Morgunblaðið - 02.04.2004, Síða 28

Morgunblaðið - 02.04.2004, Síða 28
LANDIÐ 28 FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hvammstangi | Söngvarakeppni Húna- þings vestra var haldin í Félagsheimili Hvammstanga, laugardaginn 27. mars. Komin er hefð fyrir þessari keppni, en skipulag og undirbúningur er að frumkvæði tveggja einstaklinga, Helgu Hinriksdóttur og Páls S. Björnssonar, í samstarfi við hún- vetnsku hljómsveitina Kasmír og Þinghús- bar. Er ljóst að keppni þessi er orðin einn af stærri viðburðum í héraðinu og var húsfyllir á skemmtuninni. Nú var þemað tíundi ára- tugurinn. Alls tóku þátt um þrjátíu keppendur og fluttu þeir sautján lög. Sigurvegari var Hjalti Júlíusson með lagið „White Wedd- ing“. Sviðsframkoma hans þótti framúr- skarandi og söngur mjög góður, auk þess sem fataval Hjalta þótti henta mjög vel bæði áratug og lagavali. Viðurkenningu fyrir sviðsframkomu hlaut kvennasveitin Prjónó, en hópur sá lagði mikið í bæði búninga og æfingar. Fluttu þær lagið „Fame“. Sigurður Grétar Sigurðsson, sem vann keppnina í fyrra, var gestasöngvari, og flutti eitt lag sem titilhafi. Að lokinni söngvarakeppninni var dansað fram eftir nóttu við tónlist hljómsveitarinn- ar Kasmír. Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson Sigurvegarinn Hjalti Júlíusson. Menningar- leg söngv- arakeppni Höfn | Nú er verið að leggja lokahönd á fjár- mögnun kvikmyndar sem til stendur að taka að stórum hluta í Austur-Skaftafellssýslu á þessu ári. Myndin byggir á Bjólfskviðu, sem er mjög þekkt saga í hinum enskumælandi heimi, ekkert ósvipað Njálu hér á landi. Bjólfskviða er ævintýri um konunga, hetjur, forynjur og tröll og er því sannkallað ævintýri. Ævintýramyndir eiga mjög upp á pallborðið hjá kvikmyndahúsagestum um þessar mundir. Myndirnar um Hringadróttinssögu hafa fyllt bíósali um allan heim og Harry Potter er vin- sæll hjá öllum aldurshópum. Það má því segja að ævintýramynd, tekin upp á Íslandi, sé á hárréttum tíma. Handritið hefur þegar verið skrifað og leik- stjóri myndarinnar verður Sturla Gunnarsson en hann er Íslendingur, búsettur í Kanada. Sturla er þekktur leikstjóri vestra og hefur m.a. gert mynd sem tilnefnd hefur verið til Óskarsverðlauna. Góður fjárfestingarkostur Myndin kostar um 800 milljónir króna og þegar er búið að tryggja langstærsta hluta fjárins eða 750 milljónir króna og er nú unnið að því að útvega það sem upp á vantar eða 50 milljónir. Margir hafa áhuga á að af þessu geti orðið, bæði opinberir aðilar og aðrir. Jafn- framt hafa aðilar á Hornafirði sýnt áhuga á að leggja málinu lið og er Ari Þorsteinsson fram- kvæmdastjóri Frumkvöðlaseturs Austurlands að vinna að því að fá heimamenn til að leggja til fjármagn í þetta verkefni í formi hlutafjár. Hann segir ljóst að um mikla hagsmuni sé að ræða fyrir héraðið og mikilvægt að af verk- efninu verði. Það er sú staðreynd að þriðj- ungur kostnaðar eða um 260 milljónir króna verða eftir hér á landi sem heillar. Einnig er arðsemi fjárfestingarinnar sögð góð því eins og fyrr segir eru myndir á borð við þessa vin- sælar um þessar mundir. Jákvæð áhrif á ferðamennskuna „Friðrik Þór Friðriksson, einn framleiðenda myndarinnar, hefur bent á að túrisminn í Skotlandi hafi aukist um 