Morgunblaðið - 02.04.2004, Side 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
www.plusferdir.is
Benidorm - 15. apríl
30.830 kr.
N E T
( 54.200 kr. / 2 = 27.100 kr. + 3.730 kr. flugvallarsskattar) = 30.830 kr. á mann
miðað við að 2 fullorðnir ferðist saman.
Innifalið er flug, gisting í 10 nætur á Halley, ferðir til og frá flugvelli
erlendis, íslensk fararstjórn og flugvallarskattar.
NETplus er einungis bókanlegur á www.plusferdir.is
2 fyrir 1
stjórnun og ráðgjöf við rekstur og
uppbyggingu flugvallarins hvað
varðar flugumferðarstjórn, leiðsögu-
mál og annan nauðsynlegan búnað.
Á hádegi í gær fór fram athöfn á
flugvellinum í Pristina, þar sem Ís-
lenska friðargæslan-utanríkisráðu-
neytið, fyrir hönd Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO) afhenti UNMIK
flugvöllinn. Þar með lýkur hlutverki
Íslensku friðargæslunnar á flugvell-
inum en um leið hefst nýr kafli í
störfum Íslendinga í Kosovo með
gildistöku samningsins sem undirrit-
aður var í morgun.
Samgönguráðherra átti fundi með
Holger Kammeroff yfirhershöfð-
ingja, sem fer fyrir alþjóðaherliðinu í
Kosovo, Barjan Rexhepi forsætis-
ráðherra Kosovo og að lokum með
Ibraham Rugova forseta Kosovo.
Sturla segir að á fundum sínum með
forsætisráðherranum og forsetanum
hafi komið fram mikið þakklæti fyrir
störf Íslendinga í Kosovo og mikið
traust á því fólki sem Íslendingar
hafa sent þangað til starfa. Að sögn
Sturlu kom fram vilji hjá forsætis-
ráðherranum og forsetanum til enn
frekara samstarfs við Íslendinga.
STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra og Harri Holkeri, sérstak-
ur sendifulltrúi Kofi Annans fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna,
skrifuðu í gærmorgun undir samn-
ing bráðabirgðarstjórnar Samein-
uðu þjóðanna í Kosovo (UNMIK) um
stjórnun og faglega ráðgjöf Flug-
málastjórnar Íslands við uppbygg-
ingu flugvallarins í Pristina. Breytist
völlurinn þannig úr því að vera hern-
aðarflugvöllur í borgaralegan flug-
völl.
Holkeri sagði við það tækifæri að
undirskriftin sýndi að smærri þjóðir
sem hefðu yfir að ráða sérfræði-
kunnáttu gætu komið að góðu liði við
uppbyggingu sem þessa.
Samningurinn gildir til ársloka
2005 og kostar á bilinu fimm til sex
hundruð milljónir króna. Um 15
stöðugildi verða til fyrir starfsfólk
Flugmálastjórnar í Kosovo til árs-
loka 2005.
Hlutverki íslensku
friðargæslunnar lokið
Flugmálastjórn er framkvæmdar-
aðili samgönguráðuneytisins við
samninginn og mun sjá um faglega
Flugmálatjórn hefur tekið við stjórn
Pristina-flugvallar í Kosovo
Smærri þjóðir
koma að góðu liði
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra átti fund með Holger Kammeroff
yfirhershöfðingja, sem fer fyrir alþjóðaherliðinu í Kosovo.
LÁGGJALDAFLUGFÉLAGIÐ
Iceland Express hóf í gær að fljúga
tvisvar á dag til Kaupmannahafnar
og London, en fram til þessa hefur fé-
lagið flogið til Kaupmannhafnar
snemma morguns og síðdegis til
London. Eftir breytinguna verður
flogið til beggja áfangastaða félags-
ins fyrir klukkan átta á morgnana og
aftur eftir hádegi.
Í kjölfarið eiga farþegar í morg-
unflugi t.d. til London kost á að ná
125 daglegum brottförum annarra
lággjaldaflugfélaga í Evrópu.
