evrópusambandsins sett á
lista yfir hryðjuverkasamtök árið
2002.
Túnismaður eftirlýstur
Madríd, Ankara. AP, AFP.
STOFNAÐ 1913 92. TBL. 92. ÁRG. FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Lífið í Laos og Helsinki Man einhver
eftir? Líkamnaðar tilfinningar
Græjurnar Kvikmyndir Útgáfan
BOÐAÐ hefur verið til fundar í
kjaradeilu Starfsgreinasam-
bandsins og ríkisvaldsins hjá rík-
issáttasemjara klukkan ellefu í
dag, en rúm vika er síðan slitnaði
upp úr viðræðum og hafa engir
formlegir fundir verið síðan og
verkalýðsfélögin undirbúið verk-
fall sem hefjast á 16. apríl takist
ekki samningar fyrir þann tíma.
Björn Snæbjörnsson, formaður
Einingar-Iðju á Akureyri, sagði
að það væri samkomulag um að
hittast til að fara yfir málið. Að-
spurður hvort eitthvað hefði
breyst frá því slitnaði upp úr
sagði Björn að þrýstingurinn
hefði auðvitað aukist, því fólk
hefði verið mjög ákveðið á þeim
vinnustaðafundum sem haldnir
hefðu verið undanfarið. „Það er
greinilega mikill hugur í fólki.
Auðvitað hefur það áhrif, en það
kemur bara í ljós,“ sagði Björn
ennfremur.
„Mér heyrist að það sé mikil
samstaða um það að við verðum
að knýja á um samning með að-
gerðum,“ sagði Þórunn Svein-
björnsdóttir, varaformaður Efl-
ingar, eftir að hún kom af fundi
með félagsmönnum Eflingar sem
starfa á Landspítala.
Atkvæðagreiðsla stendur nú yf-
ir á vinnustöðunum og verða at-
kvæði talin á miðvikudaginn kem-
ur. Samtals nær hugsanlegt
verkfall til um 1.000 manns.
Fundað á ný eftir meira en vikuhlé
Félagar í Eflingu sem vinna á Landspítala greiddu atkvæði í lok vinnustaðafundar í gær um boðun verkfalls.
Samstaða og hug-
ur í fólki, segja
forystumenn SGS
DAVÍÐ Oddsson forsætis-
ráðherra hefur lagt fram á
Alþingi stjórnarfrumvarp
til laga þar sem lagt er til
að hið friðhelga land á
Þingvöllum verði stækkað.
„Helgistaðurinn á Þing-
völlum er elsti en jafnframt
minnsti þjóðgarður Íslend-
inga, eða 40 ferkílómetrar
að stærð. Ef frumvarp
þetta verður að lögum mun
hið friðhelga land verða
237 ferkílómetrar að
stærð,“ segir í athuga-
semdum frumvarpsins.
Þar segir ennfremur að
með stækkuninni verði
stigið mikilvægt skref til
að tryggja vernd hinnar sérstöku náttúru á
svæðinu. „En jafnframt væri með samþykkt
frumvarpsins lagður grunnur að mikilfenglegu
útivistarsvæði fyrir lands-
menn í næsta nágrenni við
stærstu þéttbýlissvæði lands-
ins.“
Gildandi lög um friðun
Þingvalla eru síðan 1928. „Frá
því lögin voru sett hafa öll við-
horf til náttúruverndar gjör-
breyst auk þess sem umferð
um þjóðgarðinn og næsta ná-
grenni hans er miklu meiri en
áður,“ segir í athugasemdum.
„Jafnframt hafa kröfur um
verndun Þingvallavatns auk-
ist en um það verður flutt sér-
stakt frumvarp af hálfu um-
hverfisráðherra. Þingvellir
hafa ómetanlegt gildi fyrir Ís-
lendinga frá menningarlegum
sjónarhóli og með tilliti til náttúrufars.“
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að þjóð-
garðurinn á Þingvöllum verði áfram undir
stjórn Þingvallanefndar. Lagt er til í frumvarp-
inu að Þingvallanefnd verði heimilt, eftir því
sem fjárveitingar í fjárlögum leyfa, að kaupa
einstakar fasteignir, mannvirki og nytjaréttindi
sem eru innan þjóðgarðsins og ekki eru í eigu ís-
lenska ríkisins.
Öðlist gildi 1. júní
Þá er Þingvallanefnd heimilt, að fengnu sam-
þykki forsætisráðherra, að taka eignarnámi ein-
stakar fasteignir, mannvirki og nytjaréttindi
innan þjóðgarðsins til þess að framkvæma frið-
un sem frumvarpið mælir fyrir um. „Um mat á
bótum fer eftir lögum um framkvæmd eignar-
náms,“ segir í frumvarpinu. „Hver sá er fyrir
tjóni verður vegna friðunar samkvæmt lögum
þessum á rétt til skaðabóta úr ríkissjóði. Ef
samkomulag næst ekki um bætur skulu þær
ákveðnar í samræmi við ákvæði laga um fram-
kvæmd eignarnáms.“
Lagt er til að lagafrumvarpið, verði það sam-
þykkt, öðlist gildi 1. júní 2004.
Hið friðhelga land Þing-
valla verði stækkað
HRÍSEYINGAR eru bjartsýnir þrátt fyrir
að enn séu blikur á lofti í atvinnumálum eyj-
arskeggja, en síðustu ár hafa verið þeim erf-
ið. Í fyrradag var öllu starfsfólki Íslensks
sjávarfangs sagt upp störfum en nota á
næstu vikur til að endurskipuleggja rekst-
urinn. Kristján Kristjánsson framkvæmda-
stjóri sagði að vel gengi að selja afurðir fyr-
irtækisins og verkefnastaða þess væri betri
en áður.
Morgunblaðið/Kristján
Marglitir gúmmíhanskarnir voru til vitnis
um að lítið var um að vera hjá Íslensku
sjávarfangi í Hrísey í gær.
Bjartsýnir
þrátt fyrir
blikur á lofti
Látum ekki bugast/38
FLUGLEIÐIR hafa selt allan eignarhlut
sinn í Burðarási og er hagnaður af sölunni
um 450 milljónir króna. Flugleiðir fjárfest-
ingafélag keypti í febrúar sl. 10% hlutafjár í
Burðarási, sem þá var Eimskipafélag Ís-
lands. Gengi bréfanna hefur á þeim tíma
hækkað um ríflega 10% en frá áramótum
hefur gengi hlutabréfa í Burðarási hækkað
um nær 48%. Markaðsvirði félagsins var í
lok dags í gær 46,6 milljarðar.
Flugleiðir selja hlutabréf
sín í Burðarási
Söluhagnaður
450 milljónir
Flugleiðir út/12
♦♦♦