Morgunblaðið - 02.04.2004, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 02.04.2004, Blaðsíða 26
Vopnfirskir framtíðarleikarar Vopnafjörður | Árshátíð Grunnskóla Vopnafjarðar var haldin á dög- unum og margir efnilegir nem- endur stigu á svið og komu fram með leik og söng. Það er gaman að sjá hversu margir nemendur eru hæfi- leikaríkir og geta tjáð sig svo fag- mannlega. Fyrstubekkingar sungu og dönsuðu en krakkar í 9. og 10. bekk voru með sameiginlegt atriði. Þau settu söngleikinn Grease á svið og var það alveg magnað atriði. Þau Theodóra Baldursdóttir og Steingrímur Páll Þórðarson fóru með aðalhlutverkin og ekki annað að sjá en þarna væru framtíðarleik- arar á ferð. Morgunblaðið/Jón Sigurðarson Fyrstubekkingar í Vopnafjarðarskóla sungu og dönsuðu línudans á árshá- tíð skólans: Þessir litlu kúrekar heita María Ósk og Þorbjörg. AUSTURLAND 26 FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Egilsstaðir | Opna á sérstakt menn- ingarhús á Egilsstöðum fyrir ungt fólk. Undirritaður hefur verið samningur milli sveitarfélagsins Austur-Héraðs og Héraðs- og Borg- arfjarðardeildar Rauða kross Ís- lands um rekstur hússins til tveggja ára. Leggur hvor aðili um sig fram þrjár milljónir króna árlega, en að auki er gert ráð fyrir allt að 12 milljóna króna stofnkostnaði. RKÍ deildin mun annast nauðsynlegar endurbætur á húsnæðinu, kaup á innréttingum og tækjum, en Aust- ur-Hérað annast starfsmannahald og rekstur hússin. Leita á að fleiri aðilum til að koma fjárhagslega að rekstri menningarhússins. Menningarhúsið verður að Lyngási 5 á Egilsstöðum og er áætlað að unga fólkið sem nota mun húsið sjái um að skipuleggja aðstöðuna innan dyra. Þarna á fólk á milli 16 og 25 ára að geta unnið að margskonar hugð- arefnum og upplýsingagjöf um hvaðeina verður í öndvegi. Gert er ráð fyrir að húsið verði opið fjóra til fimm daga í viku hverri og verður það ávana- og fíkniefnalaust með öllu. Auglýsa á eftir forstöðumanni og er stefnt að opnun hússins fljótlega. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Undirrituðu samning um ungmennahús: Eiríkur Bj. Björgvinsson, bæjarstjóri Austur-Héraðs, og Júlía Siglaugs- dóttir, formaður Héraðs- og Borgarfjarðardeildar Rauða krossins, ásamt fulltrúum frá RÍ og Austur-Héraði. Menningarhús fyrir unga fólkið Kárahnjúkavirkjun | Gangagerð í Kárahnjúkavirkjun gengur nokkurn veginn samkvæmt áætlun. Aðkomu- göng í Fljótsdal eru að ná kílómetra í lengd og er að ljúka. Segir á vef virkjunarinnar að komið hafi verið að svokölluðum gangamótum fyrir helgina og hafi þá stefnan verið tekin á þann stað í fjallinu þar sem byrjað verður að sprengja hellahvelfingu fyrir stöðvarhús og annan búnað virkjunarinnar. Framvinda í borun strengjaganga í Fljótsdalnum hefur verið í hægara lagi þar sem mikið hefur þurft að styrkja bergið. Bryður bergið eftir páska Gangaborvélin stóra í aðgöngum þrjú í Glúmsstaðadal er komin alveg inn að gangastafninum og er nú unn- ið að því að tengja við borinn ein- ingar sem fylgja honum eftir, svo sem verkstæði, kaffistofu, grjót- mulningsfæribönd o.fl. Verið er að flytja aðra gangaborvélina af þrem- ur frá höfninni á Reyðarfirði og upp að aðgöngum 2 við Axará, þar sem hún verður sett saman í skemmu og gerð klár til borunar á næstu mán- uðum. Þriðja og síðasta gangabor- vélin er væntanleg til landsins um miðjan mánuðinn. Byrjað verður að bora aðveitugöngin frá aðkomu- göngum 3 eftir páska. Ekkert hefur verið unnið undan- farna daga við stíflufyllingar í Hafra- hvammagljúfrinu en tæplega 29 þús- und rúmmetrar af efni hafa bæst við stífluna á vesturbakkanum. Stefnan sett á hellahvelfinguna Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Gangaborvél gerð klár í göngin: Virkjunarmenn unnu allan sólarhringinn við að koma bornum inn að stafni á Adit 3 og byrja að bora eftir páska. V. Fellsmúla • S. 588 7332 Opi›: Mán. - föst. 9-18, laugardaga 10-14 www.i-t.is Skúffuforstykki kr. 300,- Skápahur›ir kr. 700,- Háar skápahur›ir kr. 1.500,- w w w .d es ig n. is @ 2 00 4 R‡mingarsala vegna flutninga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.