Morgunblaðið - 02.04.2004, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 02.04.2004, Qupperneq 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 12 FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● ALÞJÓÐLEGA uppgjörsfyrirtækið Clearstream hefur tilkynnt að ís- lensk skuldabréf verði hæf til upp- gjörs og vörslu hjá Clearstream Banking frá nk. mánudegi. Í Morgunkorni Íslandsbanka segir að tilkynningarinnar hafi verið beðið lengi enda muni þetta gera erlendum fjárfestum hægara um vik að fjár- festa í íslenskum skuldabréfum. Áhrifa hafi gætt strax í kjölfar tilkynn- ingarinnar, með styrkingu krónunnar, lækkun ávöxtunarkröfu skuldabréfa og aukinni veltu. Íslensk skuldabréf hjá Clearstream frá mánudegi ● LANDSBANKI Íslands lækkaði í gær vexti skuldabréfa, víxla og af- urðalána um allt að 0,75 prósentu- stig. Vextir af verðtryggðum skulda- bréfum bankans eru nú 5,4%, óverðtryggðir skuldabréfavextir eru 7,75%, víxilvextir 7,85% og vextir af afurðalánum 7,75%. Jafnframt hefur vaxtaálögum í kjörvaxtakerfum bank- ans verið breytt og álagsflokkum fjölgað. Einnig lækkuðu vextir á ákveðnum innlánsreikningum um 0,2 til 0,4 prósentustig. Vextir af verðtryggðri Lífeyrisbók og Framtíðargrunni eru óbreyttir, eða 6%. Vextir af óverðtryggri Lífeyrisbók eru nú 7,7%, vextir af Vaxtareikn- ingum 4,15 til 4,65% og Kjörbók- arvextir eru 2,5 til 3,1%. Landsbankinn lækkar vexti Aðalfundur Sláturfélags Suður- lands verður haldinn í félagsheim- ilinu að Þingborg, Hraungerð- ishreppi, í dag kl. 14. Aðalfundur Hampiðjunnar verður haldinn í dag kl. 16 í fundarsal fé- lagsins á Bíldshöfða 9. Í DAG HAGNAÐUR af rekstri Útgerðarfélags Akur- eyringa, ÚA, nam 91,4 milljónum á árinu 2003. Árið áður var hagnaður- inn hins vegar rúmlega 1.361 milljón króna. Í til- kynningu frá félaginu segir að stjórnendur fé- lagsins og nýir eigendur telji afkomuna ekki við- unandi. Nú sé unnið að endurskipulagningu í rekstri félagsins og leit- að leiða til hagræðingar. Guðmundur Kristjáns- son, framkvæmdastjóri Tjalds, sem keypti ÚA í janúar á þessu ári, segir í samtali við Morgunblað- ið að ef rekstrareiningar gangi ekki upp þurfi að endurskoða þær. Rekstrartekjur félagsins námu tæpum 6,5 millj- örðum króna og minnkuðu um 5% milli ára. Rekstrargjöld námu röskum 5,7 milljörðum og jukust um rúm 6%. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði var 749 milljónir, samanborið við 1.440 milljónir árið áður, eða 12% af veltu sam- anborið við 21% árið áður. Fjármagnsliðir voru liðlega einum milljarði lak- ari en árið áður, námu 54 milljónum, mest fyrir áhrif af minni gengismun auk þess sem mikill sölu- hagnaður féll til á árinu 2002. Veltufé frá rekstri nam 661 milljón króna sam- anborið við 1.264 milljónir árið áður. Hlutfall veltufjár af rekstrartekjum var 10,2% en árið áður var það 18,5%. Guðmundur Kristjánsson segir að afkoma ÚA hafi verið heldur lakari en búist hafi verið við, sem sýni stöðu sjávarútvegsins í dag. Hann sé í erf- iðleikum og þurfi að vinna sig út úr þeim. Spurður að því