Morgunblaðið - 02.04.2004, Page 18
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Tvö menningarhús | Uppi eru hug-
myndir um að leggja fjármagn í tvö menn-
ingarhús í Skaga-
firði.
Félagsheimilið
Miðgarður í
Varmahlíð verður
gert upp sem tón-
listarhús Skag-
firðinga og byggt
verður hús fyrir
alhliða menningar-
miðstöð við Faxa-
torg á Sauðárkróki, í tengslum við Safna-
húsið.
Þessar upplýsingar koma fram á heima-
svæði Gísla Gunnarssonar, forseta sveit-
arstjórnar, á nýjum vef sveitarfélagsins en
hann á sæti í nefnd um uppbyggingu menn-
ingarhúsa í Skagafirði. Gísli tekur fram að
þótt ríkið komi myndarlega að fjármögnun
verði þessar framkvæmdir eigi að síður
kostnaðarsamar fyrir sveitarfélagið.
Vonast Gísli til að framkvæmdir við Mið-
garð geti hafist á næsta ári og við Faxatorg
ári síðar.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Sumarhús í Sælingsdal | Stefnt er að
því að ljúka vinnu við hönnun sum-
arhúsabyggðar í Sælingsdals-
tungu og á Laugasvæðinu í
Sælingsdal í Dalabyggð í vor
og hefja úthlutun lóða í sumar.
Í fréttabréfi Dalabyggðar
segir sveitarstjórinn, Har-
aldur L. Haraldsson, að með
uppbyggingu svæðisins eigi að skapast
mikil vinna fyrir heimamenn bæði við fram-
kvæmdir við svæðið sjálft og jafnvel við
byggingu sumarbústaða. Til greina komi að
selja eða leigja lóðir bæði með og án sum-
arbústaða. Þannig gætu heimaverktakar
byggt bústaði og selt.
Golf í íþróttahúsinu | OLÍS hf. færði
Íþróttahúsinu á Skagaströnd og Golf-
klúbbnum skólagolftösku að gjöf á dög-
unum. Í henni eru fjórtán kylfur og átta
grasmottur, auk pútthringja og golfbolta.
Að því er fram kemur á vef Höfðahrepps
verður á næstunni haldið námskeið fyrir
nemendur Höfðaskóla í golfi, til þess að
kenna þeim notkun á þessum áhöldum.
Í nýjasta hefti tímaritsOECD um skóla-mannvirki er að finna
ítarlega grein um und-
irbúning hönnunar nýja
fjölbrautaskólans í Grund-
arfirði. Höfundur grein-
arinnar, Susan Stuebing,
stýrði síðastliðið sumar
vinnuhópum verðandi
nemenda og sérfræðinga
og foreldra, sem lagði síð-
an línurnar fyrir arkitekta
hússins, Sigurð Björgúlfs-
son og Indro Candi frá VA
arkitektum.
Sagt er frá hönnun
hússins í frétt á vef
Grundarfjarðarbæjar. Þar
kemur fram að vinnuhóp-
arnir, ekki síst fulltrúar
nemenda, hafi óskað eftir
nútímalegu húsi. Arkitekt-
arnir hafi svarað kallinu
og lagt fram teikningu að
húsi sem á að líkjast litlu
þorpi með innanhúss götu
eða torgi sem á að stuðla
að góðum félagslegum
tengslum.
Lítið þorp
Sandgerði | Mikið hefur
verið fjallað um Guðríði
Símonardóttur og Hall-
grím Pétursson að und-
anförnu. Leikurinn hefur
meðal annars borist inn í
Hvalsneskirkju en Hall-
grímur var vígður til
prests í Hvalsnesi og þar
bjuggu þau Guðríður um
tíma.
Lokið er fyrirlestraröð
sem Steinunn Jóhann-
esdóttir hélt í Safn-
aðarheimilinu í Sand-
gerði. Sagði hún frá
Tyrkjaráninu 1627 og lífi
Hallgríms og Guðríðar.
Þá kom Jón Böðv-
arsson fræðimaður með
um 100 manna hóp í
Hvalsneskirkju. Fólkið er
á námskeiði hjá Jóni um
Passíusálma Hallgríms.
