Morgunblaðið - 02.04.2004, Side 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FORDÆMDI DRÁP
L. Paul Bremer, æðsti fulltrúi
Bandaríkjamanna í Írak, fordæmdi í
gær dráp á fjórum Bandaríkjamönn-
um í borginni Fallujah á miðviku-
dag. Mennirnir voru starfsmenn ör-
yggisþjónustu. Sagði Bremer
árásina fyrirlitlega og hét því að hin-
um seku yrði refsað.
Lýsa eftir Túnismanni
Yfirvöld á Spáni hafa gefið út al-
þjóðlega handtökutilskipun á hend-
ur sex mönnum, þar af einum frá
Túnis, vegna hryðjuverksins í Madr-
íd 11. mars. Er Túnismaðurinn tal-
inn hafa verið leiðtogi hópsins.
Ódæðið mun að hluta til hafa verið
fjármagnað með sölu fíkniefna.
Kýpurdeila í þjóðaratkvæði
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
SÞ, ætlar að láta fara fram þjóð-
aratkvæðagreiðslu á Kýpur um
framtíð eyjarinnar. Annan sat á
fundum með fulltrúum þjóðarbrot-
anna, Grikkja og Tyrkja, fram á að-
faranótt fimmtudags til að reyna að
finna málamiðlun en það mistókst.
Flugleiðir selja í Burðarási
Flugleiðir hafa selt hlutabréf sín í
Burðarási og er söluhagnaður bréf-
anna 450 milljónir króna. Gengi
bréfanna hefur hækkað um ríflega
10% frá því í febrúar.
Spornað við lyfjaútgjöldum
Heilbrigðisráðherra hefur kynnt
aðgerðir sem ætlað er að sporna við
útgjaldaaukningu vegna lyfjakostn-
aðar. Verður tekið upp viðmiðun-
arverð lyfja með sambærileg áhrif í
þremur kostnaðarsömustu flokk-
unum. 450 mkr. sparast vegna
þessa.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Minningar 42/50
Úr verinu 11 Umræðan 51/56
Viðskipti 12 Staksteinar 54
Erlent 13/14 Brids 59
Minn staður 18 Myndasögur 60
Höfuðborgin 20 Bréf 60
Akureyri 22 Dagbók 62/63
Suðurnes 24 Staksteinar 62
Austurland 26/27 Kirkjustarf 63
Landið 28/29 Íþróttir 64/67
Daglegt líf 30/31 Leikhús 68
Listir 32/37 Fólk 68/73
Forystugrein 34 Bíó 70/73
Þjónusta 41 Ljósvakamiðlar 74
Viðhorf 42 Veður 75
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir „Miðborgin“, blað Þróun-
arfélags miðborgarinnar.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is
Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport-
@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Guðrún Pétursdóttir
Spákonur og spádómar
Hljómsveitin Tenderfoot
Afrekskylfingurinn
Heiðar Davíð Bragason
Réttu fötin á golfvöllinn
Dekur á góðum degi
Uppskriftir að páskamat
Súkkulaðisæla um
páskana
Allt í gulu
Á SUNNUDAGINN
Sunnudagur 04.04.04
AFREKSKYLFINGURINN HEIÐAR DAVÍÐ BRAGASON FRÁ BLÖNDUÓSI OPNAR GOLFPOKANN SINN OG SÝNIR VERKFÆRIN
TILFINNING
FYRIR HEIMINUM
GUÐRÚN PÉTURSDÓTTIR
Meira en augað sér: Spákonur eru vinsælar á Íslandi hvort sem það er vegna trúgirni eða bara leið til að lifa af
LEYFI til veitinga áfengis í
Egilshöll í Grafarvogi var
vísað aftur til borgarráðs á
fundi borgarstjórnar
Reykjavíkur í gær, að til-
lögu forseta borgarstjórnar,
Árna Þórs Sigurðssonar.
Tillagan var samþykkt með
14 samhljóða atkvæðum en
Ólafur F. Magnússon borg-
arfulltrúi F-lista sat hjá.
Leyfisveitingin hafði áður
verið samþykkt í borgarráði,
þvert á pólitískar línur, með
fjórum atkvæðum gegn
þremur.
Margir kvöddu sér hljóðs
í umræðunni og var tillögu
borgarstjóra, sem einnig var
samþykkt á borgarráðsfundi
fyrr í vikunni, almennt fagn-
að, en hún felur í sér að fela
íþrótta- og tómstundaráði
og félagsmálaráði að meta í
samráði við íþróttahreyf-
inguna, hvort endurskoða
þurfi málsmeðferðarreglur
borgarráðs með tilliti til
áfengisveitinga í og við
íþróttamannvirki.
Vill breyta
nafni Egilshallar
Í umræðunum kom fram að allir
umsagnaraðilar mæltu með því við
borgarráð að leyfið yrði veitt.
