Morgunblaðið - 02.04.2004, Page 14

Morgunblaðið - 02.04.2004, Page 14
STJÓRN Sri Lanka sendi í gær þús- undir hermanna til að aðstoða lög- regluna við að koma í veg fyrir átök vegna þingkosninga sem fram fara í landinu í dag. Búist er við að enginn flokkur fái meirihluta á þinginu og gæti það grafið frekar undan friðar- umleitunum í landinu fyrir milligöngu Norðmanna. Embættismenn í varnarmálaráðu- neyti Sri Lanka sögðu að hermenn- irnir hefðu verið sendir á staði þar sem hætta væri á átökum eða árás- um. Chandrika Kumaratunga forseti boðaði til kosninganna í von um að þær bindu enda á valdabaráttu henn- ar og Ranils Wickremesinghe for- sætisráðherra og deilur þeirra um stefnu hans í friðarviðræðunum fyrir milligöngu Norðmanna. Kumaratunga sakar forsætisráð- herrann um að hafa gefið of mikið eft- ir í viðræðum við skæruliðasveitir tamíl-tígra (LTTE) sem berjast fyrir sjálfstæðu ríki tamíla í norðaustur- hluta Sri Lanka. Markmiðið er að binda enda á átök sem hafa kostað yf- ir 60.000 manns lífið frá 1972. Tamílar í oddaaðstöðu Búist er við að bandamenn LTTE í Þjóðarbandalagi tamíla (TNA) fái 15– 18 þingsæti í kosningunum. Hugsan- legt er að þeir komist í oddaaðstöðu á þinginu þar sem sérfræðingar í stjórnmálum landsins búast við því að enginn flokkur fái meirihluta. Svo gæti því farið að minnihlutastjórn yrði háð stuðningi tamíl-tígranna, sem mörg ríki hafa skilgreint sem hryðjuverkamenn, þeirra á meðal Bandaríkin og Indland. Wickremesinghe lítur á kosning- arnar sem þjóðaratkvæðagreiðslu um friðarviðræður hans við tamíl-tígr- ana. Myndi flokkur hans, Sameinaði þjóðarflokkurinn (EJP), næstu stjórn gæti það orðið til þess deilur forsætis- ráðherrans og forsetans, sem leiddu til kosninganna, héldu áfram. Wickremesinghe kvaðst ekki búast við valdabaráttu milli hans og forset- ans eftir kosningarnar. „Kumarat- unga óskaði eftir umboði þjóðarinnar og ef við sigrum á hún einskis annars úrkosti en að vinna með okkur,“ sagði forsætisráðherrann í kosningabarátt- unni. Kumaratunga segist hins vegar ekki geta unnið með forsætisráð- herranum. Forsetinn er í Þjóðarbandalaginu (BNP) sem hefur myndað bandalag með marxistaflokknum JVP. Myndi bandalagið næstu stjórn Sri Lanka gæti komið til deilna milli BNP og JVP um friðarviðræðurnar og efna- hagsmál. Kumaratunga vill að tamílar fái sjálfstjórnarréttindi og að Sri Lanka verði sambandsríki en forystumenn JVP eru andvígir því. Forsetinn að- hyllist frjálst markaðshagkerfi en JVP leggst gegn einkavæðingu og flokkana greinir einnig á um hvernig standa eigi að friðarviðræðum við tamíl-tígrana. Jafnvel þótt næsta stjórn Sri Lanka samþykki að hefja friðarvið- ræður þegar í stað gætu þær farið út um þúfur vegna alvarlegs klofnings í röðum tamíl-tígranna. Klofningurinn og deilur forsetans og forsætisráð- herrans hafa skyggt á önnur mál, svo sem mikið atvinnuleysi og verðbólgu. Mikil spenna á Sri Lanka vegna kosninga Búist er við að enginn flokkur muni ná að tryggja sér meirihluta á þingi AP Lögreglumaður fylgir starfsmanni kjörstaðar í Colombo á Sri Lanka þegar kjörkassar voru fluttir þangað í gær.     .23 452 6787              !!"# $   % &'(  )(  '*(  +,-  ./         0    2&'(3 $ 0    2 )(3 '4*  4 (2'*(3 $ 0  15 +2+,-3 .     2 ./3                     +,-      ! " 2+) 5   Colombo. AFP. ERLENT 14 FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ BRESKIR vísindamenn íhuguðu þann möguleika að koma fyrir lif- andi hænuungum í kjarnorku- sprengju til að koma í veg fyrir að vélbúnaður hennar frysi. Þetta kom fram í gær, er opnuð var sýningin „Leyniríkið“ í breska ríkisskjala- safninu í London. Talsmaður safns- ins fullyrti að ekki væri um apr- ílgabb að ræða, þótt fjölmargir teldu svo vera. Á sýningunni í ríkisskjalasafninu er m.a. birt leynileg skýrsla frá varnarmálaráðuneytinu frá árinu 1957 þar sem fram kemur að vís- indamenn hafi talið koma til greina að setja lifandi hænuunga í plút- óníumhlaðna jarðsprengju. Lík- amshitinn frá kjúklingunum var talinn geta komið í veg fyrir að vél- búnaður í sprengjunni myndi frjósa. Í skýrslunni eru nefndar ýmsar mögulegar aðferðir til að lengja líf- tíma sprengjunnar, m.a. að „koma fyrir í henni einhvers konar hitara sem hefur sjálfstæðan orkugjafa ... Hænuungar ... koma til greina“. Sprengjan, sem kölluð var Blái pá- fuglinn, var sjö tonn og var útbúin fjarstýringu eða tímastillingu og hugmyndin var að hún yrði sprengd úr fjarlægð ef flýja þyrfti undan sovésku innrásarliði. Andy Oppenheimer, einn rit- stjóra Jane’s World Armies, kvaðst eiga bágt með að trúa því að hug- myndin um hænuungana hafi verið íhuguð í alvöru. „Þetta hlýtur að vera aprílgabb,“ sagði Oppen- heimer. „Hugmyndin hlýtur að hafa verið að setja trefjagler utan um [vélbúnaðinn].