Flutt voru lög við sálma
Hallgríms og Jón og
Steinunn Jóhannesdóttir
sögðu frá sálmaskáldinu.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Fræðst um sálmaskáldið
Þeir SteingrímurSigfússon og Hall-dór Blöndal háðu
rimmu á Alþingi út af
Laxármálinu og einhver
sagði að Steingrímur
væri eins og gömul spá-
kona. Hann kallaði fram í
fyrir Halldóri ótt og títt
að hann hefði talað sig
dauðan í málinu. Jón orti:
Hafið í dag er hörkuþing,
Halldór er hvorki sár né blauður;
spjallið er hvasst og spekin slyng,
þótt spákonan segi að hann sé
dauður.
Halldór Blöndal orti um
Jón Kristjánsson á nýaf-
stöðnu hagyrðingakvöldi
á Húsavík:
Ég horfi á manninn hæverskan
hóglátan og seinlátan;
allt er rótt og hægt um hann
heilbrigðismálaráðherrann.
Halldóri var strítt á því að
hann hallaði höfðinu og
svaraði með því að yrkja
um skegg, halla og skalla:
Geng ég upp um hugarhjalla
horfi niður á þessa karla
hafa bæði skegg og skalla
skilning vondan, engan halla.
Skegg, halli og
skalli
pebl@mbl.is
Reyðarfjörður | Á dögunum
komu til Reyðarfjarðar 24 ung-
menni frá Japan. Þau voru á
vegum friðarsamtaka sem nefn-
ast The Japan Friends of the
World Association. Markmið
samtakanna er að ungt fólk
kynnist menningu, máli og venj-
um ólíkra þjóða og þjóðflokka.
Kennarar og nemendur
Grunnskóla Reyðarfjarðar tóku
á móti japönsku gestunum sem
gistu í heimahúsum. Dagskrá
þeirra var fjölbreytt, meðal ann-
ars var komið víða við í Fjarða-
byggð. Haldin var skemmtun í
íþróttahúsinu þar sem áhorf-
endapallarnir voru þéttsetnir.
Sýnd voru íslensk og japönsk
glímubrögð, sungið, spilað og
dansað. Gestirnir fylgdust með
kennslu í grunnskólanum, sátu í
tímum þar sem nemendur
kenndu hverjir öðrum að skrifa
á íslensku og japönsku, þæfðu
ull og mótuðu í kúlu sem varð að
páskaunga hjá 1. bekkingum.
Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir
Japönsk ungmenni í heimsókn
Friður
FÉLAGSFUNDUR í Drífanda stéttar-
félagi í Vestmannaeyjum samþykkti í
fyrrakvöld ályktun þar sem mótmælt er
harðlega tilraunum fiskverkenda í Vest-
mannaeyjum til að lækka laun fiskverka-
fólks frá því sem verið hafði.
Félagsmenn felldu sem kunnugt er ný-
gerða kjarasamninga Starfsgreinasam-
bandsins við Samtök atvinnulífsins. Fund-
urinn lýsti yfir fullu trausti við
samninganefnd félagsins og hvatti hana til
að standa tryggan vörð um þær launaupp-
bætur sem fengist hafa með harðri baráttu
í gegnum árin.
Mótmæla til-
raunum til að
lækka laun
fiskverkafólks
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
FJÖGUR tilboð bárust í byggingu sund-
laugarmannvirkja á Laugum í Þingeyjar-
sveit. Öll tilboðin voru undir kostnaðar-
áætlun en það lægsta var frá Trésmiðjunni
Rein ehf.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 100,7
milljónir kr. Rein ehf. býðst til að byggja
laugina fyrir rúmar 85 milljónir kr. sem er
84,4% af áætlun.
Ráðgert er að ákvörðun um við hvaða
verktaka verði samið liggi fyrir um miðjan
apríl. Þingeyjarsveit og ríkið standa að
byggingu mannvirkjanna sem byggð verða
við íþróttahúsið á Laugum. Um er að ræða
25 metra langa keppnissundlaug ásamt
tveimur heitum pottum.
Verkinu á að ljúka fyrir miðjan júní árið
2005.
Tilboð í sundlaug
á Laugum undir
kostnaðaráætlun
♦♦♦