Morgunblaðið - 02.04.2004, Síða 13
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 13
SKYLDI einhverjum finnast hann sjá svip
með hundi og eiganda hans þá er sá hinn
sami á réttri leið. Sprenglærðir vísindamenn
við Kaliforníuháskóla í San Diego hafa kom-
ist að þeirri niðurstöðu, eftir miklar rann-
sóknir, að fólk velji sér einmitt hund sem því
finnst líkjast því sjálfu, jafnt í útliti sem inn-
ræti. Þetta á þó aðeins við um hreinræktaða
hunda, ekki bastarðana. Rannsóknin fór
þannig fram, að 28 sálfræðinemum voru
sýndar myndir af 45 hundum, 25 hreinrækt-
uðum og 20 blönduðum, en þær höfðu verið
teknar af handahófi í þremur görðum í San
Diego. Síðan voru þeim sýndar myndir af
eigendunum og beðnir að giska á hver ætti
hvaða hund. Niðurstaðan var sú, að í hrein-
ræktuðu hundunum giskuðu þeir rétt 16
sinnum en rangt níu sinnum. Í blönduðu
hundunum höfðu þeir aðeins sjö sinnum rétt
fyrir sér.
Brjóstin í banni
MIKIÐ uppnám varð í Bandaríkjunum fyrir
skömmu er söngkonan Janet Jackson ber-
aði annað brjóstið á tónleikum og var hún í
fyrstu víða útilokuð frá því að koma fram
auk þess sem þessi alvarlegi atburður var
sérstaklega ræddur á Bandaríkjaþingi. Það
fer sem sagt ekkert á milli mála að konu-
brjóst er grafalvarlegur hlutur í Vest-
urheimi og eigendur veitingastaðarins The
Sutler í Nashville í Tennessee hafa verið
minntir á það. Í langan tíma hafa þeir
skreytt matseðilinn með nöktum konum,
myndum af gömlum listaverkum, en nú
hafa yfirvöld varað þá alvarlega við að vera
með svona grófar myndir á stað, sem selur
áfengi. Hafa eigendurnir brugðist við með
því að setja svartan blett yfir brjóstin á
gömlu listaverkunum og á aðra viðkvæma
staði og bíða þess nú að sjá hvort þeir kom-
ist upp með það eitt.
3ja kynslóðin óþörf
TÆKNIGLAÐIR Svíar trúðu ekki sínum
eigin augum í gærmorgun, 1. apríl, þegar sú
frétt birtist í stærsta dagblaðinu, Dagens
Nyheter, að farið hefði verið með þúsundir
milljarða króna að nauðsynjalausu í þriðju
kynslóð farsímanna. Það væri nefnilega
komið í ljós, að unnt væri að sjá kvikmyndir
á skjánum í gömlu símunum ef þeim væri
beint að sjónvarpstækinu. Í viðtali blaðsins
við Hubert Hochsztapler hjá KTH, helsta
tækniskólanum í Svíþjóð, segir hann, að
þetta hefði komið í ljós fyrir algera tilviljun.
„Ég var að stilla upptökuna á myndbands-
tækinu mínu eitt kvöldið og tók þá upp far-
símann í staðinn fyrir fjarstýringuna. Þegar
ég ýtti á rétta takkann, sem ég hélt vera, sá
ég mér til mikillar furðu, að myndin birtist á
gamla farsímaskjánum,“ sagði Hochsztapler.
Með fréttinni birtist mynd eða teikning,
sem sýndi hvernig hægt væri að breyta ann-
arrar kynslóðar farsíma í nýja tækniundrið
með því einu að hrista hann duglega.
Alvarleg yfirsjón
MAÐUR nokkur, sem varð fyrir því óhappi
að falla í stiga er hann var að fara út úr
flugvél í Miami á Florida, hefur nú höfðað
mál gegn flugfélaginu US Airways. Í stefn-
unni segir, að félagið hafi sýnt vítavert
skeytingarleysi með því að vara manninn
og aðra farþega ekki við afleiðingum þess
að hvolfa í sig áfengi um borð í vélinni.
Krefst hann rúmlega einnar milljónar
króna í bætur frá flugfélaginu. Vildi tals-
maður þess ekkert um þá kröfu segja.
ÞETTA GERÐIST LÍKA
Ekki leiðum
að líkjast
Reuters
EKKI er ólíklegt, að gáfnaljósin velji
sér þessa tík en hún er „collie“ eða af
skosku fjárhundakyni. Hefur það
lengi verið rómað fyrir vitsmuni.
