Morgunblaðið - 02.04.2004, Page 10

Morgunblaðið - 02.04.2004, Page 10
FRÉTTIR 10 FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ RÁÐNINGARSAMNINGAR þar sem krafist er heimildar frá launþeg- um um að atvinnurekendur megi framkvæma læknisskoðun og sýna- töku á launþegum hvenær sem er á vinnutíma eru að ryðja sér til rúms hér á landi, að sögn Ágústs Ólafs Ágústssonar, þingmanns Samfylk- ingarinnar. Ágúst var málshefjandi utandagskrárumræðu um þetta mál á Alþingi í gær. Hann sagði að þessi heimild atvinnurekenda bryti gróf- lega á persónurétti þegna þessa lands og byði heim hættunni á mis- notkun. Fyrirtæki gætu ekki skýlt sér á bakvið upplýst samþykki starfs- manns sem ætti engra kosta völ. Sagði hann mikilvægt að sporna við þessari þróun í tæka tíð, þ.e. meðan hún væri viðráðanleg. Ágúst sagði að ráðningarsamning- ar starfsmanna álversins í Straums- vík væru dæmi um þessa þróun. Í þeim væri kveðið á um að allir starfs- menn þyrftu að gangast undir lækn- isskoðun þar sem m.a. yrði leitað að ólöglegum efnum. Auk þess áskildi fyrirtækið sér rétt til að kalla starfs- menn í rannsókn hvenær sem væri á vinnutíma. „Aðaltrúnaðarmaður starfsmanna álversins,“ sagði Ágúst, „hefur sagt að þessi heimild fyrirtæk- isins til að taka lífsýni úr starfsmönn- um hvenær sem er, sé í algerri and- stöðu við starfsmennina og vilja þeir fá þetta út.“ Ágúst sagði að í raun væru mál af þessu tagi spurning um það hvert við vildum stefna. „Þetta er spurning um hugmyndafræði og póli- tík. Það er einfaldlega ekki fyrir- tækja að biðja um slíkt afsal á per- sónuréttindum sinna launþega og hæpið er að markmið um vímulausan vinnustað, eins göfugt og það er, rétt- læti svona heimild til atvinnurek- enda.“ Getur verið réttlætanlegt Árni Magnússon félagsmálaráð- herra, sem var til andsvara, sagði að læknisrannsókn starfsmanna til að kanna ástand þeirra, með tilliti til fíkniefnaneyslu, gæti verið réttlætan- leg í einhverjum tilvikum. „Á þetta sérstaklega við um störf þar sem áhætta er mjög mikil og aðgæsluleysi getur valdið mjög alvarlegum vinnu- slysum; þar sem lífi og heilsu hlut- aðeigandi starfsmanns er ekki ein- ungis stefnt í hættu heldur einnig lífi og heilsu samstarfsmanna hans.“ Ráðherra sagði jafnframt að hann vildi ekki setja lög í þessum efnum gegn vilja atvinnurekenda. „Enda varðar þetta fyrst og fremst sam- skipti vinnuveitenda og starfsmanna ásamt því að tengjast sjónarmiðum er lúta að vinnuvernd og persónu- vernd.“ Ráðherra kvaðst þó myndu beita sér fyrir því að stjórn Vinnueft- irlits ríkisins fjallaði um þetta mál á næstu mánuðum. Magnús Þór Hafsteinsson, þing- maður Frjálslynda flokksins, sagði að Ágúst hefði þarna hreyft við mjög mikilvægu máli. „Við erum að glíma hér við mál sem hefur ríka skírskotun til siðferðislegra sjónarmiða þar sem persónuvernd einstaklingsins vegur þungt,“ sagði hann. Ögmundur Jón- asson, þingmaður Vinstrihreyfingar- innar – græns framboðs, tók í sama streng og sagði að mannréttindi væru í húfi. „Spurningin snýst um það hvaða vald eigi að færa atvinnurek- andanum til að ryðjast inn í einkalíf fólks. Atvinnurekandinn á að hafa rétt til að ganga úr skugga um það hvort starfsmaður ræki þær skyldur sem starfið krefst af honum en hann á ekki að hafa rétt til þess að kanna hvað býr þar að baki ef um heilsufar einstaklingsins er að ræða. Það á að vera mál einstaklingsins og heilbrigð- iskerfisins en ekki atvinnurekand- ans.“ Þarf að huga að öryggi fólks Þingmenn stjórnarliðsins voru ekki á sama máli. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, kvaðst reyndar viðurkenna að hann ætti nokkuð erfitt með að átta sig á því hvaða ástæður væru fyrir því að menn færu út í „viðkom- andi utandagskrárumræður,“ eins og hann orðaði það. „Mér finnst sjálf- sagt að ræða flesta hluti og taka þá upp en ég vil, virðulegi forseti, að þingheimur hugleiði að við þurfum að huga að öryggi fólksins, bæði starfs- manna og almennings. Það er vá fyrir dyrum, ólögleg vímuefni, og ég er al- veg hreint sannfærður eftir að hafa starfað í þinginu að ef sú staða kæmi upp að slys yrði af þeim völdum væru menn hér í löngum röðum að koma upp og kalla eftir ábyrgð vinnuveit- enda.“ Sigurður Kári Kristjánsson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, kvaðst ekki hlynntur því að lífsýnataka úr starfsfólki yrði gerð að meginreglu á vinnumarkaði. En það gætu þó verið rök til þess að grípa til slíkra aðgerða. „Í þessari umræðu mega menn ekki gleyma því að ein meginskylda vinnu- veitanda er að tryggja öryggi starfs- manna sinna en jafnframt ber vinnu- veitendum skylda til þess að tryggja að þeir sem leita eftir þjónustu við- komandi fyrirtækis megi ekki eiga það á hættu að ástand starfsmanna þess kunni að leiða til tjóns fyrir við- komandi. Slík varúðarskylda og að- gerðir til þess að takmarka tjón eða koma í veg fyrir að tjón getur rétt- lætt að vinnuveitendur áskilji sér rétt til þess að kanna ástand starfsmanna sinna.“ Hjálmar Árnason, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði að lok- um að það væru mannréttindi að hafa vinnustaði án fíkniefna. „Ég fagna þess vegna því átaki fyrirtækja ef þau með slíkum aðferðum, með upp- lýstu samþykki starfsfólks og viður- kenndu eftirliti, vilja þá ganga til liðs við allan þann fjölda sem vill berjast gegn fíkniefnum í þessu landi.“ Þingmenn lýsa ólíkum skoðunum á heimild atvinnurekenda til lífsýnatöku Heimild til að taka lífsýni úr starfsfólki ryður sér til rúms Morgunblaðið/Ásdís Miklar umræður urðu utan dagskrár á Alþingi í gær um heimild atvinnu- rekenda til að framkvæma læknisskoðun og sýnatöku á launþegum. HALLDÓR Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um vegagerð um Stórasand. Í tillögunni segir: „Alþingi ályktar að fela sam- gönguráðherra að undirbúa og hrinda í framkvæmd nauðsynlegum rann- sóknum og mælingum til þess að hægt sé að setja veg frá Norðurárdal í Skagafirði um Stórasand til Borgar- fjarðar í mat á umhverfisáhrifum svo fljótt sem kostur er. Vegurinn skal vera í flokki C1, sem er 7,5 metra breiður, malbikaður vegur. Hafa skal í huga að þessi framkvæmd sé unnin sem einkaframkvæmd og að kostnað- ur við hana greiðist með veggjöldum eftir því sem eðlilegt er.“ Meðflutn- ingsmenn koma úr Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokki og Samfylkingu. Kostnaður 4,4 milljarðar Í greinargerð tillögunnar er vegur- inn sem um ræðir úr Skagafirði í Borgarfjörð kallaður Norðurvegur. Skýrt er frá því að hann myndi stytta leiðina milli Akureyrar og Reykjavík- ur um 42 kílómetra eða um sömu vegalengd og Hvalfjarðargöng. „Eftir lagningu Norðurvegar er ekki sama nauðsyn á vegi yfir Kjöl og áður, en á hinn bóginn mun vegur um Kaldadal enn stytta leiðina milli Akureyrar og Reykjavíkur um 40 kílómetra eða samtals um 82 kílómetra.“ Því er þó bætt við að vegur um Kaldadal falli utan þessarar tillögu. Um fyrsta hluta leiðarinnar segir m.a.: „Gert er ráð fyrir því að hefja vegagerð um Norðurárdal á þessu ári og tekur kannski fjögur ár að ljúka henni. Í beinu framhaldi er síðan eðli- legt að halda áfram þvert yfir Skaga- fjörð sunnan við Mælifell að Kjalvegi sunnan Blöndulóns, sem eru 57 km. Gróf kostnaðaráætlun ásamt brú er 2 milljarðar kr. Á þessari leið fer veg- urinn yfir 700 metra hæð á stuttum kafla.