hvort rekstur félagsins verði endurskoðaður í ljósi afkomunnar segir hann að stöðugt sé unnið að endurskoðun rekstrarins og nú sé einnig verið að vinna að því að ná fram framlegðaráhrifum milli Tjalds og ÚA. Fyrirtækið muni því taka breyting- um. Spurður um hugsanlegar uppsagnir segir Guð- mundur að engar fjöldauppsagnir séu framundan. ÚA sé hins vegar ekkert öðruvísi en önnur fyr- irtæki sem þurfi að ganga í gegnum skipulags- breytingar. Hann segir að ÚA sé með margar rekstrareiningar, bæði skip og landvinnslur víða um land. Verið sé að skoða þetta í heild, en ef rekstrarein- ingar gangi ekki upp þurfi að endurskoða þær. Hann segir niðurstöðu um hvað gert verði ekki liggja fyrir. Óviðunandi afkoma ÚA Fyrirtækið mun taka breytingum           ! "  #$% &$$ &'# ($ ● STRAUMUR Fjárfestingarbanki hefur keypt 5,9% eignarhlut í Kald- baki af Lífeyrissjóði Norðurlands. Samkvæmt upplýsingum um við- skipti í Kauphöll voru hlutabréfin keypt á genginu 6,35 en um var að ræða 103,5 milljón hluti. Kaup- verðið hefur því numið 657 millj- ónum króna. Þórður Már Jóhannesson, fram- kvæmdastjóri Straums, sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær að hlut- urinn væri keyptur í eigin bók bankans, ekki væri um milligöngu að ræða. Að öðru leyti vildi hann ekkert tjá sig um fjárfestinguna. Straumur eignast 5,9% í Kaldbaki Afkoma HB versnaði um milljarð ● TAP af rekstri Haraldar Böðv- arssonar nam röskum 107 millj- ónum árið 2003 og er það rúmlega einum milljarði lakari afkoma en árið áður. Rekstrartekjur félagsins námu 4,6 milljörðum króna og lækkuðu um 13% frá fyrra ári. Rekstrargjöld námu 3,9 milljörðum króna og lækkuðu um 7%. Hagnaður fyrir afskriftir nam 759 milljónum samanborið við 1.166 milljónir árið 2002. Sérstakar nið- urfærslur eignarhluta í félögum og varanlegra rekstrarfjármuna námu 204 milljónum. Þá voru fjármunaliðir neikvæðir um 109 milljónir og versn- uðu um nærri 570 milljónir á milli ára. HB verður sameinað Granda hf. á næstunni og mun sameiningin gilda frá sl. áramótum. SÍMINN hefur ákveðið að lækka verð um allt að 50% á háhraðagagna- flutningi. Eftir breytinguna verður eitt verð á þeim 40 stöðum, þar sem fyrirtækið býður upp á ADSL-þjón- ustu, en viðskiptavinir á þessum stöð- um hafa aðgang að 2 Mb/s tengingum og minni. Í tilkynningu fyrirtækisins segir að verðbreytingin sé mismikil eftir gagnahraða, en t.d. lækki 2 Mb/s tengingar á landsbyggðinni um 50%. Markmiðið er sagt vera að koma til móts við fyrirtæki með dreifða starf- semi á landinu, þannig að þau fái gagnaflutninga á sama verði og höf- uðborgarsvæðið hefur átt kost á. Eva Magnúsdóttir, upplýsinga- fulltrúi Símans, segir að breytingin sé að hluta af samkeppnisástæðum og að hluta viðleitni til að jafna verð úti um land og einfalda vörufram- setningu og verðskrá Símans í gagnaflutningi. Hún neitar því að pólitískur þrýstingur hafi ráðið ákvörðuninni, en verðskrá Símans í gagnaflutningum á landsbyggðinni hefur löngum verið gagnrýnd. Í tilkynningu Símans segir að verðbreytingin hafi mikil áhrif á