700% í kjölfar sýn- ingar á kvikmynd Mel Gibsons, Braveheart, sem gerð var fyrir um áratug. Það geta því verið mikil og margvísleg langtímaáhrif af verkefni sem þessu. Menn í svipuðum störfum og ég á Norðurlöndum hafa orð á því við mig að það sé einsdæmi í heiminum hversu mikið af verkefnum á sviði kvikmynda- og auglýs- ingagerðar hafi verið unnin hér við rætur Vatnajökuls undanfarin ár. Með því að taka þátt í þessu verkefni nú eru menn að taka beinan þátt í að byggja um þessa atvinnu- starfsemi og bæta þjónustu við þá aðila sem hugsanlega eiga eftir að koma hingað með hliðstæð verkefni,“ segir Ari. Reisa víkingaþorp í Lóni Það er svæðið í mynni Endalausadals í Lóni sem helst þykir koma til greina sem töku- staður fyrir myndina. Gert er ráð fyrir að hefja smíði leikmyndar í byrjun júní og verður reist heilt víkingaþorp. Áætlað er að tökur hefjist í endaðan júlí og standi yfir í 10 vikur. Þetta er því umfangsmeira verkefni en þeg- ar James Bond spókaði sig fyrir framan töku- vélarnar á Jökulsárlóni veturinn 2001. Fyr- irhugað er að einn af framleiðendum myndarinnar kynni verkefnið fyrir heima- mönnum um helgina. Ævintýramynd líklega tekin í Endalausadal í Lóni Morgunblaðið/Sigurður Mar Vinsæll vettvangur: Mikið hefur verið um kvikmynda- og auglýsingaverkefni í Austur-Skafta- fellssýslu síðustu ár. Myndin er tekin er verið var að taka atriði í kvikmyndina Virus au Paradis. Fjármögnun að ljúka vegna kvikmyndar sem byggist á Bjólfskviðu Bolungarvík | Yfir 80 manns tóku þátt í nám- skeiði í stafgöngu sem fram fór í Bolungarvík um sl. helgi þátttakendur í námskeiðinu voru frá Bolungarvík og nágrannabyggðarlögum. Heilsubæjarnefndin í Bolungarvík stóð fyrir námskeiðinu og kom þessi mikla þátttaka nefndarmönnum þægilega á óvart. Leiðbeinandi á námskeiðinu var Ásdís Sig- urðardóttir íþróttakennari sem hefur réttindi til að þjálfa almenning og kenna á leiðbeinenda- námskeiðum fyrir þjálfara í stafgöngu. Ásdís hefur að undanförnu verið á faraldsfæti til að kynna þessa tegund heilsuræktar á vegum ÍSÍ. Stafganga á rætur sínar að rekja til Finn- lands þar sem þjálfarar gönguskíðamanna létu kappana arka um með stafina sumarlangt eftir að snjór hvarf, til að halda efri hluta líkamans í þjálfun. Rannsóknir hafa leitt í ljós að brennsl- an er 20% meiri í stafgöngu en í venjulegri göngu og stafgangan styrkir líkamann 40% meira en venjuleg ganga. Þessi tegund hreyfingar er nú stunduð af milljónum manna og kvenna um allan heim og hentar jafnt ungum sem öldnum, hjartasjúk- lingum og keppnisfólki. Sigrún Gerða Gísla- dóttir, hjúkrunarfræðingur og forsvarsmaður heilsubæjarverkefnisins í Bolungarvík, segir að þessi mikla þátttaka á námskeiðinu gefi tilefni til að huga að öðru námskeiði þar sem ekki hafi allir sem vildu komist að auk þess veki þessi tegund hreyfingar mikla athygli. Þátttakendur voru sammála um að það hefði komið þeim skemmtilega á óvart hversu vel þessi hreyfing verkar á allan líkamann og hversu auðvelt er að stunda hana þegar menn hafa lært undirstöðuatriðin. Morgunblaðið/Gunnar Hallsson Stafganga: Áhugasamir þátttakendur í námskeiðinu fá fræðslu áður en lagt er upp í gönguna. Stafgangan sló í gegn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.