“ Sum bresk dagblöð voru einnig efins. „Er þetta rétti dagurinn til að segja frá kjúklingakjarnorku- sprengjunni?“ spurði The Times of London og skírskotaði þar til dag- setningarinnar, 1. apríl. Engu að síður greindi blaðið frá málinu á forsíðu. „Þetta hljómar eins og apr- ílgabb, en er það svo sannarlega ekki,“ hafði blaðið eftir Tom O’Leary, yfirmanni mennt- unardeildar safnsins. Rík- isskjalasafnið staðfesti í tölvuskeyti til AP-fréttastofunnar að kjúk- lingakjarnorkusprengjan væri ekki gabb. Þróun Bláa páfuglsins hófst 1954 og var markmiðið að beita kjarn- orkugeislun til að menga landsvæði svo að óvinurinn gæti ekki lagt það undir sig. Hönnunin byggðist á ann- arri breskri sprengju, sem gerð var til að varpa úr flugvél, en í þeirri sprengju var plútóníumkjarni um- lukinn sprengiefni og kveikjum á yfirborðinu. Yfirmenn breska hersins ákváðu árið 1957 að láta smíða tíu páfugla- jarðsprengjur sem breskar her- deildir, staðsettar við Rín í Þýska- landi, myndu fá. En ári síðar ákvað varnarmálaráðuneytið að hætta smíði páfuglasprengjunnar, vegna þess að áhyggjur höfðu vaknað af því hvaða afleiðingar beiting henn- ar kynni að hafa. Var kjúklinga- kjarnorkusprengj- an aprílgabb? Reuters London. AP. ’Þetta hljómar eins og aprílgabb, en er það svo sannarlega ekki.‘ Alþjóðadómstóllinn Bandaríkin virtu ekki rétt 51 Mexíkóa Haag. AP. ALÞJÓÐADÓMSTÓLLINN í Haag kvað í fyrradag upp þann úrskurð að bandarísk dómsmálayfirvöld hafi brotið réttindi 51 Mexíkóa sem situr á dauðadeildum í bandarískum fang- elsum, og skuli mál Mexíkóanna tek- in upp aftur. Mexíkósk yfirvöld fóru með mál 52 Mexíkóa, sem dæmdir hafa verið til dauða í Bandaríkjunum, fyrir Al- þjóðadómstólinn, á þeim forsendum að Mexíkóarnir hafi ekki fengið að leita aðstoðar mexíkóskra yfirvalda, svo sem væri réttur þeirra. Sjaldgæft er að niðurstöður Al- þjóðadómstólsins séu virtar að vett- ugi, en telji ríki, sem höfðar þar mál, að hinn málsaðilinn hafi ekki farið að úrskurði dómstólsins er hægt að taka málið upp fyrir öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Forsenda málshöfðunar Mexíkós gegn Bandaríkjunum er Vínarsátt- málinn frá 1963, þar sem kveðið er á um að þeir sem sakaðir eru um alvar- lega glæpi þegar þeir eru staddir er- lendis eigi rétt á að leita aðstoðar stjórnvalda í heimalandi sínu, og skuli þau lögregluyfirvöld sem hand- taka viðkomandi gera honum grein fyrir þessum rétti. Sendiherra Bandaríkjanna í Hol- landi, Clifford Sobel, kvaðst ánægð- ur með suma þætti úrskurðar Al- þjóðadómstólsins. Án efa komi til greina að bandarísk alríkisyfirvöld fyrirskipi yfirvöldum í þeim ríkjum Bandaríkjanna sem um ræðir að taka mál Mexíkóanna upp aftur. STEFNA Bandaríkjastjórnar í þjóðaröryggismálum áður en hryðjuverkin 11. september 2001 voru unnin miðaðist fyrst og fremst við hættu á árás- um með lang- drægum eld- flaugum, en ekki hættuna á hryðjuverk- um, að því er dagblaðið The Washington Post greindi frá í gær. Þjóðaröryggisráðgjafi Georges W. Bush Bandaríkja- forseta, Condoleezza Rice, hugðist halda ræðu daginn sem hryðjuverkin voru fram- in, og leggja þar áherslu á að ný stefna í þjóðaröryggismál- um yrði byggð á vörnum gegn eldflaugaárásum, hafði blaðið eftir fyrrverandi bandarískum embættismönnum sem hafa lesið ræðuna. Hvíta húsið neitar að birta ræðuna, sem aldrei var flutt, en blaðið segir að í ræðunni komi fram gagnrýni á stjórn Bills Clintons, fyrrverandi forseta, fyrir að bregðast ekki nægilega hart við eldflauga- ógninni. Í ræðu Rice sé minnst á hryðjuverkaógn, en einungis frá ríkjum á borð við Írak, ekki frá öfgahópum. Nú stendur yfir rannsókn óháðrar nefndar á stefnu stjórnar Bush í hryðjuverka- vörnum fyrir og eftir 11. sept- ember 2001. Er Rice meðal þeirra sem eiga eftir að bera vitni fyrir nefndinni. Áherslan var á eld- flaugar Washington. AFP. Rice

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.