Morgunblaðið - 02.04.2004, Page 24

Morgunblaðið - 02.04.2004, Page 24
SUÐURNES 24 FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Reykjanesbær | Á aðalfundi Samfylking- arinnar í Reykjanesbæ var samþykkt álykun þar sem skorað er á ráðherra heil- brigðismála að efna til umræðna um framtíðarþróun heilbrigðis- og öldr- unarmála á Suðurnesjum í þeim tilgangi að skapa sátt um þann mikilvæga mála- flokk. Eysteinn Eyjólfsson var kjörinn for- maður Samfylkingarinnar í Reykanesbæ á aðalfundinum sem haldinn var 31. mars. Með honum í stjórn eru Vilhjálmur Skarphéðinsson, Stefán Ólafsson, Sigríður Lára Geirdal og Eðvarð Þór Eðvarðsson. Að loknum aðalfundarstörfum tóku við fjörugar umræður um bæjarmál og heil- brigðismál á Suðurnesjum og samþykkt álykun um heilbrigðismál. Þar er lýst áhyggjum yfir því ástandi sem skapast hefur í málefnum aldraðra sjúkra á Suð- urnesjum og vísað til þess að þeir hafi verið fluttir nauðungarflutningum í annað sveitarfélag. „Frá upphafi umræðna um D-álmuna var gert ráð fyrir því að hún vistaði aldr- aða sjúka. Samkvæmt síðustu upplýs- ingum má gera ráð fyrir sjötíu öldruðum á biðlistum fyrir vistun á dvalar- eða hjúkrunarstofnun, á sama tíma er D- álman ekki notuð í það sem hún var byggð fyrir. Eftir að stjórnir heilbrigðisstofnana voru lagðar niður með lagabreytingu hafa heimamenn enga aðkomu að ákvarð- anatöku um þá þjónustu sem veitt er. Forstjóri og þeir sérfræðingar sem með honum vinna hafa sitt umboð beint frá ráðuneyti heilbrigðismála. Enn alvarlegra er ástandið eftir að flestir starfsmenn í stjórnunarstöðum sem hér búa hafa látið af störfum og fólk sem ekki þekkir til að- stæðna heldur eitt um stjórnartaumana,“ segir meðal annars í ályktuninni. Lýsa áhyggjum af stöðu sjúkra aldraðra Reykjanesbær | Bæjarráð Reykjanesbæjar telur að frekari sameining sveitarfélaga á svæðinu geti orðið íbúum til framdráttar, einkum þó íbúum minni sveitarfé- laga. Samtök sveitarfélaga á Suð- urnesjum óskuðu eftir hug- myndum sveitarfélaganna um framtíðarskipan sveitarfélaga á svæðinu. Bæjarráð afgreiddi er- indið samhljóða með þessum hætti. Áður hafði bæjarstjórnin í Garði samþykkt samhljóða bókun þar sem fram kemur það álit að nú- verandi fyrirkomulag með fimm sveitarfélögum hafi reynst vel. Samþykkir sameiningu Svartsengi | Erla Magna Alexandersdóttir sýnir málverk um páskana og frameftir apríl í Hótel North Ligth Inn við Bláa lónið. Þetta eru verk frá sólarupprás til sól- arlags eða dimmum rigningardögum við haf- ið, eldur, ís og norðurljós, segir í frétta- tilkynningu frá listakonunni. Erla hefur verið í Myndlistaskóla Reykja- víkur um árabil og fengið leiðsögn hjá færum listamönnum hér heima. Auk þess hefur hún sótt tíma hjá Roberto Giobani í Flórens. Sýningin er öllum opin og eru verkin til sölu.    Málverkasýning haldin um páskana Keflavíkurflugvöllur | Flugþjón- ustan (IGS), dótturfyrirtæki Flugleiða á Keflavíkurflugvelli, hefur með samningi við Svæð- isvinnumiðlun Suðurnesja tekið að sér starfsþjálfun átta ein- staklinga sem nú eru á atvinnu- leysiskrá. Þjónusta við farþega sem þurfa sérstaka aðstoð, svo sem fatlaðir, börn og aldraðir, verður aukin í flugstöðinni og viðkomandi starfsmenn þjálfaðir sérstaklega til þeirra starfa. „Þetta er verkþáttur sem við höfum lengi ætlað okkur að end- urskoða og bæta, meðal annars með því að setja þjónustuna í sérstaka deild,“ segir Kjartan Már Kjartansson, starfsmanna- og gæðastjóri IGS. Starfsmenn í farþegaþjónustu fyrirtækisins sinna þessum störfum en með samstarfsverkefninu á meðal annars að kanna hvort betri ár- angur náist með því að sérstakir starfsmenn sinni þessu eingöngu og hvað þurfi mikinn starfskraft í verkið. Verkefnið nær yfir sex mán- uði. Fólkið fer í um það bil 70% starf hjá IGS. Fyrirtækið greiðir því laun en fær á móti sama hlutfall þeirra atvinnuleysisbóta sem viðkomandi hefðu haft