Iceland Express hóf nýlega mark-
aðssamstarf með nokkrum lággjalda-
flugélögum í Evrópu og með fjölgun
ferða til Íslands aukast möguleikar
félagsins á að sinna samstarfinu, að
því er segir í tilkynningu frá félaginu.
Vilja fleiri erlenda
ferðamenn
Flugliðum hjá félaginu hefur fjölg-
að úr 19 í 24 vegna breytinganna og
eru starfsmenn félagsins nú um 70
talsins. Fjöldi farþega á hvern starfs-
mann er um 4.500.
Iceland Express ætlar á árinu að
verja 110 milljónum króna í markaðs-
starf erlendis. Við þá upphæð bætast
23 milljónir frá Ferðamálaráði sem
varið verður til markaðssamstarfs.
Ætlunin er að þau sæti sem bætast
við vegna fjölgunar ferða verði helst
fyllt af erlendum ferðamönnum.
„Fólk hefur þurft að hugsa sig
tvisvar um að koma hingað til lands
eða fara utan vegna kostnaðar.
Lækkun fargjalda skiptir máli. Það á
ekki að þurfa að raska fjárhag heillar
fjölskyldu að hoppa til útlanda einu
sinni á ári,“ segir Sigurður I. Hall-
dórsson stjórnarformaður.
Í tilkynningu frá Iceland Express
segir að flugfargjöld, til og frá Ís-
landi, hafi lækkað um 50–80% í verði
á einu ári, en Iceland Express var
stofnað fyrir rúmu ári. Ferðamönn-
um á Íslandi hafi fjölgað um 14% á
síðasta ári og að stefni í 9% aukningu
til viðbótar á þessu ári.
Flogið tvisvar á dag
til beggja áfangastaða
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Ásinn og Tvisturinn, flugvélar Iceland Express, fóru í loftið með stuttu milli-
bili frá Keflavíkurflugvelli síðdegis í gær, önnur til Kaupmannahafnar og hin
til London. Framvegis flýgur félagið tvisvar á dag til hvors áfangastaðar.
ÁSINN OG TVISTURINN eru nöfn
á flugvélunum tveimur sem Iceland
Express notast við. Þorbjörg Lilja
Þórsdóttir kennari var dregin úr
hópi átta einstaklinga sem sendu
inn tillögu með nöfnunum, en félag-
ið efndi til nafnasamkeppni fyrir
vélarnar í mars sl. Að launum hlaut
Þorbjörg Danmerkurferð fyrir sex
manns með sumarhúsi og bíl í viku
ásamt þúsund krónum dönskum í
vasa hvers og eins.
Alls bárust 25 þúsund nafna-
tillögur frá 12 þúsund þátttak-
endum. Þótti dómnefnd nöfnin Ás-
inn og Tvisturinn hafa ákveðna
skírskotun í almenningssamgöngur
eins og t.d. strætó, sem jafnan er
merktur með númerum. Eitt þús-
und tillögur bárust um að nefna vél-
arnar Huginn og Muninn eftir
hröfnum Óðins. Hrafnarnir voru
aðeins tveir, en dómnefnd þótti bet-
ur fara á að notast við nöfn sem
marka upphaf og opna fyrir frekari
nafngiftir af sama tagi.
Flugvélarnar eru báðar af gerð-
inni Boeing 737 og eru í eigu
breska flugrekstrarfyrirtækisins
Astraeus.
Vélunum gefin nöfn
Ætla að verja 110
milljónum króna
í markaðsstarf
erlendis í ár
ÞRJÁR einshreyfils ferjuflugvélar
lentu í ísingu á leiðinni frá Reykjavík
til Hornafjarðar um miðjan dag í
gær. Tvær héldu áfram til Horna-
fjarðar og komust þangað heilu og
höldnu, en þriðja vélin og sú síðasta
sneri við til Reykjavíkur.
Flugmennirnir, sem eru allir út-
lendingar, lögðu af stað upp úr há-
degi og flugu blindflug.