Besti vinurinn
PAUL Bremer, æðsti fulltrúi
Bandaríkjastjórnar í Írak, for-
dæmdi í gær dráp á fjórum Banda-
ríkjamönnum í írösku borginni Fall-
ujah í fyrradag, sagði þau
„fyrirlitleg og óafsakanleg“ og hét
því að refsað yrði fyrir þau.
„Þetta fyrirlitlega og óafsakan-
lega framferði brýtur í bága við
kenningar allra trúarbragða, meðal
annars íslam,“ sagði Bremer þegar
hann ávarpaði 479 Íraka sem braut-
skráðust úr lögregluskóla í Bagdad.
„Morðingjunum verður refsað.“
Vopnaðir menn réðust á tvo bíla í
Fallujah í fyrradag og drápu fjóra
Bandaríkjamenn er störfuðu fyrir
fyrirtæki sem veitir öryggisþjón-
ustu í Írak. Borgarbúa dreif að og
eftir að hafa horft á líkin brenna í
bílunum drógu þeir tvö þeirra eftir
götunum, misþyrmdu þeim og
hengdu upp í nálæga brú þar sem
þau voru grýtt.
Íbúar Bagdad sögðust hafa fyllst
skömm og viðbjóði á þessu athæfi.
„Ég skammast mín fyrir þá sem
gerðu þetta og veit að þeir iðrast
þess þar sem þetta voru menn eins
og við, áttu fjölskyldur og börn. Það
sem gerðist er í andstöðu við kenn-
ingar íslam,“ sagði 33 ára barna-
skólakennari í Bagdad.
Líkin gerð illsýnileg
Stærstu sjónvarpsstöðvarnar í
Bandaríkjunum sýndu myndir af
árásinni en ekki óhugnanlegustu
myndskeiðin. Í kvöldfréttum ABC,
CBS og NBC hafði myndunum ver-
ið breytt þannig að líkin voru illa
sýnileg. „Við þurftum ekki að sýna
allt til að koma hryllingnum til
skila,“ sagði Steve Capus, upptöku-
stjóri kvöldfrétta NBC.
Fox sýndi aðeins myndir af
brennandi bílum Bandaríkjamann-
anna og sigri hrósandi fólki sem
hópaðist saman á götunni. CNN
sýndi nokkurra sekúndna mynd-
skeið þar sem líkin sáust hanga í
brú.
Embættismenn í bandaríska
varnarmálaráðuneytinu og Hvíta
húsinu sögðust ekki hafa beðið fjöl-
miðlana um að sýna ekki myndirn-
ar.
Nokkur dagblöð ákváðu að birta
myndir af líkunum en önnur ekki.
„Við ákváðum að fara milliveginn,“
sagði Howard Schneider, ritstjóri
Newsday sem birti tvær myndir þar
sem líkin sáust. „Yfirleitt er stefna
okkar sú að birta ekki myndir sem
sýna ofbeldi á skýran og óhugnan-
legan hátt. Á hinn bóginn getur eðli
ofbeldisins verið fréttnæmt og við
viljum ekki hlífa fólki við því að sjá
heiminn eins og hann er.“
Nokkrir fjölmiðlasérfræðingar
hafa gagnrýnt bandaríska fjölmiðla
fyrir að forðast að sýna afleiðingar
stríðsins í Írak og hreinsa fréttirnar
af öllu því sem talið er óhugnanlegt.
Minnir á atburðina í Sómalíu
Atburðurinn í Fallujah minnti á
myndir af líki bandarísks hermanns
sem dregið var eftir götum Mogad-
ishu í Sómalíu árið 1993. Þær mynd-
ir vöktu mikinn óhug meðal Banda-
ríkjamanna og stuðluðu að því að
Bill Clinton, þáverandi forseti,
ákvað að kalla bandarísku hersveit-
irnar í Sómalíu heim.
Nokkrir sérfræðingar sögðu ólík-
legt að myndirnar frá Fallujah
hefðu svipuð áhrif. „Myndirnar frá
Sómalíu komu sem þruma úr heið-
skíru lofti og fengu mjög á banda-
rískan almenning,“ sagði David
Perlmutter, höfundur tveggja bóka
um stríðsfréttaljósmyndun. „Við
fáum myndir frá Írak á hverjum
degi og ég tel því að áfallið verði
minna.“
Bremer fordæmir „fyrir-
litleg“ dráp í Fallujah
Bagdad, Washington. AFP, AP, Newsday.