að óbreyttu enda fer fólkið út af at- vinnuleysisskrá á meðan. Svæð- isvinnumiðlunin leitar nú að fólki sem uppfyllir þær kröfur sem IGS gerir til umsækjenda um þessi störf. Þær eru meðal annars góð tungumálakunnátta, hæfni í mannlegum samskiptum og gott líkamlegt ástand. Ketill Jósefsson, forstöðumað- ur Svæðisvinnumiðlunar Suð- urnesja, segir að markmiðið með þessu verkefni sé að koma fólk- inu aftur út í atvinnulífið en tek- ur fram að ekki sé hægt að ábyrgjast áframhaldandi störf. Kjartan segir að ef vekefnið skili tilætluðum árangri verði fram- hald á því. Þá þurfi IGS að ráða fólk til að sinna þeim áfram og fólkið sem fengið hafi starfs- þjálfunina standi þá væntanlega vel að vígi. Ketill segir að þótt ekki sé hægt að tryggja fólkinu að fram- hald verði á vinnu hjá IGS sé það strax til bóta fyrir fólkið að fá vinnu í þennan tíma og þá þjálfun sem hún feli í sér. Það gæti til dæmis örvað einhverja til að fara í nám eða gera eitt- hvað annað til að styrkja stöðu sína á vinnumarkaðnum. „Ég er ánægður með þetta samstarf við IGS, það er mjög jákvætt, og spennandi verður að sjá hvernig það þróast,“ segir Ketill. Fram kom í samtali við Kjart- an Má og Ketil að fyrirtæki á Suðurnesjum hafi ekki nýtt sér nógu vel þau vinnumarkaðs- úrræði sem Svæðisvinnumiðl- unin býður upp á, en þau felast meðal annars í sérverkefnum og starfsþjálfun. Hvetja þeir fyr- irtæki til að huga betur að þess- um möguleikum. Ketill segir al- gengt viðkvæði hjá stjórnendum lítilla fyrirtækja að þeir geti ekki bætt á sig meiri skrif- finnsku. Hann segir þetta mis- skilning því starfsfólk Svæð- isvinnumiðlunarinnar annist pappírsvinnuna sem fylgi því að framkvæma samstarfsverkefni af þessu tagi. IGS þróar aukna þjónustu við farþega sem þurfa aðstoð í flugstöð Átta atvinnulausir einstaklingar fá starfsþjálfun Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Samstarf: Kjartan Már Kjartansson frá Flugþjónustunni og Ketill Jós- efsson frá Svæðisvinnumiðlun Suðurnesja kynna samstarfssamning. BYGGING húðlækningastöðvar við Bláa lónið hefst fljótlega eftir páska. Gengið verður til samninga við Keflavíkurverktaka hf. sem áttu lægsta tilboð í verkið. Hraunsetrið ehf., sem verður eigandi mannvirkisins, bauð bygg- ingu hússins og frágang út á dögunum. Níu tilboð bárust, meðal annars frá öllum helstu verktökum landsins og verktökum á Suð- urnesjum. Lægsta tilboðið reyndist vera frá Keflavíkurverktök- um, 318 milljónir kr. Er það rétt undir kostnaðaráætlun verk- kaupa sem var 320 milljónir. Grindin hf. í Grindavík bauð 319 milljónir rúmar en önnur tilboð voru yfir kostnaðaráætlun, það hæsta 431 milljón. Bláa lónið mun reka meðferðarstöð fyrir húðsjúklinga í húsinu. Það verður rúmlega 2.000 fermetrar að flatarmáli og rís austan við heilsulindina við Bláa lónið. Við húsið verður sérstakt baðlón fyrir meðferðargesti. Auk aðstöðu til vísindarannsókna og meðferðar psoriasissjúklinga verður gistirými fyrir 30 meðferðargesti. Grímur Sæmundsen, framkvæmdastjóri Bláa lónsins, segir að gengið verði til samninga við Keflavíkurverktaka um framkvæmd- ina og við það miðað að vinna geti hafist fljótlega eftir páska. Stöð- in á að verða tilbúin til notkunar 2. apríl 2005. Þá á vinnu við bygg- inguna að vera lokið, jafnt innan sem utan, ásamt lóð, aðkomu, bílastæðum og baðlóni. Bygging húðlækningastöðvar við Bláa lónið hefst fljótlega eftir páska Keflavíkurverktakar lægstir með 318 milljóna króna tilboð Í hrauninum: Sérstakt baðlón fyrir meðferðargesti flæðir inn í húsið, eins og sést á teikningunni. Lögð er áhersla á að byggingin falli vel að umhverfi sínu.                !" # $ %&"" ' (# $ $%%& )*+ ), )-)*+ ), )./                                  !                  "#$ %%"&          ' ( )     *  ++    ( )  ,) -               )/ 01 23 0 4 56 7/8 9 :; <    ATVINNA mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.