Ráðlagði kollega að snúa við
Fyrsta flugvélin hækkaði flugið
upp í ellefu þúsund feta hæð og náði
að halda hæð þar og gat haldið flugi
sínu áfram.
Flugmanni vélarinnar þar á eftir
þótti tryggast að lækka flugið og
freista þess að komast úr ísingunni
þannig. Þegar hann var kominn nið-
ur í 500 feta hæð úti við Vestmanna-
eyjar náði hann að losna við ísingu,
sem sest hafði á flugvélina, og hélt
áfram flugi sínu meðfram suður-
ströndinni til Hornafjarðar.
Flugmaður fyrstu vélarinnar ráð-
lagði kollega sínum í þriðju vélinni,
sem var nokkru á eftir hinum, að
snúa við til Reykjavíkur, sem hann
og gerði.
Vélarnar komu frá Kanada hingað
til lands á miðvikudaginn. Gert er
ráð fyrir að þær haldi áfram yfir haf-
ið til Evrópu í dag.
Lentu í vandræð-
um vegna ísingar
SÝNINGIN Grjótið í Grund-
arfirði, safn steinskúlptúra eftir
Árna Johnsen, verður opnuð í
Vetrargarðinum
í Smáralind á
laugardag. Um
er að ræða
nærri 40 verk,
þau stærstu 6–7
tonn á þyngd og
smæstu nokkur
hundruð kíló.
Að sögn Árna
komu óskir frá
aðilum Smára-
lindar síðastliðið haust um að
setja upp sýninguna í Kópavogi.
Einnig hafi aðilar frá Reykja-
nesbæ og Reykjavík og víðar lýst
yfir áhuga og Árni valið að sýna
fyrst í Reykjanesbæ.
Á sunnudagskvöld verður
kvöldvaka í Vetrargarðinum þar
sem Árni mætir með gítarinn og
leikur og syngur. 400 manna
stúka er í Vetrargarðinum og
verður sönghefti í hverju sæti.
Árni segir brekkusönginn standa
fyrir sínu hvort heldur sé í Vest-
mannaeyjum eða Vetrargarð-
inum.
„En hitt er annað mál að
brekkusöngur á þjóðhátíð er
engu líkur og einsdæmi í heim-
inum. [...] Í Vetrargarðinum er
hins vegar fín aðstaða til að taka
lagið.“
Grjótið í
Grundar-
firði flutt í
Vetrar-
garðinn
Árni Johnsen
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær
karlmann, Marlow Oyod Diaz, í
tveggja ára fangelsi fyrir að nauðga
konu á heimili hennar 5. janúar 2003.
Ákærði var ennfremur dæmdur til
að greiða konunni 600 þúsund krón-
ur í miskabætur.
Ákærði og konan þekktust ekkert
og bar mikið í milli í framburðum
þeirra. Hún var stöðug í framburði
sínum en ákærði, sem neitaði sök,
reikull og óstöðugur. Tók Hæstirétt-
ur undir með héraðsdómi um að hin
alvarlega háttsemi ákærða gagnvart
konunni bæri merki um fullkomið
virðingarleysi gagnvart henni. Hefði
hún ekki gefið honum neitt tilefni til
að ætla að hún vildi hafa við hann
kynmök og beðið hann að hætta er
hann neytti aflsmunar og þröngvaði
henni til kynmaka. Hefði verknaður
ákærða haft alvarlegar afleiðingar á
andlega líðan hennar. Að mati dóm-
ara átti ákærði sér engar málsbætur.
Var hæfileg refsing talin tveggja ára
fangelsi í héraðsdómi og staðfesti
Hæstiréttur þann dóm.
Málið dæmdu dómararnir Markús
Sigurbjörnsson, Garðar Gíslason,
Guðrún Erlendsdóttir, Hrafn Braga-
son og Pétur Kr. Hafstein. Verjandi
ákærða var Ásgeir Jónsson hdl. og
sækjandi Sigríður Jósefsdóttir sak-
sóknari hjá ríkissaksóknara.
Tveggja ára fang-
elsi fyrir nauðgun