Bandarískir fjölmiðlar ákváðu að sýna ekki óhugnanlegustu myndirnar
ÍSRAELSKUR landamæra-
lögreglumaður sendi Palest-
ínumanni ótvíræð skilaboð í
þorpinu Kharbata á Vest-
urbakkanum í gær, þegar Ísr-
aelarnir hófu að rífa þar hús
sem ísraelsk stjórnvöld segja að
hafi verið reist í leyfisleysi. Pal-
estínumennirnir sögðu aftur á
móti að ástæða niðurrifsins
væri sú, að húsið væri í eigu
herskás Hamas-liða.
Reuters
Skýr skilaboð á Vesturbakkanum
LEIÐTOGAR Kýpur-Grikkja og
Kýpur-Tyrkja héldu heim frá sviss-
nesku Ölpunum í gær, þar sem þeir
höfðu setið á rökstólum í meira en
viku – ásamt ríkisstjórnaleiðtogum
Grikklands og Tyrklands – í þeim
tilgangi að freista þess að ná saman
um eigin sameiningaráætlun. Það
tókst ekki svo að Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, tilkynnti að lokaútgáfa áætl-
unar SÞ um sameiningu Kýpur yrði
borin undir þjóðaratkvæði á meðal
beggja þjóðarbrota hinn 24. apríl.
Denktash neikvæður
Tyrknesk stjórnvöld eru mjög
áfram um að SÞ-áætlunin verði
samþykkt, en samkvæmt henni
myndi Kýpur ganga sameinuð í
Evrópusambandið 1. maí. Ella fær
eingöngu gríski hluti eyjarinnar að-
ild.
Rauf Denktash, leiðtogi Kýpur-
Tyrkja sem ekki var sjálfur við-
staddur viðræðurnar í svissneska
fjallabænum Bürgenstock, lýsti því
yfir í gær að þrátt fyrir að SÞ-
áætlunin hefði skánað gæti hann
ekki mælt með því að landar sínir
samþykktu hana. Aðrir kjörnir
fulltrúar Kýpur-Tyrkja voru aftur á
móti mun jákvæðari og þykir ekki
ósennilegt að meirihluti kjósenda á
hinum tyrkneska norðurhluta Kýp-
ur muni samþykkja hana, þrátt fyr-
ir neikvæðni Denktash.
Öðru máli gegnir í gríska hlut-
anum. Kýpur-gríski forsetinn,
Tassos Papadopoulos, yfirgaf fund-
arstaðinn í Sviss án þess að segja
aukatekið orð opinberlega um nið-
urstöðuna. Costas Karamanlis, for-
sætisráðherra Grikklands, dró hins
vegar enga dul á vonbrigði sín. „Því
miður reyndist ekki unnt að ná
samkomulagi. Það er nú undir kjós-
endum á Kýpur komið að taka
ákvörðun og ég vona að þeir geri
það af yfirvegun og framtíðarsýn,“
sagði hann.
Sögulegt tækifæri
Annans bíður nú það erfiða verk-
efni að telja gríska meirihlutann á
Kýpur um að greiða SÞ-áætluninni
atkvæði sitt. „Höfum eitt á hreinu,“
sagði Annan. „Valið stendur ekki á
milli þessarar áætlunar og ein-
hverrar óræðrar töfralausnar. Í
reynd stendur valið aðeins milli
þessa samkomulags og einskis sam-
komulags.“
Fulltrúar Evrópusambandsins
og Bandaríkjastjórnar hvöttu Kýp-
verja eindregið til að samþykkja
sameiningaráætlunina. Hún væri
sögulegt tækifæri sem þeir ættu
ekki að láta sér úr greipum ganga.
Kýpur hefur verið skipt frá því
Tyrkir hertóku norðurhlutann árið
1974, í kjölfar skammvinnrar upp-
reisnar Kýpur-Grikkja sem vildu
sameiningu við Grikkland. Enn er
40.000 manna tyrkneskt setulið á
Norður-Kýpur.
Tyrkir jákvæðir en Grikkir neikvæðir
Óvíst hvort kjósendur verða sáttir við áætlun SÞ um sameiningu Kýpur
Fürigen, Nicosiu. AP, AFP.