Morgunblaðið - 02.04.2004, Qupperneq 22
AKUREYRI
22 FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Ein með öllu
Spektro
www.islandia.is/~heilsuhorn
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889,
fæst m.a. í Lífsins lind í Hagkaupum,
Fjarðarkaupum,
Árnesapóteki Selfossi og
Yggdrasil, Kárastíg 1.
Multivitamín, steinefnablanda
ásamt spirulínu, Lecthini, Aloe
vera o.fl. fæðubótarefnum.
Akureyrarbær • Geislagötu 9 • 600 Akureyri • Sími 460 1000 • Fax 460 1001 • www.akureyri.is
HÖNNUNARSAMKEPPNI
Menntamálaráðuneytið og Akureyrarbær bjóða til opinnar hönnunarsamkeppni um nýbyggingu fyrir
menningarhús á Akureyri. Í menningarhúsinu er ráðgert að verði tónlistarsalur og aðstaða til
annarrar fjölþættrar starfsemi, svo sem fyrir ráðstefnuhald, listviðburði, fundi, sýningarhald o.fl.
Áætluð stærð hússins er um 3.500 m².
Samkeppnin fer fram í samræmi við samkeppnisreglur Arkitektafélags Íslands og er hér um
framkvæmdakeppni að ræða, þar sem leitað er eftir tillögu til útfærslu.
Heildarverðlaunafé hefur verið ákveðið kr. 8.000.000. Stefnt er að því að veita þrenn verðlaun og að
verðlaunafé skiptist þannig:
1. verðlaun kr. 4.000.000.
2. verðlaun kr. 2.500.000.
3. verðlaun kr. 1.500.000.
Að auki hefur dómnefnd heimild til innkaupa á keppnistillögum fyrir allt að kr. 1.500.000.
Trúnaðarmaður samkeppninar er Guðrún Guðmundsdóttir, arkitekt FAÍ, framkvæmdastjóri AÍ, sími:
551 1474, gsm: 845 9294, bréfsími: 562 0465, netfang gudrun@ai.is, og ber að senda henni allar
fyrirspurnir varðandi samkeppnina.
Samkeppnisgögn verða afhent endurgjaldslaust frá og með þriðjudeginum 6. apríl 2004 á skrifstofu
Arkitektafélags Íslands, Engjateigi 9, 105 Reykjavík milli kl. 9.00 og 13.00 virka daga. Einnig verður
unnt að nálgast keppnislýsinguna á heimasíðu Akureyrarbæjar, www.akureyri.is, og Arkitektafélags
Íslands, www.ai.is.
Samkeppnistillögum skal skila til trúnaðarmanns á skrifstofu Arkitektafélags Íslands,
Engjateigi 9, 2. hæð, 105 Reykjavík, eigi síðar en mánudaginn 5. júlí 2004.
Samkeppni þessi er auglýst á EES-svæðinu. Tungumál keppninnar er íslenska.
STARFSEMI Sparisjóðs Norðlend-
inga gekk vel á árinu 2003. Hagnaður
af starfseminni nam 58 milljónum
króna og var nokkuð lægri en árið á
undan, þegar hann var 80 milljónir.
Afkoman er engu að síður ágæt og
eru stjórnendur sparisjóðsins
ánægðir með árangurinn á liðnu ári,
að því er segir í frétt frá fyrirtækinu.
„Ég er ánægður með árangurinn á
liðnu ári,“ segir Jón Björnsson spari-
sjóðsstjóri. „Það er áfram mikill
vöxtur í starfseminni. Innlán og útlán
jukust á milli ára og arðsemi af starf-
seminni er 15%. Sparisjóður Norð-
lendinga er fyrst og fremst í hefð-
bundinni bankastarfsemi og
yfirgnæfandi meirihluti viðskipta-
manna okkar er einstaklingar og
minni fyrirtæki. Við erum ekki í
áhætturekstri og til dæmis myndi
það ekki hafa nein veruleg áhrif á af-
komu sparisjóðsins þótt miklar
sveiflur yrðu á hlutabréfamörkuðum
heimsins. Við leggjum áherslu á að
vera traust, vinaleg og persónuleg
bankastofnun þar sem fólki líður vel
að eiga sín viðskipti,“ segir Jón enn-
fremur.