Stefán Jóhann Stefánsson, R-
lista, sagði að veiting áfengisleyfis
gæti ekki með nokkru móti sam-
rýmst íþróttastarfsemi fyrir börn
og ungmenni. Hann sagði að
rekstrarlegir hagsmunir mættu
ekki ráða ferðinni og sagðist vilja
að nafni Egilshallarinnar, sem heit-
ir svo þar sem Ölgerð Egils Skalla-
grímssonar studdi byggingu og
rekstur hallarinnar, yrði breytt þar
sem nafnið væri „ekkert annað en
lymskuleg auglýsing á drykkjum
sem við viljum halda frá
börnum og unglingum.“
Guðlaugur Þór Þórðarson,
borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokks, sagði þetta stór orð til
þessa fyrirtækis sem styrkti
Egilshöllina og fengi í stað-
inn nafn sitt. Kjartan Magn-
ússon, sem einnig situr í
borgarstjórn fyrir Sjálfstæð-
isflokk, sagðist telja nafnið
gott, það skírskotaði til forn-
hetjunnar Egils Skallagríms-
sonar. Nefndi hann til sam-
anburðar að sú hugmynd
hefði verið uppi að kalla
mannvirkið „Pepsi-höllina“.
Ólafur F. Magnússon borg-
arfulltrúi lét bóka að yfir-
gnæfandi rök mæltu gegn því
að áfengisveitingar færu
fram í Egilshöll en svo virtist
sem einhverjir borgarráðs-
fulltrúar hefðu talið að stuðn-
ingur íþrótta- og tómstunda-
ráðs og formanns tiltekins
íþróttafélags í Grafarvogi
væri ekki þvert á afstöðu
íþróttahreyfingarinnar í
þessu máli en annað hefði
komið í ljós. Borgastjórn
væri ekkert að vanbúnaði að sam-
þykkja málsmeðferð um endur-
skoðun málsmeðferðarreglna borg-
arráðs um áfengisveitingar í og við
íþróttamannvirki en fella samþykkt
borgarráðs um áfengisveitingaleyfi
úr gildi.
Áfengisleyfi í Egilshöll
vísað aftur í borgarráð
Morgunblaðið/Ásdís
Borgarstjórn ræddi í gær vínveitingar í Egilshöll.
Gengur/20
Umsagnaraðilar mæltu með leyfisveitingu við borgarráð
ÞORSTEINN Víglundsson, for-
stjóri BM-Vallár, telur að verði
frumvarp fjármálaráðherra um olíu-
gjald og kílómetragjald að lögum
muni kostnaður við léttari vörubif-
reiðar aukast meira en við þær
þyngri. Þá boði fjármálaráðherra
auknar álögur á atvinnulífið með
frumvarpinu.
„Kostnaðaraukning á hefðbundn-
um vörubíl, 19 tonna bíl, verður 60-
70%. Ef við tökum hins vegar hefð-
bundinn steypubíl, 26-32 tonn, þá er
kostnaðaraukningin á bilinu 40-
60%. Þetta kemur ofan á verulega
hækkun á þungaskatti um áramót,“
segir Þorsteinn.
Hann kveðst ekki skilja að það
samræmist samkeppnislögum að
mismuna tækjum eftir stærð. „Það
hefur verið röksemdafærsla í þess-
ari umræðu allri að slit þyngri
tækja sé hlutfallslega meira heldur
en þyngdin ein segir til um. Þarna
er gjaldtökunni akkúrat öfugt farið,
þ.e. bílarnir sem eru mest eknir og
þyngstir koma hvað best út úr
breytingunni hlutfallslega. Bílarnir
sem eru léttari og minna á götunni
taka á sig stórkostlega kostnaðar-
hækkun.
Það sem gerir þessa hugmynd
ennþá ósanngjarnari er að með ol-
íugjaldinu, sem á að vera vegaskatt-
ur, er verið að leggja meira á tæki
sem er mest notað í kyrrstöðu en
veldur litlu vegsliti,“ segir Þor-
steinn. „Í þessu frumvarpi felst
stóraukin skattheimta. Það eru
gríðarlega miklar álögur lagðar til
viðbótar á atvinnulífið í gegnum
þetta kerfi,“ segir Þorsteinn.
Mest hækk-
un á léttar
bifreiðar
Forstjóri BM-Vallár gagnrýnir lagafrumvarp um olíugjald
!""#
$!%&'(
$)#&*(
$'+&+(
$,"&!(
$-#&-(
. /
#'
)"
)'
'"
''
+"
+'
,"
-"
0
*"
"
*% $*-&+(
$!-&*(
$#,&,(
$),&#(
$'+&-(
$++&)(
!+ $**&*(
$*-&%(
$!+&,(
$#)&+(
$)!&)(
$'"&!(
$'-&*(
#! 1)&!(
$*&'(
$,&#(
$*#&*(
$*-&%(
)) 1)&)(
$"&,(
$'&-(
$*"&%(
$!*&*(
)%