fyr- irtæki með dreifða starfsemi á lands- byggðinni og á stórfyrirtæki, sem séu með útibú á stöðum, sem hafi aðgang að gagnaflutningsþjónustu Símans. Eftir breytinguna verði millisvæða- gjald vegna tengingar á milli svæða úr sögunni á 40 stöðum úti á landi. Síminn telur að fyrirtæki, sem hafi dreifða starfsemi á landsvísu, þ.e. starfsstöðvar í bæjarfélögum þar sem greitt hafi verið millisvæðaverð, geti átt von á 40% lækkun á gagna- flutningum. Fyrirtæki með mikið af 10 og 100 Mb/s tengingum á höfuð- borgarsvæðinu en lítið af öðrum tengingum megi vænta allt að 17% lækkunar. Ef gagnaflutningsnet fyr- irtækja sé sambland af þessu tvennu, þ.e. stórum tengingum á höfuðborg- arsvæðinu og öðrum tengingum á landsbyggðinni, verði lækkunin 17- 40%. Fyrir þau fyrirtæki, sem eru utan þeirra staða þar sem ADSL-þjónusta er í boði, en á stöðum með 150 íbúa eða fleiri, er áfram í gildi svokölluð landsbyggðarbrú, sem þýðir að Sím- inn greiðir fyrir 2 Mb/s stofnlínu inn í næstu þjónustustöð. Þetta samkomu- lag var gert við samgönguráðuneytið fyrir nokkrum árum. Síminn lækkar verð á gagnaflutningi FÉLAG í eigu Bjarna Ákasonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Aco-Tæknivali (ATV), mun opna sérhæfða Apple-tölvuverslun í Kaupmannahöfn í júlí nk. sem verð- ur sambærileg við íslensku Apple- verslunina sem rekin er í Braut- arholti 10 í Reykjavík. Bjarni segist ætla að gefa versl- uninni í Kaupmannahöfn þriggja mánaða reynslutíma og ef vel geng- ur á að opna níu verslanir til við- bótar um öll Norðurlöndin. „Þetta er bylgja sem farið hefur af stað á síðustu tveimur árum. Apple-fyrir- tækið hefur sjálft verið að opna stór- ar Apple-búðir í Bandaríkjunum og það hefur gengið mjög vel. Apple- búðin hér heima hefur líka gengið mjög vel og sala á Apple-vörum á Ís- landi jókst um 70% á síðasta ári.“ Hann segir að alls ætli Apple á Norðurlöndum að sjá til þess að opn- aðar verði 26 Apple-verslanir á Norðurlöndunum á næsta eina og hálfa árinu. Apple-fyrirtækið sjálft ætli sér ekki að opna verslanir inni í borgum í Evrópu, nema í mesta lagi í stórborgum eins og London og París. Annars staðar komi aðilar eins og Bjarni til sögunnar sem sam- starfsaðilar. Bjarni segist hafa verið í við- ræðum við fjárfesta um aðkomu að félaginu ef farið verður alla leið með búðirnar tíu. Hann segir að allar at- huganir sínar og Apple bendi til þess að rekstrarumhverfið sé gott. „Ef menn fara alla leið erum við að tala um fjárfestingu upp á 150 milljónir. Verslunin í Kaupmanna- höfn einni er fjárfesting upp á 25 milljónir,“ segir Bjarni Ákason. Opnar 10 Apple-versl- anir á Norð- urlöndunum Morgunblaðið/Ásdís Útrás Bjarni Ákason áformar að opna 10 Apple-verslanir á Norðurlöndum. Hægra megin er Oscar Bjers, framkvæmdastjóri Apple á Norðurlöndum. DÓMARI í Düsseldorf í Þýskalandi hefur gefið til kynna að þeir sex fyrr- um stjórnendur þýska fjarskipta- félagsins Mannesmann, sem Voda- fone símafyrirtækið yfirtók fyrir fjórum árum, verði sýknaðir vegna skorts á sönnungargögnum. Sak- sóknari brást við