Bókfært eigið fé Sparisjóðs Norð-
lendinga í lok árs 2003 nam 468 millj-
ónum. Eiginfjárhlutfall, reiknað
samkvæmt lögum um fjármálafyr-
irtæki, er 12,2% en samkvæmt lög-
unum má hlutfallið ekki vera lægra
en 8%. Skuldir og eigið fé námu sam-
tals ríflega 4,6 milljörðum króna í
árslok 2003, samanborið við 4,1 millj-
arð árið áður.
Útlán í árslok 2003 námu rúmum
3,1 milljarði króna og hækkuðu um
rúmar 370 milljónir (13,4%) milli ára.
Skuldabréfalán eru þar fyrirferð-
armest, eða ríflega tveir milljarðar
en yfirdráttarlán nema rúmum millj-
arði króna. Um 75% af útlánum
sparisjóðsins eru til einstaklinga.
Innlán námu í árslok tæpum 3,5
milljörðum króna og höfðu hækkað
um 719 milljónir (26,3%) milli ára.
Vaxtatekjur námu 427 milljónum og
vaxtagjöld rúmum 186,5 milljónum.
Aðrar rekstrartekjur námu 314 millj-
ónum króna og önnur rekstrargjöld
200 milljónum. Framlag í afskrift-
areikning útlána var 52,4 milljónir.
Stofnfé sparisjóðsins nam í árslok
þremur milljónum króna, sem skipt-
ist í 100 hluti í eigu 87 stofnfjáreig-
enda. Samþykktar voru á aðalfundi
félagsins í gærkvöld tillögur stjórnar
um að greiddur verði 15% arður til
stofnfjáreigenda og hann færður til
hækkunar á stofnfé. Auk þess að nýtt
verði heimild í lögum um sérstakt
endurmat stofnfjár og það hækkað
um 5%. Á árinu störfuðu 22 starfs-
menn hjá Sparisjóðnum í 21 stöðu-
gildi.
Mannlíf auðgað og miðbær
Akureyrar efldur
Í frétt frá Sparisjóði Norðlendinga
segir að félagið hafi um árabil stutt
dyggilega við ýmiss konar menning-
ar- og íþróttastarfsemi á svæðinu,
jafnt með styrkjum til félagasamtaka
og einstaklinga. „Á liðnu ári námu
slíkir styrkir ríflega sjö milljónum
króna. Frá 1998 hefur sparisjóðurinn
varið 40 milljónum króna í slíka
styrki. Markmiðið er að auðga og
bæta mannlíf á svæðinu á sem víð-
tækastan hátt.“
Samþykkt var á aðalfundi spari-
sjóðsins, sem haldinn var í gær, til-
laga þess efnis að stuðla að og taka
þátt í eflingu miðbæjarins á Ak-
ureyri. Sparisjóðurinn leggur fram
eina milljón króna á ári í þrjú ár í
sjóð til þess að lífga og efla miðbæinn
jafnframt því að hvetja önnur fyr-
irtæki og stofnanir á Akureyri til að
taka saman höndum og leita allra
leiða til að gera miðbæinn þannig að
allir geti verið stoltir af.
Stjórn og varastjórn Sparisjóðs
Norðlendinga voru endurkjörnar
samhljóða á aðalfundinum. Í að-
alstjórn voru kjörnir Jón Kr. Sólnes
formaður, Oddur Gunnarsson vara-
formaður, Guðmundur Víkingsson
ritari og meðstjórnendur eru Eiður
Gunnlaugsson og Klængur Stef-
ánsson.
Hagnaður Sparisjóðs
Norðlendinga 58 milljónir
Taka á þátt í að efla miðbæinn á Akureyri
og önnur fyrirtæki hvött til hins sama
Árshátíð Þórs | Íþróttafélagið Þór
á Akureyri heldur árshátíð annað
kvöld í félagsheimili sínu, Hamri.
Þar koma fram skemmtikraftarnir
Jóhannes Kristjánsson eftirherma
og Rögnvaldur gáfaði ásamt Hvann-
dalsbræðrum. Veislustjóri er Árni
Johnsen. „Forsala aðgöngumiða er í
verslun JMJ við Gránufélagsgötu.