“ Um annan hluta segir m.a.: „Frá Blöndulóni liggur leiðin um Stóra- sand að Réttarvatni og síðan um Hall- mundarhraun í Borgarfjörð. Það eru 72 km og kosta 2,4 milljarða kr. Veg- urinn um Stórasand mun liggja um hásléttu, sem fer á 10 km kafla yfir 700 metra hæð og mest upp undir 800 metra hæð.“ Ný sjónarmið í vegagerð Í greinargerð segir síðan um þriðja hlutann: „Norðurvegur tengist hinu almenna vegakerfi um Hvítársíðu, en nauðsynlegar lagfæringar ásamt brúm á veginum niður Hvítársíðu á 11 km kafla kostar um 400 milljónir kr. Þessi vegaframkvæmd er innan sam- gönguáætlunar, svo ekki er eðlilegt að greitt sé veggjald af henni fremur en af tengivegum við Hvalfjarðar- göng.“ Vegagerðin hefur lagt fram tillögur um styttingu hringvegarins milli Ak- ureyrar og Reykjavíkur. Síðan segir: „Annars vegar eru uppi hugmyndir um nýja brú yfir Héraðsvötn í Skaga- firði til að sneiða framhjá Varmahlíð, sem kostaði 540 milljónir kr. En stytti þó ekki leiðina nema um 3,5 km. Hins vegar er talað um að leggja veg yfir Blöndu í Langadal hjá Móbergi til þess að þurfa ekki að taka krókinn niður á Blönduós og stytti það leiðina um 14 km, en kostaði 960 milljónir kr. Þessum fjármunum, 1,5 milljarði kr., yrði betur varið í fyrsta áfanga Norð- urvegar eða úr Norðurárdal yfir Hér- aðsvötn að Blöndulóni, sem auðvitað hefði þann kost einnig að hringveg- urinn lægi áfram um Blönduós.“ Fram kemur að ný sjónarmið í vegagerð hafi verið að breytast á síð- ustu árum, enda verði búið að tengja alla þéttbýlisstaði við hringveginn innan fárra ára. „Nú láta menn sér ekki lengur nægja að komast á leið- arenda, heldur vilja þeir fara stystu leiðina. Það dregur úr mengun, það sparar tíma og það sparar peninga. Í sumum dæmum getur flutnings- kostnaður ráðið úrslitum um það hvort hægt sé að reka iðnfyrirtæki á Akureyri eða ekki eins og við höfum dæmin um.“ Þá er ítrekað að eftir að vegagerð um Norðurárdal í Skaga- firði ljúki sé eðlilegt að leggja í fram- kvæmdir við Norðurveg. „En til þess að það megi takast verður að hefjast handa við undirbúning þegar í stað. Flutningsmenn telja að reikna verði með fimm árum til þess að hanna veg- inn og ljúka mati á umhverfisáhrifum. Framkvæmdir gætu tekið tvö til þrjú ár, ef ekki stæði á peningum.“ Tillaga Halldórs Blöndal og meðflutningsmanna úr 3 flokkum Vilja hrinda í framkvæmd vegagerð um Stórasand         !" ##     $  %          ÞINGFLOKKUR sjálfstæðismanna hefur samþykkt frumvarp félags- málaráðherra, Árna Magnússonar, um breytingar á lögum um fæðing- ar- og foreldraorlof. Að sögn Einars K. Guðfinnssonar, formanns þing- flokks sjálfstæðismanna, gerðu ein- stakir þingmenn þó fyrirvara við ein- stök atriði frumvarpsins. Gert er ráð fyrir því að sett verði þak á greiðslur úr Fæðingarorlofs- sjóði, þannig að ekki verði greiddar meira en 480 þúsund krónur á mán- uði. Reiknað er með að félagsmála- ráðherra mæli fyrir frumvarpinu í næstu viku. Sjálfstæðis- menn sam- þykkja frum- varp ráðherra TVEIR þingmenn Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs hafa lagt fram á Alþingi frumvarp þess efnis að horfið verði frá hugmyndum um sölu Landsíma Íslands – að minnsta kosti til ársloka 2007. „Með því gefst ráðrúm til að skoða málin, meta reynslu annarra þjóða af einkavæð- ingu fjarskipta og síðast en ekki síst nota tímann vel til að bæta fjar- skiptakerfið,“ segir í greinargerð frumvarpsins. Fyrsti flutningsmaður er Stein- grímur J. Sigfússon, formaður VG, en meðflutningsmaður er Jón Bjarnason. Í greinargerð segir m.a. að þingflokkur Vinstri grænna telji engin haldbær rök fyrir einkavæð- ingu Símans og fyrirtækinu verði best komið sem öflugt almannaþjón- ustufyrirtæki í opinberri eigu. Þingmenn Vinstri grænna Horfið verði frá sölu Símans ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.