yfirlýsingu dóm- arans með því að segja að von væri á nýjum sönnunargögnum í næstu viku. Tíu vikur eru síðan réttarhöldin hófust. Málið snýst um meint trún- aðarbrot sem sex fyrrverandi stjórn- endur Mannesmann, þar á meðal Josef Ackermann, forstjóri Deutcshe Bank, stærsta banka Þýskalands, eiga að hafa framið gagnvart hlut- höfum Mannesmann. Mennirnir sátu í ráðgefandi stjórn Mannesmann þegar samþykkt var 183 milljarða dala, eða 12.600 milljarða króna, yf- irtökutilboð breska farsímafyrirtæk- isins Vodafone í Mannesmann árið 2000. Í kjölfarið samþykkti stjórnin svo himinháa kaupauka- og starfs- lokasamninga til handa fimm af þess- um sömu æðstu stjórnendum Mann- esmann, en þar var um að ræða upphæðir sem menn áttu ekki að venjast í þýsku viðskiptalífi. Málið, sem talið er vera tímamóta- mál, hefur vakið áleitnar spurningar um stjórnarhætti fyrirtækja og hvort ensk-amerísk fyrirtækjamenning og kaupaukakerfi sem þar tíðkast eigi heima í Þýskalandi. Stjórnendurnir fullyrða að kaupaukinn sé í samræmi við árangur stjórnendanna og hið góða yfirtökuverð sem þeir hafi tryggt í viðskiptunum. Réttarhöldin héldu áfram í gær en samkvæmt FT.com er talið er að ein- ungis eigi eftir að slíta þeim með formlegum hætti; í raun sé málinu lokið. Útlit fyrir sýknu í Mannes- mann málinu Saksóknari boðar ný sönnunargögn Reuters Gaman Josef Ackermann brosti eftir að dómarinn gaf til kynna að málið hefði enga stoð lengur vegna skorts á sönnunargögnum. FLUGLEIÐIR fjárfestingafélag hefur selt allan 10% eignarhlut sinn í Burðarási, áður Eimskipafélagi Ís- lands. Hver hlutur var seldur á 10,15 krónur en um var að ræða 444 milljónir hluta. Söluverðið hefur því numið 4,5 milljörðum króna. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins keyptu lífeyrissjóðir hluta- bréfin. Flugleiðir keyptu hlutabréfin í Burðarási um miðjan febrúar sl. á genginu 9,2 og nemur hækkunin miðað við sölugengið röskum 10%. Áhrif sölunnar á afkomu Flugleiða- samstæðunnar eru sögð nema 450 milljónum króna á þessu ári en hagnaður af viðskiptunum færist á fyrsta ársfjórðungi. Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, segir að ákveðið hafi ver- ið að slá til og selja bréfin þegar ljóst var að mikill áhugi væri fyrir þeim á markaði. „Okkur fannst þetta áhugaverður fjárfestingakost- ur þegar við keyptum bréfin. Svo sáum við að þau höfðu gefið ágæt- lega af sér og við gætum selt þau með góðum hagnaði eftir stuttan tíma.“ Hann segir að Flugleiðir hafi undanfarið verið að fjárfesta í öðru en hlutabréfum. „Við ákváðum þó í febrúar að prófa að fara inn á hlutabréfamarkaðinn og fengum þessa ágætu reynslu af því.“ Sigurður aftekur með öllu að hafa mætt andstöðu stærstu hlut- hafa í Burðarási. Hann hafi átt góð samskipti við þá sem þar stjórna. Alls voru ríflega 5,5 milljarða króna viðskipti með hlutabréf í Burðarási í gær. Lokaverð bréf- anna var 10,5 krónur sem er 5,53% hækkun frá deginum áður. Flugleiðir út úr Burðarási Söluhagnaður 450 milljónir króna
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.