Aðgangseyrir er aðeins 2.500 krón-
ur, matur innifalinn,“ segir í frétt frá
félaginu.
SMÁMUNASAFN Sverris Her-
mannssonar í Sólgarði í Eyjafjarð-
arsveit verður opið næstu daga,
verður opnað laugardaginn 3. apríl
og síðan opið almenningi til sýnis
um páskana og fram til 12. apríl
næstkomandi frá kl. 13 til 18, alla
daga.
Smámunasafnið var opnað í fé-
lagsheimilinu Sólgarði síðastliðið
sumar, en þar er að finna safn ým-
iss konar muna sem Sverrir Her-
mannsson húsasmíðameistari á
Akureyri og eiginkona hans Auður
Jónsdóttir höfðu afhent Eyjafjarð-
arsveit til eignar og varðveislu. Í
safninu er ótrúlegur fjöldi smá-
hluta sem Sverrir viðaði að sér á
langri starfsævi, en hann er þekkt-
astur fyrir endurbyggingu og við-
hald gamalla húsa. Verkfæri af
ýmsum toga eru fyrirferðarmikil í
safni hans, s.s. til trésmíða, járn-
smíða, raflagna og eldsmíði. Þá
eru íhlutir til húsbygginga einnig í
miklu úrvali í safninu og smáhlutir
af ólíklegasta uppruna og nota-
gildi.
Aðsókn að safninu varð langt
umfram það sem menn væntu á
liðnu sumri og vakti það eftirtekt
gesta. Nú hefur verið ákveðið að
koma til móts við óskir um að hafa
safnið opið nú um páskana, en Sól-
garður er við Eyjafjarðarbraut
vestri, um 25 km frá Akureyri.
Smámunasafn
Sverris Hermannssonar
í Sólgarði
Opið um
páskana
FRUMSÝNING á leikritinu
Eldað með Elvis eftir Lee
Hall verður í Samkomuhúsinu
á Akureyri í kvöld, föstudags-
kvöldið 2. apríl.
Verkið hefur verið sýnt fyr-
ir fullu húsi í Loftkastalanum
frá því um áramót og svo
virðist sem Akureyringar og
nærsveitamenn séu einnig
spenntir fyrir þessu verki því
uppselt er á þær fimm sýn-
ingar sem settar voru upp.
Því hefur verið bætt við auka-
sýningu á skírdag, fimmtu-
daginn 8. apríl kl. 16. Sala
miða á þá sýningu er þegar
hafin.
Höfundur verksins, Lee
Hall, verður viðstaddur sér-
staka hátíðarsýningu á verk-
inu 7. apríl næstkomandi.
Leikfélag Akureyrar hefur að
sögn Magnúsar Geirs Þórð-
arsonar leikhússtjóra keypt
rétt á öðru verki þessa vin-
sæla höfundar, „Spoonface
Steinberg“ og sagði hann að
það yrði að líkindum tekið til
sýningar á næsta leikári.
Leikarar í Eldað með Elvis
eru Steinn Ármann Magnús-
son, Friðrik Friðriksson,
Halldóra Björnsdóttir og Álf-
rún Örnólfsdóttir. Þýðandi er
Hallgrímur Helgason og leik-
stjóri Magnús Geir Þórðar-
son. Leikritið er samstarfs-
verkefni Menningarfélagsins
Eilífs og Leikfélags Akureyr-
ar.
Uppselt
á Elvis
VEÐRIÐ leikur við Akureyringa
þessa dagana og er ekki laust við
að kominn sé vorhugur í bæjarbúa.
Í gær fór hitinn í um og yfir 10
gráður og í dag er áfram spáð suð-
lægum áttum. Um helgina er gert
ráð fyrir heldur kólnandi veðri.
Mennirnir á myndinni voru hins
vegar að ganga frá túnþökum við
Hjalteyrargötu.Og þeir voru ekki í
neinum vafa um hvor hliðin ætti að
snúa upp, nefnilega sú græna.
Morgunblaðið/Kristján
Græna
hliðin upp